Þjóðviljinn - 09.07.1955, Síða 5

Þjóðviljinn - 09.07.1955, Síða 5
Laugardagur 9. júlí 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (5 «........ <m fcWwlto P<*Biftaád liÍÍÍ 2 40 wk*. to oUitvfötc íit ttmm :W 40 «öt*< t#*« 0» M*vy ^pew <wtWf «t t«e fcnkfli f HU ÍJTttíj; ?íi «1 . UéImmímBBMHHHÍ <n«« ,V. 1» H !,,«.<, I(» »«t MduittW «<«,-tmtuH! jteuw t ‘; 1x Uí to»«.d tfc, v.toi (ránstWt ifcfctc) «í ftatfc ...m itn,í)l,»L t« Italtos tfc, mei« M imMi *Mr »œ»o»« tÍMÍT J!#. t« mé mé »rtA Uut Ufc«it«‘» fcw, ittri faiwtrf -> SN vS í\\mm fROM ftlASitA 9n« #«t»e motto, otnd U-hotnhs «o«te trom rin@ ot ts@*o* fROM OStENUNÍ) tt>m iahan FROM IHí UN.no STAÍS5 FHOM 0««M fROM 8RITAIN fKSM QKINAWA fSOM fRSHCt fROM THE I>HILif>f>miS fROM fSSNCH M0H0CC0 f80M TRfPOtl fROM MfSITCRSANfAN CASRiERS fROM OftfECT fROM tURKfY ffiöM SAU&I ARARIA Y':s 1 1 TröM «t€ttiCCARSi«$ tillögur þar sem tekin verðl upp nokkúr atriði úr tillögum Molotoffs í Berlín og þeim skeytt við uppástungur Vest- urveldanna. Aðalatriðin í brezku tillögunum verða, að sögn franska fréttaritarans, stofnun öryggiskerfis sem „uppfyllir réttmætar öryggis- kröfur Sovétríkjanna, afvopn- un í Evrópu stig af stigi og samningur um viðskipti milli austurs og vesturs. Von manna í London er að innan þessa ramma verði mögulegt að ráða fram úr þeim vanda að sameina Þýzkaland. Brezk- ir sérfræðingar telja þó, að aukin viðskipti séu eina mál- ið þar sem hægt sé að vænta skjóts árangurs .... Bretar draga enga dul á að þeir vilja sem fyrst losna við hömlurn- ar sem fyrir frumkvæði Bandaríkjamanna hafa verið settar á víðskipti við Austur- Evrópuríkin og Kína“. „Svona hefur Rússland verið sett í úlfakreppu — Eitt misstig, og vetnis- sprengjunum tekur að rigna frá flugstöövahring“ er fyrírsögnin á pessu korti, sem birtist í banda- ríska kaupsýslutímaritinu U.S. Neios & World Report. í greininni sem fylgir kort- inu er frá pví skýrt að „1000 prýstiloftssprengju- flugvélar af stærstu gerð“ bíði reiðubúnar í „yfir 100 flugstöðvum“ par sem „10.000 kjarnorkuvopn“ seu geymd. „Skotmorkin i Rússlandi hafa verið valin og áhafnir flugvélanna hafa œft sig og eru reiðu- búnar til að finna pau hverju sem viðrar á hvaða tíma árs sem vera skal“. Á kortinu er tilgreindur flug- timi fra stöðvum í Græn- landi, Bretlandi, Frakk- landi og tíu öörum löndum til skotmarka í Sovétríkj- unum. Bandaríkjastjórn er staðráðin í að ríghalda í pessar árásarstö^jj^ segja fréttamenn í Washington. Annan mánudag koma æðstu menn Bandaríkjanna, Bret- lands, Frakklands og Sovét- ríkjanna saman á fund í Genf í Sviss. Sovétstjórnin hefur þeg- ar lýst því yfir, hvert mark- mið Búlganíns forsætisráð- herra og förunauta hans verð- úr á Genfarfundinum. Á afmæl ishátið SÞ í San Francisco um daginn sagði Molotoff utan- ríkisráðherra, að tími væri til komirm að binda endi á kalda I stríðið með samkomulagi um allsherjar afvopnun. Vísaði hann til afvopnunartillagna stjórnar sinnar frá í vor og j kvað nú hlut Vesturveldanna i eftir að bera fram gagntil- j lögur. Cjtjómir Vesturveldanna hafa ^ ekki verið eins opinskáar og sovétstjómin, þær hafa látið hjá líða að gera skýra grein fyrir markmiðum sín- um á fundinum í Genf. Vera má að það stafi af því að þær séu ekki enn búnar að koma sér niður á sameigin- lega afstöðu, ráðherrar og sérfræðingar hafa setið á rökstólum nær óslitið síðan fjórveldafundurinn var ákveð- inn og A-bandalagsráðið á að koma samarn í París tveim dögum áður en hann hefst. Munu þá utanríkisráðherrar Vesturveldanna þriggja skýra bandamönnum sinum frá á- kvörðunum sem teknar hafa verið inn afstöðuna á fundin- um í Genf. Bcmdarxkin munu hafna öllum tillögum um allsher jarolvopnun Einn margfróBasti fréttamaSur USA skýrir frá fyrirœtlunum Vesturveldanna i Genf I Ekki vantar það að margt hefur verið ritað um i stefnu Vesturveldanna á fjór- veldafundinum. James Reston, aðalfréttaritari New York Times í Washington, hefur oft reynzt manna sannfróðastur um það sem er að gerast bak við tjöldin í bandarísku stjóraarskrifstofunum; þar sem steína Vesturveldanna er í raun og veru ákveðin. í skeyti frá San Francisco (N.Y. Times 26. júní) segir Reston [ að utanríkisráðherrar Vestur- 1 veldanna hafi „bæði opinber- lega og í einkaviðtölum“ hafn- að tillögu Molotoffs um að kalda stríðinu verði hætt, her- stöðvar í öðrum löndum af- numdar og kjarnorkuvopn bönnuð. Sovétríkin hafa fall- izt á tillögur Vesturveldanna um herafla stórveldanna, en kjaraorkuvígbúnaðurinn og herstöðvakerfið voru réttlætt með því að þau væru nauð- synleg til að vega á móti yfir- burðum Sovétríkjanna hvað landher snerti. Nú spyr Molo- toff, svo notuð séu orð Rest- ons, „hvaða afsökun við höf- um fyrir að halda fast í þau er Sovétríkin hafa fallizt á að minnka her sinn eins og við höfum krafizt? .... Utanrík- isráðherrar Vesturveldanna lýstu skýlaust yfir að ekki þýddi að minnast á svo gagn- gerða breytingu á valdajafn- vægi í heiminum um fyrirsjá- anlega framtíð .... Vestur- veldin taka ekki í mál að byggja varair sínar á öðru en kjarnorkuvopnum". Nú skyldi maður ætla að á- stæðan til þessarar fast- heldni við kalda stríðið, víg- búnaðarkapphlaupið og múg- drápsvopnin væri að ráða- menn Vesturveldanna tor- tryggðu sovétstjóraina, grun- uðu hana um græsku í af- vopnunarmálunum. En það er nú eitthvað annað. í frétta- skeyti frá Washington segir Reston ( N.Y. Times 28. júní): „Menn eru nú almennt sammála um það hér, að hug- ur fylgir máli hjá Rússum og þeir séu áfjáðir í að ná sam- komulagi mn afvopnunarsátt- mála .... Embættismenn hér álíta, að forsendur séu fyrir alvarlegum samningaumleit- unum. En þær munu ekki fara fram í Genf. Þar verður ekki gengið lengra en að ræða, bvernig bezt verði að taka upp samningaviðræður um slíkt viðfangsefni slðarmeir“. Reston segir að embættismenn í bandaríska utanríkisráðu- neytinu hafi vaxandi áhyggj- ur af því, að almenningur sé farinn að búast við verulegum árangri af ráðstefnunni í Erlend tíðindi Genf. Þótt þeir viðurkenni að möguleikar séu á víðtæku samkomulagi eru þeir stað- ráðnir í að ganga ekki til slíkra samninga. Hann hefur eftir einum af samverka- mönnum Dullesar utanríkis- ráðherra: „Það væri hroða- legt áfall fyrir álit okkar ef við gætum í einu vetfangi ráð- ið til lykta fjölda vandamála sem hafa þjakað heiminn í áratug. Ef það yrði mögulegt hlyti fólk að spyrja, hvers vegna þetta hefði ekki verið gert fyrr“. Vesturveldin geta þó ekki látið við það sitja að hafna skilyrðislaust afvopnunartil- lögum Sovétríkjanna. Þau verða einnig að leggja eitt- hvað jákvætt til málanna. Reston kann frá ýmsu að segja um fyrirætlanir þeirra. Hann kvaðst hafa komizt að raun um í San Francisco, að bandarískir, brezkir og fransk^ ir embættismenn séu sammála um að ríkisstjómir þeirra skuli bera fram á fundinum í Genf tillögur um að Atlanz- hafsbandalagið' og bandalag Austur-Evrópuríkjanna semji um takmarkanir á herbúnaði í Evrópu og geri með sér griðasáttmála. Fyrsta skrefið til þessarar takmörkuðu af- vopnunar í Evrópu verði fækkun í heraámsliðunum í Þýzkalandi beggja vegna Sax- elfar. En um þetta verður ekkert endanlega afráðið í Genf ef Vesturveldin mega ráða. „Vesturveldin eru stað- ráðin í þvi að gera enga samn- inga í Genf, þau ætla alls ekki að ganga lengra þar en fall- ast á að taka upp samninga- viðræður um takmarkaðar breytingar á þeirri stefnu sem nú er fylgt“. Tfugmyndin um griðasátt- ** mála milli A-bandalags- ins og bandalags Austur-Ev- rópuríkjanna á að vera mót- leikur Vesturveddanna gegn tillögu sovétstjómarinnar um öryggisbandalag allra Ev- rópuríkja, sem borin var fram á fundi utanrikisráðherra fjórveldanna í Berlín fyrir rúmu ári. Fréttaritari frönsku fréttastofunnar AFP í London segir, að í Genf muni Eden forsætisráðherra bera fram F|jóðirnar eru fyrir löngu * orðnar þreyttar á kalda stríðinu og það verður ljósara með hverjum degi er líður að kapphlaupið í kjaraorkuvíg- búnaði er óðra manna æði.. Verði afstaða Vesturveldanna í Genf sú sem lýst hefur verið í fréttaskeytunum sem vitnað hefur verið til hér að framan er engin von til að Búlganín, Eden, Eisenhower og Faure talcizt að setja niður kalda stríðið þá viku sem þeir munu sitja á rökstólum í Genf. Til þess að samkomulag náist þarf samkomulagsvilji að vera fyrir hendi hjá báðum aðilum. Hinsvegar er vel líklegt að á eftir fundinúm í Genf fari ráð- stefnur utanríkisráðherra og sérfræðinganefnda um einstök mál. Um það er jafnvel rætt, að ef þær viðræður undir- manna beri verulegan árangur verði kallaður saman nýr fundur æðstu manna áður en langt um líður. M.T.Ó. Nýtt tímarit Norda Prismo 1 marz sl. hófst útgáfa i Svíþjóð á nýju tímariti, er nefnist NORDA PRISMO. Markmið þess er að endur- spegla sem mest af því, sem markverðast erínorrænu þjóð- lífi: menningu, bókmenntum, framförum o. s. frv. Auk þes3 verður skyggnzt víðar um ú heiminum og birtar greinar um ýmis efni, sem efst eru á baugi hverju sinni, og eins og þau horfa við af norrænum sjónarhóli séð. Það skal þó tekið fram að ritið verður hlutlaust í pólitík. NORDA PRISMO kemur út annan hvorn mánuð, en hvert hefti verður 48 blaðsíður. Ár- gjald er kr. 25.00 (íslenzkar)', Ritstjóri er Ferenc Szilágyi, doktor í lögum, og vel þekkt- ur rithöfundur. Eins og nafn timaritsins, NORDA PRISMO, ber með sér, er það prentað á esperanto, og er þess vænzt, að íslenzk- ir esperantistar láti ekki sinn hlut eftir liggja að gerast á- skrifendur þess og leggja þvi til lesefni. Áskriftir, andvirði og efni til birtingar sendist umboðsmanni ritsins á Islandi, en utanáskrift hans er: Magnús Jónsson, Pósthólf 786, Reykjavík.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.