Þjóðviljinn - 04.03.1955, Side 5
Föstudaf.ur 4. marz 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (5
Bílí láfinn hr
Vm daginn efndi Större Fœrdselssikkerhed, dönsk sam-
tök sem berjast fyrir meira öryggi í umferðinni, til ný-
stárlegrar sýningar í Kaupmannahöfn. Bíl var lyft upp
í 25 metra hæð og hann látinn detta niður á steypu-
plötu. Þetta fall svarar til þesa að bíl sé ekið með 80 km
hraða á vegg. Myndirnar hér að neðan voru teknar rétt
áður en og um leið og bíllinn kom til jarðar. Á- neðstu
myndinni sést, hvernig hann tætist í sundur.
vera uppspuni frá réfum
Brezka landvam&ráðaneytið st&ðið að
stórlygum um meðferð stríðsfanga
í Kóreu
Komið hefur í ljós aö bæklingur sem brezka landvama-
ráöuneytiö gaf út í síðustu viku um illa meöferö á brezk-
um stríösföngum í Kóreu er uppspuni frá rótum.
Brezku sorpblöðin, svö sem Daily
Mail, gleyptu við bæklingnum og
gerðu mikið veður af honum
daginn eftir að hann kom út.
En þegar hin ábyrgari blöð tóku
að grafast fyrir um heimildir
fyrir því sem í bæklingnum seg-
ir gripu þau í tómt. Það sýndi
sig að hinar átakanlegu sögur
um hverskonar pyndingar á
föngunum eru skáldskapur nokk-
urra embættismanna í brezka
landvarnaráðuneytinu, sem
aldrei hafa til Kóreu komið.
Engin nöfn.
Það sem vakti grunsemdir at-
hugulla blaðamanna var að
hvergi í bæklingnum er nefnt
nafn eins einasta brezks fanga í
Kóreu. Lýst er nákvæmlega að
I einn fangi hafi verið sveltur,
öðrum misþyrmt o. s. frv. en
ekki eitt einasta nafn nefnt.
Engin leið var því að hafa upp
á fórnarlömbunum og fá nánari
fréttir hjá þeim.
Fyrirspurnum vísað á bug.
Blaðamenn fóru þá til land-
varnaráðuneytisins og báðu um
nöfn og heimilisföng einhverra
af þeim mönnum, sem orðið
hefðu að þola pyndingarnar
í bílnum var komið fyrir
kvikmyndavél og hún látin
taka mynd af fallinu. Þótt
ótrúlegt kunni að virðast
heppnaðist að búa svo vel
um vélina að hún var ó-
skemmd eftir. Verður því
hægt að skeyta myndir af
þessum „árekstri“ inn í
danska umferðakvikmynd
sem verið er að taka.
—o—
sem lýst er í bæklingi ráðu-
neytisins.
— Við nefnum engin nöfn.
sagði þá embættismaður sá, sem
varð fyrir svörum af hálfu
ráðuneytisins.
— Hvers vegna? spurðu blaða-
mennirnir.
— Við kærum okkur bara ekk-
ert um að nefna nein nöfn.
Meira var ekki að hafa hjá
ráðuneytinu.
Hreinar fjarstæður.
Þessar einkennilegu undirtekt-
ir vöktu sem vonlegt var grun-
semdir um að ráðuneytið hefðt
einhverju að leyna um tilkomu
pyndingabæklingsins. Við ná-
kvæma athugun á honum korn.
líka í ljós, að sumar pjmdinga-
sögurnar eru svo fáránlegar að
skáldskaparmörkin á þeim eni
auðsæ. Til dæmis er ein á þá
leið, að fangar hafi verið geymd-
ir • mánuðum saman í tréstokk-
um sem verið hafi 1,5 metrar á
lengd, 90 sm á breidd og 60 sm
á dýpt.
Tilgangurinn Ijós.
Þegar fangarnir komu heim
til Bretlands frá Kóreu birtusi:
viðtöl við hundruð þeirra i
brezkum blöðum. Þar kvörtuðu.
margir undan misjöfnum aðbún-
aði en hvergi var minnzt á
pyndingar. Nú þegar hálft ann-
að ár er liðið síðan fangarnir
komu birtir svo landvarnarráðu-
neytið „skýrslu“ sína, sem við
nánari athugun reynist tilbún-
ingur. Markmiðið er augljóst,.
að æsa brezkan almenning gegn
Kínverjum, sem höfðu flestalla
brezku hermennina í haldi. Ein-
mitt um þessar mundir er and-
staða brezkrar alþýðu gega
stríðsstefnu Bandaríkjastjórnat?
gagnvart Kínverjum magnáðrfi
en nokru sinni fyrr. Þá tekur
landvarnaráðuneyti íhaldsmanna.
það til bragðs að koma á fram-
færi við blöðin safni af heima-
tilbúnum sögum af hryðjuverk-
um Kínverja á brezkum föng-
um.
Vinnubrögðin eru nákvæm-
lega þau sömu og þegar brezku
togaraútgerðarmennirnir gérðu,
Bob Rivett skipstjóra út og
létu hann ljúga því að 50 frétta-
mönnum í London að nýja frið-
unarlínan við strendur íslands
ætti sök á þvi að 40 brezkir sjó-
menn drukknuðu. Þessum rógE
um íslendinga var komið á frara
færi einmitt þegar útgerðar-
mennirnir áttu .í vök að verjasti
með löndunarbann sitt.
- -’ÍM'-ltí Ui ltKilHf*
Svona leit bíllinn út eftir fallið. Þetta var Buickbíll frá
1934. Hann styttist um 1.60 metra og allt brotnaði sem
brotnað gat. Tveim vaxbrúðum var fest í framsœtið með
ólum, þœr héldu en þar sem gólfið fór úr bílnum hefði
engin björg verið að þeim ef um menn hefði verið að
ræða. Tilgangurinn með sýningunni var að minna alla
sem bílum stjórna á, hvílíka ábyrgð þeir bera á eigin
lifi og 'annarra.
spratur
*•» im u n i' itf ttir i n « crc
Þegar hið nýkjörna þing'
Jamaica kom saman fyrir
nokkrum dögum átti undarlegí:
sjónarspil sér stað fyrir fram-
an þinghúsið.
Framhald á 10. síðu«