Þjóðviljinn - 21.09.1954, Page 10

Þjóðviljinn - 21.09.1954, Page 10
I) - ír/\TUW(íÖt‘í Miet »í»« ina':-,-Í‘i' 10) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 21. september 1954 - Stigamaðurinii Eftir Giuseppe Berto 4. DAGUR Finiani lögregluþjónn hafði af tilviljun verið viðstadd- ur atburðinn og hafði síðan farið inn til skósmiðsins í Grupa en þar var fyrir fjöldi fólks, sem langaði til að komast til botns 1 þessu máli. Allir höfðu verið sa.ni- mála um að fordæma son Francesco Rende. En Finiani iögregluþjónn var mikið gefinn fyrir rökræður, og margir sögðu að hann nyti þess að vera á öðru máli en ann- að fólk. Nú sagði hann að það létu ekki allir í ljós sorg sína á sama hátt og hermaður sem kæmi úr stríð- inu væri orðinn dauðanum vanur — svo vanur honum að hann gæti hugsað um hann með kulda og hörku og án þess að láta í ljós ytri sorgarmerki eins og kvenfólk- ið ætlaðist til af honum. Auk þess hafði Francesco Rende dáið fyrir þrem mánuðum. Og var ekki við því að búast að mesta sorgin væri liðin hjá, jafnvel hjá syninum? Að vísu sannfærðu þessi orð hans ekki alla, að minnsta kosti ekki konurnar; samt sem áður urðu þau til þess að skipt var um umræðuefni. Fólk fór aö velta því fyrir sér, hve mikið fé sonur Francesco Rende feng'i í hendur. Þcðar faðir hans kom til þorpsins hafði hann verið orðinn mjög veikur, meö magamein af því tagi sem ekki er hægt aö lækna. Og allir vissu að vegna sjúkleika síns hafði hann neyðzt til að selja húsið og iandið sem hann átti í San Mauro, þorpi hinum megin fjallsins. Þess vegna hafði hann komið í þorpið okkar til aö deyja í húsi systur sinnar, sem var ekkja Accursi smiðs. En nokkrir mánuðir liðu áður en hann dó og all- ^ ir vissu hve dýrt er að vera veikur, og ekkert var því lík-; legra en að arfur sonarins væri fremur skuldir en fjár-1 munir. Og ef sonurinn væri nú laus úr herþjónustu og ætlaði að setjast aö hjá okkur, hvað gæti hann þá gert? i Það var enginn efi á því að hann yrði umrenningur, því að maður sem vanur er að hiröa uppskeru síns eig- in lands, á erfitt með að strita og starfa fyrir aöra. Og hvað sem öðru leið var lítið að gera í þorpinu okkar. Þár var fyrir hópur af atvinnulausu og allslausu fólki, sem átti ekki annars úrkosta en leggjast upp á ná- granna sína. Hvað þetta snerti hafði Fimiani lögregluþjónn einnig aðrar skoðanir en hitt fólkið. Ungur maður sem var vinnufús og vöðvastæltur, sagði hann, gat alltaf leyst það vandamál að vinna fyrir brauði sínu, jafnvel á erf- iðustu timum. Auk þess var engin ástæöa til aö ætla að sonur Francesco Rende ætlaði aö setjast að meðal okk- ar. Þvert á móti — ef hann ætti að segja álit sitt — þá væri hann þeirrar skoðunar að ungur maður á borö við hann ætti ekkert erindi lí' þorpið til okkar og hann færi áreiðanlega burt aftur innan skamms. Úti í heimi væru ótal staðir þar sem maður, sem ekki þyrfti að sjá fyr- ir fjölskyldu, gæti fundið sér afdrep. Um þetta mátti deila fram og aftur, og þótt allir væru sammála um að ungi maðurinn væri vöövastælt- ur var ekki þar með sagt að hann hefði til að bera góð- an vilja. Satt að segja benti ýmislegt til hins gagnstæða. Auk þess var ekki hægt að segja með sanni að hann hefði ekki fyrir fjölskyldu að sjá, þótt ekkjan Accursi væri ekki beinlínis á hans vegum, því að Lucia Rende var honum háð, hún var systir hans og undir lögaldri. Og þar sem samræðurnar höfðu nú beinzt að kven- íólkinu, þurftu konurnar að koma með ýmiss konar athugasemdir; og vissulega er enginn skortur á skæö- um tungum í þorpinu okkar. Konurnar minntust þess að þegar Rende gamli dó hefðu allir getaö séð hvað hann hlaut aumlega jarðarför. En Lucia og ekkjan hefðu klæðzt sorgarbúningum sem hæfðu hefðarfólki. Og ekkjan Accursi, sem hafði frá dauða eiginmanns síns orðið aö vinna fyrir sér með alls konar vinnu, þóttist nú of góð til að vinna. Og fyrst allir þóttust þess full- vissir að peningar Rende gamla væru þrotnir fyrir löngu, lá í augum uppi að þarna var eitthvað grugg- ugt. En engum virtist Ijóst hvað það var sem var grugg- ugt. Þótt sumar konurnar hefðu ákveðnar skoðanir um það, treystu þær sér ekki til að koma með opinberar yfirlýsingar. Eflaust hafa sumar þeirra lýst því yfir seinna, að þær hefðu haft rétt fyrir sér frá upphafi. En nú voru samræðurnar komnar á það stig, að nauðsynlegt var að binda enda á þær — og halda þeim síðan áfram í þrengri hóp. Ég lagöi af stað í fylgd með Fimiani lögregluþjóni. Ég gat ekki beðið í Grupa til klukkan fimm, svo að ég slóst í förina með honum, en hann var að fara niður í Santo Stefano. Mér geðjaðist vel að Fimiani lögreglu- þjóni; mér geðjaðist vel að útliti hans og athöfnum. Andlit hans var eins og á heiðarlegum bónda. En hann hafði ekki valið sér rétt lífsstarf, því að aðalgalli hans var skortur á atorku. Ég sagði honum að það hefði verið fallega gert að taka málstað sonar Francesco Rende. Hann fór auðvitað að nöldra. Hann sagði að fyr- ir þaö að tala vel um fólk og leggja mannorð sitt í hættu vegna annarra, væri hann, sem væri orðinn mosavax- inn í þjónustu lögreglunnar, ekki annað en óbreyttur lögregluþjónn, þótt hann ætti konu og stóran barnahóp. ! En hann sagðist bráðlega ætla að breyta um aðferð. Út- nefning hans til yfirlögregluþjóns væri væntanleg inn- an skamms. Hann sagði þetta alltaf vegna þess að hann skammaðist sín fyrir að vera óbreyttur lögregluþjónn, kominn á þennan aldur. Og við það bættist að þótt hann gæti talaö vel og skynsamlega, vissu allir að hann var í vandræðum í hvert skipti sem hann þurfti aö skrifa annað og meira en nafnið sitt. Hvernig gat hann vænzt þess að hækka í tign þegar hann kunni ekki að skrifa? Hann fór inn í eitt af fyrstu húsunum í Santo Stefano, en þar hafði Domenico Bicia drykkjukrá. Ég fór niöur á torgið í þorpinu til þess að félagar mín- ir sæju mig. Santo Stefano er þýðingarmesti hlutinn í þorpinu okkar og þar er torg, aö vísu ekki mjög stórt, en nógu stórt fyrir fólkið sem hefur ekkert fyrir stafni og strákarnir sem þurfa svigrúm til að leika sér. Þeir voru næstum allir samankomnir þarna þennan dag, kringum hring sem dreginn var með krít á pallinn fyrir neöan minnismerki fallinna hermanna. Við höfum alltaf leikið okkur mikið að skopparakringlu. Það er dreginn hringur á steinstéttina og þátttakendur leggja nokkra aura !i' miðjan hringinn. Svo er skiþzt á að snúa kringl- unni. Hún á aö slást utaní peningahrúguna til þess að I I nafliiMiiti OC GAMNa Einn gesturinn á baðströnd- inni neitaði aigerlega að taka þátt í nokkurri skipulagðri þjálfun. Hann sagði: — Ég er hingað kominn til þ'ess að hví'.a mig og hafa það gott. Öll þjálfun er fásinna. í lok dvalarinnar þegar gest- ur þessi var að gera upp reikning sinn sagði gestgjaf- inn við hann: — Gerðu nú samt fyrir mig eina æfingu áður en þú ferð. Beygðu þig niður með bein hné og snertu töskuna þína. Maðurinn beygði sig niður og snerti töskuna, en sagði síð- an: —■ Á ég að gera nokkuð fleira? Gestgjafinn svaraði: — Ogna töskuna og skila mér hand- klæðunum mínum. sem útiskór á sumrin en inni- skór á veturna. Röndóttir tau- skór eru þægilegir og skemmti- legir, léttir ilskór eru oft puntulegri en eru ekki eins þægilegir sem inniskór. Jafnt á svölnsn scm í stofem Siétt hár meS rpöstn iim Körfuhúsgögn eru orðin mjög vinsæl og það ekki að á- stæðulausu. 1 nýtízku útgáfu eru þau létt og smekkleg að lögun og fara vel á nýtízku heimilum. Körfuhúsgögnin eru eklti lengur einskorðuð við svalir eða sumarbústaði, held- ur hafa þau flutt sig inn í stofurnar. Körfuhúsgögn eru vitaskuld eftir sem áður tilvalin til að nota á svölum og í sumarbú- stöðum. Þau geta komið í stað- inn fyrir garðhúsgögn og eru flutt úr stofunni og út á sval- irnar þegar vel viðrar. En þau eru einnig hentug í litlum íbúðum. Ef þröngt er inni, svo að stöðugt þarf að flytja til húsgögn þegar búið er um og hreinsað, þá er það ómetanlegur kostur að húsgögn in séu létt. Auk þess fara körfuhúsgögn vel við flestar gerðir húsgagna og á nýstofn- uðum heimilum þar sem oft kennir margra grasa í hús- gögnum og þau koma sitt úr hverri áttinni er oft erfitt að fá húsgögn sem falla inn í þann hrærigraut. Körfúhús- gögnin gera það með sóma og eru einmitt ágæt lausn þar sem margar stíltegundir eru fyrir. Ef seinna er skipt um húsgögn má alltaf nota körfu- húsg'ögnin til einhvers. Þau geta sem bezt endað inni í svefnherberginu, eða þá í barnaherberginu. Körfuhúsgögnin eru að vísu misjöfn að gæðum en það er Slétt hár sem strokið er frá enninu, látið snúa inn að neð- an í hnakkanum og spöng höfð um það til að halda því á sín- um stað, er einhver , hægasta og einfaldasta hágreiðsla sem hægt er að hugsa sór. En hún hentar einkum ungum stúlkum og fer ekki vel nema unglegu andliti, en þá er hún líka sér- lega hentug og falleg. Þegar heitt er í veðri láta flest- ir sem ísskáp eiga smjörkrukk- una inn í hann, en það er skammt öfganna á milli, því að þá verður smjörið grjót- hart og engin leið að smyrja því á brauð. Ef smjörið er sér- lega hart einhvern morguninn er hægt að skera af því með ostaheflinum og leggja sneið- arnar á brauðið. Það er ljóm- andi gott á bragðið, en að vísu er það ekki beinlínis sparnað- ur, og hver hefur efni á því að bruðla með smjörið nú til dags ? þó nokkurn veginn hægt að sjá hvað maður kaupir, og síður hætta. á að maður kaupi lélega vöru án þess að hafa hugmynd um það eins og stundum kem- ur fyrir með bólstruð húsgögn. $kemmti!©giz ilatbotna skóí Flatbotnuðu skórnir virðast vera að ná æ meiri vinsældum erlendis og að því er virðist er lagið á þeim flestum svipað, I en fjölbreytni mikil í litum, j mynstri og efni. Margir eru skórnir ætlaðir

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.