Þjóðviljinn - 06.04.1955, Side 1
Boðskapur Sjálfstæðisflokksins verður ekkl misskilinn:
1tÞað á að hafa vélbyssur og skjóta
þessa helvítis hunda”!
„Járningamaður ílialdsins" Einar Ásmundsson o.fl. smöluðu Heimdallar-
skríl og landeyðum til endurtekinna árása á verkfallsmenn í fyrrinótt
Verkalýðssamtökin verða að sýna þessum stríðsóða auðstéttarskrí! að
verkalýður Reykjavíkur lætur ekki bjóða sér slíkar gangsteraðfarir
Deiluaðilar höfðu með sér
samningafundi í gær. Hófust
þeir kl. 2 og stóðu enn þegar
blaðið fór í prentun. — Þegar
Þjóðviljinn liafði samband vi<S
samninganefnd verklýðsfélag*
anna laust fyrir miðnætti höfðu
eingöngu verið ræddar sérkröf*
ur félaganna — og engin tilbocí
höfðu komið fram frekar en
fyrr frá atvinnurekendum.
Togari Bæjarútgerðar Hafn-
arfjarðar, Júní, kom af veiðum
í gær með 170 lestir af salt-
fiski. Var uppskipun langt kom-
Sjálfstæðisflokkurinn hefur kastað grímunni. Und-
irtektir almennings undir fjársöfnunina til styrktar
verkfallsmönnum hafa sýnt atvinnurekendum og
ríkisstjórninni að verkamenn verða ekki sveltir til
hlýðni. Sjálfstæðisflokkurinn hefur því gripið til
þess ráðs að skipuleggja Heimdallarskríl og róna í
slagsmálalið gegn verkalýðnum.
• í fyrrinótt sendi Sjálfstæðisflokkurinn þrisvar
slíkan liðsflokk til næturárása á verkfallsmenn.
Var fyrsta árásarferðin farin undir forustu Einars
Ásmundssonar í Sindra, manns er verkalýðssamtökin
þekkja af gamalli fjandsemi, manns er sagði fyrir
þremur dögum um reykvíska verkfallsmenn: „Það á
að hafa vélbyssur og skjóta þessa hunda!” Með þeim
hefur Sjálfstæðisflokkurinn opinberað hug sinn til
verkalýðsins, það er dagskipun hans til árása á
verkalýðinn.
í gær var sagt frá árás þeirri
er gerð var s.l. sunnudag, und-
ir forustu Einars Magnússonar
guðfræðings og menntaskóla-
kennara á verkfallsmenn uppi
við Geitháls. Stingur sú árás
mjög í stúf við framkomu al-
mennra vegfarenda, sem yfir-
leitt hafa sýnt fullan skilning
á starfi verkfallsvarðanna og
rétti þeirra til að hindra verk-
falisbrot.
Beið ekki með að berja
verkfallsmenn
Á sunnudaginn koni einn af
gæðingum Sjálfstæðisílokksins,
Einar Ásmundsson í Sindra, sem
almenningur í Reykjavík þekkir
undir nafninu „járningamaður
íhaldsins“ til landsins. Á leiðinni
heim sagði hann um reykvíska
verkfallsmenn: „Það á að hafa
vélbyssur og skjóta þessa hunda.“
(Tveim eða þrem blótsyrðum úr
setningunni er hér sleppt).
Einar Ásmundsson lét ekki
bíða að berja á reykvískum
verkfallsmönnum, hann hafði
ekki verið heilan dag á landinu
þegar hann smalaði Heimdallar-
skríl og hafði forustu slagsmála-
liðs er sent var til árása gegn
verkfallsmönnum skömmu eftir
miðnætti í fyrrinótt.
Fyrsla atlaga skrílsins
Slagsmálalið íhaidsins sem
gerði fyrstu árásina gegn verk-
fallsmönnum fór i nær 20 bílum
upp hjá Smálöndum nokkru eft-
ir miðnætti og réðist á verk-
fallsverðina þar. Tóku verkfalls-
I»essi iiiíiner
I bílaflotanum er flutti
slagsmálalið Ihaldsins gegn
verkalýðnum í fyrrinótt voru
m.a. þessir bílar: G 914 (er
gerði ítrekaðar tilraunir til
að aka á verkfallsverði), R
119, G 1077, R 5003, R 6721,
Ö 229, Z 244, R 2052, R
5154, R 6256, R 2640, R
2124, R 1651, X 785, R 6766.
verðirnir dólgshætti þeirra með
ró og stillingu og réðist þá Heim-
dallarskríllinn á þá með bar-
smíðum og reyndi að velta bíl
þeirra út í skurðinn. Var þetta
hindrað og varð slagsmálalið
fhaldsins að hverfa frá við svo
búið, — enda munu ýmsir í þeim
hópi ekki sækjast eftir návist
lögreglunnar, en hún var komin
á vettvang.
Rannsókn Blöndalsmáls-
Ins er enn leynileg
Þjóöviljinn hafði í gœr tal af sakadómara og spurðist
fyrir um gang Blöndalsmálsins. Kvað sakadóvmri rann-
sóknina vera í fullum gangi ,og myndi hún standa lengi
enn. Ekki væri enn tímabœrt að aflétta leyndinni sem
hvílir yfir rannsókninni og vœri engar fréttir hœgt að
segja um málið að svo stöddu.
Eins og Þjóðviljinn hefur áður skýrt frá mun Gunnar
Hall hafa gefíð upp lánardrottna fyrirtækisins, lánsupp-
hæðir og lánskjör, og munu fjármálamennirnir skípta
mörgum tugum. Er nú verið að yfirheyra pá fríðu fylk-
ingu; m.a. var Sig. Berndsen yfirheyröur í gær.
AIIiz fyrir einn og einn fyrir alla
Herðum enn á söfnuninm
Heitndellingar fyikja
gegn verkamönnunt
Leið nú nokkur tími. En það
var síður en svo að slagsmálalið
íhaldsins væri hætt fjandsemi
Framhald á 8. síðu.
ið í gærkvöld,- og munu lang-
flestir verkamenn í Hafnarfirði
hafa verið í vinnu í gær sam-
kvæmt nýju samningunum.
Júlí kemur af veiðum í dag
með 170-180 lestir af saltfiski.
Allir Hafnarf jarðarbátarnir
stunda enn veiðar, nema bátur
Ingólfs Flygenrings alþm.
Eðvarð
Eggert
Sigriður
Hanníbal
Fnndnr í Gamla
bíói kl. 3 í daí!
Fjársöfnunin ,til verkfallsmanna er komin upp í eitt hundrað og fimm púsund krón-
ur — auk peirra sjötíu og fimm púsund króna, sem verkfallsmenn hafa fengið frá
Loftleiðum. Er verkfallssjóðurinn pá orðinn eitt hundrað og áttatíu púsund krónur.
í gœr skilaði Félag íslenzkra kjötiðnaðarmanna kr. 1500.00.
Þá var skilað af söfnunarlistum, frá starfsmönnum í Áburðarverksmiðjunni, kr.
2150.00. Einnig var skilað söfnun af mörgum söfnunarlistum, víðsvegar, svo uppliœð-
in komst upp í fyrrnefnda tölu.
.Uerðum pnn á söfnuninni. — Munum kjörorðið: AUir fyrir einn og einn fyrir alla.
Samninganefnd verklýðsfélaganna gengst fyrir
fundi í Gamla bíói kl. 3 í dag. Fundarefni: Verk-
fallsmálin. Ræðumenn: Eðvarð Sigurðsson. Eggert
Þorsteinsson, Sigríður Hannesdóttir og Hannibal
Valdimarsson.
Aðgangur er heimill meðlimum þeirra félaga, sem
í vinnudeilu era.