Þjóðviljinn - 06.03.1955, Page 11
Sunnudagur 6. marz 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (11
Erich Maria REMAEQUE:
Að elsha •. • |
.mmog degja
'--------------/
Árekstrar
Framhald af 12. síðu.
inu tekið þeirri málaleitun lík-
lega.
Æsingar eru miklar í Ghaza
og hafa konur og börn Evrópu-
manna verið flutt þaðan til
Jerúsalem, enda komið fyrir að
aðsúgur hafi verið gerður að
starfsmönnum vopnahlésnefnd-
ar Sameinuðu þjóðanna þar um
slóðir.
að ekki yrðu fleiri árekstrar
við landamærin meðan á rann-
sókn málsins stæði.
Nasser, forsætisráðherra
Egyptalands boðaði á fund sinn
í gær brezka sendiherrann í
Kairo, Stevenson, og ræddust
þeir lengi við. Það hefur vak-
ið athygli að Bretar og Banda-
ríkjamenn studdu málstað
Egypta á fundi öryggisráðsins
í fyrrakvöld.
72. dagur
„HreinsuSuð þið þetta allt til sjálf?“
,,Að nokkru leyti. Annað fólk lijálpaði okkur“.
- ..Hvaða fólk?“
„Fólk sem hefur áhöld“.
1 „Funduð þið nokkur lík?“
„Nei“.
' „Er það áreiðanlegt?“
„Já, alveg áreiðanlegt. Við gerðum það ekki. Ef til vill
hafa einhvern tíma verið lik, en ekki len)gur“.
„Það var það sem ég vildi vita“, sagði Gráber.
„Þú hefðir ekki þurft að lúberja annan mann til þess
að komast aö því“, sagði konan.
„Er hann maðurinn þinn?“
„Það kemur þér ekki viö. Hann er ekki maðurinn
minn. Hann er bróðir minn. Og hann er allur blóðugur11.
„Ekki nema nefið“.
„Munnurinn líka“.
Hvað gerir
öryggisráðið ?
Öryggisráðið hefur stefnt
yfirmanni eftirlitsnefndar Sam-
einuðu þjóðanna til New York
til að gefa nákvæma skýrslu
um atburðina.
Dag Hammarskjöld, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, sendi í gær utanríkisráð-
herrum ísraels og Egypta-
lands orðsendingu og hét á þá
að stuðla að því eftir megni
Heimasliórn
Túnis offur á
dagskró
Tilkynnt hefur verið að
stjórn Edgar Fauré ætli að
taka upp þráðinn frá stjórn
Mendes-France um heima-
stjórnarsamninga við Túnisbúa.
Hefjast samningar þessir að
nýju 15. þessa mánaðar.
<•>-
eimilisþáttnr
Gráber lyfti hakanum. „Og þetta? Hváð ætlaði hann
að gera við þetta?“
„Hann hefði ekki ráðizt á þig“.
„Kona góð“, sagði Gráber. „Ég er búinn að læra aö
bíða ekki þangað til ráðizt er á mig“.
Hann fleygði hakanum í stórum boga út í rústahrúg-
una. Þau horfðu öll á þáð. Drengurinn bjó sig til að
klifra eftir honum. Konan hélt aftur ai honum. Gráber
leit í kringum sig. Nú sá hann baðkerið líka. Það stóð
hjá skýlinu. Stiginn hafði sennilega verið notaður í upp-
kveikju. í hrúgu lágu tómar dósir, járnbútar, leirbrot,
tuskur og sneplar úr fatnaði, trékassar og brot úr hús-
gögnum. Fjölskyldan haföi flutt inn, byggt skýlið og
virtist nú líta á allt sem hægt var að tína saman úr
rústunum eins og sendingu af himnum. Við þessu var
ekkert að segja. Lífið hélt áfram. Bamið var hraust-
legt. Dauðinn hafði verið sigraður. Rústirnar voru at-
hvarf fyrir fólk. Við því var ekkert að segja.
„Þið hafið látið hendur standa fram úr ermum“,
sagði hann.
„Þaö er óhjákvæmilegt", svaraði bækláði maðurinn“,
þegar maður hefur ekki þak yfir höfuðið".
Gráber sneri sér frá þeim. „Funduð þið kött hérna?“
spurði hann. „Lítinn svai’tan og hvítan kött?“
„Hana Rósu okkar“, sagði bamið.
„Nei“, svaraði konan festulega. „Við fundum engan
kött“.
Gráber klifraði til baka. Eflaust var enn fleira fólk í
skýlinu; annars hefði ekki verið hægt áð koma svo
miklu í verk á svo skömmum tíma. En ef til vill hafði
hjálparsveit aðstoðað þau. Á næturnar voru fangar
úr fangabúðunum oft sendir út í borgina til aö aðstoða
við að hreinsa til.
Hann fór til baka. Honum fannst sem hann hefði allt
í einu orðið fátækari; hann vissi ekki hvers vegna.
Hann kom í götu sem var alveg óskemmd. Ekki einu
sinni stóru rúðumar í búðargluggunum höfðu brotnaö.
Hann gekk í þungum þönkum, en allt í einu snar-
stanzaði hann. Hann hafði séð mann koma í áttina til
sín og fyrst í stað hafði hann ekki áttað sig á því, aö
það var hann sjálfur sem stikaði áfram í stórum hliðar-
spegli á fataverzlun. Það var kynlegt — eins og hann
væri að horfa á tvífara og væri ekki lengur hann sjálfur,
heldur aðeins minning sem yrði þurrkuð út um leið og
hann stigi feti framar.
Hann stóð kyrr og staröi á myndina í óhreinum,
gulleitum speglinum. Hún var óskýr, mött og grá. Hann
sá aðeins augnatóftii’nar, ekki sjálf augun. Og það var
eins og hann hefði ekki lengur nein augu, þetta var
hauskúpa. Kynlegur, framandi ótti náði tökum á hon-
um. Það var ekki snögg, ofsafengin hræösla, sem krafð-
ist flótta eða vamarráöstafana — það var kaldur, níst-
andi, næstum ópersónulegur ótti, ótti sem veitti enga
fótfestu vegna þess að hann var ósýnilegur og ósnertan-
legux og virtist koma út úr tómi, þar sem risastórar
dælur dældu blóðinu út úr æðum hans og lífinu úr
beinum hans. Hann sá enn mynd sína í speglinum, en
honum fannst sem hún yrði brátt óskýr, titrandi, leyst-
Falleg hárgreiSsla úfheimfir
velhirf hár
segir hinn frægi, franski hárgreiðslu-
maður JOSE ANTONIE sem segir hér
ýmislegt um hirðingu á hári
Konurnar, segir José Antonio,
geta sjálfar snyrt hár sitt,
þótt þær eigi erfitt með að
komast á hárgreiðslustofur. —
Þær þurfa fyrst og fremst
að gæta þess að þvo það oft.
Fallegt hár er fyrst og fremst
hreint hár.
Segið einnig konunum að
þær þurfi að bursta hár sitt
á hverjum degi.
Hvers konar bursta? Ég
mæli ekki með nælonburstum.
fl
Þeir brjóta hárin og rífa þau
oft upp og nælon samlagast
illa hárinu. Ég mæli með gam-
aldags svínshársbursta. Lítið
á þann sem ég nota. Hárin í
burstanum eru mjög smá. Þau
eru í samræmi við eðli hárs-
ins, aðskilja hárin alls staðar.
Hvað ráðleggið þér konum
með feitt hár?
Ég ráðlegg þeim að nota
brennisteinsupplausnir til að
hreinsa kirtlagöngin og hreins-
andi vökva (lotion). Það eyk-
ur blóðstrauminn og ýtir undir
eðlilega starfsemi hársins. Loks
vil ég mæla með olíuböðum upp
úr lecitini eða chlorestrol. —
Þurrt hár þarf að fá slík böð
með vissum millibilum.
Hvað ráðleggið þér konum
sem hafa þunnt hár ?
Fyrst og fremst þurfa þær
að hafa hárið stutt. Ef það er
of sítt verður það kollótt og
þótt topparnir séu hrokknir eru
þeir rýrir. Stutt hárgreiðsla
létt og mjúk er eina ráðið.
Stutt hár a la Dandy
Enn ber mikið á stuttu hári í
tízkunni, segir José Antonie, en
hnakkahárið er síðara en áður.
Fjórir sentimetrar í hnakkan-
um er hæfilegt. „A la Dandy“
greiðslan sem er eins og hjálm-
ur á höfðinu og að greiða hárið
fram á við er mjög í tízku enn.
En ég forðast allar reglulegar
og samsíða línur.
En sé útlitið mjög sérkenni-
legt, segir José 9ntonio, getur
oft verið eins mikilvægt að
draga fjöður yfir sérkennin og
að undirstrika þau.
Ég reyni með skálínum að
fá jafnvægi í hárið, koma því
þannig fyrir á höfðinu að and-
litsfallið njóti sín bezt. Sumar
konur halda fast í hárgreiösl-
ur án skiptingar eða greiða
hárið slétt aftur. Þá er allt
hárið greitt eftir bogalínum
sem mætast í bletti framan til
á höfðinu. Dandy-greiðslan læt-
ur hvern lokk snúa fram að
andlitinu.
Greiðslur við allra hæfi
— Þetta eru hinar almennu
reglur, en þér lagið þær auð-
vitað til eftir því hver í hlut
á?
Vitaskuld. Lokkunum, sem
snúa fram að andlitinu, er kom-
ið misjafnlega fyrir eftir and-
litsfallinu.
Dandy-hárgreiðslan sem ger-
ir mögur andlit enn magrari
er rofin með bylgju. Það hefur
mikla þýðingu hvernig lokkun-
um við eyrun er komið fyrir.
Ef hárið er mjög þykkt er
ekki hægt að greiða það allt
fram. Nauðsynlegt er að greiða
eitthvað af því til baka og
skapa fyllingu í hnakkanum.
Og af því að teikningar segja
miklu meira en orð, dregur
José Antonio upp nokkrar riss-
myndir.
Lítið á teikningarnar. Virð-
ið andlit ykkar fyrir ykkur í
spegli og veljið þá greiðslu
sem hentar andlitinu bezt.
Of langt andiit.
Hægt er að gera andlitið
breiðara og draga úr lengdinni
með því að láta langa lokka
liggja niður á ennið.
Of kringluleitt andlit
Fyrst og fremst verður að
hækka andlitið og höfuðið og
varast að gera það breiðara,
einkum við eyrun. Hárið á að
bg&ja slétt við eyrun. Topp-
arnir snúa inn að kinnunum til
að rjúfa bogalínurnar og topp-
arnir á enninu þurfa að vera
ofarlega.
Þríhyrnt andlit
Margir möguleikar eru fyrir
hendi. Það verður að velja á
milli. Annaðhvort er að rjúfa
þríhyrninginn eða undirstrika
hann. Því hærra uppi sem hárið
er haft því meira ber á þrí-
hyrningnum — og öfugt.