Þjóðviljinn - 06.01.1955, Page 5
Fimmtudagur 6. janúar 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Frakklandi býðst nú tækifæri sem
því mun ekki bjóðast aftur
K/ð skulum koma fram Wð vesturþýzka ráSamenn af
fullri kurteisi, en þiggjum ekki vináttu þeirra
Ræðu þeirrar, sem hinn aldni stjómmálaskörungur,
Edouard Herriot, heiðursforseti franska þingsins, flutti í
umræðunum um Parísarsamningana, mun lengi minnzt.
Rödd hans skalf af geöshræringu þegar hann flutti þessá
ræ'öu, sem hófst á orðunum: „Ég get ekki greitt þeim
samningum sem fyrir okkur hafa verið lagðir atkvæði
mitt“.
Saarvandamálið er enn óleyst.
En þó skiptir mestu máli, að
með Parísarsamningunum mun
Herriot hélt áfram:
-— Þessir samningar svipta
okkur þeirri hagkvæmu aðstöðu
sem við höfum öðlazt með öðr-
um aðþjóðasamningum svo sem
Potsdamsamningnum. Og ég
veit ekki að hve miklu leyti
Berlínarákvæðin fá staðizt
verði þeir samþykktir.
I nágrannalandi okkar, Þýzka-
landi, eru uppi tvö öfl, sem
standa algerlega á öndverðum
meiði. Annars vegár þeir sem
vilja endurreisa hið gamla her-
skáa, vígólma, einræðissinnaða
Þýzkaland, þeir sem bítast um
yfirboðarastöðurnar í þýzka
hernum. Ég er því samþykkur
að við lcomum fram við þá af
fullri kurteisi. En ég hugsa
mig tvisvar um þegar þess er
krafizt, að við þiggjum vináttu
a ísnum
Moskvaútvarpið tók upp þá
nýjung í veðurfréttum sínum
skömmu fyrir áramót að segja
frá veðrinu á rekísnum í ís-
hafinu, þar sem tveir sovézkir
leiðangrar hafa nú dvalizt í sex
mánuði við vísindalegar athug-
anir. Fyrsta daginn var sagt
frá því að frostið hefði verið
31 og 24 stig.
þeirra. Mér veitist ekki auðvelt
að gleyma okkar horfnu bræðr-
um, sem hafa falið okkur að
varðveita minningu sína.
Hins vegar er annað Þýzka-
land, sem reynir að losa sig
úr viðjunum, að ganga braut
frelsisins. 1 þeim flokki eru
æskan, verkalýðsfélögin, sósíal-
demokratamir. Einnig mótmæl-
endakirkjumar.
Lærið af sögu Frakklands
Og enn mætli Herriot:
— Sem fransknr maður, sem
lýðveldissinni á ég erfitt með
að sætta mig við, finnst mér
það fráleitt, að Frakkland komi
hinu afturhaldssama Þýzka-
landi til aðstoðar gegn því
Þýzkalandi, sem reynir að losa
sig úr viðjunum og í rauninni
læra af hinni sögulegu reynslu
Frakklands.
í þessu felst mikil söguleg
staðreynd, sem er mér mikið á-
hyggjuefni og gerir mér ókleift
að samþykkja þá samninga,
sem renna stoðum undir mesta
afturhald Þýzkalands. Ég
kemst ekki hjá því að lýsa því
yfir.
Herriot vék síðan að nokkr-
um öðmm atriðum í samning-
unum sem hann væri mótfall-
inn og gæti ekki sætt sig við.
t*ms
Edovard. Herriot
hefjast takmarkalaust vígbún-
aðarkapphlaup, sem mun leggja
þungar byrðar á frönsku þjóð-
ina. Og að lokum er þess að
gæta, að í Parísarsamningun-
um er aðeins talað um „eftir-
lit“ með hervæðingu Vestur-
Þýzkalands, þeir tryggja á eng-
an hátt slíkt eftirlit.
Gestapo og stormsveitir
endurvaktar
Herriot lýsti út frá eigin
reynslu, hvernig ókleift myndi
verða að hafa nokkurt eftirlit
með hervæðingu Vestur-Þýzka-
lands, þegar búið er að leyfa
hana á annað borð. Þá lýsti
hann sig mótfallinn því að Par-
ísarsamningarnir veita Vestur-
Þýzkalandi heimild til að koma
á fót ótakmörkuðum lögreglu-
Nú geta menn hvað úr hverju farið að eiga von á að fá
framtalseyðublöð frá Skattstofunni og pá er ekki úr vegi
aö birta pessa skopteikningu sem litla ábendingu um
pað að skattheimtumenn hafa œvinlega og alls staðar
verið óvinsœlir. Hún birtist upphaflega í blaði einu í
Vínarborg um 1870. Teiknarinn bendir stjórnarvöldunum
á nýja fjáröflunarleið, sem hann telwr líklega til árang-
urs, eftir að allt annað hefur verið reynt. Það er að
skattleggja aldur kvenna, pannig að „pær sem greiði
kvennaskattinn fái fœðingarvottorð sem sýni að pœr séu
16 ára gamlar“.
Frá því var skýrt í Búda-
pest á aðfangadag, að Banda-
ríkjamaðurinn Noel Field og
kona hans Herta, sem nýlega
voru látin laus úr ungversku
fangelsi,. hefðu beðið um griða-
stað sem pólitísltir flóttamenn
og ’ hefði ungverska stjórnin
orðið við þeirri ósk.
Mánuði áður hafði ungverska
stjórnin tilkynnt, að Noel Field,
sem eitt sinn var starfsmaður
bandaríska utanríkisráðuneyt-
isins, og kona hans hefðu ver-
ið látin laus og þeim gefnar
upp allar sakir. Þau höfðu þá
setið fimm ár í fangelsi, eða
síðan þau vom handtekin í
Praha árið 1949. Bróðir Noels,
Hermahn, hvarf þrem mánuð-
um síðar í Varsjá þar sem
hann hafði reynt að hafa upp
á bróður sínum. Hann var einn-
ig látinn laus fyrir nokkru 0g
dvelst nú í Sviss.
sveitum og minnti á, að vestur-
þýzk blöð hefðu sagt að jafn-
marga hershöfðingja myndi
þurfa til að stjórna þeim og
hernum.
— Ef þetta er rétt, hélt
Herriot áfram, munu Parísar-
samningarnir hafa endurreist
Gestapo og stormsveitirnar.
Það ríður á að lögð sé áherzla
á hvílíka voðalega hættu þetta
hefur í för með sér.
Við eigum um tvær stefnur
að velja. Þá sem miðar að af-
vopnun og þegar hefur náð
verulegum árangri meðal Sam-
einuðu þjóðanna. líina sem leið-
ir til þess vígbúnaðarkapp-
hlaups sem verður afleiðing
Parísarsamninganna. Hvora
eigum við að taka?
Svarið er auðfundið;
Þegar þið hafið hervætt
Þýzkaland að nýju, ætiið þið
þá að reyna að afvopna það
aftur? Með liverra hjálp? Þið
vitið vel, að það getið þið ekki.
Ef Frakkland sleppir þessu
tækifæri, sleppir það sögulegu
tækifæri, sem því mun ekki
bjóðast aftur.
Kosið í pJiupan
eftir mánuð i
Ríkisstjórn Japans ákvað I
gær að rjúfa þing seint í þess-
um mánuði og efna til nýrra
kosninga í lok febrúar. Þegar
Hatojama tók við stjórnar-
taumunum af Josida gerðu sós-
íaldemókratafl. það að skil-
yrði fyrir stuðningi við stjórn-
armyndun hans að nýjar þing-
kosningar færu fram fyrir
marzlok. Vonast þeir til að
vinna verulega á vegna vax-
andi óánægju yfir stjórnar-
stefnu borgaraflokkanna.
Arlseiix kveðst
sVi®smésktir
Jacobo Arbenz, sem rekinn var
frá völdum í Guatemala í sumar,
kom í gær til Sviss ásamt fjöl-
skyldu sinni. Gerði hann þegar
í stað kröfu til að fá svissneskfi
vegabréf, þar sem faðir hans var
Svisslendingur. Samkvæmt sviss-
neskum lögum getur rikisborg-
araréttur gengið að erfðum frá
föður til sonar.
Adenauer 79 ára
Konrad Adenauer, forsætisráð-
herra Vestur-Þýzkalands, varð
79 ára gamall í gær. Orð fer af
að honum hafi hrakað síðustu
mánuði.
Sendiráðsritari Frakka í Vín
fær griðland í Tékkoslóvakíu
Hafði starfað að njósnum í þágu
Bandaríkjamanna í sex ár >
Erlendir og innlendir blaðamenn í Praha voru fyrif
nokkrum dögum kynntir fyrir franskri konu, Anita Mor-
et, sem leitaö’ hefur hælis 1 Tékkóslóvakíu sem pólitískuí
flóttgímaöur.
Nokkrar vikur eru liðnar síð-
an kona þessi kom til Tékkó-
slóvakíu frá Vínarborg, þar
sem hún hafði um margra ára
skeið unnið hjá frönsku sendi-
sveitinni, nú síðast sem fyrsti
sendiráðsritari.
Njósnastarfsemi
Frú Moret er ekkja aðalræð-
ismanns Frakka í Austurríki
og hefur starfað þar í þjón-
ustu sendiráðsins í sex ár. Hún
skýrði frá því, að starf hennar
sem og flestra annarra starfs-
manna sendiráðsins hefði æ
meir verið fólgið í njósnum og
undirróðri, sem beint var gegn
tékkneska alþýðulýðveldinu.
Eftir því sem á leið, sagði
hún, varð franska sendiráðið æ
háðara Bandaríkjamönnum og
tók þátt í undirbúningi þeirra
að stríði við alþýðuríkin. Hún
skýrði einnig frá því, að hún
hefði á stríðsárunum tekið þátt
í andspyrnuhreyfingunni gegn
þýzka hernámsliðinu í Frakk-
landi og hlaut mikla sæmd fyr-
ir unnin afrek.
Endurhervæðingin
Meðan hún starfaði í sendi-
ráðinu í Vínarborg hafði hún
m!a. það verkefni að yfirheyra
flóttamenn frá Tékkoslóvakíu
og láta Bandaríkjamönnum í té
þær upplýsingar sem hún fékk
hjá þeim. Hún sagði, að sér
hefði smám saman orðið ljóst„
að þetta starf hennar var £
fullu ósamræmi við baráttut
hennar á stríðsárunum, og fyr-
irætlanimar um að endurher--
væða Vestur-Þýzkaland hefðu}.
riðið baggamuninn.
írá Nairobi I
n
■
Á jóladag barst svohljóð- jj
andi frétt frá Nairobi:
Lögreglan segir, að 15 rná !
má menn hafi verið drepnir l
undanfarinn sólarhring. Á ii
mörgum enskum heimilum s
hefur vantað verkafólk, af !
þvi að lögreglan hefur hand- ■
tekið f jölda Idkújúmauna
vegna þess að skotið var á
Evrópumann kl. 1 í nótt.
I flestum skæruhéruðum
hefur öryggisliðið þó gétað i
haldið jólahátíð. Yfir Nair-
obi flýgur í dag ein af leit-
arflugvélum lögreglunnar.
Jólasálmum er útvarpað yfir
alla borgina um magnara-
kerfi.
»•■«■»■■■■■■■■■■■■■■■»■•»•■■■■■■■•■■■■■■■■■■*