Þjóðviljinn - 26.06.1954, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 26.06.1954, Blaðsíða 8
8) — ÞJÓÐVIUINN — Laugardagur 26. júní 1954 6VILDARALDA AÐ RlSA Framh. af 6; síðu. þessa innrásarmáls, hafa beínna, persónulegra hags- muna að gæta. Hér í blaðinu hefur áður verið skýrt frá því að bræðumir John Fost- er og Allen Dulles, utanríkis- ráðh. Bandaríkjanna og yfir- maður leyniþjónustu þeirra, hafa hvor á smn hátt und- irbúið innrás»na og eru hlut- hafar í United Fmit Company, auðhringnum, sem hefur lagt undir sig mestallt atvinnulíf Guatemala en ríkisstjórn Ar- benz forseta hafði dirfst að klippa af noíckrar arðráns- klærnar. Lodge á þó enn meiri ítök í United Fmit. Hann er af ættunum Cabot og Lodge, sem öldum saman hafa verið nokkurskonar peningaaðall í Boston og stóðu að stofnun 'United Fmit, sem hefur enn aðalstöðvar sínar þar í borg. Þangað til á þessu vori var annar náungi af sama sauða- húsi, John M. Cábot, aðstoð- arutanríkisráðherra Banda- ríkjanna og fór með mál sem varða rómönsku Ameríku, Var hann óspar á stór orð og hótanir í garð stjómar- innar í Guatemala. k tlagan að Guatemala er síð- ur en svo eins dæmi í skipt um Bandaríkjánna við lönd rómöiisku Ameríku á ámnum síðan Franklin D. Roosevelt le'ð. Um sama leyti og ein- ræðisstjóm var steypt af stóli í Guatemala féllu ein- ræðisherrar af stalli í mörg- um öðrum lýðveldum róm- önsku Ameriku. Nú hefur aft- ur sótt í sama horfið í þeim flestum og jafnan hafa banda ri?k auðfélög og Bandaríkja- stjórn haft hönd » bagga. Romulo Gallegos, sem var fcrseti borgaralegrar umbóta- stjórnar í Venezuela 1945 til 1948 þegar herinn tók völdin, hefur lýst því vfir að banda- rísku olíufélögin og erindrek- Á 17. júnímótinu í Stykkis- hólmi urðu úrslit þessi: 100 m hlaup: Björn Ólafsson 12.3 sek. Sigurður Helgason 12.3 sek. Langstiikk: Jón Pétursson 6.00 m. Björn Ólafsson 5.80 m. Hástökk: Jón Pétursson 1.62 m. Sig. Helgason 1.52 m. Stangarstökk: Björn Ólafsson 2.60 m. Auðunn Snæbjörnsson 2.60. m. Þrístökk: ■Jón Pétursson 12.68 m. Kristján Torfason 12.38 m. Kúluvarp: Sig. Helgason 12.17 m. Jón Pétursson 11.51 m. Kringlukast: Sig. Helgason 35.58 m. •fón Pétursson 32.13 m. Spjótkast: Gísli Jónsson 43.30 m. Jón Pétursson 38.46 m. 17. júní bikarinn fyrir bezta afrek mótsins hlaut Sigurður Helgason fyrir 12.17 m í kúlu- varpi sem gefur 637 stig. ar bandaríska utanríkisráðu- neytisins hafi lagt á ráðin um valdaránið. Nú stjórnar Pérez Jíménez herforingi Venezuela með hernaðarein- ræði og nýtur sérstakrar vel- þóknunar Bandaríkjastjórnar. Svipaca sögu er að segja frá Perú. Borgaraleg lýðræðis- stjóm komst þar á 1945 en Manuel Odría hershöfðingi hrifsaði völdin 1948 og hefur síðan verið einræðisherra í krafti vopna, sem hann fær ómælt frá Bandaríkjastjórn. Á Kúbu steypti Batista lýð- ræðislega kjörinni stjórn Prio Socarras árið 1952 og hefur síðan stjórnað í bróðurlegri samvinnu við bandaríska svk- urhringinn, sem ræður yfir þýðingarmestu framleiðslu- vöru eyjarskeggja. Qvipmótið með ástandinu í rómönsku Ameríku og ný- lendum og hálfnýlendum As- íu og Afríku er því grein'legt. 'Erlend'r yfirgangsseggir og fámenn, spillt og fégráðug innlend yfirstétt vinna að því í sámeiningu að halda öllum þorra fólksins niðri I sárustu fátækt og ýtrustu fáfræði. Uppskeran verður líka ámóta. Asía og Afríka loga nú í uppreisnum gegn erlendum yfirráðum og innlendu léns- skipulagi. Svipað bál getur blossað upp í rómönsku Am- eríku áður en varir. Samtaka vöm Guatemalabúa gegn mn- rásinni er eitt af merkjunum um að alþýða þessara landa er að vakna til vitundar um mátt sinn. Annað er valda- taka stjórnar Paz Estensoro í Bólivíu, en hún hefur þjóð- nýtt hinar miklu tinnámur, sem vom í eigu bandarískra og brezkra auðmanna. Banda- ríkjastjóm leikur sér því að eldi með að storka sterkri þjóðerniskennd þessara þjóða eins og berlega og gert er með Guatemalaævintýrinu. Á- kvörðun Eisenhowers og Dull- es að grlpa til örþrifaráða tll þess að hressa við gróðaað- stöðu United Fmit, vel vit- andi að þau myndu auka stór- lega á fjandskap þjóða róm- önsku Ameríku í garð Banda- ríkjanna, verður vart auð- kennd betur en með hinum fomu orðum, að þá sem. guð- irnir vilja tortíma svipta þeir fyrst vitinu. M. T. Ó. —--------------------------- ÆGISBÚÐ Vesturgötu 27, tilkynnir: Camelsigarettur plc. 9,00 kr. Crv. appelsínur lcg. 6,00 kr. Brjóstsykurspk. frá 3,00 kr. Átsúlckulaði frá 5.00 kr. Avaxta-heildósir frá 10.00 kr Ennfremnr allskonar ódýrar sælgætis- og tóbaksvörnr. Nýjar vörur dagiega. i ÆGISBÚÐ, Vesturg. 27 A ÍÞRÓTTIR RITSTJÓRl FRtMANN HELGASON s...-------------------------- IslaF.dsmóti3: Valur 02 Fram gerðu Það virðist sem Valur og Fram í meistaraflokki eigi erf- itt með að gera út úm leiki sína í sumar, því að í bæði skiptin, sem þau hafa leitt sam- an hesta sína, hefur orðið jafn- tefli og í bæði skiptin 1:1. Hvorugt liðið tefldi fram því sem ætlað var af mönnum, því að Val vantaði Jón Þórarins- son og Svein Helgason. Fram vantaði aftur á móti Hilmar Ólafsson og Hauk Bjarnason, og voru allir lasnir. Haukur brálcaðist á handlegg í leikn- um við KR og varð að setja höndina í gips og hann kemur til með að eiga nokkuð i því meiðsli. Þó liðin skildu jöfn var Val- ur þó nær því að sigra og hefði átt að koma með 2:1 útur leiknum. Bæði liðin fengu tæki- færi sem misnotuðust en tæki- færi Vals voru opnari. Var það undravert hvemig Gunnari Gunnarssyni tókst að kcma knettinum framhjá opnu marki Fram á 25. minútu, en það á- hlaup sem skapaði þann mögu- leika var vel upp byggt. Framarar voru aðgangssamari við mark Vals í fyrri hluta leiksins og mark sitt settu þeir á 15. mín., var það Karl Berg- mann sem það gerði. Litlu síðar munaði ekki miklu að Óskar skoraði. Fyrri hálfieikur var heldur þófkenndur og fátt sem gerðist er fékk áhorfendur til að hríf- ast með. í síðari hálfleik var Valur meira i sókn og sérstak- lega þó síðustu 20 mín, og fóru Valsmenn þá illa með tækifær- in. Hörður var t.d. kominn upp að endamörkum og skaut þaðan í stað þess að gefa boltann fyrir. Nokkru síðar gefur Hörður vel fyrir, Gunnar Sigurjónsson fær knöttinn og hefur nógan tíma til að vanda skot af stuttu færi, en hann hallar sér aftur á bak, teygir fótinn fram og sparkar himinhátt yfir. Á 31. mín. gera Valsmenn ágætt á- hlaup hægra megin sem endar með skoti frá Gunnari Gunn- arssyni er hafnar í marki Fram. 5 mín. síðar á Einar Halldórs- son mjög gott skot rétt yfir þverslá, og rétt fyrir leikslok á Gunnar Gunnarsson tækifæri til að senda knöttinn' til Sig- urðar Sigurðs., sem stóð fyrir opnu marki, en skaut í stað þess óvandvirknislega og langt framhjá. Framarar gerðu af og til á- hlaup og voru þeir Dagbjart- ur og Óskar mestu driffjaðrir í þeim aðgerðum en hættuleg tækifæri Sköpuðust ekki Bæði liðin höfðu töluverðan baráttuvilja, en ónákvæmni í sendingum var hrópleg. Og meðan svo er verður varla krafizt lifandi samleiks. I liði Vals voru þaö Einar Halldórs- son, Sigurður Sigurðsson og Árni Njálsson sem börðust og Halldór Ilalldórsson átti líka góðan leik. T liði Fram sem var þó jafnara voru þ,að Dagbjart- ur, Óskar og Kalldór Lúðvíks- son sem mest kvað að. Dómari var Haukur Óskars- son. Áhorféndur voru fáir. Fréttir frá ISl Framkvæmdastjórn ÍSÍ sam- þykkti nýlega að fela íþrótta- bandalagi Hafnarfjarðar að sjá um íslandsmeistaramótið í hand- knattleik karla (úti) og að mót þetta fari fram 27. til 31, júlí n. k. (Frétt frá ÍSÍ). Framkvæmdastjóm ÍSÍ sam- þykkti nýlega að fela íþrótta- bandalagi ísafjarðar að sjá um íslandsmeistaramót í handknatt- leik kvenna (úti) og að mót þetta fari fram á tímabilinu 31. júlí til 8. ágúst. (Frétt frá ÍSÍ).

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.