Þjóðviljinn - 04.01.1955, Page 2
2) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 4. janúar 1955
□ 1 dag er þriðjudagrurinn 4.
janúar. — 4. dagur ársins.
Kl. 8:00 Morgrunút-
I \n. varp. 9:10 Veður-
fregnir. 12:00 Há-
' "x “ degisútvarp. 15:30
Miðdegisútvarp. —
16:30 Veðurfregnir.
18:00 Enskukennsia < II. f!. 18:55
Framburðarkennsla í ensku. 19:15
Tónleikar: Þjóðlög frá ýrnsum
iöndúm (pl). 19:40 Auglýsinga.r.
20:00 Fréttir. 20:30 Erindi:
Franski heimspekingui-irin Monta-
igne (Símon Jóh. Águsissón pró-
fessor).' 20:55 Frá tónleikum Sin-
fóníuhljómsveitarinnar í Þjóðleik-
húsinu Í4. september si. (útv. af
ségulbandi). atjórnandi: Dr. Vic-
tor Urbancic. Einleikari: Mstis-
lav Rostropovitsj. Cellókonsert
eftir Dvorák. 21:35 Lestur forn-
rita; Sverris saga; IX. (Lárus H.
Blöndal bókavörður). 22:00 Fréttir
og veðurfregnir. 22:10 Úr heimi
myndfistarinnar. — Björn T,.
Björnsson listfræðingur sér um
þáttinn. 22:30 Daglegt mál (Árni
Böðvarsson cand. mag.) 22:35
Léttir tónar. — Jónas Jónsson sér
um þáttinn Dagskrárlok kl. 23:15.
Tröllaslagur
Nú eru afla.gðar um sinn bók-
menntagetraunir á siðu þessari,
en ekki er þar með sagt að
henni verði með öl'u ijóða vant
í framt'ðinni. Munu hér birtast
öðru hvoru snjallar vísur fornar
og nýjar; og er hér til að byrja
með Tröllas'agur eftir Jón Guð-
mundsson í Rauðseyjum, tekinn
upp úr safninu lslands þúsund
ár:
Kyku:\ strýkur, fram fiaut
á fjölium ölium með sköllum
geitar sveitar grimm þraut,
geymast því Aieimar nú heima.
Nölta, tölta um hörð holt
hjarðir, því jarðir nú skarða;
brestur flesta búkost,
baulur í þaula sígauia.
Blikna bönd vinda,
byljimir afmynda
flyðrubarna fagran völl,
Fjöinis vífs linda,
foidar fjalltinda
flugum niður hrinda.
1 jólablaði Baldurs
á Isafirði birtist
jólahugieiðing eft-
ir séra Stefán Lár-
usson: Verið ó-
hræddir. Þá er
sagan Allt er gott, sem endar vel,
eftir Victor Ardov. Síðan er grein-
in: Sonur gefur fore’.dra sína
saman i hjónaband, sannur ís-
lenzkur þáttur. Birtur er kafli
úr varnarræðu er Eugen Debs
fiutti eitt sinn fyrir bandarískum
dómstóli. Tvö kvæði eru eftir
Harald Stígsson.
Farsóttir í Beykjavík
vikuna 5 —11. desember 1954 sam-
kvæmt skýrslum 20 (20) starfandi
lækna.
Kverkabólga 34 (48). Kvefsótt 82
(122). Iðrakvef 20 (31). Mis'ingar
65 (94). Hvotsótt 1 (0). Hettu-
sótt 22 (19). Kveflungnabólga 11
(12). Rauðir hundar 40 (49).
Munnangur 1 (0). H’.aupabóla 7
(4). Ristill 1 (1).
Farsóttir í Reykjavík
vikuna 12.—18. desember 1954
samkvæmt skýrslum 20 (20) starf-
andi lækna.
Kverkabólga 52 (34). Kvefsótt 125
(82). Iðrakvef 10 (20). Mislingar
65 (65). Hettusótt 19 (22). Kvef-
lungnabólga 9 (11). Rauðir hund-
ar 55 (40). Skar!atssótt 2 (0).
Kikhósti 1 (0). Hlaupabóla 4 (7).
Svimi 2 (0).
(Frá skrifstofu borgarlæknis).
Kvöld- og íueturlæknir
er í læknavarðstofunni í Austur-
bæjarskólanum frá kl. 18-8 í fyrra
málið. — Sími 5030.
Nætui-vörður
er í læknavarðstofunni' Austur-
bæjarskóianum, sími 5030.
Nætui'var/.la
er í Lyfjabúðinni Iðunni, sími
7911.
LYFJABÚÐIB
Holts Apótek ] Kvöldvarzla til
Apótek Austur- j kl. 8 alla daga
bæjar | nema laugar-
i SjBF- I óaga til kl. 6.
215 latiguðu sig að staðaldri
„Þegar baðhúsið (í Reykjavík) hafði starfað 8ý2
mánuð, hélt Baðhúsfélagið fyrsta aðalfund sinn. Á þess-
um tírna höfðu verið afgreidd það mörg böð, að það
svaraði til þess, að hver bæjarbúi hefði einu sinni feng-
ið sér bað. En þess ber að geta í þessu sambandi,
að 215 bæjarbúar lauguðu sig að staðaldri og auk þess
höfðu margir utanbæjarnienn komið í baðhúsið. En
Guðmundur Björnsson var eigi að síður ánægður með
árangurinn, sagði ekki við betra að búast svona fyrst
í stað, þar sem í Kaupmannaliöfn væri ekki að meðal-
tali keypt nema iy2 bað á mann á ári . . .
Einar Benediktsson ritaði um baðstofuna . . . á þessa
leið:
„Baðhúsið er eitt af því fáa, sem gert hefur verið
fyrir almenning á síðari árum í þá átt að gera Reykja-
víkurbæ Iíkan aðsetursstáð siðaðra manna. Það er
mjög lofsvert að ráðast í þetta fyrirtæki, því fremur
sem íslendingar eru kunnir að því að hirða ekki mikið
um að baða sig. — En baðliúsið er ekki viðunan-
legt. Vatnshitunarofninn er ónógur. Fyrir kvenmenn
er baðhúsið ekki boðlegt. Enginn sérstakur baðklefi er
fyrir þær. Ekki sést brúklegur þvottavöndur til að
hreinsa með kerin og hlýtur slíkt að vekja ógeð bað-
gesta . . . ““
(Zimsen; Úr bæ í borg).
Athugasemd Þjóðviljans.' Þetta var haustið 1895.
Lúðrasveit verkalýðs-
ins. Æfing í kvöld kl
8:30 i Tjarnargrötu 20 ;
Áramótamóttaka foi'seta Islands
Forseti la’ands hafði möttöku i
Alþingishúsinu á nýársdag svo
sem venja hefur verið. Meðal
gesta voru rikisstjórnin, fulltrúar
erlendra ríkja., ýmsir embættis-
menir og fleiri.
(Frétt frá foláétarita.ra).
Kvöfdskóli alþýði
Skólinn tekur aftur til starfa
mánudaginn 10. janúar.
F L U G
Hekla, millilandaflugvél Loft-
leiða, er væntanlega til Rvíkur
kl. 7 árdegis á morgun frá N.Y.
Áætlað er að flugvélin fari kl. 8.30
á’eiðis til Stafangurs. Kffupmanna
hafnar og Hamborgar.
Gullfaxi, millilandaflugvél Flug-
félags Is’.ands, er væntanlegur til
Ryikur kl. 16:30 í dag frá Lon-
don og Prestvík.
Innanlandsflug: 1 dag er áætlað
að fijúga til Akureyrar, Blöndu-
ósa, Egi’.sstaða. Flateýrar, Sauð-
árkróks, Vestmannaeyjá og Þing-
eyrar. Á morgun eru ráðgerðar
flugferðir tií Akureyrar, Isafjarð-
ar, Siglufjarðar og Vestmanna-
eyja.
I minningargrein,
sem Tímimi bírti
um Vilhjálm Þór
fimmtudaginn . i
fyrri viku, segir
svo: ' „íltaður með
hæfileikum Vilhjálms hefði vissu-
lega getað náð miklum árangri
á grundvelli einkaframtaksins . . .
Vilhjálmur öðlaðist hins vegar
ungur trúna á samvinnuna . . .“
Blaðið getur þess aftur á nióti
ekki að það var einmitt „árang-
ur“. mannsins „á grundvelli elnka-
framtaksins“ sem oili því að
liann varð að hrekjast lir starfi
hjá „samvinnunni" núna um ára-
mótin — og það er einmitt af
því tilefni sem minningargreinin
er skrifuð!!
Gengisskráning:
Gengisskráning (sölugengi)
1 sterlingspund ........... 45.70
1 bandarískur dol!ar .... 16.32
1 Kanada-do'.lar .......... 16.90
100 danskar krónur ....... 236.30
100 norskar krónur ...... 228.50
100 sænskar krónur .......315.50
100 finnsk mörk .......... 7 09
1000 franskir frankar..... 46.63
100 belgískir frankar . — 32.75
100 svissneskir frankar .. 374.50
100 gyllini .............. 43110
100 tékkneskar krónur .... 226.67
100 vesturþýzk mörk ..... 388.70
1000 lírur ............. 26.12
Um áramótin op-
inberuðu trúlofun
sína ungfrú Sig-
riður Steinþórs-
dóttir frá Lamba-
dal í Dýra.fit'ði og
Tómas Jónsson, kennari, frá Gili
í Dýrafirði.
Nýiega opinberuðu trúiofun sína
ungfrú Guðríður Guðmundsdóttir,
Grenimel 3 Reykjavík, og Ragn-
va’.d Larsen, Eskih’.íð 16 Reykja-
vík.
Á gamlárskvöld opinberuðu trú-
lofun sína Kristín Daníelsen
fædd Þórarinsdóttir og Guðmund-
ur Isfjörð klæðskeri.
Fréttatilkynning frá orðuritara
Á nýársdag sæmdi forseti Islands,
að.. tillögu orðunefndar, þessa
menn heiðursmerki fálkaorðunn-
ar: Davið Stefánsson, skáld, Ak-
ureyri, stórriddarakrossi fyrir
bókmenntastörf, frú Guðúnu Pét-
ursdóttur, Reykjavík, stórriddara-
krossi, fyrir störf að málefnum
kvenna, Helga Arason á Fagur-
hólsmýri, riddarakrossi, fyrir
störf að rafvirkjunum í sveitum
o. fl., Ólaf Bjarnason, bónda i
Brautarho’.ti, riddarakrossi, fyrir
störf að búnaðarmálum, Ólaf
Thorarensen, bankastjóra, Akur-
eyri, riddarakrossi, fyrir störf að
bankamálum, Pál Isó’.fsson, tón-
skáld, Reykjávík, stórriddara-
krossi, fyrir störf að tónlistarmál-
um, og Sigtrygg Klémenáson,
skrifstofustjóra, Rvík., riddara-
krossi, fyrir embættisstörf.
Söfnin eru opin
Bæjarbókasafnlð
Útlán virka daga kl. 2-10 síðdegis.
Laugardaga ki. 2-7. Sunnudaga kl.
5-7. Lesstofan er opin virka daga
kl. 10-12 fh. og 1-10 eh. Laugar-
daga kl. 10-12 og 1-7. Sunnudaga
kl. 2-7.
Landsbókasafnið
ki. 10-12, 13-19 og 20-22 alla virka
daga nema laugardaga kl 10-12
og 13-19.
Náttúrugripasafnið
kl. 13:30-15 á sunnudögum, 14-15 á
þriðjudögum og fimmtudögum.
Þjóðminjasafnið
kl. 13-16 á sunnudögum, kl. 13-15
á þriðjudögum, fimmtudögum og
laugard.ögum. A
Þjóðskjalasafnið
á virkum dögum kl. 10-12 og
14419. U "T.:.‘ ::O.H
Aritonin Dvorak
1 kvö’.d er útvarpað tónleikum
Sinfóníusveitarinnar frá 14. sept-
ember í haust. Leikinn verður
Sellókonsert eftir Dvorák, og
leikur Rostropovitsj ein'eikinn;
en hann var einmitt staddur hér
í Reykjavík um þær mundir og
heillaði alla með snil’d sinni.
Höfundur konsertsins, Tékkinn
Antonin Dvorák, fæddist 1841 og
dó 1904 — fimmtugustu ártíðar
hans var einmitt minnzt víða um
heim á nýliðnu ári. Hann hlaut
alþjóðlega frægð árið 1883 fyrir
verk sitt Stabat mater, er hann
stjórnaði í Englandi. Árið 1891
varð hann prófessor við hljóm-
listarskólann í New York og 1901
forstöðumaður hljómlistarskólans
í Prag. Hann var mjög mikilvirkt
tónskáld. og meðal kunnustu
verka hans er sinfónian Frá nýja
heiminum, óperan Rusalka og
sellókonsertinn sem fluttur verð-
ur í kvöld.
>m hófnínni
Skipaútgerð ríkisins:
Hekla var á Siglufirði í gærkv. á
leið til Akureyrar. Esja er á leið
frá Austfj. til Akureyrar. Herðu-
breið fer frá ,Rvík á fimmtudag-
inn austur um land til Bakkafj.
Skja’.dbreið fer frá Rvík kl. 21
í kvöld vestur um land til Akur-
eyrar. Þyrill fór frá Rvík í gær-
kvöld til Flateyrar og Isafjarð-
ar. Baldur fer frá-'Rvik I dag
til Gilsfjarðar og Hvammsfjarðar.
Sambandsskip
Hvassafell er í Stettin. Arnarfeli
fór frá Bíldudal í gær áleiðis til
Faxaflóahafna. Jökulfell væntan-
legt til Þorlákshafnar í dag. Dís-
arfell fór frá Hamborg í gær á-
leiðis til Rvíkur. Litla.fell er í R-
vík. Helgafell væntanlegt til R-
víkur í kvöld. Caltex Liege er í
Hafnarfirði.
Bæ.iariogararnir
Hallveig Fróðadóttir, Pétur Hall-
dórsson, Jón Þorláksson og Skúli
Magnússon hafa verið hér i höfn-
inni að undanförnu, en fara nú
a,ftur á veiðar. Ingólfur Arnarson
er á ísfiskveiðum, Jón BaldvinsJ
son er á leið til Þýzkalands, en
Þorsteinn Ingólfsson og Þorkell
máni veiða í sa!t.
Krossgáta nr. 544.
Lárétt: 1 kjaftar 7 skst. 8
manneskja 9 stafur 11 kraftur
12 jökull 14 á fæti 15 fyrir
ofan- 17 borða 18 samkoma 20
umdeilt leikrit.
Lóðrétt: 1 hefli 2 frost 3.1úðra-
sveit 4 skst. 5 illgresi 6
skemmta sér 10 hrós 13 greiðu
15 ýti 16 sefi 17 persónufor-
nafn 19 töluliður.
Lausn á nr. 543.
Lárétt: 1 bifar 4 sé 5 ól 7
Ara 9 org 10 lof 11 ill 13 at
15 ar 16 áburð.
Lóðrétt: 1 bé 2 fór 3 ró 4
svona 6 lofar 7 agi 8 all 12
lóu 14 tá 15 að.
m
inninfyarópfol
SKlPAUTCtRI)
RIKISINS
HEKLA
austur. um land í hringferð
hinn 8. þ.m. Tekið á móti flutn-
ingi til Fáskrúðsfjarðar, Reyð-
arfjarðar, Eskifjarðar, Norð-
fjarðar, Seyðisf jarðar, Þórs-
hafnar, Raufarhafnar, Kópa-
skers, og Húsavíkur, í dag og
á morgun. Farseðlar seldir á
fimmtudag.