Þjóðviljinn - 04.03.1955, Side 12

Þjóðviljinn - 04.03.1955, Side 12
Borgarsljóri kveðst ekki geta svarað fyrirspurnBm Snga R. Helgasonar Á bæjarstjómarfundi 3. febrúar s.l. bar Ingi K. Helga- son fyrirspurn til borgarstjóra uin hve margar Ióðir undir íbúðarhús væru nú óafgreiddar hjá bæjarráði og hve mörgum ióðum undir íbúðarliús borgarstjóri gerir ráð fjTÍr að bærinn geti úthiutað og undirbúið til bj’gg- inga á komandi vori og sumri. Jafnframt var í f j’rirspurn- unum óskað eftir nánari skilgreiningu eða tölu á um- sóknum svo og á lóðum undir einbj'lishús, tvíbj'lishús og sambj'lishús. Á bæjarstj.-fundi 17. f.m. hélt borgarstjóri hólræðu um sjálfan sig og aðgerðir sínar í byggingamálimi, í stað þess að svara fjrirspurnunmn. Hinsvegar er það venja að borgarstjóri fái frest milli bæjarstjórnarfunda, eða í hálfan mánuð, til að svara fj’rirspurnum. 'Þegar séð varð í lok bæjarstjómarfundarins í gær að borgarstjóri ætlaði enn ekki að svara fyrirspurmun þess- um kvaddi Guðm. Vigfússon sér hljóðs og óskaði svars við þeim. Borgarstjóri stóð upp, og heldur seinlega og kvaðst ekki geta svarað þessum f j’rirspuraum, eins og þær væru fram bornar. ■■■■■■■■■■«■■•■■•■■■ai •■•■•■•■■•■■■•■■■■■■■■■■•■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■»■■■■ Valgerður BenediktsSon látin I fyrrinótt lézt að elliheimilinu Grund frú Valgerður Bene- diktsson, ekkja Einars Benediktssonar skálds, 73 ára að aldri. Frú Valgerður fæddist í Reykjavík 15. júní 1881, dótt- ír Einars veitingamanns Zoega. Hún giftist Einar Benediktssyni á 18. afmælisdaginn sinn, en hann var þá málflutningsmað- ,ur við landsyfirdóminn 5 Reykjavík. Síðar fluttust þau austur í Rangárvallasýslu. Það- an lá leið þeirra hjóna til út- landa, og bjuggu þau mörg ár í Englandi og Skotlandi. Hafði Einar þá oft mikið umleikis, eins og kunnugt er, en Valgerð- ur stýrði búi fyrir innan stokk af skörungs- og myndarskap. Mun lengi minnzt þeirrar konu er ung lagði örlög sín við ör- lög eins stórbrotnasta Islend- ings er uppi hefur verið. Undanfarin ár dvaldist frú Valgerður löngum í Noregi. Fyrir allmörgum árum kom út minningabók frú Valgerðar, er Guðni Jónsson skólastjóri Urgur í Bevan Deila er risin í Verkamanna- ílokknum brezka um afstöðu til notkunar vetnissprengja. Bevan bað Attlee í þingræðun- um á dögunum um nánari skýr- ingu varðandi afstöðu flokks- ins og sat hjá við atkvæða- greiðslu ásamt allmörgum fé- lögum sínum vegna þess að hann taldi ekki svarið fullnægjandi. Mun þingflokkur Verkamanna- flokksins taka málið til af- greiðslu nú í vikunni. Brezki sendi- herrann þakkar Sendiherra Breta í Reykja- vík, J. Thjme Henderson, hef- ur með bréfi til Slysavarnafé- lags íslands látið í ljós þakk- læti sitt og hrifni yfir hinni rösklegu og giftusamlegu björg- un áhafnarinnar af brezka tog- aranum King Sol, sem strand- aði á Meðallandsfjöru í stór- sjó og stormi.. Fer hann þess á leit að öll- um þeim, sem að þessari fræki- legu björgun unnu verði flutt- ar innilegar þakkir frá sér og ríkisstjórn sinni. skrásetti. Er það mjög fróð- leg bók og varpar ekki aðeins ljósi á margt í fari Einars Benediktssonar, heldur gefur einnig skýra mj’nd af konu hans, glæsilegri höfðingskonu. Skipt um jarðveg undir Miklubraut Þýzkur verkfræðingur er hing- að var fenginn í fyrra kvað upp þann úrskurð að jarðvegurinn undir Miklubrautinni (og þá sér- staklega á kaflanum í Kringlu- mýrinni) væri óhæfur sem und- irstaða undir aðalumferðagötu í borg. Magnús Ástmarsson spurði borgarstjóra á bæjarstjórnar- fundi í gær hvort leggja ætti Miklubrautina niður sem aðal- umferðagötu. Nei, borgarstjóri kvað þann þýzka hafa bent á ráðið til að nota Miklubraut áfram: skipta um undirlagið — jarðveginn — undir henni. Aðalfundur Sósí- alistafélags ísa- fjarðar Sósíalistafélag Isafjarðar hélt aðalfund sinn fyrir nokkru. Stjórnin er nú þannig skipuð: Haraldur Steinþórsson formað- ur og aðrir í stjóm Guðrún Finnbogadóttir, Gunnar Krist- insson og Óskar Brynjólfsson. ÞlðÐVILIINia Föstudagur 4. mc.rz 1955 — 20. árgangur — 52. tölublað Nýtt arababandalag Egyptar hafa í hótunum Undirritaðui’ var í Damaskus í gær sáttmáli um nýtt varnarbandalag Egyptalands og Sýrlands, og er gert ráð fyrir aö fleiri Arabariki, þar á meöal Jórdanía og Libanon, séu í þann veginn aö gerast aöilar aö því. mundi fallast á sjónarmið Egypta um þennan atburð. ísraelsstjórn hefur tilkynnt að hún muni senda örj’ggisráð- inu gagnkæru vegna atburðar- ins í Ghaza. Var lýst j’fir opinberlega að bandalagi þessu væri ætlað að vera til varnar gegn árásum Israels á Arabarikin. Yrði þetta náið hemaðarbandalag og herir ríkjanna væntanlega settir und- ir sameiginlega herstjórn. Myndun hins nýja bandalags í stað Arababandalagsins sem áður var er talinn mótleikur Egj-pta gegn ákvörðun Iraks um hernaðarbandalag við Tyrk- land. Nasser, forsætisráðherra Egyptalands, kvað egypzka hernum hafa verið gefin sú fyrirskipun að beita tafarlaust valdi gegn hverri árás á egypzkt land. Mundu Egyptar hér eftir ekki treysta vopna- hlésnefnd Sameinuðu þjóðanna til að hindra slíkar árásir. Kæra Egypta fyrir öryggis- ráðinu í dag. Eftirlitsnefnd Sameinuðu þjóðanna lauk í gær rannsókn á árekstri Egj’pta og ísraels- manna við Ghaza, en þar féllu 39 Egyptar, 8 ísraelsmenn en 13 særðust. Örj'ggisráð Sameinuðu þjóð- anna kemur saman til fundar í dag til að ræða kæru Egypta vegna þessa atburðar. I brezkum fregnum var talið líklegt að brezka stjórnin Verður Iíóreu- nefndin leyst upp? Bandaríkjastjóm hefur lýst sig samþykka tillögu fulltrúa Sviss og Svíþjóðar í vopnahlésnefnd- inni í Kóreu um að nefndin verði leyst upp. Fjórði liluti fjjár til verklegra fraitikv. fer í bílakostnað Á bæjarstjórnarfundi í gær vakti BárÖur Daníelsson athyg’li á því að af fé því sem veitt er til verklegra fram- kvæmda — gatnagerö — færi fjórði hlutinn í bílakostnað. Nýr höíundur kveður sér hljóðs: Sjötíu og níu af stöðinni Skáldsaga úr lifi leigubílstjórans eftir Indriða G. Þorsteinsson í dag kemur hún í bófáa,búðir, sagan hans Indriða, sem tveir útgefendwr rifust um að gefa út á s.l. hausti. Nú er pað lesendanna að rífast um hana. — Þetta er fyrsta ís- lenzka skáldsagan úr hinni viðburðaríku œvi leigubíl- stjórans. Síðsumars í fyrra fékk hann tveggja mánaða frí frá blaða- mennskunni hjá Tímanum — og nú er bókin komin út. Skáldsagan Sjötíu og níu af stöðinni segir frá ævi leigubíl- stjóra eitt örlagasumar. Hún gerist aðallega í Reykjavik, en sögusviðið nær þó allt frá Keflavikurflugvelli norður á Arnarstapa í Skagafirði, en Indriði er Skagfirðingur að uppruna, — og Skagafjörður kvað lej’nast alstaðar á bak við í skáldsögunni. Iðunnarútgáfan varð hlut- skörpust í samkeppninni um út- gáfu þessarar sögu, og í gær skýrði Valdimar Jóhannsson blaðamönnum frá útkomu bók- arinnar. Ásamt honum var þar Bjarni Vilhjálmsson magister, sem lesið hefur bókina, og fór hann um hana þeim orðum að þetta væri merkilegasta skáld- saga íslenzk sem gerist í borg. Ýmsir aðrir sem lesið hafa sög- una í handriti eða prentun við- hafa svipuð ummæli. — Sá er þetta ritar hefur enn ekki les- ið bókina, en hitt er skoðun hans að Indriði muni eiga eftir að koma mörgum á óvart. — Og nú er fj’rsta skáldsaga Indriða komin út svo menn geta farið að velta fyrir sér spurn- ingunni: Er hann sá er koma skal í íslenzkri skáldsagnagerð ? Indriði G. Þorsteinsson Indriði G. Þorsteinsson er ungur maður og á því ekki langan starfsferil að baki. Hann kvað hafa stofnað félag ungra íhaldsmanna á Akureyri, en síðar snúið baki við þeirri kaþólsku og eignazt önnur á- hugamál. Um skeið kvað hann hafa ekið háttvirtum samborg- urum í strætisvagni hér í bæ, ennfremur verið leigubílstjóri, og i því umhverfi gerist skáld- sagan hans, er nefnist „Sjötíu og níu af stöðinni“. Áður hef- ur hann skrifað smásögur, sem höfðu eitthvað það til að bera, að menn deildu ákaft um þær. Kvað Bárður þenna bíla- kostnað við gatnagerðina myndu vera heimsmet. Flutti Bárður, ásamt Alfreð Gislasyni og Þórði Björnssyni tillögur um rannsókn á aukinni véltækni við gatnahreinsun og aðra um að bærinn eignaðist vörubíla til eigin nota í stað þess að leigja bíla. Kvað Bárður Þrótt vera skjólstæðing bæjarstjórnarí- haldsins og minnti á að Frið- leifur segði að ekki þýddi að kjósa aðra en sig til for- mennsku, því hann hefði öllum betri sambönd við meirihluta bæjarstjórnar. Fór Bárður í þessu sambandi heldur hæðileg- um orðum um vörubílstjórana. Guðmundur Vigfússon taldi ummæli Bárðar um bílstjórana Pontecorvo sviptur brezk- um borgararétti? Innanríkisráðherra Breta, Lloyd George, lýsti yfir í gær að til athugunar væri að svipta kjarnorkufræðinginn Pontecorvo brezkum borgararétti, vegna þess sem nú væri fram komið um hvarf hans og starf. ómakleg. Ihaldið reiddist tillög- unum ákaflega og vísaði þeim frá — til bæjarráðs, þeirri fyrri með 8 atkv. gegn 7, þeirri síð- ari með 8 atkv. gegn 5. Firmakeppni á skiSum Á sunnudaginn fer fram firmakeppni á skíðum við Skíða skálann í Hveradölum. Hefst hún klukkan 2; milli 20 og 30 fjTÍrtæki taka þátt í keppninni. Meðal keppenda verða allir helztu skíðamenn bæjarins. Fyrirspura til Bæjarútgerðar Reykjavíkur: Var isleiizkum sjómönnum sagt upp en Færeyiugar ráðnir í þeirra stað? Sá orðrómur hefur verið mjög þrálátur að undanförnu að nokkmm íslenzkiun sjómönnum á Þorsteini Ingólfs- syni liafi verið sagt upp en Færejingar settir um borð í þeirra stað, síðast þegar togarinn fór héðafn á veiðar. Þetta er ótrúleg frétt en eigi hún við rök að styðjast sýnir þetta takmarkaðan áhuga togaraeigenda fyrir því að halda íslenzkum sjómönmun í s/ripsrúmum á sama tírna og ekki linnir barlómi þeirra út af mannaskorti og innflutningzír færeyskra sjómanna er rökstuddur með honnm. Þess er að vænta að forstjórar Bæjarútgerðar Rej’kja- víkur skýri opinberlega frá því hvort þessi orðrómur er á rökum reistur.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.