Þjóðviljinn - 26.09.1954, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 26.09.1954, Blaðsíða 2
2) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 26. september 1954 s,Og gleðja svo fjand- ann í kristinna manna drápi“ Konungnr mælti til Teits: — Fyrir engan mun vil ég þér Ieyfa að mæla, því að öll þín orð, þau er þú mælir, munu mikið spilla, og væri maklegt að úr þér væri skorin tungan. I>á stóð upp Jón prestur Ög- mundarson og mælti: — Vill konungur leyfa mér að mæla nokkur orð? Konungur spurði: — Hver mælir nú? — Maðurinn svarar: — Presturinn sá hinn íslenzki, hann Jón. Konungur mælti: — Leyfa vil ég þér að tala. Þá hóf Jón prestur svo mál sitt: — Guði er það að þakka, að löndin eru kristin orðin, Nor- egur og ísland ... fjandinn mælti . fyrir munn þessum er nú talaði. Var fyrst veginn maðurinn einn, en síðan fýsti hann, að drepa skyldi tíu, og það hygg ég, að slíkir menn muni mest að vinna í sinni illgirnd og vondum for- tölum eða eyða réttlæti og miskunn og öðrum góðum siðum höfðingjanna, en hvetja þá og hvessa til grimmdar og glæpa og gleðja svo fjandann í krist- inna manna drápi. En jafnt er- um vér, herra konungur, þínir þegnar sem þeir, er hér eru inn- anlands. Nú mun yður mikið við liggja, að þér dæmið rétta dóma, en eigi ranga, því til hvers þings og móts kemur sjálfur al- máttugur guð og hans .helgir menn. (Úr Gísls þætti Illugasonar). □ 1 dag er sunnudagurinn 26. sept. — Adolpliús. 269. dagur ársins. Tungl í hásuðri kl. 12.51. Árdegisháflæði kl. 4.57. Síðdegisháflæði kl. 18.13. Vikapiltar at- vinnurekenda við Morgunblaðið benda járnsmið- um á það í gær hvaða menn at- vinnurekendur vilja fá kosna frá félaginu á komandi þing Alþýðusambandsins. Lýsa þeir lista afturlialdsins í félaginu á þessa leið: „Tveir listar eru í kjöri. Annar borinn fram af lýðræðissinnum og öðrum frjáls lyndum mönnum í félaginu". — Vér sp.vrjum: liverjir eru þess- ir aðrir frjálslyndu, sem ekki eru lýðræðissinnaðir, en Moggi vill efla til valda í verklýðs- hreyfingunni ? Krossgáta nr. 474. Lárétt: 1 gaddsins 7 fisk 8 bandið 9 þrír eins 11 skel 12 umdæmismerki 14 ryk 15 for- boð 17 keyrði 18 brún 20 aft- asti Lóðrétt: 1 drepa 2 þel 3 lézt 4 fæða 5 duna 6 hengingaról 10 kvennafn 13 ítölsk kvikmynd 15 skst 16 á nefi 17 ármynni 19 samhlj. Lausn á nr. 473 Lárétt: 1 kústa 4 er 5 te 7 ala 9 söl 10 und 11 lek 13 ar 15 ár 16 ólmur Lóðrétt: 1 KR 2 sól 3 at 4 enska 6 endar 7 all 8 auk 12 eim 14 ró 15 ár Helgidagslæknir er Skúli Thoroddsen Fjölnisveg 14, sími 81619. 9.30 Morgunút- varp. — Fréttir og tónleikar: Strengjakvart- ett í D-dúr op. eftir Mendelssohn (Stradivarius-kvartettinn leik- ur). 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Prestsvígsla í Dómkirkjunni: Biskup Islands vígir Stefán Lárusson cand. theol. sem settan prest í Staðarprestakalli i Grunnavík í Norður-ísafjarð- arprófastsdæmi. Séra Óskar J. Þorláksson þjónar fyrir altari. Björn Magnússon prófessor lýs- ir vígslu. Aðrir vígsluvottar: Séra Lárus Arnórsson þMikla- bæ, séra Guðbrandur Björns- son fyrrum prófastur og séra Björn Jónsson í Keflavík. Hinn nývígði prestur prédikar. — Organleikari: Páll ísólfsson. 15.15 Miðdegistónleikar: a) Eileen Joyce leikur á píanó. b) L’Arlesienne, svita eftir Bizet (Sinfóníuhljómsveitin í Philadelphíu leikur; Stokow- sky stj.). c) Lög úr óperunni Faust eftir Gounod. 16.15 Fréttaútvarp til íslendinga er- lendis. 16.30 Veðurfregnir. 18.30 Barnatími (Þorsteinn Ö. Stephensen). 19.25 Veðurfr. — Tónleikar. 20.20 Erindi: Pistill frá Grænlandi eftir Guðmund Thoroddsen prófessor (Andrés Björnsson flytur). 20.40 Kór- söngur: Hollenzki kammerkór- inn syngur lög eftir ýmsa höf- unda; Felix de Nobel stjórnar pl. 21.00 Dagskrá Menningar og minningarsjóðs kvenna: a) Frú Svava Þórleifsdóttir flytur inngangsorð. b) Samtalsþáttur: Margrét Jónsdóttir skáldkona talar við þrjár námsstúlkur. c) Einleikur á píanó: Frú Soffía Guðmundsdóttir leikur sónötu í e-moll op 90 nr. 2 e. Beethoven. d) Frú Ragnhildur Jónsdóttir les úr Æviminning- um Guðrúnar Borgfjörð. 22.05 Danslög pl. — 23.30 Dagskrár- lok. Útvarpið á morgun: 8.00 Morgunútvarp. — 10.10 Veðurfregnir. — 12.10 Hádegis- útvarp. —- 15.30 Miðdegisút- varp — 16.30 Veðurfregnir — 19.25 . Veðurfregnir — '19.30 Tónleikar; Lög úr kvikmyndum (plötur). — 19.40 Auglýsingar —■ 20.00 Fréttir — 20.20 Út- varpshljómsveitin; Þórarinn Guðmundsson stjórnar: ,Sylvia‘, ballettsvíta eftir Delibes. — 20.40 Um daginn og veginn (Frú Sigurlaug Bjarnadóttir). — 21 Einsöngur: Hjördís Schymberg óperusöngkona frá Stokkhólmi syngur lög eftir Ture Rang- ström; Fritz Weisshappel leikur undir á píanó. — 21.15 Erindi: Börn og peningar (Snorri Sig- fússon námsstjóri). 21.3Q Tónleikar (plötur): ,Burlesque‘ fyrir píanó og hljómsveit eftir Richard Strauss (Elly Ney og Ríkisóperuhljómsveitin í Berlín leika; van Hoogstraten stjórn- ar). — 21.45 Búnaðarþáttur: Öryggi í meðferð dráttarvéla (Þórður Runólfsson öryggis- málastj.). 22.00 Fréttir og veð- urfregnir. — 22.10 ,,Fresco“, saga eftir Ouida; VIII. (Magn- ús Jónsson prófessor). — 22.25 Létt lög: Lucienne Boyer syng- ur, — og einnig leikin lög á bíó- orgel (plötur). — 23.00 Dag- skrálok. Hjónaefnunum ~ Kristrúnu Guð- *jl ^ mundsdóttur og Reyni Finnboga- syni fæddist 14. marka sonur laugardaginn 18. september. Listasafn ríkisins er opið á þriðjudögum, fimmtu- dögum og laugardögum kl. 1- 3 og sunnudögum kl. 1-4. Bókmenntagetraun Við birtum hér í gær fjögur erindi úr kvæðinu „Bátsenda pundarinn", sem Grímur Thom- sen orti um kaupmannavaldið á hans dögum og baráttuna gegn því. Kannast einhver við þetta ? Til að seðja fýsna feikn flesta kosti þá er völ um: brjóstakrossa, titla og teikn tekst að fá með ríkisdölum. Einn, ef hyggur öðrum tjón, eitruðum hreyfir ríkisdölum og kaupir margan þarfaþjón, það fæst allt með ríkisdölum. Allt skal vinna aftan til og í læstum ráðasölum, svo er vænt, að vinnist spil, ef vasinn miðlar ríkisdölum. Millilandaflug Edda er væntan- leg til Reykjavík- ur kl. 11 í dag frá New York. Flugvélin fer kl. 12:30 til Staf- angurs, Gautjaborgar, Kaup- mannahafnar og Hamborgar. Gullfaxi er væntanlegur til R- víkur kl. 18:00 í dag frá Ósló og Kaupmannahöfn. Flugvélin fer til Prestvíkur og London kl. 8:30 í fyrramálið. Innanlandsflug: I dag er á- ætlað að fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Skógasands og Vestmannaeyja. — Á morgun eru ráðgerðar flugferðir til Ak- ureyrar (3 ferðir), Bíldudals, Fagurhólsmýrar, Hornafjarðar, Isafjarðar, Kirkjubæjarklaust- urs, Kópaskers, Patreksfjarðar og Vestmannaeyja (2 ferðir). Flogið verður frá Akureyri til Kópaskers. Nýlega hafa op- inberað trúlofun sína ungfrú Sig- ríður Ágústsdótt ir, Fjarðarstræti 7, ísafirði, og Hörður Árnason frá Hnífsdal. Þann 19. þm opinberuðu trúlof- un sína ungfrú Ásdís Jóhanns- dóttir, V estmannaey jum, og Ingi Vignir Jónasson, Akureyri. Bæ j arbólcasafnið Útlán virka daga kl. 2-10 síð- degis. Laugardaga kl. 1-4. Les- stofan er opin virka daga kl. 10-12 árdegis og 1-10 síðdegis. Laugardaga kl. 10-12 og 1-4. Lokað á sunnudögum yfir sum- armánuðina. •Tr<í hófrsmni* Skipadeild SÍS Hvassafell fer frá Seyðisfirði í dag til Finnlands. Arnarfell lestar saltfisk á Austurlands- höfnum. Jökulfell fór frá New York 23. þm til Reykjavíkur. Dísarfell fór frá Hamborg í gær til Reykjavikur. Litlafell er í olíuflutningum í Faxaflóa. Helgafell er í Álaborg. Birlc- nack er í Keflavík. Magnhild fór frá Haugasund 21. þm til Hofsóss. Lucas Pieper fór frá Stettin 17. þm til íslands. Lise fór frá Álaborg 21. þm til Keflavíkur. Ríkisskip Hekla var á ísafirði í gærkv. á norðurleið. Esja er á Aust- fjörðum á norðurleið. Herðu- breið fer frá Rvík á mánudag- inn austur um land til Bakka- fjarðar. Skjaldbreið er á Breiða firði. Þyrill er á leið frá Berg- en til Rvíkur. Skaftfellingur fer frá Rvík á þriðjudaginn til Vestmannaeyja. Eimskip Brúarfoss er í Hull. Dettifoss er I Reykjavík. Fjallfoss fer frá Hull í dag til Reykjavík- ur. Goðafoss fór frá Ventspils 22. þm til Helsingfors og Ham- borgar. Gullfoss fór frá Kaup- mannahöfn á hádegi í gær til Leith og Reykjavíkur. Lagar- foss fór frá Hrísey í gær til Húsavíkur, Þórshafnar og Norð fjarðar og þaðan til Esbjerg og Leníngrad. Reykjafoss fer frá Akureyri í dag til Húsavíkur og Siglufjarðar. Selfoss fór frá Grimsby í fyrradag til Hamborgar og Rotterdam. — Tröllafoss fer frá New York 28. þm til Reykjavíkur. Tungu- foss er í Savona. •."yt&mQíiCijiy- " Kvöld- og næturvörður er í læknavarðstofunni Austur- bæjarskólanum, Sími 5030; kl. 14-8 í fyrramálið. í fyrradag voru gefin saman í hjóna band frú Þór- unn Magnús- dóttir, formaður Samtaka her- skálabúa og Helgi Jónsson, járnsmiður. Heimili þeirra er í Kamp Knox G 9. Eftir skáídsögu Charles de Costers * Teikningar eftir Helge Kiihn-Nielsen 446. dagur. Lesið skjalið, lirópuðu menn og konur. Néla er heiðvirð. Lesið skjalið! Néla er ekki galdrakvendi! Og einn dómarinn las. En af bréfinu varð ljóst hvernig Jón Dampur hafði hagað glæpaverkum sínum. I bréfinu útskýrði hann fyrir Hildi- brandi, hvernig þeir skyldu táldraga Katalínu og lokka frá henni arfinn eft- ir Klér. En fólkið hrópaði: — Dauðadóm yfir morðingjann! Dæmið galdramanninn til dauða! Á bálið með kvennaflagarann! I gálgann með ræningjann!

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.