Þjóðviljinn - 16.06.1954, Qupperneq 12
Saitmmgm’ imdirrltczðlr í gær í
dellnsiitl mti sild veiðikj örm
:iærri hlnt þegar skipin liafa náð vissu
- Kauptrygging liækkar í 1941 kr. á mán.
Sjómenn f
aflamagni
í gasr kl. 5 voru undirritaðir nýir samningar um
kaup og kjör á síldveiðum á komandi sumri. Hafði
þá samningafundur staðið yfir óslitið frá kl. 9 í
íyrramálið fyrir milligöngu sáttasemjara, Torfa
Hjartarsonar.
Sjómannafélögin náðu fram verulegum kjarabót-
um. Hækkar hlutur skipverja meir en áður var, þeg-
ar komið er yfir visst aflamagn. Þá náðist fram nokk-
ur hækkun á kauptryggingunni.
Að samningnum standa öll Gildir tii 1 árs
sjómannafélögin nema Jötunn
í Vestmannaeyjum og félögin
á Vestfjörðum. Verkfall hafði
verið boðað frá og með nk.
þriðjudegi, en því hefur nú ver-
ið aflýst þar e5 samningar hafa
tekizt milli aðila.
Hlutur sjómanna hækkar
Eins og fyrr segir hækkar
hlutur sjómanna þegar skipin
hafa náð vissu aflamagni- Á
skipum 70 smálesta og minni,
sem fiskað hafa fyrir 350 þús.
kr. hækkar hlutur sjómanna
’úr 38,55% af brúttóafla í
40,5% eða 2,7% á mann. Á
70-100 smál. skipum, sem fisk-
að hafa fyrir 430 þús. kr.
hækkar hlutur skipverja úr
37,28% eða 2,33% á mann í
38,8% ec-a 2,43% á mann af
því sem fram yfir er lágmapk-
ið. Hlutur skipverja á öðrum
skipastærðum hækkar í svip-
uðu hlutfalli.
Hækkun á tryggingu —
Ákvæði um tryggingatíinabil
Kauptrygging háseta hækk-
ar samkvæmt samningnum úr
1830 kr. á mánuði (grunn-
trygging) í 1941 kr. á mánuði-
Tryggingatímabil hjá þeim bát-
iim, sem stunda reknetaveiðar
við Suðurland yfir sumarið
Skal teljast frá skrásetningar-
degi til 30. sept. Sé þá haldið
áfram síldveiðum hefst nýtt
tryggingatímabil. Áður var
allur veiðitiminn talinn eitt og
sama tryggingatímabil.
Þá er nýtt ákvæði í samn-
ingnum um það, að séu rek-
netaveiðar við Suðurland stund-
aðar yfir hásumarið (júní-ág.)
skuli skipverjum tryggt að
þeir eigi annari hvern sunnudag
í landi.
Frítt fæði matsveins
Enn er það nýmæli í samn-
ángnum, að fari fæðiskostnaður
ekki fram úr 750 kr. á mánuði
skal 1. matsveinn hafa frítt
fæði. Verði fæðiskostnaður
hærri en þó ekki yfir 850 kr.
á mánuði skal 1. matsveinn
hafa hálft fæði frítt.
Gildistími samningsins er frá
undirskriftardegi til 1. júní
1955 og framlengist hann um
1 ár í senn sé honum ekki sagt
upp með 2ja mánaða fyrirvara
af öðrum hvorum aðila-
Samninganefnd sjómanna
Eins og fyrr segir standa
að samningnum öll sjómanna-
félögin utan Vestmannaeyja og
Vestfjarða. I samninganefnd
sjómanna áttu þessir menn
sæti: Jón Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri ASl, Lórenz Hall-
dórsson frá Sjómannafélagi
Akureyrar, Krstján Eyfjörð
og Pétur Óskarsson frá Sjó-
mannafélagi Hafnarfj., Sigfús
Bjarnason frá Sjómannafélagi
Reykjavíkur, Ólafur Björnsson
frá Verklýðs- og sjómannafé-
lagi Keflavíkur, og Magnús
Guðmundsson frá Fiskimat-
sveinadeild Sambands mat-
reiðslu- og framreiðslumanna.
Átta ísleuzkar konur í briggja vikna
kynnisíör m Sovétríkin
Kveimasamband Sovétiíkjanna býður
Menningar- og Iriðarsamtökum
íslenzkra isvenna
Með Gullfaxa fór héðan í morgun kvennasendinefnd á-
leiðis til Moskvu. Það er Kvennasamband Ráðstjórnar-
ríkjanna sem býður Menningar- og friðarsamtökum ís-
lenzkra kvenna að senda átta konur í þriggja vikna kynn-
isför um Sovétríkin.
Þessar konur hafa þegið boð-
ið:
Frú Sigríður Eiríksdóttir,
formaður Hjúkrunarkvennafé-
lags Islands, en hún er formað-
ur nefndarinnar.
Frú María Þorsteinsdóttir,
varaformaður Menningar- og
friðarsamtaka íslenzkra kvenna.
Frk. Rannveig Tómasdóttir,
starfsmaður hjá Hagstofunni.
Frú Elínborg Pálsdóttir, frá
kvenfélaginu Tíbrá í Höfn í
Hornafirði-
Frú Ásta Ölafsdóttir, for-
maður verkakvennafélagsins
Brynju á Siglufirði.
Frk. Þórhildur Ólafsdóttir,
11 leigubílstjórar
kærðir fyrir
leynivínsölu
Undanfarna daga hefur lög-
reglan í Peykjavik unnið nokk-
uð að því að afla sannana fyrir
leynivínsölu bifreiðastjóra.
Verða kærur á hendur 11 leigu-
bílstjórum hér í bantim sendar
til sakadómara í dag til frekari
rannsóknar.
Verið allsgáð 17. júní
Um hverja helgi undanfarið
hefur verið mikið um ölvun á
almannafæri hér í bænum, —
svo ekjki sé minnzt á ölvunar-
söfnuðírin er flykktist til
Þingvalla.
Þjóðhátíftardagurinn, 17.
júní, J0 ára afmælisdagur
lýðveldisins er á morgun. Yf-
irleitt hefur framkoma manna
við hátíðahöldin 17. júní ver-
ið til sóma, en því miður hef-
ur nokktfð borið á því undan-
farin ár, þegar líða hefur tek-
ið á kvöld 17. júní, að ölvað-
ir menn hafa orðið til leið-
inda.
I»að eru eindregin tilmæli
þjóðhátíðarnefndar til allra
að gæta þess að setja ekki
leiðindablæ á bátiðahöldin á
morgun með ölvun á al-
mannafæri. Ern allir hvattir
til þess að verða við þessari
áskorun.
forstöðukona barnaheimilisins
Laufásborg.
Frú Ásta Bjarnadóttir, gjald-
keri Menningar- og friðarsam-
taka íslenzkra kvenna.
Frú Halldóra Guðmundsdótt-
ir, formaður Nótar, sveinafé
lags netagerðarmanna.
(Frá Menningar- og friðar-
samtökum íslenzkra kvenna).
Miðvikudagur 16. júní 1954 — 19. árgangur -—• 131. tölublað
Stúdentar kref jast þess að her-
námsliðið hverfi úr landi
Myndarlegt stúdentablað, helgað 10 ára
afmæli lýðveldisins, kemur út í dag
„Stúdentar telja, að segja beri upp herverndarsamn-
ingnum svo fljótt sem unnt er og hinn erlendi her þá !át-
inn hverfa úr landinu. Telja stúdentar hér um brýnt sjálf-
stæðismál allrar þjóðarinnar að ræða og vilja því í dag
hvetja þjóðina til einingar í því máli“.
Með þessum orðum lýkur á-
varpi frá stiidentaráði Háskóla
Islands, sem birt er á fyrstu
síðu Stúdentablaðsins er kem-
:STUDEN1ÁBMÐ-
u-Ávr. 17. JÚ-iSií 19 5-i t-m-v
ur út í dag og helgað er 10
ára afmæli lýðveldisins. — Er
blaðið vel úr garði gert, og í
höfuðatriðum til mikils sóma.
Þessar greinar eni helztar
í blaðinu:
Ólafur Lárusson prófessor:
1 afturelding, grein um loka-
áfanga sjálfstæðisbaráttunnar
fyrir 1944. Björn Hermannsson
formaður stúdentaráðs: Hug-
leiðingar á 10 ára afmæli lýð
veldisins. Þorkell Jóhannesson
prófessor: Jón Sigurðsson. Öl-
afur ITansson sagnfræðingur:
íslenzk frœði 1911-1954
Háskóli íslands opnar békasýningu með þessu
naini í Þjóðminjasainshúsinu í dag
„íslenzk fræði 1911—1954“ nefnist bókasýning, sem
cpnuð verður í dag í húsi Þjóðminjasafnsins og haldin er
að tilhlutan Háskóla íslands í tilefni af 10 ára afmæli
hins íslenzka lýðveldis.
Á sýningu þessari eru liðlega
1000 bindi og þar að auki nokk-
ur hundruð sérprentaðra rit-
gerða eftir íslenzka höfunda.
Sýningunni er ætlað að gefa yf-
irlit um þróun íslenzkra fræða
síðan 1911, er Háskólinn var
stofnaður, til þessa dags og sýna
öll helztu rit íslendinga um ís-
lenzk fræði á þessu tímaþili.
Sýningin nær ekki aðeins til
þeirra fræðimanna íslenzkra, er
starfað hafa við Háskólann á
tímabilinu, heldur einnig til
allra ísl. fræðimanna heima og
crlendis, er á sama tíma hafa
lagt hönd á pióg og stuðlað að
því að skipa íslenzkum fræðum
þann sess, er þau nú eiga í vit-
und þjóðarinnar.
Fyrirferðamesti flokkurinn á
sýningunni f.iallar um sagnfræði
og sk.vld efni. Af sagníræðileg-
um ritum eru sýnd 270—280
bindi; við bætast svo manntöl og
ættfræðirit, alls um 50 bindi og
ævisögur af ýmsum gerðum, um
110 bindi alls.
Einn flokkurinn á sýningunni
fjallar um íslenzka málfræði og
eru þar um 80 sjálfstæðar bæk-
ur og margar sérprentanir. Rit
í flokki orðabóka eru 30—40 að
tölu, rit bókmenntasögulegs eðl-
is um 80 auk fjölda sérprentana,
um 200 bindi fornrita og 60
bindi íslenzkra þjóðsagna. Auk
þess eru sýnd nokkur dæmi um
útgáfur íslenzkra rita frá síðari
öldum.
Sýningin verður opnuð kl. 17
í dag fyrir gesti og flytja þá
ávörp próf. Alexander Jóhannes-
son háskólarektor, próf. Þorkell
Jóhannesson form. sýningar-
nefndar og Bjami Benediktsson
menntamálaráðherra. Sýningin
verður opnuð fyxir almenning kl.
18 í dag og síðan opin daglega
til mánaðamóta kl. 13—19 og
á sunnudagskvöldum auk þess
kl. 20—22. Aðgangur er ókeyp-
is og öllum heimill.
Að kvöldi þjóðveldisins. Bjarni
Benediktsson blaðamaður: 17.
júní 1914, grein um stofndaga
lýðveldisins og hvar hugsjón-
um þe;rra er nú komið Dr.
Gunnlaugur Þórðarson: Sókn í
landhelgismálinu. Þá koma
nokkrir kafiar úr ritnm Jóns
Sigurðssonar. Björn Sigfússon:
Skraf um fjölgun þjóðar. Birt
er kvæði Fornólfs: Yfirlit. Þor-
varður Örnólfsson kennari:
Fastheldni við sannleikann.
Saga eftir Sigurjón Einarsson
stud. theol: Sáuð þið hana syst-
ur mína. Leifur Ásgeirsson pró-
fessor: Vísindi á Islandi. Og
er þó ekki allt talið.
Vökupiitar þeir er kosnir
voru í ritnefnd blaðsins neit-
uðu, er til kom, að starfa í
henni. Er það auðskilið mál
þegar þess er gætt að blaðið
er einkum helgað sjálfstæðis-
málum þjóðarinnar.
Bær brennur
Síðastliðinn sunnudag brann
íbúðarhúsið á Húsey í Vall-
hólmi í Skagafirði.
Heimafólk var að rúningu
þegar eldurinn kom upp og varð
ekki áð gert þegar hans varð
vart. Einhverju var þó bjargað
af neðri hæð hússins.
Uppboð á óskilamunum í
vörzlu lögreglunnar, er ekki hef-
ur verið vitjað og eigandi ekki
fundizt að, verður haldið í dag
og hefst það kl. 1.30 á Frí-
kirkjuvegi 11. Er hér um hina
margvíslegustu hluti að ræða.
Nýtt íslandsmet í
sleggjukasti
Á 17. júnímótinu í gærkvöldi
setti Þórður B. Sigurðsson KR
nýtt Islandsmet í sleggjukasti:
49.41 m. Eldra metið átti hann
sjálfur, 48.26, sett í fyrra. Ann-
ar varð Pétur Kristjánsson F.H.
44.55. Þriðji Þorsteinn Löve
KR 43.57.
1 400 m. undankeppni fyrir
keppnina 17. júní sigruðu þess-
ir og keppa til úrslita: Guð-
mundur Lárusson 49.5, Þórir
Þorsteinsson Á. 52.6, Pétur
Einarsson iR 52.9, Björn Jó-
hannesson UMFK 53.7.
Mjög vel var mætt til keppn-
innar í gærkvöldi, en í kvöld
kl. 8 hefst undankeppni í 100
m. hlaupi, langstökki og stang-
arstökki.
Frá úrslitum í öðrum grein-
um verður sagt í blaðinu á
morgun.