Þjóðviljinn - 26.05.1955, Side 9
Fimmtudagur 26. maí 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (9
# ÍÞRÓTTIR
HITSTJÓRl. FRÍMANN HELGASON
Islandsglíman:
Markar glíma þessi tímamót?
Miima itíð en áðnt og démarar ákveðnari
Til þessarar 45. íslandsglímu
komu 10 menn, og má það tæp-
ast minna vera þegar um þjóð-
aríþrótt er að ræða.
Hefðu nú þessir glímumenn
komið frá 10 félögum víðsveg-
ar að af landinu, liefði málið
litið betur út. Það hefði getað
sannfært okkur um að glíman
væri iðkuð með allgóðum ár-
angri víðsvegar. Þessu var nú
ekki að heilsa, þessir 10 menn
voru úr aðeins tveimur félögum,
og voru 8 þeirra úr U.M.F.
Reykjavíkur en aðeins 2 úr
Glímufélaginu Ármanni. Hefur
Ármann séð fífil sinn fegri áð-
ur, og er nú svo komið að
U.M.F.R. er búið að taka for-
ustuna um glímumannafjölda á
kappglímunni, sem á að vera
nokkur mælikvarði á starfsem-
ina, svo og geta þeirra í glím-
um.
Þessi lélega þátttaka í glímu-
mótum virðist benda til þess
að íþróttin sé lítið iðkuð og
ekki sýndur sá sómi sem ætla
mætti.
Glíma þessi í heild gaf örlítið
meiri fyrirheit um það en áður
að wienn væru farnir að skilja
að svolítið þyrfti að stinga við
fótum til að forða henni frá
þeim flótta sem liún hefur ver-
ið á frá uppruna sínum um
mörg undanfarin ár. Þetta kom
fram í því að glímumenn níddu
ekki eins hvern annan niður eins
og algengt hefur verið á kapp-
glímum án þess dómarar gerðu
athugasemdir. Þó voru nokkr-
ar glímur sem sækjandi lét sig
fallast á verjanda með fullum
þunga, sem samkv. glímulög-
unum er óleyfilegt og kallað
níð.
Má þar nefna glímu Rúnars
við Hannes og Kristján H. Lár-
usson, og glímu Hilmars við
Hannes og Braga. Sama henti
Erlend í glímunni við Hannes.
Dómarar höfðu ekkert við þetta
að athuga og dæmdu það lög-
legar byltur. En sem sagt: Þetta
var miklu minna reynt en áð-
ur, og þar verður að þakka
kennurunum.
Annað atriði var það lika í
glímu þessari sem lofar góðu
og það voru hin nokkuð tíðu
afskipti dómara af glímustöðu
keppenda. Stöðvuðu þeir hvað
eftir annað glímur sem meira
bentu til ryskinga í bolstöðu en
hinnar upprunalegu glímu.
Meira að segja var glíma tví-
stöðvuð af þessum sökum, en
glímulög segja að dæma beri
vítabyltu fyrir þau brot sem
framin eru að undangenginni
aðvörun.
....................
LIGGUR LEIÐIN
En hvað um það, dómararn-
ir voru allir af vilja gerðir að
sýna lit á því að framfylgja
20. og 21. grein glímulaganna.
Það skal játað að eins og glím-
an er komin er þetta erfitt
verk, en þökk skulu þeir Ingi-
mundur Guðmundsson, Þor-
steinn Kristjánsson, sem var
þeirra skeleggastur, og Grímur
S. Norðdahl hafa fyrir þessa
viðleitni.
Þó glíma þessi hafi verið bet-
ur glímd en fjölmargar undan-
farnar glímur, þá var táknrænt
að sjá viðbrögð manna eftir að
stigandanum lauk og blístran
kvað við til byrjunar. Svo rík-
ur var óttinn við andstæðing-
inn — og byltuna, að þeir höfðu
fyrir fyrstu hreyfingu að skjóta
aftur rössum sínum sem fram-
kallar bolstöðu. Þetta sýnir hve
ríkt þetta e’r í glímumönnum. Þó
margir þeirra áttuðu sig er áj
glímurnar leið og stæðu þá við
og við sómasamlega að glím-
unni.
Þetta voru heildaráhrifin af
glímunni, og voru flestir hver
öðrum líkir hvað þetta snerti.
En mega unnendur íslenzkrar
glímu ekki eiga von á að níðið
verði alveg þurrkað út á næstu
íslandsglímu, og bolstaðan líka,
og dómarar framfylgi 20.—21.
og 22. grein glímulaganna með
fullri djörfung?
GHmumennirnir
Ármann J. Lárusson hefur
sjaldan haft meiri yfirburði í
kappglímu þar sem mættir hafa
verið allir beztu glímumennirn-
ir. Hann var aldrei í hættu ekki
einu sinni móti Rúnari. Ármann
náði honum strax upp í glæsi-
legt klofbragð sem hinn ágæti
Rúnar gat engri vörn við kom-
ið. Glíma Ármanns við Hilmar,
léttan og grannan, var líka at-
hyglisverð. Hann tók hvert
bragðið af öðru en með fádæma
mýkt og lipurð fékk Hilmar
samt varizt um stund og vöktu
varnir hans ekki síður hrifn-
ingu en hin ágætu brögð Ár-
manns, en hann níddi aldrei, og
hefði hann þó eins og af til-
viljun getað látið sig falla á
hann ofan. Á þetta er líka bent
til að undirstrika að glæsileg
vörn á rétt á sér í íslenzkri
glímu en sé níðið tekið með
hverfur hún.
Þeir bræður Rúnar og Gísli
Guðmundssynir sem fengu önn-
ur og þriðju verðlaun gerðu
margt vel. Rúnar er öruggur
glímumaður og gengur mark-
visst til bragða. Hann þarf því
ekki að grípa til forboðinna á-
vaxta. Hann gekk tvímælalaust
næstur Ármanni J. Lárussyni
um ágæta glímu.
Gísli er léttur, með góða
framgöngu og á til mjög góðar
samsetningar bragða. Þó brá
um of fyrir hjá svo góðum
glímumanni tilgangslausum
sviptingum og það meira en
hans hefur verið vani.
Erlendur Björnsson gengur
full þunglamalega til glímunn-
ar og vantar nokkuð snerpu
og kom það átakanlega fram í
glímunni við Rúnar. Nái hann
meiri snerpu er þar efni á ferð-
inni.
Hilmar Bjarnason er and-
stæðan við Erlend. Léttur,
mjúkur, snarpur en mátti sín
þó miður við hina þyngri stór-
karla.
Kristján H. Lárusson glímdi
ver en hann þurfti. Hann kann
miklu meira, og getur staðið
betur að glímu en hann gerði
að þessu sinni.
Gunnar Guðmundsson og
IBragi Guðnason eru liðlegir
glímumenn en vantar kraft til
að standast þunga og sterka
glímukappa. Hannes Þorlcelsson
er glímunni trúr þó hann upp-
skeri ekki mikla sigra, en ekki
er ósennilegt að piltur með þessa
líkamsbyggingu komi á óvart
fyrr en síðar.
,,GIíman nær farin halloka"
Á eftir keppninni afhenti for-
seti Í.S.Í. verðlaun. Við það tæki-
færi minntist hann Sigurjóns
Péturssonar, glímukappa, sem
lézt í þessum mánuði, en Sigur-
jón hefur lengst allra verið
handhafi Grettisbeltisins, eða
frá 1910—1919. Bað forsetinn
áhorfendur sem voru margir að
rísa úr sætum til heiðurs hin-
um fallna íþróttakappa og
frömuði.
Forsetinn gat þess að svo
liti út sem glíman væri að fara
halloka fyrir öðrum nýjum
greinum, en slíkt mætti ekki
ske. Þessvegna verða allir sem
þessari þjóðlegu og íslenzku í-
þrótt unna að styðja hana og
styrkja, sagði forsetinn að lok-
um. Við skulum vona að ís-
lenzka glíman fari ekki halloka
fyrir neinu hvorki yngri íþrótt-
um eða vegna deyfðar forustu-
mannanna, og umfram allt verð-
um við að varðveita hana eins
og hún var en ekki viljandi eða
óviljandi gera úr henni eitthvað
annað sem er andstætt eðli
hennar og anda.
30 frjálsíþiótiamenn úz
IR keppa á Seliossi um
hvítasunnuna
Á annan í hvitasunnu fer 30
manna flokkur frjálsíþrótta-
manna úr ÍR til Selfoss og kepp-
ir þar á íþróttamóti, sem Umf.
Selfoss stendur fyrir. Ákveðið
er að keppt verði í tíu íþrótta-
greinum og má búast við góðum
árangri í flestum greinum.
í hópi ÍR-inganna verða allir
beztu frjálsíþróttamenn félagsins
m. a. Skúli Thorarensen, Jóel
Sigurðsson, Guðmundur Vil-
hjálmsson, Kristján Jóhannes-
son, Sigurður Guðnason, Vil-
hjálmur Ólafsson, Bjarni Linnet
o. fl.
Á s.l. sumri heimsóttu IR-ing-
ar þrjá kaupstaði landsins þ. e.
Akureyri, Selfoss og Vestmanna-
eyjar og varð mikið gagn og á-
nægja af öllum þeim ferðum.
Hefur félagið því ákveðið að
halda heimsóknum þessum á-
fram í sumar og er þetta fyrsta
ferðin í því skyni.
Gunnar M. Magnúss: d
Börnin frá Víðigerði
Að kvöldi dags er farið úr vögnunum og tjald-
að á góðum stað. Og konurnar hit’a kaffisopa til
þess að hafa með þurrmetinu, en þær mega ekki
láta margar baunir í einu í könnuna. Þær eiga
svo lítið eftir af nestinu frá gamla landinu, og
þær hafa ekki hugmynd um, hvort þær fái nokkra
baun inni í grænu skógunum.
Börnin hlaupa frá tjöldunum og hressa sig
upp eftir setuna í vögnunum. Þau fara út um
móa og börð og hoppa á þúfum, því það eru mó-
ar og börð í Ameríku, rétt eins og á íslandi.
En bændurnir dytta að tjöldunum og vögn-
unum og bölva rigningunni og slabbinu. Og eft-
ir tvo daga voru allir fullorðnir karlmenn í hópn-
um búnir að segja ljótt í Ameríku.
Svona gengur það dag eftir dag. Rigningin
steypist úr loftinu í stórum hryðjum af og til.
Allt er vot't og ömurlegt, fúlt og sóðalegt og kalt,
sums staðar eru kviksyndi.
Og á fjórða degi kemur slys fyrir Víðigerðis-
fólkið. Hestarnir lenda á kafhlaupi og brjótast
um, ekillinn hrópar upp, og fólkið þýtur upp til
handa og fóta, en í sama bili veltur vagninn á
hliðina niður í fenið. Inni í vagninum var allt
í fáti og fári og guðshrópum. Fólkið kastaðist
sam-an og grátur barna og kvenna yfirgnæfði
skipanirnar um að reyna að komast út.
Aðalf undur
■
■
■
Sölusambands íslenzkra fisk-
■
framleiðenda
■
■
■
■
■
■
ver’ður haldinn í Reykjavík, þ. 10. júní n.k.
■
■
■
Dagskrá skv. félagslögum.
■
Einnig veröur gengið frá stofnun hlutafélags til 5
■
■
skipakaupa.
■
■
■
■
■
. ■
Sölusamband ísl. fiskframlei&enda.
Trésmiðir
Trésmiöir óskast í vinnu.
UPPMÆLING, LÖNG VINNA.
GóÖ skilyröi fyrir sjálfstæöa vinnuhópa.
Byggingafélagið BÆR hi^
Sími 2976 og 7974.
ZIG — ZAG
SAUMAVÉLAR
ZIG — ZAG-fætur
Búsáhaldadeild
Skólavörðustíg 23 — Sími 1248.
Q