Þjóðviljinn - 30.01.1955, Blaðsíða 1
Sunnudagur 30. janúar 1955 — 20. árgangur — 24. tölublað
Flokkuriifisi
Bústaðadeild
Fundur verður annað kvöld kl.
8.30 að Þórsgötu 1. Áríðandi að
allir mæti. — Stjórnin.
Þúsundir fögnuðu skipverjunum af ÁgSi rauða
Öll þjóSin jbakkar mönnunum er unnu jboð frábœra afrek oð bjarga þeim
Þúsundir Reykvíkinga íögnuðu skipverjunum er
björguðust af Agli rauða, þegar þeir komu til
Reykjavíkur í gær.
Ægir, en hann flutti skipbrotsmennina hingað,
lagðist að Faxagarði um kl. hálfþrjú í gær og var
bryggjan þá öll þakin fólki sem komið var til að
fagna því að hafa heimt skipverjana lifandi úr hinni
miklu þrekraun.
Djúp alvara hvíldi þó yfir mannfjöldanum, al-
vara er tjáði s'amhryggð fólksins vegna hinna 5
vösku manna er fórust.
Öll þjóðin þakkar þeim mörgu mönnum er lögðu
fram krafta sína til að vinna það afrek að bjarga
þeim 29 mönnum er hér voru að stíga á land.
Slysavarnafélagið hafði stór-
an bíl tilbúinn á bryggjunni
til að flytja skipbrotsmennina,
en mannfjöldinn stóð svo þétt
að það tók nokkurn tíma að
rýma til svo þeir ættu greiðan
gang í bílinn.
Fáklæddir og berfættir
í hríð og stórsjó
Einn skipbrotsmanna var
borinn upp á bryggjuna, en
gekk síðan. Er hann með kal-
sár á fótum. Hafa skipverjarn-
ir gengið í gegnum mikla þrek-
raun er þeir urðu að hafast all-
ir við í brúnni og kortaklef-
anum í 18 stundir samfle}Ttt
meðan sjórinn gekk yfir skipið.
Höfðu þeir orðið að bregða \úð
fáklæddir og voru sumir ber-
fættir er þeim var bjargað upp
á grýtta ströndina í hríðar-
veðri.
Frábær framganga
Austfirðinganna
Skipstjórinn á Ægi rómaði
mjög þrekvirki björgunar-
manna og vasklega framgöngu
allra þeirra er að björguninni
unnu, en einkum þó Austfirð-
inganna en hópur manna af
Goðanesinu var með Magnúsi
Gíslasyni skipstjóra og Vest-
firðingunum um borð í And-
vara er hann fór í briminu eins
nálægt hinu strandaða skipi
og framast varð komizt, og áð-
ur hefur verið sagt frá. Á ann-
an tug skipverja af Austfirð-
ingi fóru með björgunarsveit-
inni ísfirzku er fór á land á
Hesteyri og bjargaði frá landi.
Hver og einn er að björguninni
vann lagði fram alla krafta
sína til að vinna hið frábæra
afrek.
öll þjóðin þakkar þeim
mönnum.
Þakkarorð
Skipbrotsmennirnir voru flutt-
ir í húsakynni Slysavarnafé-
Iagsins, en þar veittu slysa-
vamakonur kaffi. Guðbjartur
Ólafsson froseti Slysavamafé-
lagsins bauð skipbrotsmennina
hjartanlega velkomna úr hinni
miklu raun. Þvínæst bað hann
menn að minnast þeirra fimm
félaga er féllu í valinn. Risu
menn úr sætum. — Þá ræddi
hann um hið erfiða starf sjó-
mannsins og fórnir sjómanna-
stéttarinnar. ísland er þ%ú að-
eins byggilegt að sjórinn sé sótt
ur, sagði hann og lagði áherzlu
á að slysavamimar væru enn
efldar. Síðan þakkaði hann i
nafni Slysavamafélagsins öll-
Rcykvíkingar fagna skipverjunum af Agli ranða.
um er að björguninni höfðu
unnið.
Verður ekki tjáð
með orðum
Þá fluttu stutt ávörp frú
Guðrún Jónasson forseti
Kvennadeildarinnar, frú Bodil
Begtmp sendiherra Dana, er
þakkaði björgunarmömiunum.
Vigelund formaður Færeyinga-
félagsins er þakkaði björgun-
armönnunum í nafni Færey-
inganna, Eysteinn Jónsson ráð-
herra og loks Henry Hálfdáns-
son er flutti þakkir stjórnar
Bæjarútgerðar Neskaupstaðar,
ættingja og Austfirðinga.
Öll þjóðin vakti með eftir-
væntingu meðan á björguninni
stóð, en enginn landshluti mun
hafa verið eins milli vonar og
ótta og fólkið á Austur-
landi og í Færeyjum. Þakk-
læti þessa fólks til björgunar-
mannanna, og samhryggðin
með þeim er þarna misstu ást-
vini sína verður ekki tjáð með
orðum.
Gúmmíbátur af brezku togurunum
fannst á Halamiðum í gærdag
Talið sýnt að mönnunum hafi ekki unnizt tími
til að komast í hann áður en togarinn sökk
Togarinn Hallveig Fróðadóttir íann í gær gúmmí-
bát á reki sem talinn er vera úr brezka togaranum
Roderigo, er íórst s.l. miðvikudag við Vestíirði.
Gúmmíbáturinn var uppblásinn en tómur og þyk-
ir sýnt að togarinn hafi sokkið áður en mönnunum
gafst tóm til að komast í gúmmíbátinn.
Hallveig fánn bátinn um 90
mílur út af ísafjarðardjúpi,
66.45 gráður norður, 24,40
gráður vestur, en það er- á
Halamiðum, eða það sem sjó-
menn munu kalla „upp af Kal-
anum“.
Á bátnum eru einkennisstaf-
ir brezks firma, en vitað var að
togarinn Roderigo hafði slíkan
gúmmíbát innanborðs. ÍBátar
þessir eru 2Yz m. í þvermál.
Þóttust sjá flak norður
af Ströndum
Flugvélar leituðu enn í gær
á þeim slóðum sem brezku tog-
ararnir fórust. Voru aldrei
færri en 3 flugvélar að leitinni
í einu. Töldu flugmennirnir sig
hafa séð eitthvert rekald
skammt norður af Geirólfsgnúp
á Ströndum, en brezkir togarar
voru næst þeim stað ogbrugðu
við til að athuga það nánar.
— Það er alls ekki víst að rek-
ald þetta standi nokkuð í sam-
bandi við hina horfnu togara,
heldur gæti þama verið um
venjulegt timburrekald að
ræða.
Seint í gærkvöldi barst
Slysavarnafélaginu fregn
um að brezku togararmr er
fóru að hyggja að brakinu
sem flugvélarnar sáu, hafi
ekki getað komizt að því
þar sem það er komið mjög
nálægt landi.
Slysavarnafélagið hefur
beðið fólkið í Reykjafirði,
nyrsta bæjarins á Ströndum
að ganga með f jörunni í dag
og athuga um brak þetta.
Lík færeyska sjó-
mannsins fnnóið
í gærkvöld barst Slysavarna-
félaginu tilkynning um að vél-
bátur frá Hnífsdal hefði fundið
á reki í ísafjarðardjúpi lik eins
manns. Er það talið vera af
færeyska sjómanninum sem tók
út af Agli rauða meðan á björg-
uninni stóð. Að vísu þekkti eng-
inn líkið, en þetta er ráðið af
giftingarhring hins látna, en inni
í honum stendur: Din Olöfa.
Isafjarðarradíói
þakkað
Henry Hálfdánsson skrifstofu-
stjóri Slysavarnafélagsins. hefur
beðið Þjóðviljann að færa ísa-
fjarðarradíói þakkir Slysa-
varnafélagsins fyrir frábæra
þjónustu og dugnað undanfarna
daga og nætur meðan á björg-
unarstarfinu stóð.
Einnig þakkar hann flugmönn-
unum af Keflavíkurflugvelli sem
unnið hafa að leit hinna horfnu
brezku togara.
A morgun hefst í London
fundur forsætisráðherra brezku
samveldislandanna. Talíð er víst
að Taivanmálið verði ofarlega
á dagskrá og búizt við að Nehru
muni leggja fram tillögur ind-
versku stjómarinnar um lausn
þess.
Áskorun Iðju, íélags verksmiðjufólks:
Verkalýðsflokkarnir vinni sam-
on að hagsmunamálum alþýðu
Félagið s'amþykkir að segja upp samningum frá 1. marz
Fundur í Iðju, félagi verksmiðjufólks, samþykkti í gær að segja upp samn-
ingum við atvinnurekendur frá 1. marz n.k.
Ennfremur samþykkti fundurinn þessa tillögu: i
„Fundur í Iðju félagi verksmiðjufólks í Reykjavík, haldinn 29. jan. 1955,
skorar á stjórn Alþýðusambands Islands að hún beiti sér fyrir s'amstarfi
verkalýðsflokkanna að hagsmunamálum alþýðunnar í landinu".