Þjóðviljinn - 04.03.1955, Síða 9
I
Föstudagur 4. marz 19S5 — ÞJÓÐVILJINN — (9
r
'ÍK ÍÞRÓTTIR
RITSTJÓRI FRtMANN UELGASON
r _
Sundmot Armanns og Ægis
Helga Haialdsdóttir setti airnað met sitt á mótinu — Heigi Sigurðsson
bæðti met sitt í 400 m skriðsundi og Sigurður Sigurðsson irá Akranesi
setti tvö drengjamet
Síðari dagur
Síðari dagur Sundmóts Ár-
manns og Ægis var ekki síður
viðburðaríkur en sá fyrri. Þeg-
ar í fyrsta sundinu, 400 m
skriðsundi, bætti Helgi Sig-
urðsson met sitt um 1.1 sek.
og synti á 5.00.3. Östrand
keppti nú í ,,sérgrein“ sinni,
og synti frá þeim Helga og
Ara með jöfnum skriði og eftir
250 m er hann kominn um 15—
18 m á undan þeim en eftir það
dró lítið sundur með Helga og
Östrand.
Helga setur met
100 m skriðsundskeppnin
var ákaflega spennandi. Helga
hafði þar örugga forustu og
var hún ásamt Ingu Árnadótt-
ur á undan Birgittu en á síð-
ustu 5 m vantaði Ingu örlítið
meira úthald og kom 2/10 á
eftir Birgittu í mark.
Helga bætti met sitt um 7/10
úr sek. og sýnir það vel hve
frábær sundkona hún er.
Þorsteinn Löve á mettíma
í 100 m bringusundi
Einhver skemmtilegasta
keppni kvöldsins var keppnin í
'100 m bringusundi karla og þá
fyrst og fremst viðureign Þor-
steins Löve við Rolf hinn
sænska. Hraðinn er sýnilega
mjög mikill í sundinu, þó eru
þeir jafnir eftir 25 m og 50 m.
Vitað var að bezti tími Rolfs
var 1.13.1 svo annaðhvort
synti Þorsteinn yfirnáttúrlega
eða Rolf var ekki upplagður.
Og þetta heldur áfram, þeir
eru svo að segja jafnir á 75
m en þá átti Svíinn meira út-
hald og kom í mark á tímanum
1.14.0 en Þorsteinn á mettíma
Sigurðar Þingeyings 1.15.7. Vel
af sér vikið af kringlukastar-
anum okkar!
Rolf Junefelt synti einnig 50
m flugsund og varð langfyrst-
ur eða 5/10 undir íslenzka met-
inu. Synti hann með sama
sundlagi og Krog frá Noregi
gerði í fyrra. (Sporðslag með
fótum).
Efniíegir utanbæjarmenn
Það vekur ekki litla athygli
hve glæsilegan þátt utanbæjar-
sundmenn eiga í móti þessu.
Sérstaklega þó yngri kynslóðin.
Sigurður frá Akranesi setur
þrjú drengjamet á mótinu og
eftir að hafa sett met í 50 m
bringusundi fer hann í 100 m
bringusund fullorðinna og bæt-
ir met sitt frá deginum áður
um nærri tvær sek! og tryggir
sér þriðja sæti á undan svo
góðum sundmönnum sem
Magnúsi Guðmundssyni úr
Keflavik og Ólafi Guðmunds-
syni úr Ármanni. Þá lofa góðu
Helgi Hannesson, líka frá Í.A.,
Ragnar Eðvaldsson K.F.K.,
Birgir Dagbjartsson úr Hafn-
arfirði og Sigurður Friðriksson
U.M.F.K. svo nokkur nöfn séu
nefnd. Því miður hafa Reykja-
víkurfélögin ekki svo stóran
hóp efnilegra manna ef dæma
skal eftir þessu móti, og er
það alvarleg áminning til for-
ustumanna sundsins hér og
sundfólksins sjálfs að nota að-
stöðuna og timann vel. Efni-
viður ætti að vera hér ekki síð-
ur og kennaraval ekki lakara.
Forustumenn sundsins verða
svo að finna ástæðuna til þessa
ástands.
Sundknattleikurinn milli
Norður- og Suðurbæjar fór
þannig að Norðurbæingar unnu
eftir mjög jafnan leik. Þeir
Östrand og Junefelt léku hvor
með sínu liði.
Urslit
400 m skriðsivnd karla
Per O. Östrand 4.46.2
Helgi Sigurðsson Ægi 5.00.3
Ari Guðmundsson Ægi 5.08.9
100 m skriðsund kvenna
Helga Haraldsdóttir KR 1.13.0
íslandsmeistaramótin í hand-
knattleik innanhúss fyrir III. fl.
og meistaraflokk standa yfir
eins og áður hefur verið getið.
Hafa leikar farið þannig:
III. flokluir:
ÍR — Valur 11:10
Fram — FH 18:4
KR — Þróttur 11:4
Fram — Ánnann 12:9
Meistaraflokkur
Valur — KR 26:24
FH — Víkingur (B-deild) 27:23
ÍR — Þróttur 24:20
Fram — Ármann 23:17
Valur — ÍR 19:16
KR — Fram 23:23
Ármann — Þróttur 32:9
Valur — Fram 19:15.
Eftir þessa leiki, en mótið er
um það bil hálfnað hefur Valur
bezta sigurmöguleika. Hafa
Valsmenn sigrað bæði KR og
Fram sem eru með sterkustu
liðunum. Þó vel hafi gengið fyr-
ir Val fellur liðið ekki vel sam-
an. En það á sterka einstak-
linga og góðar skyttur.
ÍR-liðið fellur vel saman er
sýnilega 1 æfingu. Er það fram-
tíðarlið með unga menn fulla af
áhuga. Leikur þess við Val
sýndi að það eru töggur í pilt-
um þessum og mátti þar ekki
miklu muna.
Sveit KR er lakari en í fyrra.
Svipar að sumu leyti til Vals,
sterkir einstaklingar, sem þó
eru seinir að komast í gang.
Virðast þeir ekki í æfingu, og
er sama um marga aðra að
segja.
Fram er í framför. Teflir nú
fram nýjum mönnum, sem
styrkja liðið en þa(5 leikur nú
létt og oft með goðum sam-
leik.
Birgitta Ljunggren Svíþj. 1.15.7
Inga Árnadóttir U.M.F.K. 1.15.9
50 m baksund karla
Jón Helgason Í.A. 33.3
Gylfi Guðmundsson Í.R. 33.8
Guðjón Þórarinsson Á. 35.5
100 m bringusund karla
Rolf Junefelt Sviþjóð 1.14.0
Þorsteinn Löve KR 1.15.7
Sigurður Sigurðsson ÍA 1.18.5
50 m flugsund karla
Rolf Junefelt 32.1
Pétur Kristjánson Á. 33.1
Þorsteinn Löve 35.5
UNGLINGASUND
50 m bringusund drengja
Sigurður Sigurðsson ÍA 35.2
Ágúst Þorsteinsson Á 37.4
50 in skriðsund drengja
Helgi Hannesson ÍA 29.5
Ragnar Eðvaldsson KFK 31.3
Þorfinnur Egilsson UMFK 32.8
Þróttur er lakari en í fyrra,
leikur liðsins er of einhæfur og
snýst of mikið um einn mann,
Guðmund Axelsson, en þetta á
að vera flokksleikur fyrst og
fremst.
Lið Ármanns er ennfremur
sundurlaust og snýst fullmikið
um Karl Jóhannsson, sem er
rangt, þó Karl sé góður.
Víkingsliðið er nokkuð í mol-
um sem ekki er óeðlilegt þar
sem tveir af beztu leikmönn-
um þess hafa farið í önnur fé-
lög. Eru það þeir Ásgeir Magn-
ússon sem fór í Val og Reynir
Þórðarson sem gekk í KR og
eru þegar byrjaðir að keppa
þar.
Víkingsliðið vann sem kunn-
ugt er Hraðkeppnismótið í
haust, og virðist því óeðlilegt
að þeir skuli yfirgefa flokkinn,
þegar svona vel gengur. Sé það
flótti frá félagslegum erfiðleik-
um í Víkingi, eru það ekki karl-
mannleg viðbrögð. Fyrri hluti
leiks Vikings var góður og
sýndu þeir þá undra góð til-
þrif, en eins og oft áður vantaði
þá jafnvægi er á leið og töpuðu
á því.
Lið FH er skipað sterkum
einstaklingum, þeir eru hraðir
og ákafir en vantar meiri hugs-
un í leik sinn. Þetta er vissu-
lega framtíðarlið svo ungir sem
þeir eru.
Í kvöld fara þessir leikir
fram: HI. fl. Þróttur — ÍR.
Meistarafl. ÍR — Ármann og
Valur — Þróttur.
Leikur ÍR og Ármanns ætti
að geta orðið skemmtilegur og
jafn eftir leikjum þessara fé-
laga í mótinu áður að dæma.
IlaiftdknattleiksmeistaramóÉ-
ið heldur álram i kvöld
Gunnar M. Magnitss:
Börnm frá Víðigerði
Fyrir lækninguna ætlaði hann að ’taka tíundu
hverja kind og biðja bændurna að geyma hana
fyrir sig, meðan hann væri á ferðalaginu. En
þegar hann væri búinn að fá 300 kindur, ætlaði!
hann að smala saman öllu fénu og flytja það
hingað.
Svo ætlaði hann að kaupa allar þessar flatir og
þessi holt, og á meðan hann væri í ferðalaginu
ætlaði hann að láta danskan mann ganga um holt-
in með fræ 1 poka og láta dreifa því og sá um
öll holtin, svo að þarna yrði 'tún, þegar hann kaemi
með fjárhópinn.
Því næst ætlaði hann að safna saman öllu
grjótinu, bæði stórum og smáum steinum úr holt-
unum og byggja stóran grjótgarð kringum allt'
landið, sem hann ætti.
Geiri sagði, að það gæti líka vel verið, að hann
byggði þarna kindalækningaskóla.
En Stjáni langi hélt, að það væri ekki vist, að
svona margar kindur yrðu veikar og ekkert víst,
að bændur vildu borga með kindum, nema þá
Orðsending Gunnars Benediktssonar
oft hefur verið þörf mann-
dóms og æðruleysis í menn-
ingarforustu okkar, en nú er
nauðsyn.
Það kemur reyndar upp úr
kafinu í orðsendingu þinni til
Jóhannesar, að ástæðan fyr-
ir þögn þinni eru ekki annir
einar. „Ég nennti ekki að
svara Gunnari þá“, segir þú.
Þá minnist maður þess, að
um daginn telur Þjóðviljinn
ykkur ungu listamennina, sem
Æskulýðsfylkingin kynnti á
sunnudaginn, „boðbera nýrra
viðhorfa, með svipuðum hætti
og Þórbei'gur í Bréfi til Láru
fyrir meira en 30 árum“. Mér
þykir mjög átakanlegt, að
Þjóðviljinn skyldi láta þetta
frá sér fara, því að með því
er verið að blekkja fólkið um
menningarsögulegan stórvið-
burð. Með ykkur og höfund-
inum að Bréfi til Láru er
enga hliðstæðu að finna, nema
ef segja mætti, að þið væruð
að innleiða nýtt tjáningar-
form, sem ég tel þó næsta
hæpið nema að mjög tak-
mörkuðu leyti, en það verður
ekki nánar rætt í þessum
línum. En svo mikilli stílbylt-
ingu sem Bréf til Láru var
upphaf að, þá gætti enn meir
í því bréfi hinnar hugmynda-
legu byltingar, sem bréfið
var þrungið af, og bersögl-
innar og hinnar ljósu og
nöktu framsetningar og
kraftsins og eldmóðsins, sem
hinir römmustu íhaldshausar
gátu ekki einu sinni látið
sem vind um eyrun þjóta. En
þótt ég telji það hina mestu
fjarstæðu að jafna áhrifum
ykkar nú við áhrifin af Bréfi
til Láru, þá er það einlæg ósk
mín ykkur til handa, og af
heilum hug ræð ég ykkur til
að taka hann til fyrirmyndar
um ákveðin atriði. Þegar ráð-
izt var að Bréfi til Láru eða
öðrum ritum hans, þá sagði
hann aldrei, að hann nennti
ekki að svara. Hann svaraði,
og með svörum sínum skóp
hann ný listaverk. Eldvígsl-
an og Opið bréf til séra Árna
Sigurðssonar voru svör við
gagnrýni, sem bók hans sætti.
Gagnrýnina gerði hann að til-
efni til að koma nýjum hug-
myndum á framfæri. Þannig
ætþi hverjum.. ungum hug-.
sjónamanni að vera farið.
Hann á að taka því fegins
hendi, ef gagnrýni gefur hon-
um nýtt tilefni til að koma
boðskap sínum á framfæri, og
þá frá nýrri hlið í nýju ljósi.
Fátt er vænlegra til að halda
hlutunum í hreyfingu, en það
er þó heitasta ósk allra á-
hugamanna um menningar-
mál. — Gunnar líenediktsson.
★
Athugasemd
í ofanritaðri grein birtir
Gunnar Benediktsson hluta úr
setningu í frétt hér í blaðinu
fyrir nokkru. Setningin er
þannig öll: „Eru þeir á ýms-
an hátt boðberar nýrra við-
horfa, með svipuðum hætti og
Þórbergur í Bréfi til Láru
fyrir meira en 30 árum — og
hafa enda vakið nokkurn gust
í kringum sig, þótt ekki verði
jafnað við storm Þórbergs“
(feitletraður er hlutinn sem
Gunnar birtir). Þykir Gunnari
mjög átakanlegt að Þjóðvilj-
inn skyldi láta þetta frá sér
fara; og mætti það kannski
til sanns vegar færa, ef hann
hefur aðeins séð hinn feit-
letraða hluta setningarinnar
— og þar að auki sennilega
misskilið hann. Ég, sem skrif-
aði fréttina, átti aðeins við
það að þeir fulltrúar yngri
skáldakynslóðar sem um var
rætt væru „á ýmsan hátt“ boð-
berar nýrra viðhorfa með
svipuðum hætti og Þórbergur
var boðberi nýrra viðhor.fa
á sínum tíma. í þessum orð-
um fólst enginn samjöfnuður
af neinu tagi, annar en sá að
báðir væru boðberar nýrra
viðhorfa. Og mér kæmi ekki
til hugar að setja verk nokk-
urs ungs höfundar um þessar
mundir á bekk með Bréfi til
Láru. En hafi ég tekið klaufa-
lega til orða, eiga lesendur
rétt á útskýringu. — B. B.