Þjóðviljinn - 04.11.1954, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 04.11.1954, Qupperneq 1
 Fimmtudagur 4. nóvember 1954 — 19. árgangur — 251. tölublað Framhald umræðttanna á Alþingi um hernámsmálin Ihaldið og Framsókn afhenda Bandaríkjunum ís- lenzkt land undir 4-5 nýjar herstöðvar Er til leynisamningur frá 1951 sem kveður m.a. á um radarherstöðvarnar? ic Ekki liggur annað íyrir Alþingi en að samið haíi verið um það á þessu ári að bæta við fjórum fimm nýjum bandarískum herstöðvum á Íslandi, fjór- um radarherstöðvum og Njarðvík, enda þótf ekki sé fullsamið um afhendingu þess staðar. * íslenzk stjórnarvöld hafi ekki hingað til opinberlega gert ráð fyrir því að radarstöðvarnar yrðu herstöðvar. En þegar íslenzka ríkisstjórnin krafðist þess í samningagerð á þessu ári að íslendingar verði þjálfaðir til að taka við rekstri radarstöðvanna er svar Bandaríkjastjjórnar þvert nei, tæknin í radarstöðvunum sé hernaðarleyndarmál. Radarstöðvarnar skuli vera herstöðv- ar. ít Og í stað þess að segja þá: íslendingar vilja ekki bæta við þeim fjórum nýju herstöðvum, beygir ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar sig í duftið fyrir töfraorðinu: Hernaðarleyndarmál, og afhendir nýtt land af Islandi undir nýjar bandarískar herstöðvar. Þessar ískyggilegu staðreyndir komu skýrt fram á Alþingi í gær, í ræðum Kristins Guðmundssonar utanríkisráðherra og Hermanns Jónassonar. Utanríkisráðh. skýrði einnig frá að hver þess- ara radarstöðva yrði mönnuð a.m.k. 30—50 þaulæfðum og há- menntuðum sérfræðing- um en þriðjungur starfs- mannanna ynni störf sem ekki þyrfti tækni- menntun til . í ræðu Hermanns Jónassonar kom fram einkennileg fullyrðing um radarstöðvarnar. Kvað hann fjarri lagi að telja að með tilkomu þeirra hefðu bætzt við fjórar nýjar herstöðvar á þessu ári sem Fram- sóknarráðherra hefur farið með hernámsmál- in. Um bessar raaarstöðvar heíði verið samið í upp- haflega samningnum 1951, í þeim samningi væru þær allar ákveðn- ar. Eina nýja í því efni væri það ef Bandaríkja- hernum yrði afhent Niarðvík. Einar Olgeirsson spurði hvað Hermann ætti við með þessu, að radarstöðvarnar hefðu verið ákveðnar í „upphafle^a samn- ingnum“. í þeim eina ..upphaflega samn- ingi" um hernámið, sem lagður hefur verið fyrir Alþingi með iögfestingu á samnirignum frá 5. maí 3 951 og viðbótarsamningi, væri ekki eitt orð uhi þessar radarstöðvar. Sagði Einar að sig ræki ekki minni til að í nokkr- um umræðum um þann samning hafi verið minnzt á radarher- stöðvarnar, og spurði svo: Er til einhver annar samningur frá 1951, samningur sem Alþingi hefur aldrei fengið að vita af? Voru fleiri slík ákvæði í þeim leyni- samningi? Hermann Jonasson svaraði Hvað erU Islendingar engu þessum spúrningum og flokksbróðir hans Kristinn Guð- mundsson utanríkisráðherra, sem talaði á eftir Einari skaut sér einnig hjá því, en reyndi að draga úr fuilyrðingu Hermanns með því, að áreiðanlega hefði verið samið um radarherstöðv- arnar áður en hann tók við, en ekki hefði hann gögn í höndum til að sanna það. Vegna fyrirspurna skýrði Her- mann Jónasson frá því að samn- ingurinn um breytingar á fram- kvæmd hernámssamningsins hefði verið gerður með nótu- skiptum milli utanríkisráðherra íslands og bandaríska sendiherr- ans í Reykjavík. hæfir til að gera? Hermann Jónasson sagði, að um þettá mál hefði verið erfitt að semja, og hafi verið skilið eftir óákveðið í samningnum hvor aðili réði ef um ágreining yrði að ræða. Áður hefði þetta verið svo að verkfræðingadeild hersins hefði skorið úr því í hvert sinn hvað íslendingar væru hæf- Framhald á 3. síðu. Lokunartíma sölubúia verðir breytt um ára- mót Fundur var haldinn í Verzlunarmannafél. Reykja- víkur í gærkvöld. Lá þar fyrir tillaga, sem báðar samninganefndir voru búnar að undirrita með fyrirvara, um breyttan lokunartimíi sölubúða og skrifstofa á laugardögum, og var hún samþykkt. Breyting sú sem í tillög- unni felst er þessi: Sölu- búðum og skrifstofum verð- ur lokað kl. 1 e.h. á laugar- dögum á tímabilinu frá 1. janúar til 30. apríl, og á föstudögum verður búðum lokað kl. 7 e.h. á sama tímabili. Brlgzl um kosningasyindl ganga fjöllunum hærra Meiííbluti í öldungadeild Bandaríkjaþings óviss unz endurtalning hefur farið fram þar sem litlu munar á frambjóðendum Dylgjur um kosningasvindl og falsaða talningu ganga á víxl eftir kosningarnar í Bandaríkjunum. Þegar Dewey, fylkisstjóri republikana í New York, fyrir- skipaði endurtalningu vegna þess að Harriman, fylkisstjóra- efni demókrata, hafði einungis nokkur þúsund atkvæði fram yf- ir republikanann Ives, lýsti Harriman yfir að hann hefði gert sérstakar ráðstafanir til að fylgjást með að svik yrðu ekki í tafli við endurtalninguna. Kvaðst hann hafa rökstuddan grun um að kosningatölurnar hefðu sumstaðar verið falsaðar af undirtyllum Deweys. Kærir fyrir FBI Douglas, frambjóðandi demó- Demókratar sigruðu í kosn- ingunum í Bandaríkjunum Unnu meirihlufa i fullfrúadeildinni og siöfylkissfjóraembæffi krata í öldungadeildarkosning- unni í Illinois, sendi Hoover, stjórnanda bandarísku leynilög- reglunnar FBI, skeyti í gær. Er það kæra um að embættismenn Úrslit voru ekki að fullu kunn í kosningunum í Banda- ríkjunum í gærkvöldi, en ljóst varð aö stjórnarandstöðu- flokkurinn, demókratar, höfðu unnið sigur. Það varð ljóst snemma, að demókratar höfðu unnið meiri- hluta í fulltrúadeildinni. Taln- ingu var ekki að fullu lokið í gærkvöldi, en útlit fyrir að demokratar myndu fá þar 233 þingmenn en republikanar 202. Áður liöfðu republikanar fjög- urra atkvæða meirihluta í deild- inni. Harriman fylkisstjóri í New York Enn meiri þykir þó sigur demókrata í fylkisstjórakosn- ingunum. F'rambjóðendur þeirra unnu sjö fylkisstjóraembætti af republikönum, þar á meðal í New York, Pennsylvania, Conn- ecticut og Colorado. Stjórna þá demókratar 29 fylkjum í Banda ríkjunum en republikanar 19. Þýðingarmestur er sigur Harr'mans, fylkisstjóraefnis demókrata í New York, sem vann með aðeins 9000 atkv. meirihluta af j'fir fimm millj- ónum greiddum. Franklin D. Roosevelt yngri, sonur hins látna Bandaríkja- forseta, var í framboði fyrir demókrata til dómsmálaráð- herraembættis í New York en tapaði með 200.000 atkv. mun fyrir republikananum Jacob Javits. Grýlan brást Óvíst var í gærkvöld, hvor flokkurinn myndi ná meirihluta í öldungadeildinni. Veltur það á úrslitunum í* New Jersey, þar sem frambjóðandi demokrata Howell hefur eins 314 atkvæði af 1.700.000 greiddum fram- yfir republikanann Case, og telja verður aftur. Á síðasta þingi höfðu republikanar Þ/eggja atkvæða meirililuta í öldungadeildinni. Demókratar unnu öldungadeildarsæti af republikönum í Kentucky, Mic- higan og Nevada. Republikanar unnu öldungadeildarsæti af demókrötum í Colorado og Iowa. Demókratarnir Murray í Montaua og Douglas í Illionis Framhald á 5. síðu. Thomas Dewey. republikana hafi falsað talning- una í að minnsta kosti þremur sýslum í fylkinu. í New Jersey segja republikan- ar, að demókratar hafi haft kosn- ingasvindl í frammi í Essex-sýslu. Víða talið aftur í New Jersey munar aðeins 314 atkvæðum á öldungadeildar- frambjóðendunum og verður tal- ið þar á ný. Sömu sögu er að segja í Ohio og víðar. Ekki verður ljóst hvor flokkur- inn nær meirihluta í öldunga- deildinni fyrr en þessar endur- talningar eru afstaðnar, en þær geta tekið nokkra daga og jafn- vel vikur ef deilur verða um vafaatkvæði. Eins og stendur hafa demókratar 47 öldunga- deildarmenn og republikanar sömu tölu en einn er óháður. Hvorugur þorir að telja sér sætið í New Jersey. Óháði þingmaður— Framhald á 5. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.