Þjóðviljinn - 06.01.1955, Blaðsíða 2
2) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 6. janúar 1955
Q 1 dag er finimtudagurlnn 6.
janúar. Þrettándinn — 6. dasfur
ársins — Tungl næst jörðu; hæst
á lofti; f hásuðri kl. 23:03 — Ár-
degisháflæði kl. 3:16 — Síðdegis-
háflæði klukkan 15:44.
A gamlárskvöld
opinberuðu trúlof-
un sína ungfrú
Guðrún Jóna Sig-
urjónsdóttir, Ný-
* býlaveg 12 Kópa-
Vogi, og Ásbjörn Guðmundsson
Höfða Eynarhreppi Snæfellsnes-
eýslu.
Á nýársdag voru
gefin saman í
hjónaband af sr.
Sigurði Kristjáns-
syni á Isafirði
Jónína Nielssen
.hjúkrunarkona frá Seyðisfirði og
Gunn’augur Guðmundsson, póst-
afgreiðslumaður á Isafirði.
Annan í nýári voru gefin saman
í hjónaband af séra Inga Jóns-
syni á Norðfirði Sigríður Mar-
teinsdóttir símamær og Sverrir
Gunnarsson skípasmiður Neskaup-
6tað.
F L U G :
Hekla, millilandaflugvél Loftieiða
er væntanleg til Reykjavíkur kl.
19:00 í dag frá Hamborg; Kaup-
mannahöfn og Stafangri. Flugvél-
in fer kl. 21:00 til N.Y.
Gullfaxi, millilandaflugvél Flugfé-
Jags Islands, fer til Kaupmanna-
hafnar á laugardagsmorguninn,
kemur aftur á sunnudaginn.
Innanlandsflug: 1 dag eru áætlað-
ar ferðir til Akureyrar, Egils-
staða, Fáskrúðsfjarðar, Kópa-
ekers, Neskaupstaðar og Vest-
mannaeyja. Á morgun eru ráð-
gerðar flugferðir til Akureyrar,
Fagurhólsmýrar, Hólmavíkur,
Hornafjarðar, Isafjarðar, Kirkju-
bæjarklausturs og Vestmanna-
eyja.
Minningarspjöld Krabbameins-
félags tslands
fást hjá öllum póstafgreiðslum
landsins, í öllum lyfjabúðum í
Reykjavík og Hafnarfirði (nema
Laugavegs- og Reykjavíkurapó-
tekí), verzlununum Remedíu og
að Háteigsvegi 52, Elliheimilinu
Grund og á skrifstofu krabba*-
meinsfélaganna Blóðbankanum
Barónsstíg, sími 6947.
Rvöld- og næturlæknir
er í læknavarðstofunni í Austur-
bæjarskólanum frá kl. 18-8 i fyrra
málið. — Simi 5030.
Nætuivörður
er í læknavarðstofunni Austur-
bæjarskólanum, simi 5030.
Næturvarzla
er í Lyfjabúðinni Iðunni, sími
7911.
LYFJABÚÐIR
Holts Apótek | Kvöldvarzla til
Apótek Austur- | kl. 8 alla daga
bæjar | nema laugar-
daga til kl. 6.
Eiður vill eftir svoddan koma
Eg fátækur Jón Gíslason sendi yður, Jakob minn Pét-
ursson, mitt svar og sókn á máli míns allra náðugasta
herra og kóngs, svo þér megið hér um alvarlega þenkja
með trúlyndra manna ráði, því þó ég sé forlitinn af
mönnum hér út í, þá er minn guð og minn ástsamlegi
kóngur mitt upphaf í Jesú Kristi nafni eilíflega.
í annan máta, Jakob minn, væri ráðvendni að spyrja
um upphaf alls, Orms frænda míns sáluga arfs og um
þá peningavirðing í fasteign og lausafé, svo engu hefði
verið leynt áður virt var, því eiður vili eftir syoddan
koma, ef að er þrengt við þá, sem svo liafa ólöglega
að sér tekið án dóms og laga svo mikið vandamál
og setja enga vörzlu fyrir.
En lögmálið skipar fullar vörzlur þar til erfingi kemur
eður sá, sem þess arfs meðtökumaður á að vera eftir
lögum.
En ég held nú minn lierra Kristján, kóng elskulegrar
minningar, og mig, Jón Gíslason, hans þræl, fullkomlega
og löglega erfingja dæmda eftir þeim II alþingisdómum,
sem nú hjá yður eru og fyrir þeim augljósir standa
um fyrrgreint erfðamál, Hver, hann hefur eður heldur
ranglega, held ég slíku sekan, sem lögin votta, bæði
fyrir kóngi og karli.
(Alþingisbækur, Anno Í621).
„Ég sá dýrð hans64
sýnd í síðasta sinn
Hin trúarlega kvikmynd , Ég sá
dýrð hans ‘‘ sem séra L. Murdoch
frá Skotlandi hefur sýnt í Stjörnu
bíói á sunnudögum í vetur og
jafnan fyrir fullu húsi, mun
verða sýnd í síðasta sinn í Stjörnu
bíói sunnudaginn 9. janúar klukk-
an 14:30 1 sambandi við sýningu
þessa mun séra L. Murdoch flytja
erindi, sem hann nefnir: Vonarrík
framtíð. Guðmundur Jónsson
óperusöngvari syngur nokkur
einsöngslög. Leigutími kvikmynd-
arinnar er útrunninn um miðjan
mánuðinn, og er þetba iþvi siðasta
tækifæri til að sjá hana.
GJAFIR TIL KÓPAVOGS-
SAFNAÐAR.
„Enn hafa Kópavogssöfnuði bor-
iz( höfðinglegar gjafir.
Rétt fyrir hátíðarnar var að þvi
vikið á safnaðarfundi, að nauðsyn
bæri til að kaupa nýtt orgel til
afnota við guðsþjónustur safnað-
arins. Nú hafa þrír menn þegar
lagt fram sínar eitt þúsund krón-
urnar hver í þessu skyni, þeir
Egill Bjarnason bóksali, Guð-
mundur Matthíasson tónlistar-
kennari og Sigurfinnur Hallvarðs-
son múrari. Á gamlársdag afhenti
maður, sem ekki vill láta nafns
síns getið, mér fimm þúsund
krónur, sem gjöf sína til vænt-
anlegrar Kópavogskirkju. Vildi
hann með því votta þakklæti sitt
til Guðs fyrir veittar velgerðir á
liðnu ári.
Fyrir hönd Kópavogssafnaðar
þakka ég allar þessar rausnar-
legu gjafir og óska gefendum
blessunar á komandi tímum. —
Gunnar Árnason.“
Kvöldskóli alþýðu
Skólinn tekur aftur til starfa
mánudaginn 10. janúar.
Föstudaginn 17. janúar hefst nýr
flokkur í upplestri, og verður
kennari Karl Guðmundsson leik-
ari. Skráning í þennan flokk fer
fram n.k. föstudag kl. 8:30-10
síðdegis, í húsakynnum skólans
Þingholtsstræti 27. Á sama tíma
er einnig tækifæri til að innritast
í aðrar greinar sem kenndar eru
í skólanum.
Minning fræðaþuls
Útvarpið minnist í kvöld Sigfús-
ar Sigfússonar þjóðsagnasafnara.
Flytur Ríkarður Jónsson erindi
um þulinn, en þeir munu hafa
þekkzt, enda upprunnir úr sama
landsfjórðungi; og siðan verður
lesið eitthvað upp úr hinu mikia
ritsafni höfundarins. Kom eitt
bindi þess út í haust, og mun nú
útgáfunni langt komið; en áður
voru komin mörg bindi. Veturinn
er tími þjóðsögunnar, og er vel
til fallið að minnast björgunar-
manns svo margra þeirna á miðj-
um Ýli.
Islenzkur söngur
í hollenzkt útvarp
Karlakórinn Fóstbræður syngur í
hollenzku útvarpsstöðina í Hilver-
sum í dag. Stendur söngurinn kl.
18:15—18:50 eftir íslenzkum tíma.
Bylgjulengd útvarpsstöðvarinnar
er 402 metrar. — Söngur kórsins
var tekinn á segulband í söngför
hans til meginlandsins í sept.
síðastliðnum. Söngstjóri er Jón
Þórarinsson.
1 klrkjubygglngarsjóð
í Höfn í Hornafirði til minningar
um séra Eirík Helgason og frú
Sigrúnu Þorsteinsdóttur, kr. 100.
8:00 Morgunútvarp
—- 9:10 Veðurfr.
00-13:15 Hádeg-
isútvarp. 15:30 Mið
degisútvarp. 16:30
Veðurfr. — 18:25
Veðurfr. 18:30 Barnatími (Þor-
steinn Ö. Stephensen): Jólaævin-
týri eftir Charles Dickens; síðari
hluti (Karl Guðmundsson leikari
les). — Tónleikar ofl. 19:30 Tón-
leikar: Álfalög (pl). 20:20 Sigfús
Sigfússon þjóðsagnaritari: a) Er-
indi (Ríkarður Jónsson mynd-
höggvari). b) Upplestur úr safni
Sigfúsar. 20:55 Kórsöngur: Karla
* ikórinn Fóstbræður syngur. Söng-
stjóri: Jón Þórarinsson. Ein-
songvari: Kristinn Hallsson. Carl
Billich píanó’eikari aðstoðar. —
(Hljóðritað á samsöng i Austur-
bæjarbíói 7. okt. sl.) a) Þrjú ís-
lenzk þjóðlög: Ár vas alda í
raddsetningu Þórarins Jónsson-
ar, Blástjarna í raddsetn. Em-
ils Thoroddsen og Ólafarkvæði,
raddsett af Sveinbirni Svein-
björnssyni og Jóni Þórarinssyni.
b) Eg gekk um runn og rjóður,
enskt þjóðlag. c) Vom Hautregi-
ment eftir Paul Hindemith. d)
Hermannakór úr óperunni Faust
eftir Gounod. e) Doctor Foster
eftir Herbert Huges. f) Tvö
sænsk þjóðlög: Á jánta ja og
Hæ, tröllum á meðan við tórum.
g) Landkjending eftir Grieg. h)
Per svineherde, sænskt þjóðlag.
i) Fimm lög eftir Árna Thor-
stéihsson'/'raddsett af Jóni Þór-
arinssyni: Þar sem háir hólar,
Þess bera menn sár, Dalvísa,
Er sólin hnígur og Áfram. j)
Brennið þið vitar eftir Pál Is-
ólfsson. k) Sefur sól hjá ægi eft-
ir Sigfús Einarsson. 22:00 Frétt-
ir og veðurfregnir. 22:05 Dans-
lög, þ.á.m. leikur danshljómsveit
Björns R. Einarssoniar. Dag-
skrárlok kl. 24:00.
Jólagjafir tll blindra
Meðal jólagjafa til blindra voru
eftirfarandi: — G.A.S. 100.00 Dúlla
25.00. Ónefnd 100.00. kr. SJ'. 100.
00. kr. M.S.M. 100 kr. ÁG. 25 kr.
Pettý 500 kr. Gömul kona 100
kr. Regg G. 50 kr. Á.G. 50 kr.
S.Á. 50 kr. G.l.E. 100 kr. H.H.
50 kr. X. og S. 50 kr. Frú Áslaug
Benediktsson 1000 kr. Guðrún
Daníelsdóttir 100 kr. R.H. 50 kr.
Ingibjörg Sigurðardóttir 50 kr.
Starfsfólk skrifstofu bæjarverk-
fræðings 370 kr. G.O. 25 kr. Tveir
drengir 100 kr. S. 30 kr. N.N. 50
kr. Einar 50 kr. Ónefnd kona
600 kr. Sent í bréfi 25 kr. Sent
í bréfi 100 kr. V.E. 50 krónur.
Rvík 23.12. 1954. Kærar þakkir.
Blindravinafélag Islands
Þorsteinn Bjarnason.
Stundaskrá
Mánudagur:
Kl. 20:30—21:15 Þýzka
Kl. 21:20—22:05 Islandssaga
Þriðjudagur:
Kl. 20:30—21:15 Félagsmál
Miðvikudagur:
Kl. 20:30—21:15 Verkalýðsfélög og
stjórnmál íslenzku
verkalýðshreyfing-
arinnar.
Kl. 21:20—22:05 Marxisminn og
saga alþjóðlegu
verkalýðshreyf-
ingarinnar.
Fimmtudagur:
Kl. 20:30—21:15 Enska.
Kl. 21:20—22:05 Teikning og lita-
meðferð - föndur.
Föstudagur:
Kl. 17:00—19:00 Leiklist og upp-
lestur.
Kl. 20:30—21:15 Þýzka.
Kl. 21:20—22:05 Upplestur.
Kennsla fer fram í Þingholtsstrætl
27 (2. hæðb
luAii'- k.
•Trá hóíninni
Skipaútgerð ríklsins:
Hekla er væntanleg til Rvikur
árdegis í dag. Esja var á Akur-
eyri í gær. Herðubreið er í R-
vdk fer þaðan í kvöld austur
um land til Bakkafjarðar.
Skjaldbreið var á fsafirði í gær
á norðurleið. Þyrill er í IRvík.
Sambandsskip
Hvassafell fer frá Stettin í dag
álejðis til Árósa. Arnarfell er í
Vestmannaeyjum. Jökulfell er á
Akranesi. Disarfell fór frá Ham-
borg 4. þm. áleiðis til Reykja-
víkur. Litlafell er í Rvík. Helga-
fell er í Rvík. Elin S væntanlegt
til Hornafjarðar á morgun.
EIMSKIP:
Brúarfoss kom til Rvíkur i fyrra-
dag frá Hull. Deittifoss fór frá
Gautaborg 3. þm. áleiðis til Vent-
spils og Kotka. Fjallfoss fór frá
Hafnarfirði í gær til Keflavikur
og þaðan til Rvíkur. Goðafoss fór
frá Keflavik í gær til Akraness
og Rvíkur. Gullfoss fer frá K-
höfn á laugardaginn áleiðis til
Leith og iRvíkur. Lagarfoss fór
frá Rotterdam í fyrradag áleið-
is til Rvíkur. Reykjafoss fór i
gær frá Rotterdam áieiðis til
Hamborgar. Selfoss fór frá Köb-
manskær í fyrradag áleiðis til
Falkenberg og Khafnar. Trölla-
foss kom til Nýju Jórvíkur 2 þm.
frá Rvik. Tungufoss fór frá R-
vík 27. des. í fyrra áleiðis til
Nýju Jórvíkur. Katla fór frá
Hafnarfirði i gærkvöld til Bíldu-*
d'als, Súgandafjarðar og Isafjarð-
ar og heldur þaðan til Lundúna
og Póllands.
Bæjartogaramlr
Hallveig Fróðadóttir er í Rvikur-
höfn. Pétur H-alldórsson fór á
veiðar í fyrrinótt. Skúli Magnús-
son fór á veiðar i gærdag. Aðrir
togarar Bæjarútgerðarinnar eru á
veiðum, nema Jón Baldvinsson
er á leið til Þýzkalands með afla.
Aðrlr togarar
Askur er i slipp i Reykjavik. Xs-
ólfur, Goðanesið og Vilborg Her-
jólfsdóttir liggja í höfninni; sá
síðasttaldi mun fara til hafnar í
Norðurlandi innan skamms.
Krossgáta nr. 546.
Næsta mynd, sem sýnd verður í Tjarnarbíói, er gerð eftir
bókinni Brimaldan stríða, sem út kom á íslenzku fyrir jólin.
Eins og kunnugt er fjallar bókin um þann þátt heimstyrjaU-
arinnar sem fram fór á Atlantshafinu — og það var enginn
aukaþáttur. Myndin er ensk, eins og bókin; og sýnir myndin
hér að ofan Jack Hawkins í aðalhlutverkinu: hlutverki Eric-
sons skipstjóra.
Lárétt: 1 hleður upp 7 sérhlj. 8
aðeins þessa 9 sprengiefni 11 þrír
eins 12 píla 14 keyr 15 er í vafa
17 fæði 18 rúmföt 20 mærin.
Lóðrétt: 1 hálfur hestur 2 málm-
ur 3 tenging 4 mjúk 5 kvennafn
6’ gælunafn 10 dvöl 13 óreiðuflakk
15 fylgt eftir 16 blaut 17 dúr 19
skst.
Lausn á nr. 545.
Lárétt: 1 Dagur 4 tó 5 er 7 ra.k
9 sía 10 eff 11 fór 13 ar 15 EA
16 ókunn.
Lóðrétt: 1 dó 2 góa 3 RE 4 tuska
6 refsa 7 raf 8 ker 12 ólu 14 ró
15 en.
Mogens Hedcgárd
skemmtir næstu kvöld að Röðli
með leik á píanó og rafmagns-
píanó.
Otbreiðið
Þjóðviljann