Þjóðviljinn - 18.07.1954, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 18.07.1954, Qupperneq 7
Sunnudagur 18. júlí 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (7 VII I Alþýða á íslandi og fínt fólk í Stokkhólmi og París. Utanfarir íslendinga hafa frá . öndverðu verið ríkur þáttúr í . menningarlífi þjóðarinnar. Brautryðjendur hvers konar hafa sótt til erlendra menn- ingarstöðva fræðslu og kunn- áttu, nýjar hugmyndir og nýja starfsháttu. í krafti þessara utanfara tókst íslendingum að standa öðrum þjóðum framar í ýmsum greinum á þjóðveldis- tímabilinu, og til þeirra var sóttur kjarkur og kraftur og kunnátta til endurreisnar síð- ustu alda, þegar við vorum orðnir eftirbátar annarra. Út- anfarar voru öðrum hæfari til forustu á framfarabráut, þar sem þeir með eigin augum höfðu séð þær þjóðlífsumbætur, sem við þurftum einnig að afla okkur, og erlendis drukku þeir í sig andrúmsloft þeirra þjóð- lífshræringa, er lágu að baki menningarlegrar framvindu þeirra þjóða, sem staðið hafa okkur nánast. Háskóli Kaup- mannahafnar hafði hér um mestu hlutverki að gegna hin- ar síðari aldir, og íslenzkir ■námsmenn þar höfðu langsam- ■)ega mest forustu um öll okk- ar framfaramál og menningu hvers konár, svo á sviði bók- mennta og lista sem öðrum. Og hugur þeirra djörfustu stefndi enn lentrra út í heiminn að dæmi Sæmundar fróða og 'Gissurar Hallssonar, og því víð- ar sem ungir fslendingar hafa farið ogiþsií fleiri sem lagt hafa leiðir sínar út meðal fjarlægra þjóða, ■ þvi betur hefur þjóðlíf ekkar verið vopnum búið til nýrra sigra. Við vor- um eftirbátar og höfðum flest af öðrum að læra, og í and- legum samskiptum við þá, sem iengra voru komnir, glædd- um við þann eld, sem er hreyfi- afl hvers konar framsóknar á menningarbraut. Út um heim þurfum við vissulega enn til náms og sam- bands við ölduhræringar nýrra strauma mannlífsins. En í því sambandi þarf nú þeirrar var- úðar við, sem engrar var þörf fyrir hundrað árum. Þá voru leiðandi öfl umheimsins í fram- sóknarhug á framfarabraut, þá sat að völdum ung stétt, sem átti lífið framundan. í þeim sama umheimi situr sú sama stétt enn að völdum. En nú er það orðin gömul stétt og dauð- vona, sem einum þræði er brjáluð og miðar vísindi sín i ueigamiklum atriðum við drápsiðju, en öðrum þræði kar- lægur aumingi, sem biður lista- menn sína að yrkja fagra og blíða liksöngva eða skella ó- hlutkenndu litavali á yfirborð hins ömurlega raunveruleika. Það gæti virzt eðlilegt, að menningaröfl íslenzkrar auð- stéttar leituðu í faðm áður um- ræddra listastefna. Sto er þó ekki nema að mjög litlu leyti. íslenzk auðstétt á lítil sem engin menningaröfl í sinni þjónustu, því að áður en hún kömst til nokkurs menningar- )egs þroska, hafði ellihrörnun alþjóðlegrar auðbróunar læst sig um öll hennar lífíæri/hún hefur aldrei komizt á það menningarstig, að hún geti not- ið þeirrar óhlutkenndu fegurð- ar, sem er aðal hinna nýju listastefna, ekki skt á sviði bókmennta, sem standa hjarta okkar íslendinga næst allra . listgreina. Sósíölsk lífsskoðun hefur dregið til sín flesta þá, sem kennt hafa menningarlegs þorsta og þrár til að ganga í þjónustu fagurra lista. Og það eru þessir menn, sem leitað hafa á náðir þeirra lista, sem hin menningarlega upp- gjöf auðstéttanna hefur útval- ið sem ellinnar rórent fyrir sig og sitt skyldulið. Menntafröm- uðir, sem eru blóðrauðir i af- stöðu ti) skipulagsmála mann- kynsins, hafa gert beinharðar hjartanum og beðið eftir þvi, að sá ómur kristallist, helzt i einni setningu, sem er svo hrein og tær, að hún er óraleið- ir frá skynjunarmöguleikum allra venjulegra manna. Með þessu móti hefur hver efnismaðurinn af öðrum stein- drepizt. Eins og gefur að skilja, þá er hvert hjarta hætt að slá, þegar búið er að þvinga það til að hlusta á sinn eigin óm árum saman, og ekkert má gera, fyrr en sá ómur hefur kristallazt, og svo á að tjóðra þetta sama hjarta við eina kommu í tvo sólarhringa, þar til sú komma hefur samhljóm- azt þeim kristallaða ómi. Það er heldur ekki gerð krafa til að hjörtu slái i listaverkum og GUMAB BENEÐIKTSSOK: DIIGIIR EÐA DREP HugleiðingaE nm menn og málefni, líf og d&ttða, hugsjónir og siðleysi. Hornstr&ndii og Paiís. Þriðja grein * kröfur um fullkomna undir- gefni við listkröfur hinna deyj- andi. Þetta á meiri þátt en margur hyggur i niðurlægingu listrænnar gagnrýni, einkum bókmenntalegrar. Dómar eru felldir út frá neikvæðum sjón- armiðum, aðalkrafan er galla- leysi. Meginatriði dóma er elt- ingarleikur við einstök orð og orðasambönd, sem ekki h-ljóma á fullkominn hátt í sínum sam- böndum, en miður skeytt um hina jákvæðu þætti. Maður sér vart minnzt á byggingu verks, inntak verks, félagslegt og persónulegt hreyfiafl. Ungur maður, sem setur saman tvær hendingar með einhverjum sér- kennilegum ómi, sem slær á einhvern sérkennilegan streng í brjósti einhvers fagurkera, hann vekur vonir, komi þriðja hendingin. þar sem eitt orð haltrar á óminum, þá er tár- azt út af skorti á herzlumun. Það dynja yfir kröfur um meiri natni, meiri >-firlegu, haldið á loft sem mikilli fyrirmynd að liggja tvo sólarhringa yfir einni . kommu, sem enginn venjulegur maður tekur svo eftir, hvar sett er eða hvort sett er. Og fullkomin listaverk kváðu ekki verða til, — og yfirleitt er ekki talið leyfilegt að gera neitt það, sem ekki er fullkómið —- nema fyrst sé ár- um sarran hlustað á óm i. ekki þá nema óskap hengslis- lega. Þjóðfrægum stórskáldum, sem hafa átt aðalstyrk sinn í hjartanu, fellur allur ketill í eld, þegar ólgandi hjartsláttur er orðinn stórkostleg hneyksl- unarhella bókmenntalegum byltingásinnum. — Fyrir tutt- ugu árum var ungur maður að vaxa úr grasi i fátæku þorpi hér á landi. Hann orti kvæði, sem á svipstundu varð þjóð- frægt og lá á tungu fjölda al- þýðumanna um land allt. Hann orti á mjög venjulegan og hefð- buhdinn hátt um hversdags- leika daglegs lífs í hans fátæk- lega og hversdagslega þorpi, um svanga krakka og slor, þreytt- ar konur og báfa, sem koma með fisk að landi. Svo fór þessi ungi maður út í heim- inn og lærði á finum stöðum að hlusta á óminn í hjartanu. Þá orti hann að nýju um sitt þorp: Og það var fagur skáld- skapur. En það var ekki kveð- ið við andardrátt þorpsins á liðandi stundu, það voru ekki ómar daglegrar annar í flæð- armálinu, heldur hugnæmir óm- ar hugljúfra endurminninga frá sælum dögum löngu liðinn- ar æsku. Dásamlegan unað er oft að finna i endurminningum dauðvona gamalmenna. TilhneigingaT ungra lista- manna til að leita út á þessar brautir. eru næsta skiljanlegar. þegar nánar er aðgætt. Það er ekki auðstéttin ein, sem finnur skapadægur sitt nálgast, þessi sama auðstétt hringir dánar- klukkum yfir gervöllu lífi jarð- ar. Hver mannssál. stendur frammi fyrir þeim möguleika, sem aldrei fyrr hefur blasað við mannkyni í heimi raun- veruleikans, að mannlegur máttur sópi burt öllu lifi jarðar. Tilfinningin fyrir vanmætti gagnvart valdi dauða og al- gerrar tortímingar leitar inn á sálimar með lamandi krafti, ekki sizt þar sem fyrir er við- kvæmni og næmleiki' i óvenju- lega rJkum mæli. Þannig verð- ur tilfinningin fyrir nálægð dauðans andlegur tengiliðúr glæpaþrunginnar auðstéttar og hjartahreinna byltingasinna í alþýðustétt. Ungur byltinga- sinni, sem leggur af stað út í lifið til að vekja þjóð sína til andstöðu gegn völdum myrkurs og tortímingar, getur rekið sig svo átakanlega á það, hve máttur hans er lítill, hve rödd hans er veik til að kveðja hljóðs i gegnum náöskur nú- tímans, að það ryður honum rennslétta braut til fyllkom- innar uppgjafar. Það þarf allt að því ofurmannlegan þrótt til að standast, sækja fram til aukins manndóms með hverju ári, við hverja misheppnaða á- rás á mannlífsóvininn og þjóð- svikarann. Og því .meiri per- sónulegs þróttar er þörf, því sjálfsagðara sem tjðarandanum þykir, að gefizt sé upp. Ungt skáld sendj mér um daginn nýjustu ljóðabók sína. Þar blasa átakanlega við vissir þættir lifsörlaga hihs unga höfundar. Hann yrkir á Þing- völlum hertekinnar þjóðar sinn- ar, minnugur mikillar frelsis- hátíðar á sama stað: Kom ég hér áður er aldanna bragur ómaði skærast i fagnandi hjörtum íslenzkra barna og bjartástur dagur á Bláskóga steig fram úr regnskýjum svörtum. Enn hef é? vitjað um vatnið og ána, vakað á tali við jurt sem ég þekki setið í Fangbrekku, géngið um gjána, gleðinnar leitað, en farin hana ' ekki. í völlurium dunar af víg- mannaglaumi. Vekið nú, hamingjudísirnar góðar, óðinn sem vornóttin orti i draumi við Öxará fyrrum í sál minnar þjóðar. Hér er rödd þjóðarhjartáns og kveðið út frá örlögum dags- ins í dag. Skáldið er í full- komnum tengslum við form háttbundinnar kveðandi, sem ómað hefur í blóði þjóðarinnar frá kynslóð til kynslóðar, og kann svo með að fara, að hvergi verður á snurða eða bláþráður á formsins þræði. Þó er höfundur sér þess lík- lega meðvitandi, að kvæði hans fellur dautt niður. Það varf oddhvassari ör til að ganga í gegnum stálpansara tómlætis- ins og nema ekki sfaðar fyrr en i sjálfum stað þjóðarhjart- ans. Hver ljóðlina kvæðisins er prýdd þeirri kliðmýkt, sem ' gerð er krafa til af anda þeim, sem svimar yfir vötnum eyð- ingarinnar og gæðir uppgjöf- ina unaði. Guð má vita, hve löngum tima sinnar dýrmætu ævi þetta unga skáld hefur eytt til að hlusta á óminn og raða orðum, sem hljómuðu honúm samræmt. En kvæðið fellur dautt niður, af þvi að skapið vantar, ef til vill hefur hjart- slátturinn slappazt við sveigj-; una til kliðmýktarinnar í sam- ræmi við kröfu tímans. En ' mikil má hún vera sú lífs- reynsla að mæna eftir bylgjum sinna hjartaóma út í tómið án þess að ná hjarta þeirrár þjóðar, sem hamingjudísirnar' góðu eru svo auðmjúklega beðnar að vekja óminn, serh vornóttin orti í draumi. En svo hlaut að fara, fyrst höfundi hugkvæmdust ekki önnur við-- brögð gegn óhamingjunni en frómar bænir til huldra vætta, eins og þegar dauðvona maður felur guði sál sína. Þessi höf- undur hefur skynjað óm s{nn- ar eigin þjóðar þagna, og í stað þess að finna til kölluftar að vekja þjóð sinni þanri úm að nýju, þá lætur hann'^óm síns eigin hjarta deyja með: Felmtruð og þögul sem þöllin er þjóðin mín unga, brugðið þér sjálfum hið sagia: þú syngur ei lengur, þeyrinn ber handan um höfin haustljóð á vori. — Hvað veldur sorg þeirri sáru, svanur á báru? Þannig mætir skáldið her- náminu 1951. Þetta er ekki réttilegt svar við þvilikum at- burðum. Og ég efast um, að réttilegt svar verði fellt í klið- mýkt þeirra krafa, sem drottn- andi listastefna krefst og ungu skáldin eru vanin undir og látin læra„í París og Stokk- hólmi, Til að kveða þá söngva, sem hæfa, dugir víst ekkert minna en sveitakona, sem er svo fjarri miðstöðvum menn- ingarinnar, að spámenn tímans hafa ekki náð til hennar til að kenna henni að yrkja, geng- ur með kyngi vestfirzkra an- nesja í blóði, djúpýðgi, sem runnin er alla leið frá Agli Skallagrímssyni, í hjarta, alda- ræktaðan kliðþunga i taugúm, mývetnsk hábyggðaloft f lúng- um og ábyrgð á lífi tíý¥rár kynslóðar á móðurherðuml Nú dugir ekkert los í sambandi við lifið o» landið sitt og þjóð sína og arfleifðir. Þegar svo er ástatt með þjóðlíf okk- ar og nú er, þá skiptir það engu máli, hvernig kveðið er fyrir blóðlausa smáborgara suð- ur í París. En unga skáldið, sem í klið- mjúku kvæði biður hamingju- dísirnar góðu að vekja þjóð- inni sinni óð og finnur sig svo neyddan til að hætta að syngja, af því að ómurinn dó í brjósti þjóðarinnar, birtir uppgjöf sína á mjög svo undarlegan hátt. Hann fyllist ofnæmi gagnvart islenzku ljóðformi og fer um það þeim orðum sem væri það höfuðóvinur okkar þjóðlífs. „Helvítis rímið“, segir Helgi Sæmundsson, og þá erum við aftur komin að því fyrirbæri og förum um það nokkrum orð- um i sambandi við undirstraUm ritdómanna, sem urðu tilefni þessarar ritsmíðar.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.