Þjóðviljinn - 25.11.1954, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 25.11.1954, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 25. nóvember 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (5 I ':• • •. •• •• Bandaríkin reyna að koma á skæruhernaði í Kína Senda undirróðursmenn hundruðum sam- an með flugvélum til meginlands Kína í tilkynningu, sem kínverska stjórnin gaf út í gær segir að undanfarin þrjú ár hafi verið handteknir eöa felldir 230 undiiTÓðursmenn, sem gerðir höfðu verið út af Bandaríkjamönnum og falið að efna til óeirða og skæru- hernaðar í Kína. Þessir undirróðursmenn hafa verið sendir með flugvélum frá Formósu og þeir hafa látið sig svífa til jarðar í fallhlífum. ir í bardögum við kínverska her- menn. Meðal hinna handteknu eru tveir þeirra 13 bandarísku borgara, sem dæmdir voru í Innreið alþýðu hersins í Hanoi Myndin er tekin þegar hersveitir úr alþýöuhern- Vietnam héldu innreið sína í Hanoi, höfuðborg Noröur-Vietnam, fyrir nokkru. Eins og sjá má af myndunum fögnuöu bœjarbúar ákaft frœknu löndum sínum, sem leyst hafa þá úr nýlenduánauö A-Þýzkaland og Margir þeirra höfðu áður verið foringjar í her Sjangs Kajséks. Á undanförnum þrem árum hafa 124 þessara manna verið handteknir, en 106 verið felld- Kennaraverk- fall i Belgiu 25.000 kaþólskir barnakennar- ar í- Belgíu lögðu í gær niður kennslu í mótmælaskyni við af stöðu ríkisstjórnarinnar til skóla kirkjunnar. Var skólunum lokað og ein milljón barna fékk frí. Kaþólskir háskóla- og mennta- skólakennarar lögðu einnig nið- ur vinnu. Skartþjófarnir liandsamaðir Mennirnir, sem fyrir nokkru stálu skartgripum, sem voru um 48.000 krónur danskar að verðmæti, fyrir augunum á eig- endum þeirra í Kaupmanna- höfn, hafa nú verið handsam- aðir . Lögreglan komst að því, á hvaða hóteli þeir bjuggu í Kaup mannahöfn, og þar sem þeir voru báðir svo furðulega óvar- kárir að segja rétt til nafns síns, féll grunur fljótt á þá. Þeir eru báðir þýzkir og vest- urþýzka lögreglan var því beð- in að leita þeirra. Hafði hún fljótt upp á þeim. Lögreglumaður handtók ann- an þeirra í Hamborg og fljót- lega hafðist upp á hinum í sömu borg. Þeir játuðu báðir strax, enda fannst mest allt þýfið á þeim. fangelsisvist fyrir njósnir af kín- verskum dómstól í fyrradag. Þessum mönnum hafði verið falið það verkefni að koma á fót skipulögðum uppreisnarhópum, sem áttu að undirbúa komu fleiri undirróðursmanna frá Formósu, fremja skemmdarverk og búa í haginn fyrir bandarískar her- sveitir, ef til styrjaldar kæmi. Sjang og USA semur ekki Fréttar. AFP á Formósu segir, að horfur séu á að samningar milli Bandaríkjastjórnar og Sjang Kajséks um hernaðar- bandalag, sem staðið hafa yfir í ár, muni fara út um þúfur. Sjangs Kajséks um hernaðar- skuldbindi sig opinberlega til að verja smáeyjar þær sem Formósustjórnin hefur á valdi sínu við strönd meginlands Kína, en Bandaríkjastjórn hafi lýst yfir, að hún álíti nægi- legt, að 7. flotinn verji For- mósusund. Fengu að vera í flokknum Stjórn brezka Verkamanna- flokksins ákvað í gær að víkja ekki úr flokknum þeim 7 þing- mönnum, sem reknir hafa verið úr þingflokknum. Jafnframt samþykkti stjórn- in vítur á ritstjóra vikublaðs Bevanssipna Tribune, þau Jenn- ie Lie, Michael Foot og J. P. W. Mallalieu, fyrir gagnrýni þeirra á framkomu Deakins, formanns flutningaverkamanna sambandsins í hafnarverkföll- unum í Bretlandi á dögunum. Svíar skiptast á ræðismönnum Otto Nuschke, varaforsætis- ráðherra Austur-Þýzkalands, skýrði frá því í Stokkhólmi, þar sem hann er staddur á fundi Heimfriðarráðsins, að samningar stæðu nú yfir milli stjórna Svíþjóðar og A-Þýzka- lands um skipti á ræðismönn- um. Sagði hann, að vonir stæðu til að þeir samningar bæru á- rangur, enda væri þetta nauð- synlegt sökum sívaxandi við- skipta milli landanna. Ollenhauer and- vígur Mendés Ollenhauer, leiðtogi vestur- þýzkra sósíaldemókrata, flutti útvarpsræðu í gær og andmælti mjög eindregið tillögu Mendes- France um að fjórveldin kæmu ekki saman á fund fyrr en í maí n.k„ þegar hervæðing Vest- ur-Þýzkalands á að vera kom- in vel áleiðis. Sagði Ollenhauer, að slíkur dráttur myndi þýða, að ekkert myndi verða úr sam- einingu þýzku landshlutanna um alla fyrirsjáanlega framtíð. Mendes-France kominn heim Mendés-France kom til Par- ísar í gær úr tíu daga ferð sinni um Bandaríkin og Kana- da. Skömmu áður en hann lagði af stað frá Bandarílcj- unum ræddi hann við Adlai Stevenson, leiðtoga demókrata. Áfengislög sögð valda þjóðarsorg í Frakklandl Útgjöld ríkisins vegna oídrykkju nema 1 7.5 milljörðum franka árlega Fréttaritarar segja, aö þjóðarsorg ríki nú í Frakklandl vegna fyrirætlana Mendes-France um að banna neyzlu sterkra drykkja á veitingastöðum milli kl. 5 og 10 á morgnana og takmarka að öðru leyti alla neyzlu á- fengis. Lagt hefur verið fyrir franska þingið stjórnarfrumvarp til á- fengislaga. Helztu ákvæði lag- anna eru þessi: 1) Aðeins þriðjungur af syk- urframleiðslu næsta árs verði notaður til áfengisframleiðslu. 2) Horfið verði aftur til þeirrar reglu, sem var í gildi á stríðsárunum, að við og við verði bannað að veita áfengi á veitingastöðum heilan dag í einu. 3) Skattar á áfengum drykkj- um og vínveitingaleyfum verði hækkaðir. I Frakklandi eru nú fleiri vínveitingastaðir að til- tölu við fólksfjölda en í nokkru öðru landi og einnig fleiri á- fengissjúklingar. 4) Sektir fyrir ölvun á al- mannafæri verði hækkaðar. — Sektin fyrir slíkt athæfi er nú aðeins 7 frankar, eða um 35 aurar. 5) Strangara eftirlit með því að unglingum sé ekki selt á- fengi. 6) Framleiðsla áfengra drykkja verði takmörkuð. 7) Settar verði reglur til að Kjör ulþýðu enn rí$rð Kampmann, fjármálaráð- herra Danmerkur, lagði í gær fram fjárlagafrumvarp stjórn- arinnar fyrir næsta fjárhags- ár. Er þar gert ráð fyrir að kjör dansks almennings verði enn rýrð með hækkunum á hvers kyns tollum og sköttum. Er ætlunin að auka reksturs- afganginn, sem á yfirstandandi fjárhagsári mun nema 288 millj. króna upp i 300 millj, Þrátt fyrir hinn bágborna greiðslujöfnuð Dana við út- lönd, er ekki ætlunin að draga neitt úr hervæðingarkostnað- inum, sem sligar þjóðina. Á- ætluð útgjöld til hernaðar á næsta ári nema 980 millj. d. kr. draga úr áfengisauglýsingum. Þ.etta felst í því frumvarpi sem þegar hefur verið lagt fram fyrir þingið, en ríkis- stjórnin hefur einnig boðað aðr- ar aðgerðir ,sem einnig vérða lagðar fyrir þingið. M.a. er lagt til, að bannað verði að veita sterka drykki á veitingastöðum mdli kl. 5 og 10 á morgnana; hinsvegar heimilt eftir sem áður að selja vin og öl á þessum tíma sólarhrings- ins. Þetta hefur vakið mikil mótmæli, þar sem það tíðkast mjög í Frakklandi að menm styrki sig á einu glasi af konj- aki, rommi eða eplasnafs, áður en þeir taka til við vinnu sína. Starfsfólk á markaðstorgum borgarinnar er í uppnámi vegna þessa atriðis, þar sem það held- ur á sér hita í næturkuldanum með því að fá sér „einn lítinn“. Ofneyzla áfengis kostar ríkið 7.5 millj. kr. Búizt er við hörðum átökum á þingi, þegar umræður hefjast um þessar fyrirætlanir ríkis- stjórnarinnar, en stjómin er staðráðin í að koma þeim fram, og hefur hún þá helzt í huga hinn gífurlega kostnað, sem franski ríkissjóðurinn verður fyrir vegna -ofdrykkjunnar, en hann er áætlaður um 150 millj- arðar franka árlega (um 7.5 milljarðar ísl. kr.) Frakkar drekka að meðaltali 30,5 lítra af 100% áfengi á mann á ári. Áfengisneyzla ís- lendinga mun vera nálægt 2- lítrum á mann á ári. Njósnadómar í Tékkóslóvakíu Skýrt var frá því í Phaha í gær, að herréttur hefði dæmt 26 menn í frá 4 ára til ævi- langrar fangelsisvistar fyrir njósnir í þágu leyniþjónustu. Bandaríkjanna. j :

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.