Þjóðviljinn - 21.09.1954, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 21.09.1954, Qupperneq 7
 Kirkjubygg- ingar tveggja Gissura „Gissur hvíti lét gera hina iyrstu kirkju í Skálaholti og ■var þar grafinn að þeirri kirkju“, segir í Hungurvöku, en „um daga ísleifs biskups kom út sá biskup, er Kolur hét, og -andaðist hann hér úti. Hann var grafinn í Skólaholti, og var sú kirkja hér á landi fyrst prýdd með tigins manns greftri, er að réttu kallast andlega móðir allra annarra vígðra húsa á ís- llandi.“ Talið er, að Gissur hvíti hafi' reist kirkju sína um 999, og þar munu ýmsir trúboðar og trú- boðsbiskupar hafa messað, t. d. Þangbrandur, Kolur, Bjarn- harður Vilráðsson hinn bók- vísi og fleiri, en Skafti Þór- oddsson og Njáll • Þorgeirsson ihafa eflaust hlýtt þar messu. Kirkja Gissurar hvíta hefur :sennilega staðið fram á daga sonarsonar hans, Gissurar bisk- - ups ísleifssonar (1080—1118). í Hungurvöku segir, að Gissur ís- leifsson hafi eigi haft „allt land Til ábúðar í Skálholti fyrst nokkra stund biskupsdæmis síns, af því að Dalla, móðir hans, vildi búa á sínum hluta llandsins, meðan hún lifði. En þá er hún var önduð og biskup hlaut allt land, þá lagði hann það allt til kirkju þeirrar, er í Skálholti er hann sjálfur hafði gera látið, þrítuga að lengd, og vígði Pétri postula, ■ og mörg gæði önnur lagði Giss- ur biskup til þeirrar kirkju bæði í löndum og lausafé og kvað á síðan, að þar skyldi á- vallt biskupsstóll vera, meðan ísland væri byggt og kristni má haldast. Gissur biskup gaf til kirkju í Skálaholti purpura- hökul hvítan, er þar hefur síð- an lengi beztu verið, og marg- •ar gersemar aðrar.“ Hvérnig voru íslenzku miðalda- kirkjurnar? Nú munu varla finnast nein- ar minjar um fyrstu tvær kirkjurnar í Skálholti, en kirkja Gissurar hefur varla verið mjög stórt hús eða vandað, af þvi að rúmum 30 árum eftir dauða hans ræðst Klængur biskup Þorsteinsson í það stór- virki að reisa rnikla kirkju á staðnum. Um þá kirkjusmíð eigum við dágóðar heimildir, -og nú telja fornfræðingar sig hafa fundið móta fyrir grunni þeirrar kirkju. I Hungurvöku segir: „Á tveim skipum komu út stórviðir þeir, er Klængur biskup lét höggva í Noregi til kirkju þeirrar, er hann lét gera í Skálaholti, er að öllu var vönduð fram yfir hvert hús annað, þeirra er ó íslandi voru ger, bæði að viðum og smíði. ----Hann lét þegar taka til kirkjusmíðar, er hann hafði vetur á stólnum setið. Svo nsýndust öðrum mönnum tillög "vera mikil til kirkjugerðar að hverjum misserum, bæði í við- arföngum og smíðakaupum og mannhöfnum þeim, er þar fylgdu, að svo þótti skynsömum mönnum sem öll lausafé þyrfti til að leggja, þau er til stað- -arins lágu í tíundum og öðrum Þriðjudagur 21. september 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (7 ■ 1 • • *!••! ••' AVi fL.ilV lt >t ujj Björn Þorsteinsson: Oddverjinn á Skálholtsstóli tillögum. Búið þurfti í annan stað svo mikilla tillaga að hverjum misserum fyrir sakir fólksfjölda og gestrisni og ann- arrar atvinnu, að svo þótti sem þar mundi þurfa til alla lausa aura, þá er staðurinn átti. í þriðju grein hafði hann svo veizlur fjölmennar, og stórar fégjafir við vini sína, er bæði voru margir og göfugir, að þar þurfti nálega ógrynni fjár til að leggja. En almáttugur guð, er allt gott gefur af sér, lét engan þann hlut skorta, er þurfti að hafa, bæði til kirkju- gerðar og annarrar afvinnu þeirrar, er biskup vildi láta hafa, meðan hann lifði. Þessir voru höfuðsmiðir að kirkjunni í Skálaliolti: Árni, er kailaður var höfuðsmíður, og Björn hinn hagi Þorvaldsson. IHugi Leifs- son tegldi og viðu. En þá er kirkja var ger í Skálaholti.svo að biskupi þótti hún til vígslu fallin, þá gerði biskup veiziu mikla og ágæta vinum sínum og bauð þangað Birni biskupi (á Hólum) og Nikulao ábóta (á Munkaþverá) og mörgum höfðingjum, og var þar hinn mesti fjöldi boðs- manna. Þeir vígðu bóðir kirkju í Skálaholti, Klængur og Björn, annar utan en annar innan, og helguðu báðir Pétri postula, svo sem áður hafði verið, en Niku- lás hafði formæli. Það var á degi Viti pislarvots (þ. e. 15. júní). En eftir tíðir bauð Klængur biskup öllum þeim mönnuni, er við kirkjuvígslu höfðu verið, að hafa þar dag- verð, þeim er sér þótti það betur gegna, og var það enn gert meir af stórmennsku en fullri forsjá, af því að á einn veg reyndist það ávallt að eiga undir mörgum heimskum, er einn vitur maður má vel fyrir sjá með stillingu, og mátti þar og þá mikið að raunum kom- ast, fyrir því að eigi höfðu þar færri menn dagverð en sjö hundruð (sennilega stór, þ. e. eigi færri en 840), og urðu til- lög með óhægindum áður létti. Sú veizla var allvirðuleg að öllum þeim mönnum þótti, er þangað var boðið, og voru þeir ahir, er virðingarmenn voru, með stórum gjöfum á braut leystir. Klængur biskup lét prýða það mest hann mátti til að fá kirkju þá, er hann lét gera í Skála- holti, unz hún var að öllu bú- in. Hann lét gera gullkáleik og setja gimsteinum og gaf kirkj- unni.“ Gefur grunn- mál nokkra vísbendingu um gerð kirkjunnar? í Skálholti hefur kirkja á- vallt verið reist á s'ama grunni frá fyrstu tíð, en kirkjurnar hafa verið mjög misjafnlega stórar. Nú hefur verið unnið að því í sumar að grafa upp hinn forna kirkjugrunn austur í Skálholti til þess að finna grunnflöt hinna fornu kirkna. Ýmsar bollaleggingar eru uppi um það að hressa upp á Skál- holtsstað, en verði ráðizt í ein- hvers konar byggingar þar eystra og ný kirkja reist, er við búið, að allar fornar bygg- ingarleifar verði eyðilagðar. Því miður vitum við mjög lítið um kirkjubyggingar hér í ka- þólskum sið, því að ísland er eina land Evrópu, sem á engar kirkjubyggingar frá miðöld og engar myndir eða nákvæmar lýsingar á íslenzkum kirkjum frá þeim tíma. Prófessor Magnús Már Lárusson hefur manna bezt rannsakað heim- ildir um kirkjubyggingar hér á landi að fornu og hefur komizt að þeirri niðurstöðu, að hér hafi verið reisfar .glæsilegar timb- urkirkjur á miðöldum eftir norskum fyrirmyndum. Þess er alloft getið, að íslendingar sigldu til Noregs og keyptu þar kirkjuvið. Sá viður hefur senni- lega verið tilsniðinn í kirkju, , svo að hingað hafa verið fluttar norskar stafkirkjur á svipaðan ■ hátt og sænsk hús á seinni ár- um. Torfkirkjurnar íslenzku munu vera arfur eymdarára, þegar hingað var flutt brenni- vín í stað timburs. Kirkjuhurð- in forna frá Valþjófsstað er einu leifar, sem varðveitzt hafa um hin fornu, glæsilegu ís- lenzku guðshús, en við getum ráðið nokkuð útlit þeirra af þvi, að þessi eina hurð, sem er þó ekki heil, hefur vakið aðdá- un listfræðinga margra þjóða, og hún er höfuðdýrgripur ís- lenzka Þjóðminjasafnsins. Það er einungis hending, sem réði því, að Valþjófsstaðahurðin hefur ekki glatazt, því að aust- ur á Eiðum stóð t. d. fram á 18. öld fögur timburkirkja öll skreytt með útskurði að innan, en af þeirri listasmíð hefur ekk- ert varðveitzt. Stærsta hús á íslandi um 800 ár reist í Skálholti Af því að við erum mjög fá- tækir af mannvirkjum frá mið- öldum, þá er það mjög mikil- vægt fyrir íslenzka menningar- sögu að fá sem gleggsta hug- mynd um hina fornu dóm- kirkju í Skálholti. Nú mun úr því skorið, að engar leifar finn- ast eftir elztu kirkjuna, sem Gissur hvíti reisti, og vafalaust verður erfitt fyrir fornfræðing- aria að skapa sér nokkra hug- mynd um gólfflötinn í kirkju Gissurar biskups ísleifssonar, en þeir munu nú kunna allglögg i skil á grunni kirkju þeirrar, er Klængur biskup reisti laust eft- ir miðja 12. öld. í Hungurvöku segir, að sú kirkja hafi verið „vönduð fram yfir hvert hús annað, þeirra er á íslandi voru ger, bæði að viðum og smíði“. Hvernig leit þessi kirkja út, og hve stór var hún?. Slíkra spurninga munu margir spyrja. Nú mun að nokkru úr því skorið, hve stór hún var, því að fornfræðingarnir telja, að grunnflötur hennar hafi ver- ið um 46 m á lengd og 12 m á breidd. Þetta hefur verið krosskirkja, þverskipið um 21' m á iengd og 11—12 m á breidd. Þetta hefur verið stærsta hús, sem reist hefur verið á íslandi, þangað til á 20. öld. Þótt það sé allmerEilegur fróðleikur að vita grunnmál kirkjunnar og það með, að þeir rúmlega 840 menn, sem voru við vígslu hennar á sínum tíma, hafi getað rúmazt í henni,; þá langar okkur til að vita ótal margt annað um hana. Hve há var hún, og hvernig var bygg- ingarlagið? Nú vita menn, að byggingameistarar miðalda voru engir klaufar, heldur kunnu þeir sitt fag, og reistu mörg fegurstu hús veraldar. f miðaldabyggingum ríkir fullt samræmi, föst, samræn hlut- föll, og menn þekkja sæmilega þau lögmál, sem ríkja í bygg- ingarstíl norsku stafkirknanna. Sennilega á Klængskirkjan sér systurbyggingu í Noregi, ön þar hafa varðveitzt fjöldi staf- kirkna frá 12. öld. Við rann- sóknirnar í Skálholti í sumar hefur starfað norskur forn- fræðingur, Haakon Christie að nafni. Hann mun fara út með grunnteikninguna af Skálholts- kirkju og reyna að finna hlið- stæðu hennar meðal norskra miðaldakirkna. Takizt það, þá getum við skapað okkur fyllrf hugmynd af hinum forna Skál- holtsstað, þessi forni höfuð- staður fslands verður okkur meiri veruleiki en áður. Er hægt að finna legstað Jóns Gerikssonar? En enda þótt við getum gert okkur allglögga hugmynd um útlit miðaldakirkjunnar, þá verður sú mynd aldrei fullkom- in. Þótt íslendingar hafi flutt inn tilbúnar kirkjur frá Noregi, þá skreyttu þeir þær sjálfir og áttu sjálfstæðan skrautstíl. Það sýnir Valþjófsstaðahurðin bezt, en hana telja ýmsir frá 12 öld. Við munum aldréi geta leitt fram í dagsljósið hið persónu lega verk þeirra Árna liöfuð- smiðs, Bjarnar haga og Illuga Leifssonar. En af grunninum sést, að í kirkjunni hafa verið 8 ölturu í kór og þverskipi; og undirstaðan að háaltarinu er Framhald á 11. síðu. Valþjófsstaðahurðin

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.