Þjóðviljinn - 26.01.1955, Page 12
Tjón &§ véldusn bifreiða hafa
aukizt 3n|ög á síðustu árum
A sl. ári voru tilkynnf 6528 tjón og bœt-
ur fyrir þau námu 13.1 millj. króna
Reynsla bifreiöatryggingafélaganna hér á landi bendir
ótvírætt til þess aö slysum og tjónum fjölgi lilutfallslegá
orar en nemur fjölgun bifreið'a landsmanna.
Upplýsingar þessar gáfu starfs-
menn fjögurra bifreiðatrygginga-
félaga, Almennra trygginga, Sam-
vinnutrygginga, Vátryggingarfé-
lagsins og Sjóvátryggingafélags-
ins, á fundi með blaðamönnum
í gaer. Skýrðu þeir svo frá, að
árið 1952 hafi fjöldi skrásettra
bifreiða landsmanna verið 10.928,
tilkynnt tjón voru þá 4723 tals-
ins, þar af 159 slys, en upphæð
tjónbótanna nam 6 millj. 933 þús.
króna. Árið 1953 voru bifreið-
arnar 11.066, tilkynnt tjón 5307,
þar af 166 slys, en upphæð tjón-
bótanna 9 millj. 317 þús. kr. Á
sl. ári, 1954, voru skrásettar bif-
reiðar 11.507, tilkynnt tjón 6528,
þar af 182 slys, en upphæð tjón-
bóta 13 millj. 145 þús. kr. Til
skýringar tölunum um slys skal
þess getið, að í þeim er talað um
' eitt slys, þótt fleiri en einn ein-
staklingur hafi slasazt í sama
tilfeilinu, þannig að tala þeirra,
sem hafa slasazt er miklu hærri
en fram kemur hér að ofan.
Hækkun iðgjalda
Upplýsingar þessar birta trygg-
ingafélögin samtímis því að þau
auglýsa hækkun á iðgjöldum.
Lögðu starfsmenn tryggingafélag-
anna áherzlu ó að hin nýja ið-
gjaldaskrá væri byggð á reynslu
ársins. 1953 en ekki á tölum síð-
asta árs. Hækkun sú sem þau
hefðu reiknað með næði því ekki
til að jafna metin yrði reynsla
ársins 1955 svipuð reynslu s. 1.
árs.. Bifreiðaeigendur yrðu því að
gera sér grein fyrir hvert stefnir
í þessum efnum, verði ekki unnt
með einhverjum ráðum að
stemma stigu við sívaxandi
slysum og tjónum af völdum
bifreiða.
Starfsmenn tryggingafélaganna
gátu þess í gær, að ársiðgjöld-
in af bifreiðatryggingunum hefðu
í fyrra numið rúmlega ellefu
milljónum króna, eða orðið því
sem næst tveim milljónum króna
lægri en tjónaútgjöldin.
Sökin ékki hjá fótgangandi
vegfarendum
Það kom fram á blaða-
mannafundinum í gær, að yf-
ir 97 af hverjum 100 tjónum
væru af völdum árekstra railli
bifreiða og árekstra þeirra á
muni og mannvirki. Vilja
tryggingafélögin benda sér-
staklega á þetta sökum þess
hve áberandi er, þegar um-
ferðamálin ber á góma, að
einblínt sé á óvarkárni ann-
arra umferðaraðila, hjólreið-
armanna og gangandi vegfar-
enda. Virðist að meiri sjálfs-
gagnrýni af hálfu ökumanna
ætti liér vel við.
Breyting á bónusfyrir-
komulagi
Tryggingafélögin hafa ákveðið
þá breytingu á bónus-ákvæðum
(afsláttarákv.) sínum að strax
eftir eitt ár án tjóns lækki ið-
gjaldið um 25%. Er þetta gert
i þeim tilgangi að þeir, sem
gæta varúðar í akstri, njóti þess
í lægri iðgjöldum, og er það þá
von félaganna að það sé jafn-
framt hvatning til ökumanna um
að gæta fyllstu varúðar í akstri.
í þessu sambandi er þó skylt að
geta þess, að uppi eru raddir
um að bónusfyrirkomulagið hafi
sína annmarka og þá helzt þá,
að með tilkomu þess hafi færzt
í vöxt að ökumenn valdi tjóni
án þess að tilkynna það og það
leiði aftur til þess, að tjónþolar
verði oft af þeim bótum, sem
þeir ættu rétt á. Hafa því trygg-
ingafélögin ákveðið að efna til
skoðanakönnunar meðal bif-
reiðaeigenda um bónusfyrir-
komulagið við næstu endurnýj-
un trygginganna.
Minni ölvun við akstur
Meðal þeirra, sem staddir
voru á blaðamannafundinum í
gær, var Ólafur Jónssón fulltrúi
lögreglustjóra og Jón Oddgeir
Jónsson, starfsmaður Slysa-
varnafélagsins. Ólafur hefur
með höndum yfirstjórn umferða-
málanna hjá lögreglunni. Hann
skýrði svo frá, að gefnu tilefni,
að allmiklu færri bifreiðastjórar
hefðu verið teknir ölvaðir við
akstur síðari hluta ársins en fyrr
á árinu. Þá gat' hann þess að
pantaður hefði verið viðbótar-
útbúnaður við umferðarljóstæki
þau er fyrir eru í bænum. Myndu
ljóstækin með hinum nýja útbún-
aði þá einnig ætluð gangandi
vegfarendum.
Jón Oddgeir taldi að nú væri
grundvöHur til stofnunar um-
ferðaráðs með líku sniði og starf-
að hefði hér tvívegis fyrr á ár-
um, til hins fyrra var stofnað af
áþugamönnum, m. a. Slysavama-
félaginu, en hið síðara var sett
á stofn fyrir frumkvæði Agnars
K. Hansens þáverandi lögreglu-
stjóra.
HlÓÐUUJINN
Miðviku’dagur 26. janúar 1955 — 20. árgangur — 20. tölublað
Hamilton enn stærsti atvinnurek-
á Keflavíkurflugvelli
Hamilton — félagið sem Framsókn rak úr
landi! — var enn í byrjun þessa árs langstærsti
atvinnurekandinn á Keflavíkurflugvelli.
Af rúmlega 1200 mönnum voru 560 hjá Hamil-
ton. Næstur var herinn með rúmlega 520. Wyatt C.
Hedrick hafði innan við 30 menn í vinnu.
Sameinaðir verktakar muriu hafa haft 60—70,
— enda höfðu þeir sagt upp á annað hundrað
mönnum í nóvember og desember.
Iðjufundur um
samningsuppsögn
á laugardaginn
verksmiðjufólks
laugar-
-<S>
Söngfélag verklýössamtakanna syngur
Austurvelli á þjóðhátíðinni 17. júní s.l.
Vaxandi starf Söngfélags verklýðssamtakanna
Kórinn á 5 ára afmæli í vetnr
Laust fyrir áramót hélt Söngfélag verklýðssamtakanna
i Reykjavík aðalfund sinn.
I stjórn félagsins voru kjörin:
Halldór Guðmundsson form.
(endurkosinn), Guðrún Snæ-
björnsdóttir ritari og Þórhallur
Björnsson gjaldkeri.
Formaður flutti skýrslu stjórn-
arinnar um starf félagsins á
liðnu ári. Starfið hafði byrjað
fyrr að haustinu en venjulega
með æfingum á mótettunni
Martíus eftir stjómanda kórsins
við texta St. G. St. Mótetta þessi
var flutt á minningarfundi sem
haldinn var á 100 ára afmæli
Ijóðskáldsins af bókmenntafélag-
inu Máli og menningu og Söng-
félagi verklýðssamtakanna í sam-
einingu. Einsöng í verkinu ann-
aðist Gunnar Kristinsson óperu-
f 4
Sigursveinn D. Kristinsson
stjórnandi kórsins.
Ilalldór Guðmundsson
formaður Söngfélags verklýðs-
samtakanna.
songvari.
Samsöng hélt kórinn 4. apríl
í Austurbæjarbíói við góða að-
sókn og viðtökur. Meðal ein-
söngvara kórsins var Guðmund-
ur Jónsson óperusöngvari sem
einnig söng með kórnum í út-
varp 1. maí og 17. júní. Þá
söng Guðmundur með kórnum
inn á plötu Fylgd Guðmundar
Böðvarssonar í esperantóþýðingu
Óskars Ingimarssonar, fyrir frið-
arhreyfingu esperantista (M. E.
M.).
Kórinn hélt uppi kvöldvökum
yfir vetrarmánuðina frá október
til maí í félagi við Lúðrasveit
verkalýðsins með þátttöku verka-
lýðsfélaga, eins eða fleiri, í senn.
Einnig söng kórinn á hátíða-
samkomu verklýðsfélaga og ann-
arra menningarsamtaka í Reykja-
vík og Hafnarfirði, fyrsta maí í
Sandgerði og Selfossi. Seinna
var farin söngför vestur á Snæ-
fellsnes og sungið í Stykkis-
hólmi og í Borgamesi.
Söngfélag verklýðssamtakamia
á 5 ára afmæli á þessum vetri.
í tilefni af þeim tímamótum var
rætt um starfið á undanfömum
árum, dregnir af því hagnýtir
lærdómar og gerðar áætlanir um
aukið átarf.
Iðja, félag
heldur félagsfund n. k.
dag kl. 2 e. h. í Breiðfirðingabúð.
Á þessum fundi verður rædd
og tekin ákvörðun um samnings-
uppsögn í framhaldi af ályktun
hinnar nýafstöðnu ráðstefnu
verkalýðsfélaganna um kaup-
gjaldsmálin.
Fundur Ðags-
brúnar um samn-
iugsuppsögn er
annað kvöld
Fundurinn í Verkamannafélag-
inu Dagsbrún sem tekur ákvörð-
un um uppsögn samninga félags-
ins, verðtir haldinn annað kvöld
í Iðnó og hefst kl. 8.30.
Mjög áríðandi er að verkamenn
fjölmenni á fundinn og taki
þannig frá upphafi virkan þátt
í undirbúningi kjarabaráttunnar
sem fram undan er.
Af fenginni reynslu um starf-
semi félagsins var. fundurinn
sammála um að starf þess yrði
ekki trvggt til frambúðar nema
með öflun nægilega margra
styrktarfélaga. Félagsstjórn starf-
ar nú að því að leysa þetta verk-
efni með því að snúa sér bréf-
lega til Dagsbrúnarmanna, hvers
um sig, og vekja athygli þeirra
á þessu nauðsynjamáli. Síðar
munum við snúa okkur til ann-
arra stéttarfélaga í höfuðstaðn-
um.
Söngfélag verklýðssamtakanna
væntir sér mikils stuðnings frá
meðlimum verklýðsfélaganna
enda telur sig fyrst og fremst
vera einn þáttinn í félagsmenn-
ingu verklýðsstéttarinnar.
Aðalfundurinn leit svo á að
ef hægt væri að fjölga söngfólki
í 80—100 mundi það bæta mjög
aðstöðu félagsins til að rækja
sitt hlutverk með þjóðinni með-
al annars með auknu og fjölþætt-
ara verkefnavali.
Vegna þess hve nú er áiiðið
starfsársins ættu nýir söngfélag-
ar ekki að draga lengi að sinna
þessu kalli.
Styrktarfélagsgj ald Söngfélags
verklýðssamtakanna er kr. 30.00
— þrjátiu krónur — sem greið-
ist við afhendingu 2. aðgöngu-
miða að samsöng kórsins.
Áskriftarseðilinn sem fylgir,
má fylla út og leggja inn í
^BÓkabúð KRON.
• Ég undirritaöur gerist hémieð styrktarfélagi Söng-
félags verkalýðssamtakanna í Reykjavík.
Reykjavík,................. 1955.
Nafn
Heimili