Þjóðviljinn - 20.11.1954, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 20.11.1954, Blaðsíða 12
Yinstri samvinnan sigraði Framhald af 1. síðu. Allsherjarnefnd Herdís Ólafsdóttir, Árni Þor- grímsson, Guðm. Guðmundsson, Kristinn B. Gíslason. Tryggvi Emilsson, Andrés Wendel, Vil- borg Sigurðardóttir. Iðnaðarmálanefnd Óskar Hallgrímsson, Árni Magnússon, Jón Árnason, Ein- ar Jónsson, Snorri Jónsson, Kristján Guðlaugsson, ÍBolli Þ. Ólafsson. Trygginga- og öryggis- málancfnd Guðbergur Guðjónsson, Guð- laugur Sigfússon, Jóhanna Egilsdóttir, Gunnar Frederiks- son, Hermann Guðmundsson, Guðjón Jónsson, Þórarinn Gunnlaugsson. Atvinnumálanefnd Ragnar Guðleifss., Torfi Vil- hjálmss., Kolbeinn Guðmunds- son, Bergsteinn Guðjónsson, Hannes Stephensen, Gunnar Jóhannsson, Alfreð Guðnason. .Sjávarútvegs- og sjó- mannakjaranefnd Sigfús Bjarnason, Sigríkur Sigríksson, Ólafur Björnsson, Guðmundur H. Guðmundsson, Tryggvi Helgason, Kristján Eyfjörð, Ásgeir Kristjánsson. Fundur hefst í dag kl. 1. Fundir Alþýðusambandsþings- ins hófust í gær kl. hálfþrjú og var haldið áfram þar sem frá ; var horfið kvöldið áður við af- j greiðslu kjörbréfa. Deilan um fulltrúa skipasmiða var útrædd í fyrrakvöld, en í gær kom röðin S að Sókn. Kjörbréfanefnd var klofin. Jón Sigurðsson lagði til að fulltrúar Sóknar yrðu teknir gildir, en Eðvarð Sigurðsson að kjörbréf þeirra yrðu felld. Aðferðir ósamboðnar verkalýðssamtökunum Eðvarð rakti nokkuð kosning- una í Sókn og kæruna vegna hennar, og er lesendum Þjóð- viljans málið allkunnugt. Var ,kært þar yfir á annað hundrað nöfnum, v5 Þó voru kæruatriðin taunveruiegá Fjölda kvenna vantaði á kjörskrá sem þar áttu að vera, en fjöldi kvenna margtalinn, talinn á þrem eða fleiri vinnustöðum svo 6g undír tveim nöfnum sama konan, ef hún hét tveirá nöfn- um. Samkvæmt béssari kjor- skrá hefðu t. d. 200 stúlkur átt að vinna á Elliheimilinu! Með slíkum vinnubrögðum, sagði Eðvarð, er ekki aðeins ver- ið að bjóða heim gangsterað- ferðum, slíkt er ekki aðeins til að valda deilum og sársauka, heldur til að draga virðingu verkalýðsfélaganna niður, slík vinnubrögð eru ekki samboðin verkalýðssamtökunum. Braut sem ekki má fara Hvernig sem kosningin í Sókn hefði farið, sagði Eðvarð enn- fremur, næði ekki nokkurri átt að taka þessi kjörbréf gild, því með því er verið að fara út á braut sem enginn veit hvar get- ur endað. Ef allskonar mönnum á að haldast uppi slík starfsemi og í sambandi við Sóknarkosn- inguna þá gefum við allskonar bófum tækifæri innan verka- lýðssamtakanna. Á ábyrgð sambandsstjórnar Björn Lýðsson frá Verkalýðs- félagi Rangæinga og Bjarni Þórðarson frá Neskaupstað hörmuðu það að eyða þyrfti tíma þingsins í umræður um slík mál sem Sókn og kváðu fulltrúa utan af landi um lang- Myndasýning í skála Fylking- arinnar „Topaz“ sýndur enn 1 kvöld sýnir Þjóðleikhúsið enn leikritið ,,Tópaz“ og að þessu sinni aðeins vegna fjölda beiðna. Er þetta fyrst og fremst sýning fyrir skólafóik og gengur það fyrir með að- göngumiða. Þetta er 102. sýningin á leik- ritinu á vegum Þjóðleikhússins og væntanlega sú síðasta. Úr einni suniarferð Fylkingarinnar Myndir úr ferðalögum Fylk- ingarinnar í sumar verða til sýnis i skála Fylkingarinnar yfir heigína . Á fjórða tug æskufólks hef- ur þegar skráð sig til þátt- töku í fyrstu skálaferðina, en skrásetning heldur áfram í dag til kl. 4 og eru væntanlegir þátttakendur beðnir að til- kynna þátttöku sína í sima 7512. Sérstaklega eru þeir, sem tóku þátt í ferðalögum Fylk- ingarinnar í sumar, hvattir til að koma upp í skálann, þar sem þeim gefst tækifæri til að panta myndir . Annað til skemmtunar verð- ur frásögn frá Italíu, söngur, skemmtiþáttur, spurningaþátt- ur og dans. Lagt verður af stað klukkan 6 í dag frá Þórsgötu 1. an veg koma til annars en slíks. Beindi Bjarni Þórðarson því til Reykjavíkurfélaganna að undir- búa betur kjörbréf fulltrúa sinna næst. Eðvarð Sigurðsson spurði hverjum slikt væri að kenna nú, það væri stjórn Alþýðusam- bandsins og enginn annar sem bæri ábyrgð á vinnubrögðunum í Sókn. Ný og gömul félög samþykkt Ennfremur voru rædd og sam- þykkt kjörbréf frá nokkrum öðrum félögum. Voru þrjú þeirra félaga er tekin voru í A.S.Í. milli þinga samþykkt, en eitt þeirra (þau voru fjögur) Austri í Skagafirði, .sem ekki hafði sent fulltrúa, fellt með mjög dræmri þátttöku í at- kvæðagreiðslu. Þá var einnig samþykkt að taka gild kjörbréf frá 9 bíl- stjórafélögum, er áður höfðu verið í sambandinu, eða verið deildir í sambandsfélögum, en gengið úr sambandinu í þvi augnamiði að verða í bílstjóra- sambandinu. Eggert Þorsteinsson lagði til að fulltrúi skipasmiða og full- trúar Sóknar yrðu samþykktir sameiginlega. Bjarni Þórðarson lagði til að atkvæði yrðu greidd um fulltrúa félaganna hvors í sínu lagi. — Helgi Hannesson úrskurðaði að greiða skyldi at- kvæði um fulltrúa beggja félag- anna í einu lagi. Voru bæði fé- lögin samþykkt með 152 atkv. gegn 120. Þegar þessu var lokið var kl. hálfsjö og ætlaði forseti að hefja kosningu þingforseta. Var þá mælzt til að kosningu yrði frest- að til kvöldfundar þar sem hóp- ur fulltrúa utan af landi væri rétt í þessu að koma til bæjar- ins. Ekki vildi Helgi Hannesson verða við því og var þvi skotið til þingfulltrúa. Var samþykkt með 184 atkv. gegn 102 að fresta kosningu til kvöldfundarins. — Frá þeim fundi hefur verið sagt hér að framan. þlÚÐVlLllN Laugardagur 20. nóvember 1954 — 19. árgangur — 265,'tölublað Otflutningurinn í oktober sá mesti sem um getur Vömskiptajöfnuðurinn í þeim mánuði vaið hagstæðui um 20.8 millj. ki. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu íslands nam verðmætí útfluttra vara í október s.l. samtals 116 millj. 719 þús. króna / *• *- v' ' »'*'■ og er það mesti útflutningur sem um getur í sögu landsins. Næst mestur hefur útflutningurinn orðið 97.2 millj. í nóv. 1953 og þriðji mestur 92.8 millj. kr. í nóv. 1952. Verðmæti innflutningsins I októ- ber nam samtals 95 mi!lj. 886 þús. króna, þannig að vöruskipta- jöfnuðurinn í þessum mánuði hef- ur orðið hagstæður um 20.8 millj. kr. 1 október 5 fyrra var jöfnuð- urinn hinsvegar óhagstæður um tæpar 53 millj. kr.. inn voru flutt- ar vörur fyrir 119.6 millj. en út fyrir 66.6 millj. kr. Það sem af er þessu ári (jan.- okt.) hefur vöruskiptajöfnuður landsmanna orðið óhagstæður um 203.5, útflutningurinn hefur num- ið 691 millj. en innflutningurinn 894.6 millj. Á þessu txmabili í fyrra var vöruskiptajöfuðurinn óhag- stæður xrm 283.5 millj., út voru fluttar vörur fyrir 529.6 millj. kr. en inn fyrir 813.1 milij. „Ef Islendingar gef ast ekki upp, er ekkert hægt að gera“ Ummæli brezka íhaldsblaðsins Daily Telegiaph um landhelgisdeiluna Brezka íhaldsblaðið Daily Telegraph ræddi í gær land- helgisdeilu íslendinga og Breta og var tilefnið hertaka hvalveiðiskipa Onassis innan^200 mílna landhelgi Perú. Blaðið kemst svo að orði, að öngþveiti það sem landhelgis- deilan sé í sýni ljóslega, hve algerlega gagnslaus alþjóðadóm stóllinn í Haag sé í slíkum málum. Og það heldur áfram: Ef Is- lendingar fallast ekki skilyrð- islaust á :;ð leggja málið undir úrskurð Haagdómstólsins, þá er engin leið fær til að neyða þá til uppgjafar. Blaðið segir að það sé að vona, að SÞ taki til rækilegr- ar íhugunar þegar á yfirstand- andi þingi tillögu þá, sem full- Verkalýðsfélag Skagastrandar: Tekur undir kröfuna um upp- sögn hernámssamningsins Samþykkir einnig að segja upp kjarasamningum Skágaströhð. Frá fréttaritara Þjóðviljans. Undanfarið hefur farið fram hér á staðnum söfnun undirskrifta vegna uppsagnar hernámssamningsins. Strax í upphafi söfnunarinnar var sett á laggirnar sér- stök framkvæmdanefnd skipuð mönnum úr fjórum flokk- um. Hefur undirskriftasöfnunin gengið vel en er þó ekki að fullu lokið. Á almennum fundi í Verka- lýðsfélagi Skagastrandar fyrir skömmu var samþykkt svohljóð- andi ályktun: „Fundur í Verkalýðsfélciai Skagastrandar haldinn 24. okt. 1954 lýsir stuðningi sín- um við kröfuna um uppsögn hernámssamningsins og þá undirskriftasöfnun, sem nú stendur yfir í því sambandi. Fundurinn telur að undir- skriftasöfnunin sé sérstakt mikilvœgi i því að sameina alla andstœðinga hersetunn- ar, og skorar á alla félags- menn og aðra uppkomna ís- lendviga að skrifa undir“. Á þessum sama fundi var einn- ig samþykkt að segja upp kjara- samningum sjómanna, svo og samningum um almenna vinnu. trúar sjö ríkja, þ.á.m. Bret- lands og Bandaríkjanna, lögðu fram á þingínu í september um takmörkun á rétti einstakra þjóða til að ákvarða sjálfar landhelgi sína. Lýsir stnðningi vil nnUrifta- söfnunina Á fundi í Verkamannafélagi Húsavíkur nýlega var eftirfar- andi tillaga samþykkt einróma: „Fundur í Verkamannafélagi Húsavíkur haldinn 10. nóv. 1954 lýsir yfir stuðningi sínum við undirskriftasöfnun þá sem nú er hafin gegn hernámi landsins. Skorar fundurinn á alla meðlimi félagsins að stuðla að því, aft sem flestir Húsvíkingar undir- riti áskorunina um uppsögn her- verndarsamningsins*. Filmia svnir kvik- mynd frá dögum Göbbels Filmía sýnir í Tjarnarbíói i dag kl. 3 og á morgun kl. 3 þýzka kvikmynd, sem gerð var árið 1943, meðan þýzki kvik- myndaiðnaðurinn var hnep ’tur í fjötra nazista. Myndin hetir Stórlygarinn Miinchhausen og er eftir Josef von Dakv. Meða! leikenda eru Hans Aíbers. Hans Brausenwetter og Káte Hack. Undirskrifið kröfuna um uppsögn herverndarsamninislns

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.