Þjóðviljinn - 25.11.1954, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 25.11.1954, Blaðsíða 12
Smátelpur rænd- ar á Lækjartorgi í fyrradag skðíSi það að tvær telpur 7 og 8 ára gamlar voru raendar, er þær voru að fara í Útvegsbankann með 900 kr. til að leggja þar inn. Segja telpurn- ar, að þær hafi spurt ókunnan mann í Austurstræti hvar bank- inn væri og hafi sá vísað þeim að dyrunum. En er þangáð kom og leiðsögumaðurinn hafði feng- ið að vita erindið í bankann þreif hann peningana af telpunum og hljóp á brott. Maðurinn var í ljósgráum föt- um og plastkápu, berhöfðaður og dökkhærður. Er Þjóðviljinn hafði tal af lög- reglunni í gær um þetta mál hafði enn ekki tekizt að hafa upp á ræningjanum. lUÓÐVUJVNN Fimmtudagur 25. nóvember 1954 — 19. árg. — 269. tölublað Fullveldisfagnaður Æsku- lýðsfylkingarinnar Æskulýð'sfylkingin í Reykjavík minnist 36 ára afmælis fullveldisins með skemmtun í Skátaheimilinu við Snorra- braut sunnudaginn 28. nóvember. Þetta verður fyrsta skemmt- unin, sem Fylkingin gengst fyr- ir á þessum vetri, en það er nú að verða hefð, að Æ.F.R. haldi skemmtun í kringum full- veldisdaginn 1. desember. Á skemmtuninni á sunnudag- í kvöld verðnr Dimmalimm, nýi íslenzki ballettinn frum- sýndur í Þjóðleikhúsinu. Nœsta sýning verður á laugar- dagskvöldið kl. 20, en á sunnudag verður eftirmiðdags- sýning kl. 15. — Myndin er af tveim af aðaldansendun- um í Dimmalimm, Önnu Brandsdóttur og Guðnýju Frið- steinsdóttur. Kjósið B-listann í Sjó- mannafélagi Reykjavíkur Allsherjaratkvæðagreiðsla um stjórn í Sjómannafélagi Reykjavíkur fyrir árið 1955 hefst í dag kl. 1 í skrifstofu félagsins Hverfisgötu 8-10, og stendur yfir til dagsins fyr- ir aðalfund, sem haldinn verður í lok janúar 1955. Kosningin stendur til kl. 6 1 dag en verður framvegis alla virka daga frá kl. 3 til 6, nema að annað verði ákveðið og verður það þá auglýst sérstaklega. í kjöri eru tveir listar. A- listi borinn fram af stjórn og trúnaðarmannaráði félagsins og B-listi forinn fram af tilskyldum fjölda sjómannafélaga. B-list- inn er skipaður starfandi sjó- mönnum en þeir eru: Formaður: Hólinar Magnússon Miklu- braut 64. Varaformaður: Hreggviður Daníelsson Digranesveg 35. Ritari: Þorsteiiui Þorsteinsson Bræðraborgarstíg 53. Féliirðir: Valdimar Björnsson Gunnarsbraut 34. Varaféliirðir: Þorsteinn Sigurjónsson Langholtsveg 146. Meðstjórnendur: Jón Halldórsson Laufholti við Ásveg, Sigurður Sveins- son Vinaminni við Nesveg. Varamenn- Diðrik Jónsson, Kirkjuteig 4, Magnús Gíslason, Efstasuiuli 51, Garðar Halldórsson Bar- ónsstíg 57. Sjómannafélagar, kjósið starf- andi sjómenn í stjórn. íþróttahús Vals vœntanlega tekið í notkun í vetur Leikíangahappdrætti íélagsins heíst í dag Knattspyrnufélagið Valur á nú í smíðum stórt íþrótta- hús á landareigninni hjá Hlíðarenda við Laufásveg. Hafa gaflar og veggir hússins þegar verið steyptir upp, en bú- izt er við að hægt verði aö taka það í notkun að ein- hverju leyti síðar í vetur. Stærð íþróttasalarins er 32x16 metrar, en áfastir bún- ings- og baðklefar eru 6,50 m á breidd og jafnlangir salnum. Mesta hæð í salnum verður 8.50 m en vegghæðin 5.50 m. Gunnar Vagnsson, formaður Vals, tók það fram í gær, er hann sýndi blaðamönnum bygg- inguna, að íþróttahúsinu væri ætlað að skapa Valsmönnum skilyrði til að iðka handknatt- leik og knattspyrnu á þeim tíma árs, þegar útiæfingum verður ekki komið við. Hingað til hefði félagið orðið að leigja fimleikasali til vetraræfinganna, en flestir þeirra væru ófull- nægjandi fyrir knattspyrnu- mennina, þar eem ekki mætti sparka knetti í þeim. Bygging hins nýja iþrótta- húss hefur þegar kostað mikið fé, en þess hefur verið aflað með ýmsum hætti. Bezta tekju- Stúdentafélag Reykjavíkur efnir til mannfagnaðar 30. nóvember n.k. Stúdentafélag Reykjavíkur efnir til mikils mannfagn- aðar 30. nóvember n.k. eins og undanfarin ár. Samkvæm- ið hefst með boröhaldi í Sjálfstæðishúsinu kl. 6.30 síðd. öflunarleiðin undanfarin ár hef- ur verið leikfangahappdrætti skömmu fyrir jólin. Og i dag fer Valur af stað með fjórða happdrættið af þessu tagi. — Vinningar í því verða alls 210 að verðmæti 30-40 þús. krónur, allt vönduð leikföng. Happ- drættið verður til húsa á Laugav. 47. Vinningaskrá ligg- ur þar frammi og geta menn því séð strax hvort þeir hafa hlotið vinninga eða ekki. Dagskráin er mjög fjölbreytt að vanda og vel til hennar vandað. Formaður félagsins Guð- mundur Benediktsson hdl. setur hófið. Þá mun Þórarinn Björns- son skólameistari halda ræðu, Aðalfundur LfC Aðalfundur LÍÚ var settur i gær kl. 17:30 af formanni sam- takanna, Sverri Júlíussyni. Á kvöidfundi var kosið í nefndir, en síðan flutt skýrsla stjórnar- innar. Fundur hefst að nýju í dag kl. 10 árdegis. en hann kemur hingað til bæj- arins í boði félagsins i’* því skyni. Kristinn Hallsson og Friðrik Eyfjörð syngja glunta- söngva, en Lárus Pálsson leik- ari syngur vísur. ^Áð vanda mun Stúdentafélag Reykjavíkur sjá um dagskrá ríkisútvarpsins að kvöldi 1. des. n.k. Verður þá útvarpað frá samkvæminu í Sjálfstæðis- húsinu og Bjarni Benediktsson menntamálaráðherra mun halda ræðu. Stjórn Stúdentafél. hyggst að gangast fyrir umræðufundum i og kvöldvökum í vetur, svo sem áður hefur tíðkazt. Stúlka hverfur að heiman f gær var lögreglunni í Reykja- vík tilkynnt, að óttast væri um afdrif Stefaníu Hinriksdóttur Urðarbraut 3 í Smálöndum, en hún hefur ekki komið heim til sín siðan 13. þ. m. og. ekkert til hennar spurzt. Stefanía er 29 ára gömul og hefur búið hjá öldruðum foreldr- um sínum. Lögreglan óskar þess, í að ef einhver hefur orðið var við Stefaníu siðan hún fór að heim- an, þá gefi hann sig fram. Stefanía var klædd í þunna svarta kápu, gráar bomsur og græna húfu. Hún er í meðallagi há, ljós yfirlitum með mikið ljóst, slétt hár og ör á hægri kinn. Akranesbátar afla vel Akranesi. Frá fréttaritara. Fimm bátar stunda héðan línuveiðar og hafa þqjr yfir- leiít aflað vel eða allt upp í 7 tonn í róðri. Einn bátur er með jHir.skanet og hefur aflað treglega. Bjarni Óiafsson seldi af!a sinn í Hamborg í gær fyrir Austur-Þýzkalandsmarkað. Ak- urey er nýfarin til Þýzkalands og selur einnig fyrir austur- þýzkan rnarkað. inn mun Thor Vilhjálmsson, rithöfiindur lesa upp úr verkum sínum, Söngkór verkalýðsfélag- anna í Reykjavík mun syngja undir stjórn Sigursveins D. Kristinssonar en einsöngvari verður Guðmundur Jónsson, óperusöngvari, Anna Stína Þór- arinsdóttir mun ltesa upp kvæði og Gestur Þorgrímsson flytur gamanþátt, að lokum verður dansað. Eins og sjá má af þessu er dagskráin hin bezta og ættu félagarnir að tryggja sér miða í tíma, þar eð húsrými í Skáta- heimilinu er minna en æskilegt væri. Aðgöngumiðarnir verða seldir í skrifstofu Æ.F.R. á skrifstofutíma og í Bókabúð KRON á föstudag og laugar- dag, en skemmtunin liefst kl. 8:30 á sunnudagskvöld. Leikfélag Akra- ness sýnir gaman- leikinn Ævintýrið Akranesi. Frá fréttaritara Þjóðviljans. Leikfélag Akraness frumsýn- ir annað kvöld franska gaman- leikinn Ævintýrið, eftir þá Chavillet Cieflore og Etinne Rey. Leikstjóri er Jón Norð- f jörð. Gamanleikur þessi hefur áður verið sýndur á Akureyri við á- gæta aðsókn. Hann er í þrem þáttum og gerist í Frakklandi um síðustu aldamót. Leikend- ur eru 14, en stærstu lilutverk- in leika Elín Þorvaldsdóttir er leikur Helenu, Hilmar Hálfdáns son leikur unnusta hennar, en Alfreð Einarsson leikur manns- efnið hennar. Aðrir leikend- ur eru frú Sigríður Sig- mundsdóttir og frú Ásgerður Gísladóttir. Búningar eru fengnir hjá Þjóðleikhúsinu, en Lárus Árna- son málarameistari hefur mál- að leiktjöldin. — Formaður Leikfélags Akraness er Óðinn Geirdal. Sakameen og Víkingsútgáfan hefur gefið út 12. bindi af íslenzkum þjóðsög- um og sögnum sem Sigfús Sig- fússon hefur safnað og skráð. Hefur bindi þetta að geyma Útilegumannasögur, og er þeim aftur sk;pt í tvo hópa: Saka- rnenn og Fjallabúa. Bólcin er 238 síður, prentuð í Víkingsprenti. Reykvíkingar! Gerið svo vel að líta í búðargluggana á Laugavegi 13 og Bankastræti 10 — Happdrætti Þjóðviljans

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.