Þjóðviljinn - 16.06.1954, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 16.06.1954, Blaðsíða 6
6) — ÞJÖÐVTLJINN — Miðvikudagur 16. júní 1954 þlÓOVIUINN Otgrfandl: Samelnlngarfloklcur alþýBu — 86sIaIlstafIokkurlni*. Rttstjórar: Magnós Kjartansaon (6b.), SlgurSur GuSmundssoa. Fréttastjóri: Jón Bjarnason. BlaSamenn: Aamundur Sigurjónssor., ájarnl Benediktason. GuO- mundur Vigfúsaon, Magnús Torfl ólafsson. ituglýslngastjórl: Jónsteinn Haraldsson. Rítstjórn, afgreiSsla, auglýsingar, prentsmlSja: SkólavörSustlg 1». — Sími 7600 (3 línur). AskrtftarverS kr. 20 & mánuði í Reykjavik og nágrennl; kr. 17 aunars staSar á landinu. — LausasöIuverS 1 kr. elntakiO. PrentsmiOJa ÞjóSviljans b.L Lýðveldisgjöf sósíalista Nú eru aoeins eftir tveir dagar af söfnuninni í Sigfúsar- sióð: 16. og 17. júní. Þetta eru minningardagar eins bezta atburðar sem gerzt hefur í sögu íslenzku þjóðarinnar, lýðveldisstofnunarinnar 1944. Og þetta er engin tilvilj- un: söfnunarnefndin taldi fara vel á því að þessu mikla átaki yrði lokið á tíu ára afmæli lýðveldisins. Því þessir dagar eru ekki aðeins minningardagar; þeir eru jafnframt cg í miklu ríkara mæli helgaðir hinni nýju sjálfstæðis- baráttu, þeir eru eggjun og hvöt að reka erlendan her öf- ugan úr landi okkar svo að við ráðum því aftur ein og friáls. í baráttunni gegn bandarískri kúgun hefur Sósíalista- flokkurinn einn staðið óbugaður frá upphafi, skipulagt vöm þjóðarinnar og sókn. Þegar moldviðri bandaríska á- lóðursins var svartast stóð Sósíalistaflokkurinn einn; aðrir voru skriðnir í skjól. En þessi einbeitta barátta hef- ur nú þegar borið árangur, moldviðrinu er að létta, fleiri og fleiri koma nú opinberlega fram í hinni nýju sjálfstæð- isbaráttu, hernámsfylkingin er að riðlast. Stjórnarfíokk- amir eru meira að segja komnir í hár saman út af her- náminu, og það er nú talið líklegast til vinsælda að loka hina erlendu menn inni í girðingu! Hernámsöflin eru á hröðu undanhaldi, og nú þarf að reka flóttann þar til luilur sigur er unninn. Það verður aðeins gert með því að efla Sósíalistaflokkinn, eina flokkinn sem aldrei hefur brugðizt hvað sem á heíur dunið og mun standast hverja raun sem framundan kann að bíða. Þess vegna eru húskaupin við Tjarnargötu 20 mikil- vægur þáttur í sjálfstæðisbaráttunni. Með þeim eignast hin^sósíalistíslca starfsemi á íslandi mjög góðan fram- tíöarsamastað og aðstöðu til aukinna athafna, en fyrsta boðorð íslenzkra sósíalista er að hrekja herinn úr landi og tryggja þjóðinni óskorað sjálfstæði á nýjan leik. Með söfnuninni í Sigfúsarsjcð er verið að færa íslenzka lýð- veldinu afmælisgjöf sem mikil gifta mun fylgja. Enda hefur verið gengið að þessu verkefni af meira þrótti en nokkru öðru í sögu Sósíalistaflokksins. Flokk- urinn hefur oft þurft að leita til íslenzkrar alþýöu um fjárframlög og undirtektir hafa alltaf oröið góðar. Þó hefur ekki verið gengið að nokkru öðru starfi með eins mikilli bjartsýni og baráttuhug. Allt frá fyrsta degi tóku myndarlegar peningaupphæðir að streyma að daglega; fólk tók af sparifé sem það hafði safnað árum saman, aðrir gerðu áætlanir um hvemig þeir gætu sparað við sig næstu mánuði — og langflest hafa framlögin verið svo rausnarleg að um þau hefur munað í daglegu lífi gefand- anna, en sá hugur sem fylgir slíkum gjöfum er giftuboði. í dag vantar okkur aðeins herzlumuninn. Hann er að vísu nokkuð stór en þó ekki meiri en svo að hann er í sam- ræmi við allan gang söfnunarinnar. Á morgun — 17. júní. á tíu ára afmæli lýðveldisins — þurfum við aö geta slcýrt frá því hér í blaðinu að markinu verði örugglega náð. Vinnum öll að því í dag. Hvernig eru reglurnar? Þióðviljinn hefur nú margsinnis skorað á dr. Kristin Guðmundsson utanríkisráðherra að birta reglur þær sem settar hafa verið um sambúð Bandaríkjamanna þeirra sem frámvegis eiga að dveljast innan girðingar og íslend- jnganna utan girðingar. Áskoranir þessar hafa þó ekki borið neinn árangur enn. Þetta er þeim mun furðulegra sem Tíminn telur á hverjum degi að reglur þessar séu miög mikill sigur fyrir hinn íslenzka málstað og þaö er ólíkt Framsóknarmönnum að láta sigra sína liggja í lág- inni. Sé ætlazt til að reglurnar verði haldnar er etnnig mjög napðsynlegt að almenningur þekki þær; aðeins með sliku móti. fæst nauösynlegt affliald. En utanríkisráðherrann þegir sem sagt af öllum kröft- nn, og fólk verður þess ekki vart að nokkurt lát hafi orðið á herferðum útlendinganna til Reykjavíkur og ann- arra stað?.. Því heldur almenningur áfram að spyrja: hveriar eru reglumar? Og það er jafngott fyrir ráðherr- ann að svara strax, því það verður haldið áfram að krefja hann svars þar tiL niðurstaða er fengin . §kAkin Framhald af 1. síðu. um báðum með lönpu lófaklappi, en það er heldur óvenjulegt í skáksal. Nú eru koninar tó'f um- ferðir, rúmur þriðjungur móts- ins eftir, Friðrik er í þriðja sæti, en mjótt er á munum ogr ýmsir af erfiðustu andstæðing- unum eftir, svo að of snemmt er að spá um úrslít. Hér fer á eftir skákin við Cio- catea. KÓNGSINDVERSK VÖBN Fj-iðrik — Ciocaltea 1 d2—<14 Bg8—f6 2 cZ—e4 £7—E6 3 B»—E3 Bf8—g7 4 Bfl—g2 0—0 5 Bbl—c3 d7—d6 6 Bgl—f3 Rb8—d7 7 0—0 e7—e5 8 e2—e4 e5xd4 9 Bf3xd4 Bd7—c5 10 h2—h3 Hf8—eS 11 Hfl—el a7—a5 12 Ddl—c2 c7—c6 13 Bcl—eS a5—»4 14 Hal—dl Rf6—d7 15 f2—f4 Dd8—a5 Taf'byrjunin er gama’kunn, en menn eru ekki á eitt sáttir um hvor betur standi að vigi. Peðið á d6 er hjálparþurfi, en að öðru leyti stendur svartur vel að vigi. I fiægri skák fiá mótinu i Zur- ich, þar sem Bronstein. hafði svart gegn Reshcvsky, kom upp áþekk staða, en Bronstein náði smám saman jdirhöndinni með þvi að leika a4—a3, Rc5—aJo—b4 og Rd7—c5. Ciocaltea velUr aðra leið er hefur þann ókost að svarta drottningin á litið svig- rúm. Innilegar þakkir til ykkar allra, sem sendu mér árnaðaróskir og sæmdu mig gjöfum á fimmtugs- afmæli mínu. Björn Icnsson Hljómleikar Josephine Baker í Auslnrbæjarbíói laugard. 19. júní, punnud. 20. júní og mánud. 21. júní klukkan 7.15 og 11.15 . Hljómsveit Carls Billich leiknr. K.vnnir Ilaralfhir Á Sigurðsson. Aðgöngumiðasaia að öllum 6 hljómleikunum hefst í dag og verða miðarnir seldir í Bókabúð Lárusar Blöndals og Hljóðfæraverzlun Sigríðar Helgadóttur. TIV0U 16 Be3—f2 Rd7—b6 17 Bg2—fi Daö—b4 18 a2—a3 Db4—að 19 Rc3—bl Bc8—d7 20 Bd4—fS ---- Nú er peðið á d6 í uppnámi og ekki þægilegt að valda það. 20 ---- Í7—f5 Á þennan hátt bjargar svartur peðinu, en tafl.itaðan opnast nokkuð, hvítum í hag. 21 e4—e5 d6xe5 22 Bf3.ve-5 Bg7xe5 Svartur !ætur sinn góða biskup, því að riddarinn stendur ógn- andi, og auk þess gerir hann ráð fyrir að hvítur eigi erfitt með að ha’da kóngspeðinu. 23 f4xe5 Rcð—-e4 24 Bf2—d4---------- Hann hefur engar áhyggjur af peðinu á g3: 24 —Rxg3? 25 Df2 Re4 26 Hxe4 fxe 27 Bxb6 og bæði biskup svarts og drottning standa í uppnámi! 24 ---- e6—c5 25 Bd4—c3 Dað—aG ABCDEFGH Lik’ega hefur svartur ekki verið að ráði óánægður með stöðu sina. Hann undirbýr Be6 og Rxc4 og er þá drottningin komin í lelk- inn aftur. En það er Friðrik sem á leikinn... . 28 Helxe4! f5xe4 27 Bbl—d2 Bd"—fð Valdar peðið og hótar jafnvel e4 —e3. Láklega var meiri vörn í Bc6, en sóknarfæri hvíís eru af- ar hættuleg eftir þann leik líka 2S g3—g4! HaR—d8 28 —e3 29 gxf exd 30 fxg6 er ansi von itið lika. 29 g4xf5 g6xf5 30 Rd2xe4! fBxei 31 e5—eG'. ----- Hverí reiðars’agið rekur annað, síðasta hótunin er Dg2t og mát í næsta leik. 31 ----Hd8—d4 32 Hdlxd4! c5xd4 33 Dc2—g2f Kg8—f8 34 BoS—b4+----------- og svartur gafst upp, enda er hann aVeg vamar’aus. 'Þetta er fa'legur sigur gegn tafl- Ilátíöahöldin í Haínaifir&i 17. júní Dagskrá: Kl. 1: Fólk safnast saman við ráðhúsið. Lúðra- sveit Hafnafjaröar leikur undir stjórn Alberts Klahn. Fánaberar og allir, sem þátt taka í skrúðgöngunni, mæti þá. Kl. 1.30: Skrúðgarígan leggur af stað til Hörðuvalla, Kl. 2: Hátíðahöldin á Hörðuvöllum hefjast: 1. Hátíðin sett: Stefán Gunnlaugsson bæjarstjóri 2. Ávarp Fjallkonunnar. Kvæði eftir F. Arndal (Frú Ester Kláusdóttir). 3. Ræða: Séra Óskar Þorláksson dóm- kirkjuprestur. 4. Einsöngur: Guömundur Jónsson óperusöngvari. 5. Minning lýðveldisstofnunarinnar 1944. Samfelld dagskrá: Frásögn, upplestur, söngur og hljóðfærasláttur, (Karlakór inn Þrestir, söngstj. Jón ísleifsson, (Þjóðkirkjukórinn, söngstj. Páll Kr. Pálsson, Lúörasveit Hafnarfjarðar). 6. Leikfimi karla: Ernir undir stjórn Guðjóns Sigurjónssonar. 7. Handknattleikur karla F.H. 2. fl. og úrval úr Reykjavík. 8. Stutt skemmtiatriði, einkum fyrir börn: Skátar. Leikið og sungið milli atriða. Kl. 9: Dans á Strandgötunni. Hljómsveit M. Randrups. Gestur Þorgrímsson skemmtir. Leikþáttur: Leikfélag Hafnarfjarðar. Dægurlagasöngvararnir Sigrún Jónsdótt- ir og Erling Ágiistsson syngja öðru hverju allt kvöldið. Hátíðarnefndin. meistara scm sjálfur hcfur það þennan unpa op efnilega rúm- orð á sér, að hann sé sujall i enska taf meistara af snotun i leikflettum. Lesendur skákdálks- ekák eftir hann, er blrt var hér ins munu einmitt, kannast við fyrir fáuns mánuðum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.