Þjóðviljinn - 23.07.1954, Síða 12

Þjóðviljinn - 23.07.1954, Síða 12
Ungur maður játar að haía kveikt í til 1 þess að svíkja út vátryggingarfé — Aldr- aður maður - eigandi hússins - beið bana aí völdum reyks Nú er upplýst með hvaöa hætti kviknaði í húsinu 'Framnesvegi 19 hinn 13. júlí s.l., er aldráður maöur kafn- aði af völdum reyks. Ungur maður, eigandi verzlunarinn- ar í húsinu, játaði í fyrradag að hafa kveikt í til að svíkja út vátryggingarfé. Eins og áður hefur verið skýrt frá í fréttum var slökkviliðið kvatt að húsinu nr. 19 við Fram- nesveg kl. um 9 að morgni 13. júlí s.L og var eldur í kjallara hússins. Eldurinn var lítill og fljótlega slökktur, en mikill reyk- ur var í húsinu og hafði lagt upp á næstu hæð fyrir ofan kjall- arann. í eldhúsinu á hæðinni fannst húseigandinn, Magnús Ás- mundsson, liggjandi meðvitundar- laus á gólfinu. Var hann hálf- klæddur og hafði sýnilega reynt að komast út en hnigið niður. Magnús var þegar fluttur á sjúkrahús en lífgunartilraunir reyndust árangurslausar. Við ki-ufningu virtist auðsætt að hann hafði látizt af kolsýrlingseitrun. Greinileg merki um íkveikju Húsakynnum á Framnesveg 19 er þann veg háttað að í kjallara hússins næst götu er verzlunar- pláss, en inn af verzluninni tvö samliggjandi geymsluherbergi. Á hæðlnni fyrir ofan kjallarann er íbúð. Við athugun á verksummerkj- um eftir brunann þótti allt benda til að um íkveikju af mannavöld- um hefði verið að ræða. Geymsluherbergin tvö voru full af vörum, en upp við steinvegg í því innra var samsafn af drasli og hafði sýnilega verið kveikt í því. Hinn látni maður fannst í eld- húsinu á íbúðarhæðinni en það er beint upp af innra geymslu- herberginu, þar sem eldsupptök- in voru. Eigandi verzlunarinnar í kjall- ara hússins, Vesturbæjarbúðar- innar, var Sigurður Ellert Jóns- son til heimilis í Höfðaborg 52. Féll grunur á að hann myndi hafa kveikt í og var hann settur í gæzluvarðhald. í fyrradag við- urkenndi Sigurður í sakadómi Reykjavíkur að vera valdur að íkveikjunni. Fer hér á eftir frá- sögn hans af málavöxtum. Ætlaði að svikja út vátryggingarféð Sigurður kvaðst hafa verið í fjárkröggum um nokkurt skeið. Hann keypti nýlenduvöruverzlun á s.l. vori og rak hana, en rekst- urinn gekk illa. Fyrir skömmu hafði hann lokað verzluninni af f j árhagsástæðum. Um kvöldið 12. júlí barst hon- um símskeyti frá nokkrum lán- ardrottnum sínum, þar sem hann var beðinn um að koma til við- tals, en þessum lánardrottnum kvaðst Sigurður skulda á annað hundrað þús. krónur. Hann hélt að nú ætti að fara að ganga að sér og gera sig gjaldþrota, og sem leið út úr þessum örðugleikum hafi hann ákveðið að kveikja í vörulagernum inn af verzlun- inni og svíkja þannig út vátrygg- ingarféð. Vörulagerinn mun við lauslega athugun hafa verið um 40 þús. króna virði, en lagerinn hafði fyrri eigandi verzlunarinnar vá- tryggt fyrir 100 þús. kr. og Sig- Framhald á 9. síðu. 9 blaðameim Á-bandalagsins Níu Atlanzhafsbandalags- blaoamenn eru komnir hingað til lands á vegum Atlanzhafs- bandalagsins og ísíenzku ríkis- stjórnarinnar. Blaðamenn þessir eru Maurice Bots frá Belgíu, Aage Rosted frá Danmörk, Repas frá Grikk- landi, Pegolozzi og Botte frá ítalíu, Ernest Faber frá Lúx- emburg, Meijer frá Belgíu, ung- frú Rigmor Abrahamsen frá Noregi og Acurcio frá Portugal. — Blaðamenn þessir munu dvelja hér á landi í 5 daga og ferðast um landið á vegum rík- isstjórnarinar. Forsetinn og sendiherrann á Bessastöðum í gœr. Sendiherra Iíanada á forsetafundi Hr. Chester A. Rönning af- henti, í gær, að viðstöddum utanríkisráðherra, forseta ís- lands trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Kanada á Islandi, með aðsetri í Osló, við virðu- lega athöfn á Bessastöðum. Að athöfninni lokinni sat sendiherrann hádegisverðarboð forsetahjónanna ásamt öðrum gestum. (Frá skrifstofu forseta). Föstiidagur 23. júlí 1954 — 19. árgangur — 163. tölublað Trésmiðirnir sigruðu Samningum SGkið — Ska! aivirmurskandi sjá smiðunum fyrir fæði séu þeir seudir fil vinmi uíasibæfar Samningar hafa nú tekizt milli Trésmiðafélags Reykja- víkur og Vinnuveitendasambands íslands. Eru þeir lítiö breyttir frá eldri samningum að öðru leyti en því að tré- smiðum skal nú séð fyrir ókeypis fæði ef þeir vinna utan viö bæinn. Agnes Tryggvadóttir Samuorrærta simel- keppnin á Heiiissaudi: Yiigsti þátttak- andinn 7 ára Eins og Þjóðviljinn hefur áð- ur skýrt frá lauk sundnám- skeiði á Hellissandi hinn 3. júlí s.l. Jafnhliða námskeiðinu fór fram kejpni í samnorrænu sundkeppninni og syntu um 20% íbúanna 200 metrana. Yngsti þátttakandinn í keppn- inni var telpan á myndinni hér fyrir ofan. Hún heitir Agnes Tryggvadóttir og er 7 ára göm- ul. Agnes byrjaði að sj’nda í vor á sundnámskeiðinu. ÆFR til Hvera- valla og Kerling- arfjalla ÆFR efnir til ferðalags til Hveravalla og Kerlingarfjalla um verzlunarmannahelgina. Verður haldið af stað eftir há- degi á laugardag, og komið aft- ur á mánudagskvöld. Sofið verður í tjöidum er gylkingin leggur til. Allar nánari upplýsingar um ferðina eru veittar í skrifstofu ÆFR, en hún er opin kl. 6-7 alla virka daga. Einnig mun blaðið skýra frá ferðinni ein- hvern daginn. Island mun óvíða vera feg- urra en á þessum slóðum, og ættu Fylkingarfélagar ekki að þurfa að hugsa sig lengi um áður en þeir ákveða að fara. Þetta atriði hefur verið deilu- atriði frá því Trcsmiðafélagið gerði sína fyrstu kjarasamn- inga, árið 1949. í verkíallinu síðasta, 1952, var þetta höfuð- krafa trésmiðanna, sem náðist Samkvæmt upplýsingum frá Ráðningarstofu landbúnaðarins höfðu um síðustu mánaðamót 366 bændur leitað aðstoðar Ráðn- ingarstofunnar, á móti 297 á sama tima í fyrra. Þessir 366 bændur óskuðu eftir að fá eftirtalið fólk — sviga- tölurnar tilsvarandi tölur á sama tíma í fyrra: 64 kaupa- mepn (51), 208 kaupakonur (198) 86 drengi (79) og 51 stúlku (32). Framboð fólks nú var 55 kaupamenn (67), 106 konur (125), 138 drengir (126), 98 stúlkur (84) eða samtals 397, sem er svipað framboð og í fyrra á sama tíma, sem var samtals 395. Ráðningarstofan hefur nú ráðið 21 karlmann (23), 59 konur (60), 79 drengi (52) og 54 stúlkur (33) eða samtals 293 í stað 168 í fyrra. Það er ennfremur vitanlegt að margir sem skráðir eru hafa ráðizt án aðstoðar skrifstofunnar, en af bændum sem leitað hafa til ekki fram þá. Trésmiðirnir höfðu nú verið samningslausir síðan fyrsta júní, liafa samn- ingsviðræour staðið annað slag- ið síðan og er nú lokið með endanlegnm sigri trésmiðanna. skrifstofunnar hefur þörfum 200 verið fullnægt. Þá eru tölurnar nokkuð villandi að því leyti að nokkuð af fólki, einkum karl- menn, lætur skrá sig án þess að vera alvara að fara í kaupa- vinnu og ræður sig síðan til annarra starfa. En það eru þó einkum kaupakonur sem Ráðn- ingarstofuna vantar enn. Engiit síld á Raufarhöfn Raufarhöfn 22. júlí. Einka- skeyti til Þjóðviljans. Bræðslu Iauk í síldarvcrk- smiðjunni um kl. 7 í kvöld. Engin síld var söltuð í dag ög engin síld barst á land í dag, hvorld til verksmiðjuniiar né til söltunar. Engar fréttir bárust í dag af miðunum. Bræla hefur ver- ið hér undanfarið, en veður er nú heldur að lægja og búist við að rofi til um lágnættið. Enn vantar einkum kaupakonur Eítirspurn meiri en í fyrra en framboS svipað — Oskum 200 bænda af 366 heíur verið fullnægt Eftirspurn eftir fólki til landbúnaðarstarfa hefur verið allmiklu meiri nú en í fyrra ,en framboð hinsvegar svipaö og þá. Af 366 bændum er leituðu aðstoðar Ráðningar- stofu landbúnaðarins á þessu vori hefur þörfum 200 verið fullnægt, en einkum er skortur á kaupakonum. Bæjarverkfræðingur játar: >Ef verkfræðingor.. koma aftur' Höfuðborgin hefur nú verið verkfræðingalaus í senn tvo mánuði. Borgarstjórinn segist hafa gert allt til að ná samningum við verkfræöingana, en verkfræðingarnir segja að borgarstjórinn hafi aðeins sent umboðslausa „áheyrnarfulltrúa“ á sinn fund. Staðreyndirnar eru, hvað sem öðru líður, að borgar- stjóri íhaldsins hefur ekki reynzt þeim vanda vaxinn að tryggja bænum verkfræðinga yfir aðalframkvæmdatíma ársins, sumarið, og hitt að' af skorti á verkfræðingum standa ýmsar óhjákvæmilegar og aðkallandi framkvæmd- ir bæjarins fastar. Bæjarverkfræðingur játar hreinskilnislega þetta ástand í eftirfarandi scm hann sendi blöðunum í gær: „Að gefnu tilefni óskar bæj- arverkfræðingur að taka fram eftirf arandi: Um alllangt skeið hefur skcrt verkfræðinga til þess að hægt væri að anna þeim störfum, er hinar ýmsu deildir í skrifstofu minni hafa með höndum. Eftir að verkfræðingar gengu úr þjónustu bæjarins á þessu sumri, hafa orðið tafir bæði á afhendingu og útmæl- ingu lóða, sem úthlutað hefur verið. Liggur slíkt í augum uppi, þar sem nú starfar af verkfræðingum í skrifstofu minni aðeins yfirverkfræðingur bæjarins auk mín, en áður störfuðu þar alls 14 verkfræð- ingar. Ef verkfræðingar þeir, sem farið hafa, koma aftur í þjón- ustu bæjarins, verður að sjáif- sögðu tekið til við þau verk- efni, sem óleyst eru, og þeim hraðað svó sem framast er ■ • y ■ unnt. '•» Reykjavík, 22. júlí 1954. Bolli Thoroddsen, bæjarverkfræðingur.''

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.