Þjóðviljinn - 26.04.1955, Page 1
Þriðjudagur 26. apríl 1955 — 20. árgangur — 92. tölublað
Engri þjóð stafar meiri hætta af kjarn-
orkustríði en íslendingum
íslendingar hvattir til oð undirrita ávarp heimsfriS■
arráSsins gegn undirbúningi kjarnorkusfyrjaldar
Samtök íslenzkra friðarsinna eru nú að senda frá sér
ávarp Heimsfriðarhreyfingarinnar gegn kjarnorkustyrj-
öld. Er ætlazt til að menn undirriti ávarpið ásamt heimilis-
fólki og öðrum sem til næst strax og endursendi listann
samstundis. Á fundi sem Samtök íslenzkra friðarsinna
héldu í Austurbæjarbíói s.l. laugardag var samþykkt álykt-
un þar sem skorað var á alla íslendinga, hvar í flokki sem
þeir standa, að undirrita ávarpið og lýsa með því yfir
friðarvilja sínum frammi fyrir öllum heimi.
Á fundi þeim sem haldinn var
í Austurbæjarbíói var Sigriður
Eiríksdóttir hjúkrunarkona
fundarstjóri en aðrir ræðumenn
frú Aðalbjörg Sigurðardóttir,
Kristinn E. Andrésson magister,
Guðgeir Jónsson bókbindari,
sem talaði fyrir hönd Fulltrúa-
ráðs verklýðsfélaganna í
Reykjavík, Sigurjón Einarsson
stud. theol. og Björn Þorsteins-
son sagnfræðingur. Ályktun
fundarins var á þessa leið:
„Miklar ógnir steðja að
mannkyninu með aukinni fram-
leiðslu vetnissprengja á jörð-
inni. Hver einasta sprengja sem
sprengd er, eykur hættuna á
því, að allt líf jarðarinnar verði
geislavirkt og úrkynjist, og ef
styrjöld skellur á, vofir tortím-
ing yfir heilum þjóðum.
Almennur fundur liáður í
Austurbæ.jarbíói í Reykjavík 23.
apríl 1955 ályktar, að ofar öllu
sé að varðveita frið í heiminum
og tekur undir þá skoðun
Heimsfriðarráðsins, að það sé
á valdi þjóðanna sjálfra með
nógu almennum samtökum og
virkri þátttöku einstaklinga að
afstýra þeirri kjarnorkusfyrj-
öld, sem nú vofir yfir hverri
þjóð og hverjum einstaklingi.
Fundurinn minnir á að engri
þjóð stafar meiri hætta af
kjarnorkustríði en íslendingum,
þar sem ekki þyrfti nema eina
vetnissprengju til að útrýma
meirihluta þjóðarinnar og gera
þeim sem kynnu að bjargast
ólíft í Iandinu.
Fundurinn ljtur svo á að
bann við kjarnorkuvopnum sé
fyrsta skrefið til almennrar af-
vopnunar og lýsir þri eindregn-
um stuðningi við Vínarávarp
Heimsfriðarráðsins frá 19. jan.
1955 gegn undirbúningi kjarn-
orkustyrjaldar og skorar á alla
Islendinga hvar i flokki sem þeir
standa, að hugleiða hvað í húfi
er fyrir þjóðina og undirrita
þetta ávarp og lýsa með því yfir
íriðarvilja sinum frammi fyrir
öllum heimi“.
Allir skrifa
undir
1 kjarnorkustyrjöld eru börn
sem fnllorðnir í sömu hættu,
svo að Heimsfriðarráðið heirniX-
ar öilum án tillits til aldurs
að undirrita Vínarávarpið.
Samtök íslenzkra friðarsimia
hafa ákveðið að aldurs.takmark
skuli vera 14 ár, en foreldrum
er heimilt að undirrita fyrir
hönd yngri barna sinna
Orðsending frá Samtök-
um íslenzkra friðarsinna
Þið sem fáið í hendur undirskriftalista með Avarpi gegn
undirbúningi kjarnorkustyi’jaldar eru beðin að taka vel á
móti þeim.
Hugleiðið hvað í húfi er fyrir íslenzku þ.ióðina, ef til
kjamorkustríðs kæmi, og skrifið öli undir ávai-pið.
Látið undirskriftirnar ganga fljótt. Vanmetið ekki gildi
þein-a. Hver undlrski-ift dregur úr sty rjaldarhætfun ni; og
er yfirlýsing um friðan-ilja.
Undirritið ávai-plð ásaant heimilisfólki og þeim sem þið
náið sti-ax til, og endursendið listann samstundis.
Umslag með utanáskrift fylgir og má póstleggja án írí-
merkis.
Verkfall í frysti-
húsunum í nótt
Á miðnætti í nótt hefst sain-
úðarverkfall vélstjóra í hrað-
frystihúsunum. f húsum þess-
um eru geymd verðmæti
sem atvinnurekendablöðin
hafa. metið á 15—20 milljón-
ir króna. Fiskur og kjöt mun
þola að vélarnar stöðvist í
nokkra daga — en tíminn er
naumur, og verður fróðlegt fyr-
ir þjóðina að fylgjast með því
hvort atvinnurekendaklíkan og
ríkisstjórn hennar ætla einnig
að sóa þessum verðmætum í
hina vonlausu baráttu sína
gegn verkalýðshreyfingunni.
Aftureiding segir
upp sanminpm
Leggur 1000 krónuE í
verkíallssjóðinn
Hellissandi í gær.
Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Á aðalfundi Verkalýðsfélagsins
Aftureldingar sem haldinn var í
gær var samþykkt að leggja
fram 1000 krónur úr félagssjóði
til stuðnings við verkfallsbar-
áttu félaganna í Reykjavík og
Hafnarfirði.
í. stjórn voru kosnir: Júlíus
Þórarinsson formaður, Eggert
Eggertsson, Jón Guðmundsson,
Tryggvi Eðvarðsson og Guðm.
Valdimarsson.
Samþykkt var að segja upp
samningum félagsins og er upp-
sagnarfrestur útrunninn 1. júní
næstkomandi.
Adenauer tapaði
fiórðungi fylgis
í fyrradag var ltjörið fylkis-
þing í Neðra-Saxlaudi í Vestur-
Þýzkalandi. Miðað við .kosning-
ar til sambandsþingsins í Bonn
fyrir hálfu öðru ári hefur at-
kvæðainagn sósíaldemókrata
vaxið úr 30% í 35% en fylgi
Kristilega flokksins, floltks
Adenauers forsætisráðherra,
hrakað úr 35% í 26%. Miðað
við siðusfcu fylkisþingskosningar
sem fóru fram 1951, hafa litlar
breytingar orðið á fylgi fiokk-
anna- en sósíaldemókratar töp-
uðu tveim þingsætum og Kristi-
legi flokkurinn og bandamenn
hans tinnu fimm vegna breytts
kosningafyrirkomulags. Mesta
hitamálið í kosningunum var ut-
anríkísstefna Adenauers, sem
miðar að hervæðingu og inn-
göngu V-Þýzkalands í A-banda-
lagið.
Lið Klakksvíkinga
þykir óárennilegt
YfirvöMiit heykjast á valdbeitingu, fall-
ast á samninga um læknisdeiluna
Klakksvík, annar stærsti bær Færeyja, er nú líkust um-
setnu virki. Um þúsund manna lið hefur veriö vopnaö,
höfninni lokaö og varöhöld eru á fjallatindum.
Danska skipið Parkeston með| 120 vopnaða lögreglumenn frá
Kaupmannahöfn innanborðs ligg-
Fylkingar hafa
mennirnir sjást á
sigið saman við
myndinni, hinir
vöruhílinn — en aðeins yztu
hverfa í myrkrið. Sjá 5. síðu.
ur í vari við Austurey og eng-
in tilraun hefur verið gerð til
landgöngu.
Svo er að sjá sem viðbúnaður
Klakksvíkinga hafi komið yfir-
völdunum til að heykjast á því
að setja Halvorsen lækni í
Framhald á 3. síðu.
V erkf allssjóðurinn 490
þúsund krónur
Verkfallssjóðurinn er kominn í 490 þúsund krónur.
Þessi framlög hafa borizt: Verkalýðsfélag Hafnahrepps
kr. 1000,00 og auk þess söfnun kr. 750,00. Félag pípu-
lagningamanna kr. 1025,00. Starfsmannafélag Hafnar-
fjarðar kr. 2000,00 og söfnun hjá félaginu kr. 900,00.
Söfnun á m.b. Björgvin, Keflavík kr. 1280,00. Vélstjóra-
félag ísaf jarðar, framlag og söfnun kr. 4100,00. Ennfrem-
ur var skilað af söfnunarlistum næstum fjögur þúsund
krónum.
I
Brynja gefur 5M kr. í verkfallssjóð
Söfmtn félagsins þar að auki 3500.00 kr.
Siglufirði.
Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Á aðalfundi verkakvennafé-
lagsins Brynju s.l. simnudag var
samþykkt að gefa úr félagssjóði
5 þús. kr í Verkfallssjóð.
Þá hefur félagið einnig gcngizt
fyrir söfnun til stuðnings verk-
fallsmönnum og nemur liún kr.
3500.00.
Enn í gærkvöld lá ekkert tilboð
iyrir frá atvinnurekendnm
Samningafundir stóðu til kl.
6 í gærmorgun og hófust að
nýju kl. 5 í gærdag. Var þeim
enn ólokið þegar blaðið fór í
prentun.
Miklar sögur ganga nú um
bæinn um tilboð frá atvinnu-
rekendum og að samningar
muni takast á hverri stundu,
og er ýmsum þessum sögum
auðsjáanlega dreift út til að
blekkja fólk. Af þessum á-
stæðum sneri Þjóðviljinn sér
til samninganefndar verklýðs-
félaganna í gærkvöld og fékk
hjá henni eítirfarandi stað-
rejmdir:
Enn í gærkvöldi lá ekki fyrir
neitt tilboð frá atvinnurek-
endum fram yfir þær „7%
kjarabætur" sem alkunnar eru.
Fólk er varað við að leggja
trúnað á sögur þær sem dreift
er í bænum, og í gærkvöld var
ekkert Iiægt að segja um það
hvort Iausn deilunnar væri að
nálgast.
Heykvíkingar2 Leggið aitir fram fé tU aðstoðar verkfaMsmönmum!