Þjóðviljinn - 26.01.1955, Síða 3
Miðvikudagur 26. janúar 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Ferðamálafélagið skorar á stjórnarvöldin:
Hættið strax landkynningarstarfsemi
eða gefið hótelbyggingai* frjálsar
Stjórrx Feröamálafélags íslands kvaddi blaöamenn á
fund sinn í gær og ræddi um horfur á því að gera ísland
að ferðamannalandi. Það er einkum' gistihúsaleysið sem
þar kemur fyrst til álita, en gistihús eru nú færri hér í
Reykjavík en fyi’ir 15 árum — og svo komiö að íslending-
ar er til bæjarins koma utan af landi fá oftast ekki inni í
gistihúsi heldur veröa að setjast upp hjá kminingjum
sínum.
Fomiaður Ferðamálafclags-
ins, Agnar Kofoed Hansen flug-
vallarstjóri, kvað stjóm þess
hafa rætt við allmarga aðila,
á þessu fyrsta starfsári sínu.
Nefndi hann þar m.a. ráðherra,
hankastjóra, veitingamenn og
gistihúsaeigendur, hljóðfæra-
leikara, Samband matsveina- og
veitingaþjóna, borgarst jóra,
vegaraálastjóra ofl. Um árang-
ur þessara viðræðna gat hann
ekki.
Formanni Ferðamálafélagsins
fórust þannig orð:
„Stjórn Ferðamálafélagsins
er þeirrar skoðunar, að annað
hvort beri hinu opinbera að
hætta nú þegar landkjmningar-
starfsemi ríkisins, þ.e. að
minnsta kosti þeim þætti henn-
ar, er snýr að því laða ferða-
menn til landsins, eða snúa sér
að því tafarlaust að bæta úr
því vandræða- og ófremdar-
ástandi, sem nú ríkir í hótel-
málum landsins og öðru því, er
lýtur að móttöku erlendra
ferðamanna.
Skoðanir rlkisstjórna
Ekki verður annað séð en að
núverandi rikisstjóm og marg-
ar undanfamar ríkisstjórnir
hafi verið þeirrar skoðunar að
stuðla bæri að því, að ísland
gæti orðið ferðamannaland og
að þannig mætti skapa landinu
álitlegar gjaldeyristekjur. Mun
ísland að ýmsu leyti hafa
margvíslega möguleika á þessu
sviði umfram önnur lönd, sem
Stöðvun
tunnuverk-
á Siglufirði
Vegna fréttar frá Siglufirði
í Þjóðv. í gær um stöðvun
tunnuverksmiðjunnar þar á
staðnum af vöntun á gjarða-
jámi, skýrði formaður Síldar-
útvegsnefndar Þjóðviljanum
svo frá í gær, að vöntun þessi
stafi af því að ekki hafi ver-
ið staðið við samninga um af-
hendingu þess.
Hafi verið gerðir samningar
um tunnuefni í október í haust,
með sex vikna afhendingar-
fresti, og samið við firma, sem
Síldarútvegsnefnd hefur skipt
við ámm saman, vegna þess
að það 'hafi verið lægst með
tilboð og staðið við alla samn-
inga.
Þegar nú brá út af þessu
með gjarðajárnið hafi Síldar-
útvegsnefnd gert allt sem í
hennar valdi stóð til að reka
á eftir afhendingu, án þess að
það hafi borið árangur, og
hefur nefndin heldur ekki feng-
ið neinar skýringar á svikun-
um.
m.a. hafa þegar verið þraut-
könnuð árum saman af milljón-
um ferðamanna.
Þarf meira en
upplýsingastarf
Eigi ísland að verða ferða-
mannaland verður hinsvegar
að gera annað og meira en að
halda uppi upplýsingastarfsenii
um fegurð landsins, og má
vissulega segja, að í þessum
málum hafi að ýmsu leyti ver-
ið farið aftan að siðunum og
byrjað á endinum. Að réttu
lagi á öflug landk>Tiningastarf-
semi fyrst að koma til, þegar
búið er að undirbúa alla mót-
töku ferðamanna og það þann-
ig, að landið geti kinnroðalaust
boðið ferðamönnum heim. — í
fyrsta lagi ber að athuga, að
nægilegur farkostur sé fyrir
hendi, jafnt í lofti sem á legi til
þess að koma ferðamönnum til
landsins og frá þrf aftur á
skipulegan hátt. Á þessu sviði
höfum við íslendingar, að ýmsu
leyti, komið málunum í mjög
sæmilegt horf og má þá fyrst
og fremst þakka flugfélögunum
að á þessu sviði hafa skapazt
miklir möguleikar í sambandi
við flutning ferðamanna.
Gistihúsamálið
I öðru lagi þarf að sjá ferða-
mönnum fyrir gistihúsum nægi-
lega mörgum og viðsvegar um
landið. Nú er það svo að víða.
á landinu eru ágæt og vönduð
skólahús, sem nota má í sam-
bandi við móttöku erlendra
ferðamanna á sumrin og hefur
það verið gert. Auk þess hafa
sum byggðarlög sýnt mikið
framtalc í hótelmálum, t.d. Mý-
vatnssveit, en þar eru nú að
minnsta kosti tvö hótel við
Reykjahlíð,
Verra en fyrir 15 árum
í Reykjavík eru hótelmálin
hinsvegar í megnasta ólestri,
og hefur ekkert nýtt hótel ver-
ið byggt síðan 1930 og á þess-
um tíma hefur annað stærsta
hótel bæjarins brunnið, Hótel
ísland, og annað verið lagt nið-
ur, Hótel Hekla. Er því óþarft
Vegabréfaskylda
að fara um það fleiri orðum,
að hótelkostur í Reykjavík er annars
algjörlega ófullnægjandi, og
þar sem allir ferðamenn verða
að koma um Reykjavík og fara
þaðan aftur er augljóst, að til-
gangslaust er að tala um ferða-
mál fyrr en bætt hefur verið
úr þessu ástandi.
Fleiri matsölustaði
1 þriðja lagi þarf að koma
upp fjölda góðra matsölustaða,
og er Ferðamálafélaginu það
gleðiefni að geta lýst því yfir,
að á þessu svioi hefur allmikið
áunnizt síðasta misserið og
hefur bæði hið opinbera og
einstaklingar tekið til greina
ýmsa r ábendingar Ferðamála-
félagsins í þessu sambandi. En
þó þykir stjórn Ferðamálafé-
lagsins rétt að taka það fram,
að hér er aðeins um að ræða
sæmilega byrjun og þurfum við
að gera síauknar kröfur til
okkar sjálfra í þessum efnum,
ef við eigum að geta staðizt
samkeppni annarra þjóða í
þessari grein.
Leið sögumenn
í fjórða lagi þarf að sjá
ferðafólkinu fyrir ferðum um
Framhald á 11. síðu.
Kennarasambaitd Austur-
lands krefst nýrra launalaga
Stjórn Kennarasambands Austurlands hefur gert eftir-
farandi kröfu um setningu nýrra launalaga:
,,í tilefni af þeim umræðum anir i samræmi við grunnlauna-
sem átt hafa sér stað milli BSRB
vegar og fulltrúa ríkis-
stjórnarinnar hinsvegar um
launamál opinberra starfsmanna,
leyfir stjómarfundur KSA (Kenn
arasambands Austurlands) haíd-
inn 13. jan. 1955 að taka eftir-
farandi fram:
Stjórn KSA styður eindregið
framkomnar tillögur BSRB í
launamálum, svo sem fulla verð-
lagsuppbót á öll laun opinberra
starfsmanna, grunnlaunahækk-
Lítið vantur
af beitusíld
Athugun á beituþörfinni hefur
nú leitt í ljós að ekki þarf að
kaupa frá Norðmönnum nema
2—3 þús. tunnur beitusíldar í
stað 10—15 þús. er talið var
fyrst að þurfa myndi.
Alþingi kvatt sam-
an 4 febriiar
Forseti íslands hefur með
bréfi, útgefnu í gær, kvatt Al-
þingi til framhaldsfunda föstu-
daginn 4. febrúar n. k. kl. 13.30.
(Frá forsætisráðuneytinu).
Hvammshreppur V.Skaft. semur við
Samvinnutryggingar um 40% lækknn
á brunatryggingum húsa í Vík í Mýrdai
Hreppsnefnd Hvammshrepps í Vestur-Skaftafellssýslu
hefur fyrir nokkru gert samninga viö Samvinnutrygg-
ingar um brunatryggingar á öllum húsum í Vík í Mýr-
'dal, og lækka allar húsatryggingar í Vík um 40%, þegar
samningurinn gengur úr gildi 15. október 1955.
með
eða
afmimin
Árið 1952 gerðu Norðurlönd
með sér gagnkvæman samning
um afnám vegabréfaskyldu sín
í milli. ísland gerðist fyrir sitt
leyti ekki aðili að þessu sam-
komulagi að svo komnu máli.
Hefur málið undanfarið verið til
umræðu í Norðurlandaráði, og
hefur ríkisstjóm íslands nú 'fall-
izt á að fsland gerist aðili að
þessum samningi. Verður á næst-
unni gengið frá formsatriðum
vegna þátttöku íslands í þessu
samstarfi.
(Frá ríkisstjóminm),.
Er Víkurkauptún þar
orðið fyrsta kauptún
kaupstaður á íslandi, sem
notfærir sér heimild lag-
anna, sem sett voru á síðast-
liðnu ári, þess efnis að sveitar-
félög utan Reykjavíkur mættu
semja við hvaða aðila, sem þeim
þóknast, um brunatrygglngar.
Jafnframt var samið um
brunatryggingar húsa í Hvamms-
hreppi, sem eru utan kauptúns-
ins, og fengu þau öll 16—25%
lækkun, enda voru tryggingar-
iðgjöld í sveitum miklu lægri en
í kauptúnum, og ríkti í þeim
efnum óeðlilegt ósamræmi, þar
sem brunavarnir í sveitum eru
engar, en slökkvitæki til í flest-
um eða öllum kauptúnum og
kaupstöðum.
Þessi kjör á brunatryggingum,
sem stórlækka brunatrygginga-
gjöld, standa af hálfu Samvinnu-
trygginga öllum kauptúnum og
kaupstöðum til boða, svo og til-
boð um mikla lækkun í sveitum
landsins. Hefur þannig skapazt
grundvöllur fyrir lægri bruna-
trygglngarkostnaði um land allt
og réttlátara samræmi milli
trygginga hvar sem er á land-
inu, þannig að enginn einn hóp-
ur manna greiði fyrir tryggingar
annars.
Samkvæmt þeim trygginga-
kjörum, sem ríkt hafa í Vík,
kostaði brunatrygging á timbur-
húsi, sem tryggt er fyrir 200.000
krónum, 850.00 krónur, en sam-
kvæmt hinum nýju kjörum Sam-
vinnutrygginga kostar trygging a
sama húsi nú aðeins 510.00 kr.
Samningurinn um brunatrygg-
ingar í Hvammsheppi var undir-
ritaður fyrir hönd Samvinnu-
trygginga af Jónasi Jóhannssyni,
tryggingasölumanni, og fyrir
hönd hreppsnefndar af oddvita,
Oddi Sigurbergssyni. Síðan samn
ingurinn var gerður hafa fleiri
hreppar samið við Samvinnu-
tryggingar um brunatryggingar
húsa.
hækkanir annarra starfsstétta,
að biðtími til fullra launa verði
styttur í tvö ár, þar sem hann
er lengri, o. s. frv.
Þar sem tillögur BSRB fengu
eigi framgang nema að litlu
leyti skorar fundurinn eindregið
á hið háa Alþingi að afgreiða nú
á næsta þingi ný launalög i sam-
ræmi við áður framkomnar til-
lögur frá BSRB“.
Norræna félagið
ræður fram-
kvæmdastjóra
FÍI. kand. Magnús Gíslason,
námstjóri við gagnfræðastigið,
hefur verið ráðinn framkvæmda-
stjóri Norræna félagsins frá 1.
febrúar n. k. að telja.
Saniþykkti stjórn N. f. þetta á
fundi síniun einróma i gær.
Magnús Gíslason lauk kenn-
araprófi árið. 1937, stundaði
kennslu til ársins 1939, er hann
fór til Danmerkur og dvaldi þar
í landi til haustsins 1943, aðal-
lega við nám, m. a. við lýðhá-
skólann í Askov. Magnús tók
stúdentspróf í Danmörku, innrit-
aðist árið 1944 við heimspeki-
deild Stokkhólmsháskóla og lauk
þaðan fil. kand.-prófi í norræn-
um málum, uppeldis- og sálar-
fræði og norrænum þjóðlífsfræð-
um.
Magnús Gíslason hefur setið
margar ráðstefnur sem fulltrúi
Norræna félagsins, ferðazt um
Svíþjóð sem fyrirlesari á veg-
um Norræna félagsins 'sænska,
og kynnt sér starfsemi norrænu
félaganna.
Hann er nú staddur í Svíþjóð
og vinnur að fil. lic.-prófritgerð.
Nýtur hann styrks frá sænska
ríkinu til framhaldsnáms í þjóð-
lífsfræðum, en hefur samþykki
menntamálaráðuneytisins til leyf-
is frá starfi sínu sem námstjóri
til 1. marz n. k.
Áður en Magnús var ráðinit
námstjóri við gagnfræðastigið
var hann skólastjóri við héraðs-
skóla Rangæinga og Vestur-
Skaftfellinga að Skógum undir
Eyjafjöllum.
Kvöldvaka Stúdentafélagsins annað kvöld:
Norðan- og Sunnanmenn
keppa í mælskulist
Stúdentafélag Reykjavíkur heldur kvöldvöku í Sjálf-
stæ'ðishúsinu annað kvöld. Er dagskráin vönduö aö venju,
en sérstök nýlunda er a'ð skemmtiþætti, sem þar veröur
fluttur. í þætti þessum keppa stúdentar frá Menntaskól-
anmn á Akureyri og Menntaskólanum í Reykjavík í
mælskulist.
Stjómandi verður Einar Magn-
ússon menntaskólakennari, en
keppendur verða Andrés Björns-
son, kand. mag., Barði Friðriks-
son héraðsdómslögmaður, Bjarni
Guðmundsson blaðafulltrúi,
Björn Th. Björnsson, listfræð-
ingur, Jón P. Ernils héraðsdóms-
lögmaður og Magnús Jónsson al-
dr. phil. og doktor Halldór Hall-
dórsson dósent.
Keppendur eiga að halda tvær
tveggja mínútna ræður um efni,
sem þeir fá fyrst vitneskju um,
er þeir skulu hefja mál sitt.
Ekki mega þeir hika um of
eða endurtaka sig, ef þeir vilja
ekki hafa verra af. Verða allð
þingismaður. Dómendur verða, kyns fleiri gildrur lagðar fyrir.
Einar Ólafur Sveinsson prófessor, keppendur.