Þjóðviljinn - 24.04.1955, Page 7

Þjóðviljinn - 24.04.1955, Page 7
Sunnudagur 24. apríl 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (7 Samkoma sú sem MÍR efndi fil i fyvrakvöld. í filehti af 85. afmælisdegi Leníns, var fjölsótt og ánægjuleg. Þórbergur Þórðarson. varaiorseti MlR, flutti í upphafi ræðu og gerði þar skýra grein fyrir friðarstefnu Sovét- ríkjanna, ríkisins sem Lenín gnmdvallaði. Síðan flutti Rrynjólfur Bjarnason ræðu þá um Lenln er hér birtist; en að lokum var sýnd sovétkvikmyndin frá 1951: Árið ógieymanlega 1919. LENÍN „Þungbært er hlutskipti verkalýðsstéttarinnar. Sárar eru þjáningar hins vinnandi fólks. Þrælar og þrælahaldarar, á- nauðugir og aðalsmenn, bænd- ur og landsdrottnar, verka- menn og kapitalistar, • kúgaðir og kúgarar — þannig var skip- an veraldarinnar svo lengi sem menn muna og þannig er það enn í flestum löndum. Aldirn- ar liðu og margoft reyndi hið vinnandi fólk að hrinda kúg- urunum af höndum sér og ger- ast herrar sinna eigin örlaga. En jafnan urðu þeir að láta undan síga. í ósigri og smán urðu þeir að hýsa harm sinn og niðurlægingu, reiði sína og örvilnun og sneru huga sínum til hins óþekkta á himnum, þar sem þeir vonuðu að finna hjálpræðið. Þó tókst þeim ekki að brjóta af sér þrælahlekkina, eða þá að þeir voru hnepptir í nýja hlekki, sem voru jafn þungbærir og niðurlægjandi og hinir fyrri. Aðeins í landi voru tókst hinum undirokaða og fótum troðna fjölda hins vinn- andi lýðs að hrinda af sér oki gósseigenda og kapitalista og að stofnsetja í þess stað ríki verkamanna og bænda. Þið vitið, félagar, og nú veit öll veröldin, að þessum tröllslegu átökum var stjórnað af Lenin og flokki hans. Mikilleiki Len- ins var einmitt fólginn í því, að hann skapaði Sovétlýðveldið og sýndi þannig í verki hinum mikla fjölda hinna undirokuðu um viða veröld, að vonih um • frelsi var ekki glötuð, að drottnunarvald gósseigenda og kapitalista á sér ekki langan aldur, að hið vinnandi fólk getur stofnsett ríki sitt af eig- in rammleik, að ríki vinnunn- ar ris af grunni á þessari jörð, en ekki á himnum. Þannig vakti hann vonina um frelsi í hjörtum verkamanna og bænda um aila veröld. Það er þessi staðreynd, sem veidur því, að meðal hins vinnandi og arð- rænda fjölda er ekkert nafn jafn ástsælt og nafn Leníns.“ Þetta eru orð Stalíns, úr minningarræðu um Lenín á þingi Sovétríkjanna 26. jan. 1924. Margt hefur gerzt siðan þessi orð voru töluð. Nú eru það ekki aðeins þjóðir Sovétríkj- anna, heldur þriðjungur mann- kynsins, um 900 millj. manna, sem hafa varpað af sér okinu. Og þó að Lenín sé nú ekki lengur meðal vor, þá hefur hann samt sem áður verið leið- toginn í allri þessari miklu frelgisbaráttu mannkynsins. Við uggvænlega hættu af hálfu hinnar deyjandi arðránsstefnu, sem tryllist í f jörbrotum sínum, er mannkynið nú að stíga stærsta sporið á allri vegferð sinni til betra, fegurra og full- komnara mannlífs. Um allan aldur mun nafn Lenins verða tengt við þetta stærsta skref mannkynsins á* þróunarbraut sinni, stökkið úr ríki nauðung- arinnar í riki frelsisins. Þegar við minnumst Lenins að verðleikum, þá brosa and- stæðingarnir stundum í kamp- inn og segja: Þarna er mann- dýrkun kommúnista lifandi komin. Hvar er nú hin sögu- lega efnishyggja ykkar, sem þurrkar 'út gildi einstakiings- ins? Þessu hefur Stalin einnig svarað með fáeinum sigildum orðum. Það var í viðtali við þýzka rithöfundinn Emil Lud- wig árið 1931. Emil Ludwig spurði: „Marx- isminn neitar hinu mikla hlut- verki persónuleikans í sög- unni. Álítið þér ekki að það sé mótsögn milli hinnar sögu- legu efnishyggju og þeirrar staðreyndar, að þér samt sem áður viðurkennið hið mikla hlulverk persónuleikans í sög- unni?“ Stalin svaraði: „Nei — hér er engin mót- sögn. Fjarri fer því að marx- isminn neiti hinu mikla hlut- verki einstaklingsins í sögunni, eða því að sagan sé verk mann- 'áhna . . . . Hitt er vissulega Eftir byltinguna 1917 var Stalín nánasti samverkamaður Lenins, bæði í uppbyggingarstarfi og baráttunni gegn hvítfiðaherjunum sem vesturveldin efldu gegn ráðstjórnar- þjóðunum — fyrir frumkvæði Churchills og annarra. rétt, að mennirnir skapa ekki sögu sína eins og þeim sýnist og hugmyndaflug þeirra blæs þeim i brjóst. Sérhver kynslóð stendur andspænis ákveðnum aðstæðum, er voru fullskapaðar áður en hún kom í heiminn. Gildi mikilmennanna felst i því, að þau skilja þessar að- stæður rétt og hafa réttan skilning á því hvernig unnt er að breyta þeim. Ef menn skilja ekki þessar aðstæður og ætFa sér að breyta þeim eins og í- myndunarafl þeirra blæs þeim í brjóst, þá lenda þeir í hlut- verki Don Quixotes. Sagan er vissulega verk mannanna, en aðeins að svo miklu leyti, sem þeir skilja aðstæðurnar, sem fyrir hendi eru, réttilega og kunna skil á að breyta þeim.“ Og það var einmitt þetta sem Lenin gerði. Það er hið mikla vísinda- afrek Lenins að hann skýrði tímabil heimsvaldastefnunnar og hinna sósíalisku byltinga í ljósi marzismans. Kenning Len- ins hefur verið leiðarljós hinna vinnandi stétta um allan heim á hinni miklu sigurgöngu þeirra frá lokum fyrri heims- ístyrjaldarinnar. Ályktun miðstjómar Heimsfrið- arráðsins um heimsfriðarþing í Helsinki 22. maí Bráð hætta af kjarnorkustyrjöld vofir yfir öllum löndum jarðar, yfir hverju heimili og hverjum einstaldingl, körlum, konum og börnum. I stað þess að kjarnorkan sé tekin í þjónustu mannkynsins er hrúgað upp birgðum hræðilegustu vopna. 1 stað þess að þjóðírnar afvopnist eru ný hernaðarbandalög sett á laggirnar. Og í stað samninga og sanikomulags koma hótanir og haturs- áróður. En hótanix og valdbeiting Ieiða til stríðs en ekki friðar. Endurvopmm Þýzkalands, Formósuviðsjámar og ihlutun i sjálfstæðismál þjóða margfalda nú sundurþykki og ótta um allan heim. Ef mannkynið heldur lengra áfram á þessari braut, verður ekkert öryggi neins staðar. Mannkynið mun ekki láta viðgangast að þessu fari lengur fram. Samvizka þess rís upp gegn^ hugmyndiimi lun tortím- ingn kjamorkustyrjaldar. Með öllu því afli sem lífsnauðsyn krefur verða þjóðir heimsins að fylgja frani kröfuimi um að kjarnorkuvopn verði eyðilögð, kröfunni um aUsherjar afvopnun, imi öryggi allra og virðingu fyrir sjálfstæði og rétti hverrar þjóðar. 1 þessum anda og í þessum tilgangi hefur Heimsfriðar- ráðið boðið friðarsinnum frá öUum löndum jarðar tU heims- þings í Helsinki 22. maí 1965 til frjálsra umræðna um að- kallandi ráðstafanir til vemdar alheimsfriði. Hann tengdi saman fræði- kenningu og athöfn og bjó verkalýðsstéttina þannig þeim vopnum, sem dugðu til þess að inna' af hendi mesta sögulega afrek allra tíma. Ég ætla mér ekki þá dul að gera kenningu Lenins nokkur skil með þessum fáu orðum. Ég ætla aðeins að minnast á eitt mikilvægt atriði. Það var spurningin um stjórnlist og baráttuaðferðir verkalýðsstéttariimar, sem varð til þess að sósíalistahreyfingin klofnaði í sósíaldemokrata og byltingasinnaða sósíalista. Um þessi mál skarst fyrst verulega í odda í rússnesku byltingunni 1905. Stefna mensjevikkanna eða rússnesku sósíaldemokratanna var í aðalatriðum þessi: Þeir héldu því fram að bylt- ingin væri borgaraleg bylting og önnur bylting gæti ekki komið til greina á núverandi þróunarskeiði. Þessvegna hlyti borgarastéttin að hafa forust- una. Verkalýðurinn ætti því að leita samstarfs við borgarastétt- ina. Að leikslokum ættu verka- lýðsflokkarnir að hverfa af sviðinu og taka ekki þátt í stjórn. Framundan væri óra- langt kapitaliskt timabil. Þetta yrði lýðræðissinnaður kapital- ismi, og meðal sósíaldemókrata í öllum löndum Evrópu breidd- ist sú kenning nú óðfluga út að sósíalisminn mundi vaxa upp innari ramma þessa kapi- taliska lýðræðis hægt og hægt og friðsamlega.\ Kenning Lenins var aftur á móti þessi: Forustukraftur byltingarinn- ar hlýtur að vera verkalýð- urinn og getur engin önnur stétt orðið, enda þótt byltingin sé borgaraleg. Hin borgaralega bylting væri geysilega mikils virði fyrir verkalýðinn, sem fyrsta skrefið og skilyrði verka- lýðsbyltingarinnar. Verkalýður- inn hefði öll skilyrði til að ann- ast þetta forustuhlutverk. í fyrsta lagi af því að hann væri eina stéttin sem væri bylt- ingarsinnuð til þrautar, í öðru lagi átti verkalýðurinn sér for- ustuflokk óháðan borgarastétt- inni og í þriðja lagi var verka- lýðurinn áhugasamari um úr- slitasigurinn en borgarastéttin sem óttaðist að byltingin yrði leidd til fullra lykta, vegna þess að hún þurfti á fastahernum og stofnunum einveldisins að halda í baráttu sinni við verka- lýðinn. Skilyrðin fyrir því að verka- lýðurinn gæti orðið forustuhlut- verki sínu vaxin voru þessi: 1. Að hann ætti sér þjóðfélags- legan bandamann. Þessi banda- maður var bændastéttin. 2, Að honum tækist að ýta borg- arastéttinni sem forustustétt til hliðar. Hér var um að ræða merk- ustu viðbótina við marxismann eftir daga Marx. Þessi fræði- kenning Lenins átti eftir að færa rússneska verkalýðnum og síðar kínversku alþýðunni og alþýðu fleiri þjóða sigur. Áður höfðu menn haldið að borgara- lega byltingin hlyti ávallt að vera aðskilin frá sósíalisku bylt- ingunni með löngu friðsamlegu tímabili. Lenin sýndi hinsvegar fram á, að á skeiði heimsvalda- stefnunnar yrði borgaralega byltingin ekki leidd til fullra lykta nema af verkalýðnum. Verkefnið væri að skapa bylt- ingarsinnað alræðisvald fólks- ins, sem hefði það hlutverk, ekki aðeins að leiða borgara- legu byltinguna til lykta, held- ur líka að undirbúa næsta skrefið í þróuninni til sósíal- iskrar byltingar. Annað mikil- vægt atriði i kenningu Lenins var um bandamennina í bylt- ingunni, sem í Rússlandi var bændastéttin. Og hún er raun- ar aðalbandamaður verkalýðs- ins í flestum löndum. Þriðja mikilvæga atriðið í kenningum Lenins var kenningin um skipu- lag alræðis alþýðunnar og hlut- verk ráðanna í því sambandi, Fyrir okkur er mikils vert að festa vel í minni, hvernig Lenin sýndi fram á að þetta al- ræði alþýðunnar var fullkomn- asta lýðræðið, sem hugsanlegt var á þáverandi þróunarskeiði. Hinsvegar komu önnur form til greina fyrir völd alþýðunnar en ráðstjórnarfyrirkomulagið, eins og reynslan hefur sannað. Þessi kenning Lenins hafði ekki aðeins gildi fyrir bylting- arnar í Rússlandi 1905 og 1917, heldur fyrir allar byltingar, sem síðan hafa orðið. Þar sem henni hefur verið fylgt hafa byltingarnar orðið sigursælar en að öðrum kosti hefur þeim lokið með ósigri, og er bylt- ingin í Þýzkalandi 1918 þar ljósasta dæmið. Byltingin í Kína varð sigur- sæl af þvi að kínversku komm- únistarnir höfðu þessa stjórn- list Lenins ekki aðeins fullkom- lega á valdi sínu, heldur og lög- uðu hana að kínverskum að- stæðum. Ef verkalýðsflokkar Vestur- landa hefðu fylgt kenningu og fordæmi Lenins, þá hefði sósí- alisminn sigrað um alla Evrópu í lok fyrri heimsstyrjaldarinn- ar. Þá hefði engin önnur heims- styrjöld orðið, engin fasistisk ógnarstjórn, engum kjarnorku- sprengjum hefði verið kastað, engum ógnað með vetnis- sprengjunni, enginn stríðsótti, Sigurganga sósíalismans um alla veröldina hefði orðið til- tölulega auðveld og sparað mannkyninu miklar þjáningar. Þó eru allar þær þrautir, sem mannkynið hefur orðið að þola Framhald á 11. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.