Þjóðviljinn - 26.06.1954, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 26.06.1954, Blaðsíða 4
4) — ÞJÓBVXLJINN — Laugardagur 26. júní 1954 Ihaldið ber ábyrgð á því að togaraflotinn er stöðvaður í þágu hernámsliðsins MorgunblaSiS lýsir afleiSingunum af sfefnu sfjórnarftokkanna og öðrum framkvæmdum í Haskóli í lífeðlisfræði eða hamingju — Að elta með iskammbyssu og hótunum — Öspillt náttúra í Hvalfirði Morgunblaðið lýsir í gær í forustugrein þeirri alvarlegu sýkingu sem mótar nú efna- hagslíf þjóðarinnar og birt- ist bezt í því að yfir 30 ný- sköpunartogarar hafa nú ver- ið stöðvaðir til þess eins að tryggja hernámsliðinu nægi- legt vinnuafl. Morgunblaðið er auðsjáanlega hrætt við al- menningsálitið, og kemst m.a. .. svo að orði: . „Erfiðleikar togaranna eru mjög alvarlegs eðlis. Þessi stórvirku framleiðslutæki eru í bili mjög illa á vegi stödd . . . Framieiðslutækin, bátar, hraðfrystihús, togarar og landbúnaður, mega ekki verða út undan um vinnuafl vegna landvamarvinnunnar. í þvi fælist vissulega mikil hætta. Það er á atvinnuvegunum sem afkoma þjóðarinnar í nútíð og framtíð hlýtur fyrst og fremst að byggjast. Þróun þeirra má þess vegna ekki stöðvast vegna framkvæmda, sem vonandi eru aðeins stund- arfyrirbrigði. Þessa verða stjórnarvöld Iandsins að gæta í tæka tíð. Margt bendir þó tií þess, að meira vinnuafl sé nú bundið við varnarfram- kvæmdirnar en atvinnulífinu landinu er hollt. Það er t.d. vitað að töluvert af vönum sjómönnum hefur horfið frá sjómennsku vegna landvarna- vinnunnar, beint eða óbeint. Hefur það m.a. v&Idið tog- araútgerðinni erfiðieikum að vanir menn fást ekki á skip hennar . . . Við verðum þess- vegna að sameina alla krafta um það nú, að koma í veg fyrir að á ný sígi á ógæfuhlið. Vinnuafl þjóðarinnar verður að hagnýtast ifyrst og fremst í þágu framleiðslu hennar til lands og sjávar. Aukin fram- leiðsla og útflutningur er leið- in til áframhaldandi framfara og velmegunar“. Þannig kemst Morgunblaðið að orði — en það er ódýrt að prenta greinar í blöð. Það á- stand sem blaðið lýsir er skil- getin afleiðing af stjórnar- stefnu íhaldsins. Það er ríkis- Stjóm sú sem Sjálfstæðisflokk urinn veitir forstöðu sem hef- ur lagt meginþorra togara- flotans, þannig að aldrei hef- ur verið eins víðtæk stöðvun í nokkru verkfalli. Það var Sjálfstæðisflokkurinn sem kom í veg fyrri það á þingi í vetur að sjómenn fengju brýn- nstu kjarabætur, og þannig hefur dýrmætasti vinnukraft- ur Islendinga verið hrakinn frá framleiðslustörfum. Alit frá því að Alþingi kom sam- an í fyrrahaust hafa oósíal- istar bent á og sannað að svona myndi fara með stefnu þeirri sem Sjálfstæðisflokkur- inn ber meginábyrgð á — en hvorki ráðherrar flokksins né þingmenn hafa fengizt til að gera handarvik til þess að af- stýra voðanum. Ástæðan til aðgerðaleysis ríkisstjórnarinnar getur ektd verið önnur en sú að'Banda- ríkin hafi krafizt þess að fá nægilegt vinnuafl í sína þágu. Og þetta á raunar ekki aðeins við um togaraútgerðina, held- ur allar aðrar athafnir á Is- landi. Eins og afurðasölu er nú háttað er hægt að tryggja öllum íslendingum örugga og góða atvinnu við framleiðslu- störf í þágu þjóðarheildarinn- ar — og engin önnur hagnýt- ing á vinnuafli er í samræmi við hagsmuni okkar og fram- tíð. Það dregur enginn maður í efa Iengur að hernámsliðið er þess ekki megnugt að tryggja neitt „öryggi“ eða Framh: á 11. síðu. REGINVALDUR Álfsson skrifar: „Hinn víðkunni fréttaritari Morgunblaðsíns á Akureyrí hefur nú komizt yfir enn stærra málgagn en téð blað, sem sé útvarpið; og var hann að slá þar um sig í deginum og veginum á mánudaginn. Virtist aðaláhugamál hans það að lengja vinnudaginn á nýjan leik, enda játar hann ákafa- heita trú á einstaklingsfram- takið. í ræðu sinni vék hann einnig að kjörum \aupstaðar- bama á sumrin, og þótti þau að vonum ekki góð, Vildi hann koma þeim öllum á gras, og vil ég taka undir það. Rök- stuðningur hans fyrir þeirri ósk var þó næsta morgunblaðs- legur: sveitalífið yrði börnun- um háskóli í lífeðlisfræði, með alveg sérstöku tilliti tíl þess hvernig tilkomu þeirra í þenn- an heim hefði borið að hönd- um. Ðýrin væru sem sé alltaf að harfa þetta fyrir bömunum, og var engu líkara en maður- inn væri að skrifa í blaðið. EN RÉTT ER ÞAÐ að bæjar- börnin eiga ekki sjö dagana sæla á sumrin, þau sem ekki komast burt og er það sökum þess að vandamenn Moggans hafa ekki áhuga fyrir að búa sómasamlega að þeim, og sann- aðist á útvarpsmanninum að þar hjó sá er hlífa skyldi. Börn- in hérna í Reykjavík, a. m. k. meirihluti þeirra, eiga ekki annan leikvang en götuna. Eg á oft leið héma um Þingholtin, og það er áberandi hve böm- in eru vansæl í öllu sínu æði. Hamingjusöm börn eru yfirleitt ekki hávaðasöm (oftast nær er hamingjan hógvær), og það- an af ‘ síður eru hamingjusöm börn full af hrekkjum og prett- um. En hávaðinn og hrekkim- ir er eitt helzta einkenni þeirra, og er hart að þurfa að viður- kenna það. Á þessum götum sé ég daglega böm í illindum, heyri þau gráta hvert undan öðru, horfi á þau elta hvert annað með skammbyssum og hótunum, bregða fæti hvert fyrir annað o. s. frv. Þetta er óeðlilegt, því börn eru yndis- legar verur í eðli sínu. Það þarf að koma öllum börnum af götunni — ekki til að læra líí- eðlisfræði, heldur til að vernda góðvildina sem þeim er ásköp- uð, efla hamingju þeirra og þroska“. BÆJARPÓSTurinn vill taka undir þetta bréf Reginvalds, Framhald á 11. síðu. Æskttlýðsfylkingin gengst fyrir í Botnsdal í Hvalfirði í dag og á morgnn Dagskrá: Kynnir: Jón Múii Arnason Laugardagur klukkan 8.30: 1. Lúðrasveit verkálýðsins leikur, stjórnandi Haraldur Guðmundsson unin sett: Ingi R. Helgason — 3. DANS Á PALLI til klukkan 2. 2. Skemmt- Sunnudagur klukkan 3.00: 1. Lúðrasveit verkalýðsins leikur, stjórnandi Haraldur Guðmundsson — 2. Ávarp: Bjarni Benediktsson, blaðamaður — 3. Þjóðdansar: Nokkur pör úr hópi Búkarest- fara sýna — 4. Gamanpáttur: Karl Guðmundsson — 5. Söngur: Söngfélag verka- lýðssamtakanna í Reykjavík, stjórnandi Sig ursveinn D. Kristinsson — 6. Handknatt- leikur: Sýningarleikur á milli íslandsmeistaranna ÁRMANNS og Æskulýðsfylking- arinnar. — 7. DANS Á PALLI fram eftir kvöldi. Ferðir verða frá Ferðaskrifstofunni með Norðurleiðum: 1 DAG; Frá Reykjavík kl. 8 f.h., 2, 5 og 8 e.h. — Til Reykjavíkur kl. 1 eftir miðnætti. Á MORGUN: Frá Reykjavík kl. 8 og 11 f.h. — Til Reykjavíkur: Fyrsta ferð kl. 6.30 e.h. og síðan allt kvöldið eftir þvi sem bílarnir fyllast. VEITINGAB - Heitar pylsur, gosdrykkir, sælgæti, tóbak. rjomais. Ath. EKKI KAFFI. Um helgina liggur leiðin upp í Hvalf jörð! Athugið að á Ferstiklu er framreitt: heitur m atur — kaffi — smurt brauð —- Veitingar útí og inni.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.