Þjóðviljinn - 24.04.1955, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 24.04.1955, Blaðsíða 9
Sunnudagur 24. apríl 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (9 # ÍÞRÓTTIR RITSTJÓRl FRtMANN HELGASOR Skáðamót Íslands Það virðist sem skíðastökk eigi erfitt uppdráttar hér og það virðist standa mjög í stað, keppendur voru aðeins 6 í A- og B-flokki, þar af 5 frá Siglu- firði, en einn frá Akureyri. Siglfirðingarnir virðast sem sagt þeir, sem halda mestri tryggð við þessa glæsilegu grein. Jónas Ásgeirsson, sem um 15 ára skeið hefur verið i fremstu röð íslenzkra ' stökkmanna, vann bæði tvíkeppnina og stökkið. Vann hann bikarinn í 5. sinn og hefur enginn gert betur. En sem sagt, það vantar fleiri stökkmenn og víðar að. Er þar mikið verkefni fyrir skíðamenn að vinna þessa grein upp. Vera má að hið óbliða veð- urfar, stormar og óörugg snjó- lög eigi þar sök að nokkru og að nokkru það að ekki sé gert það fyrir stökkið sem hægt er. í drengjaflokki, 17-19 ára, voru aðeins tveir keppendur. Annar frá Siglufirði og vann hann keppnina, en hinn frá Ól- afsfirði og er það sannarlega lítii þátttaka sem gefur ekki mikil fyrirheit um líflega fram- tið stökksins. ÚKSLIT Stöldí Jónas Ásgeirsson (38,5-37,0) 228,8 Guðmundur Ámason S. (39,0 37,0) 225,5 Skarphéðinn Guðmundsson S. (39,0-33,0) 214,1 Geir Sigurjónsson S. (34,0-31,0) 203.7 Hjálmar Stefánsson. S. (36,0- 30,0) 175,6 Ðrengjaflokliur , Matthías Gestss. S, (33.0-31.05 218,0 Kristinn Steinsson Ó. (29,0- 30,5) 174,1 Tvíkeppni Jónas Ásgeirsson S. 431,4 st. Gunnar Pétursson I. 431,0 st. Skarphéðinn Guðmundsson S. 425.7 st. Þórarinn Guðmundsson A. 371,0 st. Drengjahlaup Ármanns Drengjahlaup Ármanns fer fram í dag sunnudag, kl. 10.30 árdegis. Keppendur í hlaupinu eru að þessu sinni 35 frá 4 i- þróttafélögum, 13 frá KR, 9 frá Ungmennafélagi Keflavíkur, 8 frá IR og 5 frá Ármanni. Keppt er í 3 og 5 manna sveitum um bikara, sem gefnir eru af Eggert Kristjánssyni stórkaupmanni og Jens Guð- tojörnssyni. Hlauþið hefst í Vonarstræti fyrir framan Iðn- ekólann, og verður þaðan liiaup- ið Tjarnargötu og suður á móts við syðra horn Háskólans, síðan yfir túnin yfir á Njarðar- götu og inn í Hljómskálagarð- inn. Hlaupinu lýkur við Hljóm- skálann. Vegalengdin er um 2,2 km. — Handhafi beggja verðlaunabikaranna er Glímu- félagið Ármann. Vel unðirbuið mót Skíðamennirnir segja að mót- ið hafi verið mjög vel undirbú- ið og framkvæmd þessi hafi tek- izt mjög vel en mótsstjóri var Hermann Stefánsson. Sérhver keppni byrjaði á til- settum tíma, og hjálpaði það til að allt gekk létt og greiðlega. Starfsmenn virtust mjög marg- Jónas Asgeirsson ir og áhugasamir. Móttökur voru hinar beztu, og allt gert til að greiða götu keppenda. Hafði sérstakur maður verið fenginn til að vera leiðsögumað- ur hvers aðkomuhóps, og greiða úr málum almenns eðlis og veita upplýsingar. Leiðsögumaður okkar var Björgvin Júníusson. Hvorvúmur? í kvöld kl. 8 fer fram hinn ár- leg'i „pressuleikur" og verður það því miður eini landsleikurinn í ár. Leikir þessir hafa oft verið jafnir og tvisýnir og gera má ráð fyrir að svo verði enn. Fljótt á litið virðist landsliðið sterkara, en eftir er að vita hvern- ig liðin falla saman og má vera að það ráði úrslitum þegar úr svo jöfnum hóp er að velja sem hér er. Úrvalsllð HKRR (Landsliðin) Karlar Sólmundur Jónsson V, Eyjólfur Þ'orbjörnsson Á, Hilmar Ólafsson P, Hörður Felixson KlR, Valur Benediktsson V, Ásgeir Magnús- son V, Snorri Ólafsson Á, Karl Jóhannsson Á, Sigurhans Hjart- arson V, Pétur Antonsson V, Sig- urður Jónsson Vík. Konur Geirlaug Karlsdóttir KR, Sigríð- ur Lúthersdóttir Á, Helga Emils- dóttir Þ, Gerða Jónsdóttir KR, Lára Hansdóttir Þ, Sigríður Kjartansdóttir Á, Sóley Tómas- dóttir V, Maria Guðmundsdóttir KR, Sigríður Ólafsdóttir Á, vinstri framh.spilari FH. Pressuliðm Karlar Helgi Hállgrímsson 1R, Óláfur Thorlacius F, Karl Benediktsson F, Birgir Björnsson FH, Sigurður Sigurðsson KR. Frímann Gunn- laugsson K)R, Hans Steinsson KR, Bergþór Jónsson FH, Þorleifur Einarsson 1R, Þorgeir Þorgeirsson 1R. — Varamenn: Geir Hjartar- son V, Hörður Guðmundsson Þ. Konur Margrét Hjartardóttir Þ, Marta Ingimarsdóttir V, Elín Guðmunds- dóttir Þ, Elín Helgadóttir KR. Ingibjörg Hauksdóttir F, Sigrið- ur Bjarnadóttir F, Aðalheiður Guðmundsdóttir KR, Guðrún Guð- mundsdóttir KR. — Gulla úr FH, Hrönn úr KR. í sambandi við mótið var gef- ið út blað, er flutti helztu frétt- ir af mótinu og var það vel þeg- ið, og mun Hermann Stefánsson hafa ritstýrt því og skrifað að mestu, ýmist uppi í fjalli eða heima milli dúra um nætur! Mál á skíðaþingi í sambandi við mótið fór skíða þingið fram, og voru þar rædd ýms mál. Var samþykkt að fela stjórninni að velja menn til far- ar á Olympíuleikana næsta ár og skal hún hafa lokið því verki fyrir lok þessa mánaðar. Var gert ráð fyrir að valdir væru menn í alpagreinarnar, göngu og stökk. Fjöldi þeirrá' sem end- anlega fara miðast að sjálf- sögðu við það fjármagn sem Olympíunefndin getur lagt til þessarar greinar. Ráðinn hefur verið austurrískur þjálfari sem átti að vera kominn fyrir lands- mótið en vegna misskilnings var það þó elfki. Hann er kominn nú. Var mikið rætt um þjálfun væntanlegra Olympíufara og ennfremur að þeir dveldu í Ölp- unum næsta vetur góðan tíma áður en OL hefjast, til æfinga og keþpni. Þríkeppni í stað tvíkeppni Samþykkt var að leggja nið- ur svonefnda Alpatvíkeppni en taka upp í staðinn Alpa-þrí- keppni,.sem sagt að bæta stór- svigi við. Verður röðin þá þannig: svig, stórsvig og brun. Þá var samþykkt að næsta skíðamót færi fram á Isáfirði og sú nýbreytni upp tekin að það fari fram nokkru fyrir páska en ekki um páskadagana eins og verið hefur. Þá var samþykkt að fela stjórn Skíðasambandsins að að koma á merkjasöludegi í svip- uðu fortni og áður var. (Ritstj. íþróttasíðunnar gleðst yfir því að þetta mál skuli upp tekið aft- ur og ,,Skíðadagurinn“ endur- vakinn væntanlega. Hitt er hon- um jafnmikið undrunarefni hversvegna þetta mál hefur ver- ið látið niður falla í öll þessi ár þar sem Í.S.Í.-stjórnin hafði á sínum tíma komið því svo vel af stað. Má vera að það sé ein orsök þess að almennum á- huga fyrir skíðaferðum hefur hrakað stórlega a.m.k. hér í Reykjavík og raunar víðar). Zatopek hefur hug á að setja heims- met Samkvæmt því sem kvöldblöð frá Prag henna eftir samtöl við hlauparann Zatopek hefur hann hug á að gera tilraunir til að bæta heimsmetin í 10 km eða 30 km hlaupum eða á öðr- um löngum vegalengdum í ár. Hann hugsar ekki lengur um 5000 m, hann væri ekki nógu ungur til að ná þeim hraða, sem þar væri nauðsynlegur. Zatopek sagðist sennil. mundi keppa í 10 km og maraþonhl. á OL í Melbome. Gunnar M. Magnúss: l þá til hjálpar. Stjáni langi var einn af þess- um sjó’hraustu. Hann lá á einum bekknum, hafði stórt brekán yfir sér og svaf og svaf. Hann hafði breitt yfir andlitið og sneri andliti til veggjar. Geiri félagi hans lá á öðrum bekk þar skammt frá, en hjónin frá báðum Víðigerð- isbæjunum voru í öðrum klefum með yngstu börnin. Geiri var vaknaður í fyrra lagi, honum var illt í höfði og hafði flökurleika fyrir. brjósti, en lét ekki á neinu bera, þó að munnvatnið væri eins og laxerolía uppi í honum. Hann bylti sér á hliðarnar á víxl. Þegar Stjáni var útsofinn, fleygði hann ábreið- unni ofan af sér til hálfs og skimaði kringum sig. Víða heyrðust sjóveikistunur og fuss. Stjáni teygði úr sér og fór því næst í blússuna og skóna, sem hann hafði farið úr um nóttina. „Þvílíkur söfnuður, fuss“, tautaði hann, „ég verð víst að ná mér matarbita sjálfur. Og þe’tta fólk þykist ætla að hafa sig áfram í Ameríku". „Viltu rétta mér að drekka, Stjáni“, heyrðist í Pétursínu vinnukonu. Hún var ósköp stynj- andi þar skammt frá. „Ég held, að ég fái mér nú frísk’f loft fyrst. Þegar ég bað þig um sokkaplöggin í fyrra. Pétursína, varst þú vön að segja: „Ég held, að ég þvoi nú trogin upp fyrst —“. „Góði Stjáni, gerðu það“. „Já, góði Stjáni, góði Stjáni. Nú get ég verið góði Stjáni. En hvernig á ég að geta verið hérna niðri hjá ykkur í þessu pestarlofti. Ég veit ekkf hvaðan hún getur komið úr ykkur þessi fýla. Þið getið varla talizt með siðuðu fólki. Ég em hræddur um, að Ameríkönunum lítist ekki á blikuna“. 11« saiunorræ uiiglliiga- . keppiti í Irjálsisna iþróttiiiii Á s.l. sumri fór fram liin fyrsta samnorræna unglinga- keppni í frjálsum íþróttum. Keppni þessi gaf það góða raun, að frjálsíþróttasambönd allra Norðurlandaþjóðanna óskuðu eftir, að keppni þessi yrði endur- tekin aftur sumarið 1955 og hef- ur finnska frjálsíþróttasam- bandinu verið falin framkvæmd mótsins. Keppnin fer fram dagana 12. til 19. júní n.k., að báðum þeim dögum meðtöldum (alls átta dagar). Þeir unglingar, sem fæddir eru 1935 og siðar eru hlutgengir keppendur. Keppnisgreinar éru: Hláup: 100 m og 1500 m Stökk: Hástökk og langstökk Köst: Kúluvarp og kringlukast (fullorðinstæki). Unnið skal að því, að fá sem flesta unglinga til þess að keppa og skal skrá og tilkynna árang- ur hvers þeirra. Forstöðunefnd unglingakeppn- innar innan hvers héraðssam- bands(íþróttabandalags) er í sjálfsvald sett hvort hún efnir til sérstakra móta eða fellir keppn- ina inn í önnur mót sem fram fara innan íþróttahéraðsins á keppnistimabilinu. Skýrslur um keppnina skulu hafa borizt fyrir 1. júlLn.k. Þegar skýrslur hafa borizt verður órangri unglinganna í hverri íþróttagrein raðað. Meðal* tal af árangri 15 beztu íslenzku. unglinganna í hverri grein telst hinn opinberi árangur íslands E viðkomandi keppnisgrein. Meðal- tal af árangri 25 beztu unglinga hinna Norðurlandanna telst hinn opinberi árangur þeirra hverrar fyrir sig. Sú þjóð, sem fær bezta meðal- árangur í einni grein, fær 5 stig fyrir þá grein. Sú, sem á næst bezta árangurinn, fær 4 stig o. s. frv. Sú þjóð, sem eigi nær fullum þátttakendafjölda í einni grein, fær fyrir þá grein 0 stig. Fyrir getur komið, að fleiri era 15 — þátttakendafjöldi íslands — séu jafnir um beztu afrekir: : einni grein og skal þá telja þá aila þátttakendur og veita heið- ursmerki, en þó finnst meðaltal- ið með deilingu tölunnar 15. Sú þjóð, sem hlýtur hæs'a samtölu meðaltalnanna vinnur keppnina. Gert verður sérstakt sameig- inlegt heiðursmerki vegna þe;5- arar keppni. Hver sá unglingur, sem nar slíkum árangri að hann teisií með við útreikning meðalta’.s, hlýtur heiðursmerki. Stjórn FRÍ hefur skipað Lárus Halldórsson, Hermann Guð- Framhald á 10. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.