Þjóðviljinn - 04.03.1955, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 04.03.1955, Blaðsíða 7
Föstudagur 4. marz 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (7 Við búum við þingræðis- stjórnskipulag íslendingar, sem jafnframt hefur verið nefnt lýðræðisskipulag. And- stæðihgar sósialista telja þetta vera hið fullkomnasta þjóðfélagsform til eflingar mannréttindum og almennri farsæld. Þó finnst hvergi á jörðinni þingræðisríki er sanni þessa fullyrðingu. í engu þingræðislandi liefur böli fá- tæktarinnar verið útrýmt — í engu þeirra hnekkt valdi og kúgun einkaauðvaldsins. Hér er þó ekki þingræðinu í sjálfu sér um að kenna, heldur misbeitingu þess í höndum ágjarnra auðvalds- sinna, og í öðru lagi, að al- þýðan notfærir sér ekki þá möguleika til lýðræðis, sem þingræðið raunar veitir henni. Á meðan þingræðið er á slíkum villigötum nefna sósí- alistar skipulagið öðrum þræði auðvalds- eða arðránsskipu- lag. Er það vissulega rétt- nefni, því rangur og spilltur málstaður verður þar ríkj- andi vald í krafti fjármagns, sem rænt er af þeim verð- mætum, sem vinnandi stéttir framleiða af gæðum lands og sjávar; en auðvaldsskipulag- ið löghelgar þetta rán. Hagfræðingar auðvaldsins viðurkenna að þetta þjóðfé- lagsástand sé siðferðislega rangt, en telja að ágirndin í mannseðlinu sé aflgjafi at- hafna og framfara. Þessi kenning er sama eðlis og kenning kirkjunnar þjóna um auðmýkt gagnvart ranglæt- inu. Báðar þjóna þær þeim málstað sem kenndur hefur verið við djöfulinn. Alþingi er sá vettvangur sem skipa skal málefnum þjóð- arinnar, og það gefur að skilja á hvem veg það er gert þegar meirihluti alþing- ismanna em málsvarar ein- staklinga og flokka sem byggja pólitíska og efnahags- lega velgengni sína á arð- ráni. Af ótta við að þjóðin vakni til skilnings á misbeitingu þingræðisins og eðli auðvalds- ins, hafa foringjar auðvalds- stuðningsmenn þeirra í öðmm flokkum í gangi volduga á- róðurskvöm sem eys lygum og blekkingum útyfir þjóðina. I heiðarleik sínum tekur meirihluti þjóðarinnar þennan áróður fyrir góða og gilda vöm og neitar að trúa því að mennimir sem hún trúði til pólitískra forráða, séu slík siðferðisleg lítilmenni sem á- róðurinn þó ber vitni. Á meðan draugatrú ríkti í landinu var það gjarnan hátt- ur þeirra sem draughrædd- astir vora sjálfir að reyna að hræða aðra. Þetta hafa hrædd- ir foringjar auðvaldsins líka tek'ð sér fyrir hendur. í sambandi við „varnarmálin“ svonefndu hafa þessir for- ingjar nú síðast með nýjum liðskosti: Þjóðvarnarforust- unni, hrætt þjóðina á Ráð- stjómarríkjunum og ógnum sem þaðan mundu stafa, en í sambandi við innanlandsmálin á Sósíalistaflokknum og hans ,,austræna“ eðli. Þannig leið- ir hræddur hræddan, og í- myndunaraflið kallar fram ó- skapnaði í ýmsum myndum eins og títt er þegar hræðsl- an er ráðandi í mannshugan- um. Það sem vekur auðvaldinu mesta skelfingu er, að sá stóri hluti þjóðarinnar sem myndar Sósialistaflokkinn neitar að láta hræða sig. Þetta fólk hugsar sjálft og beitir eigin dómgreind. Það hefur skilning á því sem hef- ur gerzt í mannkynssögunni, því sem er að gerast og mun gerast. Það er staðráðið í að leysa af þjóðinni ok óttans svo að hún megi verða frjáls og finna þrótt og manndóm sjálfrar sín. Þessvegna beitir auðvaldið nú einangrunarpóli- tík sinni gegn Sósíalista- flokknum samkvæmt erlendum fyrirmyndum. Það sýnir eiginlegan mann- dóm sósíalista að þeir skyldu standast þunga þessarar ein- angrunar og kúgunarherferð- ar, ekki sízt vegna þess að fram kom nýr flokkur, Þjóð- varnarflokkurinn, sem breiddi út sinn faðm og bað alla að koma til sín sem þreyttir Sérstaklega biðlaði hann til „sakleysingjanna“ sem af „misskilningi" fylgdu „Mosk- vuagentunum“ í „Kommún- istaflokknum“. Kom strax í ljós að þarna var á ferðinni . tækifærisflokkur gamall að eðli og siðferði. En þegar til kom reyndust nær allir fyrri kjósendur Sósí- alistafloksins vera „Moskvu- kommúnistar" svo að ekki afl- aði Þjóðvarnarflokkurinn mik- ið á þeim miðum. Þrátt fyrir það var tækifærisbrölt Þjóð- varnarforingjanna óhappaverk í stjórnmálasögu íslands á ör- lagatímum, og átti að leiða til þess að íslenzkir sósíalistar yrðu ofurseldir kúgun og of- beldi auðvaldsins. Sósíalistar hafa nú hafið sókn á stjórnmálasviðinu og eru að sprengja af sér ein- angrunarf jötra auðvaldsliðs- ins. Alþýðu landsins er nú líka að verða ljóst að ekki tekst að mynda róttæka lýð- ræðisstjórn í landinu án þátt- töku Sósíalistaflokksins. Sósí- alistar hafa alltaf síðan á ný- sköpunarárunum verið reiðu- búnir til þátttöku í róttækri umbótastjórn í þágu alls þess fólks sem eflir alþjóðarhag með störfum sínum á sviði atvinnulífs og menningarmála. En foringjar Framsóknar og Alþýðuflokksins, sem kenna sig við alþýðufólk í landinu, hafa hafnað allri samvinnu við sósíalista þegar þeir hafa rétt fram hönd til samstarfs. Þrátt fyrir það hefur Sósíal- istaflokkurinn verið knýjandi afl í þjóðfélaginu sem neytt hefur auðvaldsliðið til að gefa að nokkru gaum þörfum al- mennings. Ef tækist að fjötra þetta afl mundi margt illt á eftir fara fyrir alþýðu þessa lands. Hvaða fólk er það svo sem myndar Sósíalistaflokkinn og er svona „hættulegt“ í þjóð- félaginu ? Þetta fólk er ó- breytt starfsfólk til sjávar og sveita, þá mennta- og lista- menn og enn það fólk sem valizt hefur til forystu fyrir flokkinn. Þetta fólk þekkir fá- tæktina af eigin-'haun, og hef- ur við erfið lífskjör unnið að velferð Islands. Enginn sósí- alisti hefur nokkru sinni svik- ið málstað þess. I vitund og áróðri auðvalds- ins er þetta fólk svona hættu- legt vegna þess að það með stjórnmálasamtökum sínum, Sósíalistaflokknum, stefnir að afnámi arðráns og spillingar, sem dæmir fólk til fátæktar og óhamingju á tímum sem bjóða öll ytri skilyrði til al- mennrar hagsældar. Og því er brigzlað um landráð af því að það neitar að taka þátt í hinu ógeðslega níði um Ráð- stjómarríkin, en hefur hins- vegar trú á, að þar sé verið að byggja upp fullkomnari þjóðfélög en þekkjast meðal þingræðisþjóðfélaga auðvalds- ins. Margsinnis hefur verið skor- að á auðvaldsliðið að sanna landráðabrigzl sín á hendur sósíalistum, en aldrei er orðið við þeirri áskorun. Aftur á móti er áróðúrslygakvörnin látin ganga með fyllstu mögu- legum afköstum. Er þá áróð-. urshráefnið að mestu sótt austur í álfur og birtar það- an falsaðar myndir. Er allt íj? iná-í éjálíetæðisflokknum ög-*v værú á‘'„göfiilu-'utflofekunuíöiú iffústur þár undir stjórn OLGEIR LÚTHERSSON: VINNANDI STÍTTIR ÍSLANDS verða að snúa bökunt santan í baráttunni gegn spillingu og arðráni auðvaldsins Sirkus í Moskvu Við íslendingar höfum haft \ lítil og mjög ófullkomin kynni af því sem fram fer í hringleikaliúsum, en er- lendis eru þau einhverjir vinsœlustu skemmtistaðir al- \ mennings. Einhver fullkomnasti sirkus heims er í Moskvu, og þaðan er þessi mynd af nœsta ótrúlegum loftfimleikum. kommúnista eitt kvalanna hel- víti, sem íslenzkir „kommún- istar“ þó dásama. Þarf þá ekki lengur vitnannna við um það hverskonar fólk það er sem fylgir Sósíalistaflokkn- um. Jafnvel hinir sárfátæku Þjóðvamarforingjar leggja þarna til eldsneyti af litilli getu en góðum vilja. Innan um öll ógeðslegheitin er svo öðm hvoru blandað guðsorði og má þá segja að hræsnin og loddaraskapurinn hafi náð hámarki. Takið eftir: „-----Og vér kristnir menn, kirkjan. Vér vitum. Vér emm þess um- komnir að kenna heiminum lög guðsríkisins. Vér kunn- um Fjallræðuna, kunnum kær- leiksboðorð kristindómsins, segjum og skrifum þrátt og títt: Komið og lærið þessi lög, breytið eftir þessari ræðu-------“. Já, er ekki auðséð að auð- valdsliðið og Þjóðvamarfor- ustan kann Fjallræðuna! Því- líkt hyldýpi óskammfeilni og hræsni! Á hér vel við niðurlag ívitnaðrar predikunar: „----- Guðsríki mun frá yður tekið verða og gefið þeim, sem bera ávöxtu þess“. Gengi auðvaldsins er nú með vaxandi blóma í landinu jafnhliða því að hagur al- mennings þrengist. Er þetta eðlileg afleiðing af stefnu þeirra ríkisstjórna sem far- ið hafa með völd eftir ný- sköpunarstjómina. Enginn þurfti að undrast þessa þró- un Tiefði Sjálfstæðisflokkur- inn farið einn með völd á þessu tímabili, því eins og kunnugt er er hann brjóst- vöm sérhagsmuna og arðráns í þjóðfélaginu. En þarna hafa einnig að verki verið Alþýðu- flokkurinn og Framsókn. Al- þýðuflokkurinn lirökklaðist þé úr stjórn þegar foringjar hans sáu fram á að hann mundi ekki lífi halda í þeirri vist. En framsóknarforingjarnir hreykja sér enn af broslegu mikillæti á gullhaug auðvalds- ins og þykjast ráða sjálfir hvað þeir njóti unaðssemd- anna þar lengi. Við sjáum hvað situr. Trúlega láta kjós- endur þeirra sig þetta ein- hverju skipta. Samvinnuhreyfingin skaufc rótum meðal fátækra, kúg- aðra bænda Islands fyrir meira en heilli öld. Hún var uppreisn þeirra og sjálfs- bjargarviðleitni á félagslegum grundvelli. Þessi hreyfing varð bændunum heilagt vé; síðar varð hún lyftistöng djarfra,' vinstrisinnaðra stjóm- málamanna á vegum Fram- sóknarflokksins. En það gerist mörg harm- saga í lífinu og ein sú saga er saga samvinnuhreyfingar- innar í viðjum Framsóknar- flokksins á síðustu og verstu tímum. Nú er henni ekki leng- ur beitt til sóknar gegn yfir- stétt og auðvaldi, heldur eru hinir æðstu „samvinnumenn“ sjálfir orðnir yfirstétt og auðvald í náinni samvinnu við hin sömu öfl, sem samvinnu- hreyfingunni var upphaflega stefnt gegn. Núverandi foringjar Fram- sóknarflokksins, sem lyfzfc hafa til valda af lotnum herð- um bænda, virðast nú ekki eiga annað áhugamál meira : -Frámh. á 10. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.