Þjóðviljinn - 10.02.1955, Page 9
* ÍÞRÓTTI
RlTSTJÓRl FRlMANN HELGASOR
Preslon North End
Preston North End hefur
alltaf heiðurssess meðal ensku
knattspyrnufélaganna. Stafar
það af því að það er frumkvöð-
ull um að tileinka sér nútíma
knattspymu og það var for-
ilstufélagið um atvinnuknatt-
spymu í Englandi.
Preston, sem telur aldur sinn
frá 1863, er auk þess annað
þeirra tveggja liði sem unnið
hefur bæði bikar- og deilda-
keppnina sama árið eða 1899.
Stofnendur félagsins vom ungir
drengir sem léku sér við cricket
Og gerðu sér völl sem kallaður
er „Deepdale" og þar heldur
félagið til ennþá. Knattspyrnu-
deildin var ekki stofnuð fyrr
en 1881.
Mjög fljótt tók félagið að
greiða upphæðir fyrir skozka
leikmenn, með þeim árangri að
stjórnarvöldin kröfðust að lög-
lega væri frá þessu gengið og
Svíar unnu ÞjóS-
verja 30:17 í hand-
knattleik
1 lok janúar s.l. kepptu
Þjóðverjar og Svíar í hand-
knattleik og fór leikurinn fram
í Masshallen í Gautaborg. Fóm
leikar svo að Svíar unnu með
miklum yfirburðum 30:17 (17:
10). Vom Svíarnir í sókn frá
byrjun til enda. Leikur þeirra
var mjög góður, hraður frá
upphafi og jákvæður. Þjóðverj-
amir léku ekki slælega, síður
en svo, en þeir réðu ekkert við
hraða Svíanna. Leikur þeirra
bar meira keim af útihand-
knattleik en þar eru Þjóðverj-
ar aftur á móti meistarar. I
leik þessum var tekin upp sú
nýja regla að láta tvo mark-
menn leika sinn hvom hálfleik.
þar með hófst skipulögð at-
vinnumennska í enskri knatt-
spymu. Árið sem Preston vann
bikar- og deildakeppnina fengu
leikmenn þess gælunafnið:
„Hinir ósigrandi1' Preston setti
líka þetta ár met sem aldrei
hefur verið slegið hingað til,
og litlar líkur em til að það
verði slegið í bráð: Liðið vann
deildakeppnina án þess að
tapa leik og bikarkeppnina án
þess að fá á sig eitt einasta
mark!
Preston var eitt þeirra 12 fé-
laga sem stofnuðu „Football
League" 1838. Tveim ámm síð-
ar eða 1890 vann félagið deilda
keppnina og varð nr. 2 í 3 ár
í röð næstu árin. En eftir 9 ára
frægð og frama snerist ham-
ingjuhjólið og 1901 varð það
að „dumpa“ niður í H. deíld.
Alls hefur Preston verið fjög-
ur leiktímabil í II. deild; það
vann deildina 1904, 1913 og
1951 og hefur verið í I. deild
síðan.
Preston varð að biða í nær
40 ár þar til því tókst að
vinna bikarkeoonina í annað
sinn. Það var 1938 þegar Prest-
on sigraði Huddersfield í úr-
slitum. Það var fyrst á síðustu
mínútu í framlengingu sem úr-
slit fengust. Hægri miðherja
Georg Mutch var brugðið á
vítateig. I grafarþögn áhorf-
enda skaut Mutch sjálfur ó-
verjandi í mark Huddersfield.
Þar hafði Preston líka komið
fram hefndum á Huddersfield
sem í úrslitum í bikarkeppn-
inni 1922 sigraði á vítaspyrnu.
Preston var í úrslitum líka
í fyrra en W.B. Allbion sigraði
3:2 eftir „spennandi“ leik.
Þekktasti leikmaður Preston
í dag er Tom Finney, útherji,
sem hefur leikið 50 landsleiki.
í vörninni em beztu menn liðs-
ins þeir Tom Docherty fram-
vörður og Bill Cunningham,
bakvörður.
Preston hefur alltaf tileinkað
sér skozku leikaðferðina: smá-
spymur. Sérhver nýr leikmað-
ur, sem kemur í liðið, sama
hversu frægur hann er,
verður að temja sér þessa
leikaðferð.
í fyrra hafnaði Preston í 11.
sæti. Flest mörk gerði Way-
man 24 alls. Nú er liðið öruggt
miðsvæðis á listanum.
Á heimaleiki félagsins komu
á keþpnistímabilinu ’53-’54
jafnaðarlega 27.919 áhorfepdur
en á útileiki til jafnaðar 34.814.
1 fyrra lék Preston 42 leiki,
Vann 19 leiki (12 heima, 7 úti),
jafntefli urðu 5 (2 heima og 3
úti). Tapaðir leikir 18 (7 heima
og 11 úti). Sett mörk 87 (43
heima 44 úti), fengin mörk 58
(24 heima 34 úti). Alls fékk fé-
lagið 43 stig af 84 mögulegum.
Mversregna hafa fimleika-
mót skóianna lagzt niðuP?
Fyrir um það bil 13 árum
eða nánar til tekið 30. marz
til 1. apríl 1942 fór fram hér í
Reykjavík sýningamót í fim-
ieikum. Komu þar fram yfir 30
flokkar úr skólunum í Reykja-
vík og nágrenni, Hafnarfirði
og frá Laugarvatni. Voru
Flokkur sovézkra fimleikamanna var nýlega á sýninga-
ferö í Danmörku og liajcti mjög mikla hrifningu. í flokkn-
um var m.a\. Muratova, sovézki meistarinn í áhaldaleik-
fimi kvenna. Myndin ér af henni.
flokkarnir úr bama- og fram-
haldsskólum. Sýndu 11 kenn-
arar flokka sína á mótinu.
Var gerður mjög góður rómur
að móti þessu. Það var fjöl-
sótt og gaman að sjá vinnuað-
ferðir kennara og getu fólks-
ins á hinum ýmsu aldursskeið-
um. Hvergi hefur komið opin-
berlega fram að mót þetta
hefði ekki náð þeim tilgangi
sem því var ætlað. Samt hef-
ur staðreyndin orðið sú að
ekkert mót hefur verið haldið
siðan og ekki er vitað að það
sé í uppsiglingu.
Meðan sérfræðingarnir upp-
lýsa ekki um það að slík mót
séu tilgangslaus eða jafnvel
hættuleg verður að álíta að illa
hafi verið á haldið að koma
ekki á slíku móti a. m. k. 3ja
hvert ár. Frá leikmannssjónar-
miði virðist sem slík mót gætu
verið visst aðhald fyrir nem-
endur og kennara. Það hjálpar
líka til við að ýta undir þá
nokkuð útbreiddu skoðun að
víða vanti aðhald og festu í
fimleikakennsluna í skólunum.
Það er líka hollt fyrir kenn-
arana að hafa visst aðhald
svo að þeir staðni ekki í til-
breytingalausum vana. Ef til
vill gætu slík mót örfað áhuga
almennt fyrir fimleikum og nyt
semi þeirra fyrir alla livort
sem þeir iðka íþróttir eða hafa
of staðbundna vinnu. Það væri
því fróðlegt að heyra hjá þeim
sem um það vita hversvegna
þessum mótum hefur ekki ver-
ið haldið áfram.
Fimmtudagur 10. febrúar 1955 — ÞJC®VILJINN — (9
Gunnar M. Magnúss:
örnin frá
Síðan slepptí Kristján taumnum, hneppti frá
sér kápunni, studdi höndunum á mjaðmirnar,
stóð bísperrtur fyrir framan hópinn og leit glött"
andi á krakkana, svo að allir gátu séð, að þessi
drengur var ófeiminn og djarfur, eins og fylgdar-
maður sýslumannsins.
Svo blístraði Kristján lagstúf, með ýmsum
rykkjum og trillum, sem enginn í Víðigerði hafði
áður heyrt. Og allir gátu heyrt, og séð, að þarna
var kominn drengur, sem eitthvað kunni fyrir sér.
Di’engurinn fór nú að spígspora um hlaðið, með-
an Finnur bóndi tók baggana af hestunum og
kastaði þeim að skemmudyrunum. Finnur varð að
kalla tvisvar til elztu krakkanna og biðja þá að
halda í hestana og hjálpa til við að spretta af
þeim. Krakkarnir heyrðu varla nema annaðhvorí
orð, því að athýglin var óskipt við hverja hreyf-
ingu nýja stráksins.
Þegar Finnur gekk í bæinn, fór Kristján á eft-
ir honum og öll halarófan fylgdi inn göngin. En
krakkarnir pískruðu sín á milli:
„Sá er nú langur, sá er nú mjór, sá er nú mont-
innu.
Þau drógust aftur úr, meðan þau mösuðu sam-
an, til þess að nýi smalinn heyrði ekki háðið og
hláturinn. En brátt söfnuðust þau öll inn í bað-
stofu, þar sem Kristján var farinn að éta skyr
með mjólk út á.
Krakkamir settust með hátíðasvip til og frá
á rúmin.
SÖLUSKATTUR
Dráttarvextir falla á söluskatt fyrir 4. ársfjórðung
1954, sem féll í gjalddaga 15. janúar s.l. hafi skattur-
inn ekki verið greiddur í síðasta lagi 15. þ.m.
Að þeim degi liðnum verður stöðvaður án frekari
aðvörunar atvinnurekstur þeirra, sem eigi hafa þá skilað
skattinum.
Reykjavík, 10. febrúar 1955
Tollstjóraskrifstofan,
Arnarhvoli.
Flugíreyjustörf
Nokkrar stúlkur óskast til flugfreyjustarfa.
Umsóknareyðublöö eru afhent í afgreiðslu fé-
lagsins, Lækjargötu 2.
Loftleiðir h.f.
Bæjarpósturinn
Framhald af 4. síðu.
verði meir hér eftir en hingað
til um aðbúnað leikhúsgesta
í hléunum. — Einn sem fylgir
ríkisrekstri.“
ALLT
FYRtR
WÖTVERZLAMtR
^ér&w KTcittto. Grcttisjcti. J. V—i 60360.
LAND6RÆCSSLU
SJÓÐUR
SPYRJID CFTIR PÖKKUKUM
MEÐ GRÆNU MERKJUNUM