Þjóðviljinn - 28.10.1954, Page 6

Þjóðviljinn - 28.10.1954, Page 6
g) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 28. október 1954 þlÓOlílUINN Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. Rltstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.) Fréttastjórl: Jón Bjarnason. Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarni Benediktsson, Guð- znundur Vigfússon, Xvar H. Jónsson, Magnús Torfi Ólafsson. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustig 19. — Sími 7500 (3 línur). Áskriftarverð kr. 20 á mánuði i Reykjavík og nágrenni; kr. 17 annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. | Viðbrögð ritstjórans Hernámsblöðin eru í gær barmafull af auómjúkustu lofgerð um Adenauer, Tíminn birtir af honum fjölmarg- ar myndir til þess að bæta fyrir fyrri skyssu og Morgun- bJaðið getur heimsóknarinnar á fimm síðum mynd- ískreyttum. Jafnframt er Morgunblaðið mjög miður sín út af því að Þjóöviljinn benti á það hver öfl standa að þessum vesturþýzka forsætisráðherra og segir að það sé ,,sóðamálflutningur“ að ætla að bendla Adenauer for- sætisráðherra við nýnazisma. En staðreyndirnar tala sínu máli. ' Fjórir af ráðherrunum í stjórn Adenauers eru fyrrver- andi SS-menn — bundnir trúnaðareiði þeim samtökum sem myrtu fimm milljónir gyðinga. Hvarvetna tróna Dazistar á æðstu stöðum, stríðsglæpamenn hafa verið 2átnir lausir og þeim faldar trúnaðarstöður, vopnafram- leiðendurnir hafa fengið eignir sínar á nýjan leik. Á- standið birtist í mjög skýru ljósi þegar yfirmaður örygg- isþjónustunnar, dr. John fór til Austurberlínar og skýrði öllum heimi frá kynnum sínum af stjórnarfari Adenau- ers og uppgangi nazista. Síðan hefur einn af þingmönn- um Adenauers fanð sömu leið og sagt sömu sögu. Ábyrg- jr erlendir fréttamenn gefa allir sömu lýsingu á ástand- inu í Vestur-Þýzkalandi: Þar er verið að endurlífga prúss- jieska hernaðarandann, og það eru einmitt nazistarnir sem Adenauer styðst fyrst og fremst viö ásamt peninga- ínönnum þeim sem efldu Hitler til valda. Allt eru þetta Staðreyndir, og einmitt þessar staðreyndir þurfa fslend- ángar að þekkja þegar til þess er ætlazt að þeir stuðli að því að böðlar Evrópu fái aftur vopn í hönd. Morgunblaðið segir „að sjaldan hafi kommúnistar lagzt svo lágt sem í þessum sorpskrifum og er þá mikið sagt“. Meginefni í forustugrein Þjóðviljans var upp- prentun á tíu ára gömlum greinarkafla eftir ritstjóra Morgunblaðsins. Venjulegast má fara orðum þeim sem tilgreind voru um skrif þess manns, en þaö átti ekki við að þessu sinni. Hins vegar sýna þessi viðbrögð að rit- í.tjórinn blygöast sín fyrir það sem hann hefur áður mælt drengilegast og vill áfjáður auglýsa andlegan skyldleika sinn við „Hitler og hyski hans“, eins og hann komst sjálfur að orði fyrir tíu árum. ' Áhrifalaus reiðilestnr ' Alþýðublaðið birtir í gær mjög harðorðan leiðara um sam- vmnu við sósíalista og segir að það séu annaðhvort fífl eða fúlmenni sem láti hafa sig til slíkra verka. Ástæðan sé sú að gósíalistar beiti sér fyrir „sífelldum undirskriftasöfnunum og verkföllum gegn hinu og þessu.“ Auk þess sé það staðreynd &ð þeir „hafi alltaf brugðizt trúnaði, að þeir hafi alltaf svikið alla samninga". Ennfremur séu þeir þjófar og gott ef ekki morð- i’igjar. Og því er ekki að furða þótt Alþýðublaðið spyrði að lok- Vm: „Getur nokkur heilbrigt hugsandi verkamaður, sjómaður cða verkakona treyst mönnum sem þannig haga sér“ og bætti yið: „Engin ógæfa gæti hent allsherjarsamtökin meiri en sú, £í verkalýðurinn léti enn einu sinni blekkjast af sparisvipnum og blíðmælgi silkitungunnar. Reynslan sannar að það er aldrei hægt að semja við kommúnista, að það er ekki hægt að treysta jpeim, að þeir tala ekki sama tungumál og aðrir menn". Ekki er alveg ljóst gegn hverjum reiðilestri þessum er beint, en þó má telja trúlegast að greinarhöfundur hafi haft Emil Jónsson sérstaklega í huga. Hann hefur sem kunnugt ei brotið öll boðorð forustugreinarinnar á hinn afdráttar- lausasta hátt, gert mjög víðtækan samning við sósíalista um ttjórn bæjarmála Hafnarfjarðar og þannig orðið forustumaður •jrman Alþýðuflokksins 'um vinstri samvinnu. Hefur samvinna J’essi þótt mjög til fyrirmyndar hjá heilbrigt hugsandi verka- mönnum, verkakonum og sjómönnum um land allt, og af því stafar heift Alþýðublaðsins. Verkin tala jafnan áhrifameira jnáli en orðin tóm, og því hefur fordæmi Emils Jónssonar meiri áftrif en fúkyrðaflaumurinn í forustugreininni. „Sameinaðir stöndum við“ er letrað á spjaldið, sem borið er fyrir hópgöngu verk- fallsmanna í London. Enskir hafnarverkamenn i verkfalli gegn stjórn sinna eigin samtaka Uppreisn gegn einrœSi Deakins, mátfar- stólpa hœgriafla Verkamannaflokksins Verkfall hafnarverkamanna í London hefur nú staðið í þrjár vikur og hefur breiðzt út til sjö annarra hafnarborga í Englandi. Þessi vinnudeila er sérstæð að því leyti, að verk- fallið beinist ekki síður gegn stjórn samtaka hafnarverka- manna en gegn atvinnurekend- um. Höfuðandstæðingur verka- manna í deilunni er Arthur Deakin, forseti sambands flutn- ingaverkamanna, sem mikill meirihluti hafnarverkamanna telst til. Deakin hefur síðan verkfaflið hófst rótazt eins og naut í flagi og haldið hverja skammaræðuna á fætur ann- arri um verkamenn. Hann held- ur því statt og stöðugt fram að vinnustöðvunin sé tilefnis'- laus, orsök hennar sé undir- róður kommúnistískra samsær- ismanna. Þetta sjónarmið Deak- ins hefur fengið furðu litla á- heyrn. Meira að segja sirWalt- er Monckton, verkalýðsmála- ráðherra í brezku íhaldsstjórn- inni, er hliðhollari hafnarverka- mönnum en hægrikratinn Deak- in, sem ætti þó að vera helzti málsvari þeirra ef allt væri með felldu. TVfonckton hefur lýst þvi yfir á þingi, að hann viðurkenni að kröfu hafnarverkamanna um að þeir fái sjálfir að ráða því, hvort þeir vinna eftirvinnu eða ekki, sé ekki hægt að vísa á bug að óathuguðu máli. Þrátt fyrir óþægindi sem af verkfall- inu leiða njóta verkfallsmenn samúðar brezks almennings, sem hefur fullan skilning á kröfu þeirra um að vera frjáls- ir að því að vinna framyfir fastan vinnutíma eða ekki. Réttmæti málstaðar hafnar- verkamanna er svo almennt viðurkennt að ríkisstjórnin hef- ur ekki enn vogað að láta her- lið hefja verkfallsbrot, en til þess ráðs gripu stjórnir Verka- mannaflokksins hvað eftir ann- að þegar svipaðar deilur komu upp meðan þær fóru með völd. ‘17'arla hefur nokkurt ár liðið » svo síðan heimsstyrjöldinni lauk að ekki hafi komið til Erlend É i <$ i n d i meiri og minni vinnustöðvana við höfnina í London eða í öðrum enskum hafnarborgum. Deilan sem nú steadur er að- eins hið víðtækasta af mörgum svipuðum. í öll þessi skipti hafa hafnarverkamenn lagt niður vinnu í trássi við stjórn- endur flutningaverkamanna- sambandsins. Tilefni verkfall- anna hefur verið það sama og nú, Deakin og aðrir broddar sambandsins skella skolleyr- um við kvörtunum og kröfum verkamanna, sem fá enga leið- réttingu mála sinna fyrr en þeir leggja niður vinnu. Starf- andi hafnarverkamenn hafa kosið úr sínum hópi verkfalls- nefndir, sem heyja deiluna við stjórn flutningaverkamanna- sambandsins og þá sem hún hefur skipað til að fara með mál hafnarverkamanna. Deilur þessar hafa verið langar og torleystar, því að Deakin og fé- lagar hans hafa hótað atvinnu- rekendum og stjórnarvöldum öllu illu ef þau tækju upp beina samninga við verkfallsmenn sjálfa. Hinsvegar telja hafnar- verkamenn sig ekki bundna af samningum, sem sambands- stjórnin gerir í nafni þeirra án þess að þeir sjálfir fái að koma þar neins staðar nærri. TT'kki þarf ' neina sérstaka skarpskyggni til að sjá, að eitthvað meira en lítið er bog- ið við skipan mála í verkalýðs- hreyfingu, þar sem ástand eins og þetta getur skapazt. Aug- ljóst er að ekkert samband er lengur milli starfandi verka- manna og þeirra sem eiga að heita fulltrúar þeirra og um- boðsmenn. Svo vill til að veil- an í sambandi brezkra flutn- ingaverkamanna hefur verið dregin fram í dagsljósið á ó- venjulegan hátt. Fyrir tveim ár- um kom út doktorsritgerð eftir bandarískan félagsfræðing, Jos- eph Goldstein, sem einmitt fjallaði um flutningaværka- mannasambandið og nefnist: The Government of British Trade Unions: A Study of Apathy and the Democratic Process in the Transport and General Workers Union (Stjórn brezkra verkalýðsfélaga. Rann- sókn á deyfð og lýðræðishátt- um í Sambandi flutningaverka- manna. og ófaglærðra verka- manna). Goldstein hafði ekki látið við það sitja að kynna sér lög og reglur sambandsins og deilda þess, hann tók að vinna verkamannavinnu í London, gekk í eina deild flutninga- verkamannasambandsxns og kynnti sér starfshætti þar og framkvæmd sambandslaganna af eigin raun. TVTiðurstöður hins bandaríska ’ félagsfræðings voru Deakin og öðrum stjórendum flutninga- verkamannasambandsins til lít- ils sóma. Goldstein komst að raun um það að reglur um lýð- ræðislegar kosningar deilda- stjórna og fulltrúa á sambands- þing voru að engu hafðar. Skriffinnar í aðalskrifstofu flutningaverkamannasambands- ins stjórnuðu deildunum með Framhald á 8. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.