Þjóðviljinn - 19.11.1954, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 19.11.1954, Qupperneq 6
16) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 19. nóvember 1954 -r---— þlðOVIUINN 1 Otgefandi: Sameiningarflokkur albýðu — Sósíaiistaflokkurinn. Rltstjórar: Magnús Kjartanssun. oigurður Guðmundsson (áb.) Fréttastjóri: Jón Bjarnason. Blaðamenn: Ásmundur áigurjónsson Biarni Benediktsson. Guð- mundur Vigfússon, Xvar H. Jonssou. Magnús Torfi Ólafsson. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraiusson. Rltstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja. Skólavörðustig 10. — Sími 7500 (3 línur). Áskriftarverð kr. 20 á mánuði í Reykjavik og nágrennl; kr. 17 annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eíntakið I Prentsmiðja Þjóðviljans h.í. *............ ................—---------------------4 Viðskiptin við Sovétríkin sbpa stórbættan verzfnnarjöfnuð ' í gær birtir Morgunblaðið á fyrstu siðu þá frétt að gjaldeyris- aðstaða landsins verði betri í ár en s.l. ár. Segir blaðið, að allt útlit sé fyrir, að verzlunarjöfnuðurinn í ár verði óhagstæður um aðeins 150 millj. kr. 1 stað þess að s.l. ár var hann óhagstæður um 450 millj. „Þetta hefur gerzt þrátt fyrir niðurfall Marshall- hjálpar, síldarbrest o. fl.“, segir blaðið enn fremur. Og auk þess segir viðskiptamálaráðherra, að gjaldeyristekjur af dvöl varnarliðsins verði verulega minni nú en í fyrra. . Hitt lætur Morgunblaðið ógert að skýra frá því hver ástæð- an er til þéssara snöggu umskipta sem bæta verzlunarjöfnuðinn um ekki minna en 300 millj. kr. á einu ári, þrátt fyrir niður- fall Marshallhjálpar, síldarbrest og minnkandi gjaldeyristekjur af hernaðarvinnunni. Enda mun blaðinu og aðstandendum þess það hentara, að almenningur geri sér sem óljósasta grein fyrir henni. En hún er vitanlega engin önnur,. en sú breyting, sem islenzk stjórnarvöld neyddust til að gera á stefnu sinni í við- 'Skiptamálum fyrir hálfu öðru ári. I byrjun ársins 1953 var utanríkisverzlun þjóðarinnar svo komið, að aðalútflutningsrörurnar s.s. hraðfrysti fiskurinn hrúg- aðist upp í geymsluhúsum vegna þess að markaðir þeir í Vestur- Evrópu ög þó einkum í Bandaríkjunum, sem stjórnarvöldin höfðu mest gumað af brugðustog í ljós kom að allar vonimar um, bandarískan framtíðarmarkað voru blekkingar einar. Jafnframt höfðu Brétar hafið löndunarbannið með þeirri átyllu, að íslend- ingar færðu út landhelgi sína lítið eitt til að koma í veg fyrir eyði- leggingu fiskimiða sinna. Svikaævintýrið við Dawson hinn brezka var farið út um þúfur og leiðtogar stjómarflokkanna þóttust sjá fram á hreint hmn útflutningsframleiðslunnar. ' Þess vegna var það á s.l. sumri, að stjórnin sá sig neydda til að hnýta aftur saman viðskiptaþráðinn til Sovétríkjanna, sem slitinn var 1948 um leið og Marshallsamningurinn var undirritaður. Svo greiðlega gekk að semja, að 1. ág. í fyrra var undirritaður samningur um að afhenda á næstu 12 mánuðum 21 þús. tonn af freðfiski, 100 þús. tunnur af saltaðri Faxasíld, 3000 tonn af frystri Faxasíld og 80 þús. tunnur af Norður- landssíld. Þegar þess var gætt, að öll freðfiskframleiðslan und- anfarin ár hefur verið ca. 35 þús. tonn, þá var jafnframt auð- séð að nú var I fyrsta sinn síðan 1947 skapað það ástand í markaðsmálum okkar, að óhætt var að láta hverja fleytu fiska sem unnt var án þess að óttast þyrfti offramleiðslu eða mark- aðskreppu. Því jafnframt þessu hefur einnig sýnt sig vera til aukinn markaður í öðmm löndum Evrópu, austan „jámtjalds- ins“. Á þessu ári var aftur gerður viðskiptasamningur við Sovét- rikin, stærri en áður og svo stór að ekki tekst nærri því að uppfylla hann, vegna þess að togaramir vom látnir liggja að- gerðarlausir í höfn mikinn hluta sumarsins. Auk þess er verðið á framleiðslu okkar samkvæmt þegsum samningum mun hag- stæðara æn nokkurntima hefur verið í Vestur-Eyrópu, og þó sérstaklega miklu hagstæðara en í Bandaríkjunum. Árangurinn af þessum breyttu viðhorfum í utanríkisverzlun- inni birtist í upplýsingum þeim, er Morgunbláðið hafði eftir við- skiptamálaráðherra og hann mun hafa gefið á Alþingi í fyrra- dag. Þeim upplýsingum að í ár verði verzlunarjöfnuður 300 millj. kr. hagstæðari en í fyrra, þrátt fyrir niðurfall Marshallhjálpar, síldarbrest og minnkandi tekjur af hersetunni. En út frá því verður ekki komizt hjá að hugleiða, hvort er okkur þá hag- kvæmara, aðeins efnahagslega séð, að lifa á og stunda eigin framleiðslu með friðsamlegum viðskiptum við hvaða þjóð sem er, eða lifa á hernaðaratvinnu og betlihjálp. Þessar staðreyndir tala svo skýru máli um það, að enginn þarf að efast. Úm menningarlegu hliðina þarf ekki heldur margra orða við. Þessar staðreyndir sýna það, að það er ekki þrátt fyrir heldur vegna niðurfalls Marshallhjálpar og minnkandi gjaldeyristekna af hernaðarvinnu, og einnig breyttrar viðskiptastefnu, að við erum nú á þessu ári 300 millj. kr. nær því að vinna fyrir okkur sjálfir með eigin framleiðslutekjum heldur en yið vorum s.l. ár. Og enn þá nær og e.t.v. alveg á markinu hefðum við verið ef togaramir hefðu ekki verið látnir liggja í höfn mánuðum sam- an í, sumar. *r' Á nú að afhenda einka- bröskurum Fiskiðjuverið? Eins og kunnugt er, var á tímum nýsköpunarstjómarinn- ar hafizt handa um byggingu Fiskiðjuvers ríkisins. Tilgang- urinn með stofnun þess var að koma á fót fullkomnu fiskiðju- fyrirtæki er ynni á sem fjöl- breyttastan hátt úr örtvaxandi afla er berast mundi á land í Rvík með komu nýsköpunartog- ara og báta. Frá sjónarmiði sósíalista var það ekki þýðing- arlaust að opinbert fyrirtæki gæti fylgzt með fiskverði og vinnslukostnaði á hverjum tíma og skapað þannig aðhald fyrir einkafyrirtækin. f annan stað var tilgangur- inn með stofnun Fiskiðjuvers ríkisins sá, að koma á fót full- kominni, nýtízku niðursuðu til útflutnings í stórum stíl, eins og aðrar fiskveiðiþjóðir hafa gert. Þannig átti F. R. að vinna brautryðjendastarf, sem kostar oftast mikið fé og starf, en sem einstaklingar hvorki vilja né geta framkvæmt. Hinsvegar hlaut slík niðursuðuverksmiðja síðar meir að skila landsmönn- um öllum miklum arði, miklum útflutningsverðmætum fyrir til- tölulega lítið magn hráefna — og það sem mest var um vert, safna reynslu og þekkingu fyrir nýjan atvinnuveg, sem í fram- tiðinni hlaut að veita þúsund- um manna atvinnu. Þegar eftir að nýsköpunar- stjórnin fór frá breyttist stefna stjórnarvaldanna gaghvart þessu fyrirtæki. Fiskiðjuverið var því aldrei fullbyggt, en það eitt varð þess valdandi að það gat aldrei nema að litlu leyti sinnt þeim verkefnum sem því voru ætluð. í kjölfar þessarar stefnubreytingar sigldu svo hverskonar aðrar hindranir á vegi fyrirtaekis- ins. Rekstursfjárskortur mun hafa fylgt fyrirtækinu frá því það hóf starfsemi og hefur það aldrei fengið að starfa með fullum afköstum. Eftir fall nýsköpunarstjómar- j innar komust fljótt á kreik : sögusagnir um að auðvalds- : flokkarnir hefðu í hyggju að j selja F. R. Staðfesting fékkst á j þessum fregnum er þýzkur auð- : braskari kom til landsins. Lá : nú mikið við. Lög brotin og : venjur voru lagðar til hlið- • ar til þess að gera Þjóðverj- : ann að ísl. ríkisborgara, svo *, hann gæti ásamt isl. brösk- urum eignazt Fiskiðjuverið. Samkomulag varð þó ekki milli þýzkarans og íslendinganna, og fór þessi íslenzki ríkisborgari til S.-Ameríku og er úr sög- unni. Nú fyrir skömmu hefur heyrst að enn séu uppi ráða- gerðir um sölu F. R. og eru ýmsir íhaldsbraskarar tilnefnd- ir í því sambandi. Eins og skilj- anlegt verður af ofanrituðu, mun það ekki valda ríkisstjórn- inni miklum erfiðleikum, að finna átyllu fyrir sölunni. Hún (o. fl. þeir sem að henni standa) hefur sjálf séð fyrir því, að fyrirtækið berðist ávallt í bökkum. Hún mun setja upp helgisvip oð segja: „Þarna sjá- ið þið, ríkisfyrirtæki getur aldrei borið sig“! Hafði e. t. v. sjómaðurinn sem ta.laði við annan um þessar sölusögur rétt fyrir sér. Hann sagði: „Nú er ríkisstjórnin orðin hrædd um að Fiskiðjuverið fari að bera sig, og þá er nú viss- ara að bíða ekki með söluna eða helzt gjöfina til brask- aranna“. Hvað er satt í orðróminum um söluna? Almenningur á kröfu til að fá um það skýr svör. Sjómaður Er ætlumin að reka Emil Jóns- son úr Alþýðuflokknum? Alþýðublaöið birtir í gœr forustugrein urn sam- vinnu verkalýðsflokkanna og segir þar að ekki „nokkrum ábyrgum manni komi til hugar að eiga nokkurt samstarf við kommúnista um afstöðu til manna og málefna ... Þeir hafa aldrei lagt til neinnar samvinnu nema með það eitt í huga að sœra samstarfsflokkinn því sári, sem dugar til falls ... þess vegna og með þær staðreyndir í huga munu ALÞÝÐFLOKKSMENN ékki eiga neinn þátt í að leiða slíkt böl yfir frjáls samtök íslenzkra launþega". (Leturbreyting Alþýöublaðsins). • Hér í blaöinu var rifjað upp í gær að slíkt sam- starf hefur verið framkvœmt í Hafnarfirði megin- hluta þessa árs, og hafa Alþýðuflokksmenn og sósíalistar þar í bæ haft ágœta forustu um sam- stöðu verkalýðsins. Hinum ofsafullu árásum Al- þýðublaðsins virðist því fyrst og fremst vera beint til Emils Jónssonar og félaga hans. Emil er bor- inn þeim þungu sökum að hann sé ekki ábyrgur maður og að hann stefni vitandi vits að því að særa sinn flokk því sári sem dugar til falls. í sein- ustu setningunni er svo gefið í skyn að hann sé alls ekki Alþýðuflokksmaður, og virðist því ástæð- til þess að spyrja hvort œtlunin sé að reka hann úr flokknum. Þessi heiftúðuga árás Alþýðublaðsins á Emil Jónsson og aðra þá sem beita sér fyrir samvinnu verkalýðsins mun ekki mœlast vel fyrir. Þvert á móti mun fordœmi Emils og sú reynsla sem feng-- in er af vinstra samstarfi í Hafnarfirði verða verkamönnum sönnun þess að aðeins með slíkum vinnubrögðum nœst árangur í baráttu vinnustétt- anna. Morgunblaðið: Öll kjarabarátta er óþörf; ástandið er alfullkomið! \ Morgunblaðið birtir í gær forustugrein um Alþýðusam- bandsþingið og þar er að finna mjög athyglisverða stefnuyfir- lýsingu um afstöðu íhaldsins í verklýðsmálum, þótt að sjálf- sögðu forðist blaðið að segja hug sinn allan eins og hann raunverulega er. Stefnuyfirlýs- ingin er á þessa leið: „Ilagsmunabarátta íslenzks verkalýðs er því ekki lengur fyrst og fremst fólgin í bar- áttu fyrir bækkuðu tímakaupi, frá einu ári til annars. Hún er miklu frekar fólgin í hinu að stuðla að ráðstöfunum sem tryggi árangur baráttunnar á liðnum tíma“. Kenningin er með öðrum orð- um sú að verklýðssamtökin hafi þegar náð markmiðum sín- um; allt sé fullkomið; nú þurfi aðeins að gæta fengins f jár. Það ástand sem nú ríkir er að mati Morgunblaðsins svo prýðilegt að engra úrbóta sé þörf, verka- menn þurfa hvorki hækkað kaup, .bætt kjör né aukin rétt- indi. Það er vissulega ekkert við það að athuga þótt hátt á þriðja þúsund manns hafi verið hraktir frá heimilum sínum til ósæmandi þjónustustarfa fyrir erlendan innrásarher. Það er ekki nema ágætt þótt heil héruð séu að tæmast af fólki vegna atvinnuleysis og skorts á lífsbjargarmöguleikum. Það er' aðeins fagnaðarefni að raun- verulegt kaupgjald, hlutfallið milli launa og verðlags, hefur sifellt verið að rýrna á undan- . förnum - árum. Það. er ástæðu- Framhald á 11, siðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.