Þjóðviljinn - 26.01.1955, Síða 4
4) — ÞJÓÐVIUINN — Miðvikudagur 26. janúar 1955
Hvcið dvelur biðskýlin?
Getur lýðræði þróazt
í- Við sem búum í úthverfum
bæjarins og komumst ekki
hjá bví að nota strætisvagn-
■ aua- -ii og frá1 vinnu höfum
feiigið að kynnast því í und-
tanfcrándi óveðrakafla hve
mikii vöntun er á einhverjum
skylúm á viðkomustöðum
valgnanna.
Ferðum strætisvagnanna er
þahn veg háttað að óhugs-
andi er að hitta þannig á að
ekki komi til meiri eða minni
biðar hverju sinni. Á við-
komustöðunum í úthverfun-
um fyrirfinnast varla nokkur
biðskýli og verða því farþegar
vagnanna að híma og hrekj-
ast skjóllausir meðan beðið er
eftir farartækinu.
En það eru fleiri en þeir
sem þurfa til vinnu sinnar
sem fyrir þ'essu verða. Hús-
mæðurnar verða víða sjálfar
að annast innkaup til heimil-
] anna og eiga í mörgum tilfell-
um elcki annars úrkostar en
taka ung börn sín með sér
í innkaupaferðimar. Eg hefi
oft orðið sjónarvottur að því
að konur og börn hafa verið
‘ orðin gegnvot og hrakin í vet-
. ur þegar viðkomandi strætis-
. vagn kom á staðinn þar sem
þau biðu.
Mér, og að ég ætla fleiri
úthverfabúum, er alveg óskilj-
anlegt hve forráðamenn
strætisvagnanna og bæjaryf-
irvöldin eru seinlát og að-
gerðalaus í þeim efnum að
búa betur að farþegum stræt-
isvagnanna en gert er. Það
hefur ekki farið fram hjá
okkur, að nefnd manna sem
falið var að athuga þetta mál
gerði fyrir hálfu ári eða meira
ákveðna tillögu um byggingu
biðskýla. Og þó sú tillaga
hefði ekki leyst viðfagnsefn-
ið í heild þá er vitanlegt að
hún var spor í rétta átt hefði
hún komið til framkvæmda.
Það hefur heldur ekki farið
fram hjá okkur sem höfum
staðið köld og hrakin á við-
komustöðum vagnanna í vet-
ur að málinu hefur verið
hréyft hvað eftir annað innan
sjálfrar bæjarstjórnarinnar
og tillögur fluttar um fram-
kvæmdir á grundvelli álits
nefndarinnar. En þær hafa
jafnan fengið sömu af-
greiðslu: verið vísað' til bæj-
arráðs, en það skilst manni
að sé viðtekin aðferð til að
svæfa mál þegar ekki þykir
beinlínis heppilegt að ganga
hreint til verks gegn þeimog
jfillt söngvið kveníólk í SVÍR — Óverðskuldað loí á
borgarstjóra og bæjarstjórnarmeirihlutann —
Furðulegt misræmi — Á að safna eða eyða?
BÆJARPÓSTURINN hefur
verið beðinn fyrir áskorun til
sönghneigðs kvenfólks að láta
það ekki dragast að gefa sig
fram við söngstjóra SVlR,
Sigursvein D. Kristinsson.
Eins og áður hefur verið
minnzt á hér, er ætlunin að
fjölga söngfólki í kórnum um
ailt að því helming ef unnt
er, og karlmennirnir tóku vel
við sér og gáfu sig fram í
Btórum stíl, og nú er röðin
komin að kvenfólkinu. Það eru
bæði sópran og alt-raddir sem
vantar, og það væri ólíkt
kvenfólkinu að láta skjóta sér
ref fyrir rass í þessum efnum
fremur en öðrum.
★
BÆJARPÓSTURINN fékk ný-
lega upphringingu í tilefni af
lofi miklu sem viðkomandi
hafði séð borið á bæjarstjórn-
avmeirihlutann og borgar-
stjórann í Reykjavík í sam-
bandi við vegabætur. Kvaðst
viðkomandi ekki vita til þess
að annað hefði verið fram-
kvæmt í sambandi við gatna-
gerð á árinu sem leið en
Bjarkargatan og svolítill
hluti af Nýlendugötu, í allt
nokkrir tugir metra, og taldi
slíkar „stórframkvæmdir“
ekki gefa tilefni til oflofs.
★
LOKS HEFUR Bæjarpóstinum
verið falið að benda á mis-
ræmi það sem lýsir sér annars
vegar í hvatningum þeim um
sparifjársöfnun sem nú eru
ofarlega á baugi, einkum í
sambandi við sparifjársöfnun
skólabarna, og hins vegar í
boðskap þeim um gengisfell-
ingu sem kom svo greinilega
fram í áramótaræðu Ólafs
Thors. Og fyrirspyrjanda
langaði til að fá upplýsingar
hjá stjórnarvöldunum um það
hvort þessi ummæli Ólafs
Thors ætti ekki að skilja svo,
að fólki bæri að eyða pening-
um sínum meðan þeir væru
einhvers virði, í stað þess að
leggja þá inn á banka þar sem
þeir yrðu innan skamms verð-
lausir eftir boðskap ráðherr-
ans að dæma? í þessu tvennu
skýtur nokkuð skökku við og
almenningur á bágt með að
átta sig á þessu misræmi.
Annað tveggja hlýtur að vera
rétt, að leggja afgangsfé
sitt á vöxtu í bönkum, ellegar
eyða því og spenna af ótta
við fyrirhugaða gengisfell-
ingu. Og það væri fróðlegt að
fá upplýsingar um það hjá
valdamönnum vorum, hvora
stefnuna er rétt að taka, því
að varla eru báðar réttar.
Beiðni þessari er hér með
komið á framfæri.
t
:
■
:
a
a
:
a
a
a
a
a
a
a
:
a
a
:
:
a
a
a
a
í borgaralegu þjóðfélagi?
fella þau á bæjarstjómarfund-
um.
Það kann vel að vera, að
þeir ráðamenn bæjarins og
bæjarfulltrúar sem eiga sök á
aðgerðaleysinu í biðskýlamál-
inu geri sér ekki ljósa nauð-
syn þess að biðskýlunum verði
komið upp. Flestir þeirra munu
vera þannig settir að þeir
þurfi ekki að ferðast með al-
menningsvögnunum oft á dag
mánuð eftir mánuð og ár eft-
ir ár. En þeir góðu menn ættu
ekki að gleyma því að ekki
eru allir Reykvíkingar eigend-
ur eða umráðamenn einka-
bíla enda ættu þeir að sjá af
árstekjum strætisvagnanna að
svo er ekki. Allur almenning-
ingur verður að nota þessi
farartæki, kostar rekstur
þeirra og endumýjun og á því
óumdeilanlega kröfu á að tek-
ið sé. tillit tií óska hans og
aðbúnaðurinn bættur þannig
að hann sé mönnum bjóð-
andi.
Ég er á þeirri skoðun að
við, úthverfafólkið í Reykja-
vík, séum of sinnulaus um
þetta mál og önnur hags-
munamál okkar. Við þurfum
að láta til okkar heyra og
krefjast þess sem við teljum
okkur eiga rétt á. Og það
er margt fleira en strætis-
vagnabiðskýli sem vantar í
úthverfin til þess að aðbún-
aður og þægindi séu eitthvað
í líkingu við það sem við-
gengst í öðmm hlutum bæj-
arins. En það hefur verið sér-
stakléga tilfinnanlegt í vetur
hvar skórinn kreppir í þessu
efni. Þess vegna stakk ég
niður penna um biðskýlin að
þessu sinni og veit að ég
mæli fyrir munn allra út-
hverfabúa sem vagnana nota
þegar ég skora á ráðamenn
strætisvagnanna og bæjar-
stjómina að hefjast handa um
byggingu hæfilegra biðskýla
sem allra víðast á viðkomu-
stöðum vagnanna í úthverf-
unum. títhverfabái.
Æskulýðsfylkingin brýtur nú
upp á hverri nýunginni eftir
aðra í starfsemi sinni. Á sunnu-
dagskvöldið var bókmennta-
kynning, helguð Þórbergi Þórð-
arsyni, hin fyrsfa er Æsku-
lýðsfylkingin efnir til í starfs-
sögu sinni. Og í kvöld efnir
hún til almenns umræðúfundar
um spuminguna: Getur lýðræði
þróazt í borgaralegu þjóðfélagi?
Á undanförnum ámm hefur
Fylkingin vissulega oftsinnis
boðað til umræðufunda — um
þjóðmál er hafa verið á baugi
á hverjum tíma. Þeir hafa verið
þáttur í hinni daglegu baráttu
íslenzkra sósíalista, framlag og
skerfur hinna ungu til hinnar
sósíalísku stjómmálabaráttu í
landinu.
Það er öllum kunnugt að
fundir þeir sem Æskulýðsfylk-
ingin hefur efnt til hafa jafnan
verið fjölsóttari en aðrir fundir
hliðstæðir, á sama hátt og Sós-
íalistaflokkurinn hefur boðað til
flestra stærstu funda er hér
hafa verið haidnir, en átt hlut
að öðrum. Kemur þetta til af
því að sósíalistar, yngri sem
eldri, hafa ætíð átt meirá
mannvali á að skipa til ræðu-
halda en aðris flokkar,
en einnig af því að hinn rót-
tækari hluti alþýðunnar hefur
miklu ríkari áhuga á þjóðmál-
um en til dæmis yfirstéttin sem
Sjálfstæðisflokkurinn boðar til
funda niður í Holstein. í þriðja
lagi hlýtur stjómmálahreyfing,
er berst jákvæðri baráttu, að
kveikja heitari eld í hjarta
fólksins en þeir flokkar sem að-
eins slá skjaldborg um hags-
muni fámennra forréttinda-
stétta og hafa að öðru leyti
það hlutverk að spyrna brodd-
um við hagsmunamálum fjöld-
ans — berjast neikvæðri bar-
áttu. Af öllum þessum sökum
getur Æskulýðsfylkingin minnzt
margra stórra funda í sögu
sinni. Og þar hafa áheyrendur
aldrei unað við að éta af sér
puttana eins og borið hefur
við á stjórnmálafundum ýmsra
annarra æskulýðsfélaga í
Reykjavík og víðar.
Fundur sá sem Æskulýðs-
fylkingin efnir til í kvöld er
að því leyti nýstárlegur að þar
er ekki á dagskrá mál sem
beint er valið af vettvangi
dagsins — það er ekki ætlun-
in að grípa inn í rás við-
burða sem séu að gerast í dag
og verði úr sögunni á morgun.
Hér er þvert á móti tekið til
umræðu mál sem varðar alla
þjóðmálabaráttuna í heild, svo
í gær sem í dag og á morgun:
gtundvallarspurning í stjórn-
málunum um áratugi.
Til framsögu um þetta mál:
Getur lýðræði þróazt í borgara-
legu þjóðfélagi? hefur verið
valinn hinn hæfasti maður:
Björn Franzson. Munu fáir
hafa gert sér skýrari grein en
hann fyrir eðli lýðræðis og ó-
hjákvæmilegum takmörkunum
þess við borgaralegt þjóðskipu-
lag. Nægir hér að minna á hinn
mikla greinaflokk hans, Lýð-
ræði, er birtist fyrir nokkrum
árum í Timafiti Máls og menn-
ingar — og mun sú ritgerð enn
vera höfuðverk á íslenzku um
þetta efni. Nafn hans er trygg-
ing þess að viðfangsefnið verði
tekið vísindalegum tökum, en
ekki látin nægja innantóm
slagorð um yfirborð hlutanna,
eins og tíðkast svo mjög í póli-
tískum umræðum „hinna á-
byrgu stjórnmálámanna“ á fs-
landi. Það er einmitt slagorða-
skvaldur og yfirborðsmennska
hinna mjögtalandi þjóðmála-
skúma í borgarastétt, sem í of
ríkum mæli hefur sett svip
á íslenzka stjórnmálabaráttu
að undanfömu. En að baki
því öllu stendur þó baráttan
milli tveggja ólíkra hugmynda-
kerfa, eða öllu heldur milli
Framhald á 8. síðu.
Tilkynning til oddvita og sveitarst jóra um
IÐGJALDAIÆKKIM
s
Samkvæmt lögum um brunatryggingar húseigna utan Reykjavíkur, sem öðl-
uðust gildi í apríl síðastliðið ár, er öllum bæjar- og sveitarstjómum heimilt
að semja við eitt vátryggingarfélag eða fleiri um brunatryggingar húseigna í
umdæmi sínu. — Á grundvelli þessa samningafrelsis hafa Samvinnutryggingar
nú nýlega gengið frá tilboði í þessar tryggingar, þarsem iðgjöldin eru LÆKK-
UÐ UM 25—35% AÐ MEÐALTALI miðað við þau iðgjöld, sem gilt hafa undan-
farin ár. — Tilboð þetta munum vér senda öllum bæjar- og sveitarstjórnum,
sem ekki eru samningsbundnar hjá Brunabótafélagi íslands með tryggingar í
umdæmi sínu.
Byrjað var að póstleggja tilboðin um miðjan janúar, en vegna tafsamrar vinnu
við frágang þeirra og örðugra póstsamgangna um þessar mundir, munu til-
boðin ekki hafa borizt öllum sveitarstjómum enn, — Vér beinum því vinsam-
legast þeim tilmælum til yðar að þér ráðstafið ekki brunatryggingum í um-
dæmi yðar, fyrr en þér hafið kynnt yður hið hagstæða tUboð vort.
Samvinnutryggingar
: