Þjóðviljinn - 20.07.1955, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 20.07.1955, Blaðsíða 5
|>jóðinni leiðist ' „FrakWandi leiðist!" Með svofelldum orðum lýsti fræg- ur stjórnmálamaður föður- landi sínu og pólitísku sálar- ástandi frönsku þjóðarinnar nokkru fyrir júlíbyltinguna 1830. Og til þess að gera sér dagamun hrundu Frakkar af stað byltingu með svo mikl- um hávaða, að undir tók um alla Evrópu, og jafnvel hér i fásinninu norður á íslandi brugðu menn blundi — og hafa raunar ekki sofnað síð- an. Á þessari löngu 'pólitísku vöku hefur íslandi einnig leiðzt á stundum, þótt ekki hafi byltingar orðið, enda er þjóðin seinþreytt til vandræða og rasar sjaldan um ráð fram. !Þó hefur mátt marka það af rnörgu undanfarna mánuði, að nokkurs óyndis hafi kennt með þjóðinni. En hitt fer ekki á milli mála, að ríkisstjórn landsins leiðist í meira lagi, og svo þeim stjórnmálaflokk- um, sem að henni standa. Það er í almæli, að í herbúðum ríkisstjómarinnar geti ,,bylt- ing“ brostið á þegar minnst varir, og væri raunar illt til afspurnar um svo góðborg- aralega og ábyrga flokka. Já, það er ekki um að vill- ast: ríkisstjórn Sjálfstæðis- flokksins og Framsóknar 'leið- ist. Enn hafa stjórnarflokk- arnir að vísu sameiginlega sæng, dúk og disk, en þeir horfast á í geispandi lífsleiða, sem nálgast hatur, líkt og hjón, sem eru orðin slitin og þreytt eftir langa og stirða sambúð. Hjónin reyna þó ! lengstu lög að gæta kaldrar hurteisi út á við, en þeim verður æði oft sundurorða, einkurn á máltíðum, og þá verður eiginmanninum stund- um laus höndin, og þá fer eiginkonan ekki varlega með krystalinn, og hjúin á heim- ilinu heyra hjónin deila og gangandi fólk götunnar glottir illgirnislega, því að stundum hefur gleymzt að loka gluggunum. Einu sinni var hús, sem var svo gamalt, að það var komið að niðurfalli. En það vissi ekki til hvorrar hliðar- innar það átti að falla, og þess vegna hékk það uppi-. Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks- ins og Framsóknar er slíkt hús. Því hefur mörgum flogið í hug, að í rauninni væri það miskunnarverk að hjálpa því til að falla í frumefni sín. Það stendur nefnilega uppi, ekki aðeins sjálfu sér til leiðinda,. heldur öðrum til óþurftar. Það er orðið meinlegur far- artálmi á pólitískri framfara- braut íslenzku þjóðarinnar. Það er ekki til neins nýtilegt nema niðurrifs. Stjómmálaflokkum hættir oft við að stirðna í stein- runnum mótum, barátta þeirra, starfsemi og athafnir allar verða háttbundnar end- xirtekningar. Þegar svo hefur gengið um stund tekur póli- tískur lifsleiði að sækja á fólk- ið. Já, fólkið er að vísu ekki mikils metið milli kosninga, þegar stjómmálaflokkamir brýna upp bátum sínum og njóta hins\ léttúðar- fulla lífs landlegunnar á sælu- dögunum milli gamalla kosn- ingaloforða og nýrra. En jafnvel þeir dagar eiga sér líka kvöld, og rykaðir land- i krabbamir verða enn á ný að Miðvikudagur 20. júlí 1955 — ÞJtoVILJINN — (5 ■ 9M - Hvini u/vv’U'-. Einar Olgeirsson ýta bátum úr vör og leggja út á sollið og viðsjált haf. En þetta haf er fólkið sjáift. Sú saga er sögð af einum steigurlátum konungi Persa, að hann hafi látið strýkja öldur Hellusunds vegna þess að þær gerðust svo djarfar að brjóta brúarsmíði hans. ís- lenzkir stjómmálaleiðtogar hafa þrásinnis fetað í fótspor þessa ágæta austurlenzka ein- valda: í landlegunni hafa þeir staðið hnakkakertir í fjörunni og strýkt hvítfyssandi öld- urnar, hrækt á þær, rekið' út úr sér tunguna framan í þær. Þeim var það alveg óhætt. Þeir höfðu þurrt land und- ir fótum. En þeir sigla ekki neinn sjó með því að strýkja öldurnar að persneskum sið. Á hafinu sigla þeir einir und- an feigð sinni, sem þekkja háttu lofts og lagar og kunna þá íþrótt sjómem^ku að sigla upp í vindinn, en láta ekki reka stjómlaust út í voðann. Fólkið er eins og hafið, svipult, mislynt, breytilegt, lýtur lífslögmálum hinna ei- lífu umskipta. Það færir sum skip í kaf, öðrum fleytir það í höfn. Fólkið á Islandi er engin undantekning í þessu efni. Islenzka þjóðin hefur vottað það á ýmsan hátt, að hún muni ekki gleyma húð- strokunum, sem henni hafa verið veittar milli kosninga Þegar Einar Olgeirsson flutti hina miklu ræðu sína í almennum stjómmálaum- ræðum á Alþingi hinn 9. maí síðastliðinn, máttu Islending- ar heyra hinn nýja lagboða íslenzkra stjómmála. Raunar var það ekki þá í fyrsta skipti, að Einar Olgeirsson þingmenn og hæstvirtir ráð- herrar, að það er ekld aðeins ILLT verk að vera að strita við að stjórna þessu landi á móti verkalýðnum, það er líka VONLAUST verk“. Alþýða Islands, sem var komin vígmóð út úr mesta verkfalli sögu sinnar, skildi Sverrir Kristjánsson: & Straumhvörf eða stöðupoll- ur í stjórnmálum íslands? undanfarin ár. Hún hefur þegar látið í ljós megna ó- beit á þeirri pólitisku síbylju, sem jTir henni hefur verið kveðin af hinum svokölluðu á- byrgu flokkum. Henni líkar ekki sigling þessara flokka. Henni leiðist. Hún vill ný markmið, nýja stefnu og nýja stjórn. BfepL / ^ Sósíalistaílokkurinn markar stefnuna Sósíalistaflokkurinn hefur fyrstur orðið við hinni ósjálf- ráðu og óljósu kröfu fólksins um pólitíska nýsköpun. Hann hefur fyrstur orðið til að gera sér grein fyrir þeim viðfangs- efnum, sem risið hafa í sögu íslands á síðasta áratug, at- vinnulegum, félagslegum og pólitískum vandamálum þess, og boðizt til að leggja sinn hlut fram til að leysa þau með þeim hætti, að hagsmunum verðalýðsins og íslenzku þjóð- arinnar allrar væri borgið. En enn hafa aðrir íslenzkir stjórnmálaflokkar ekki mynd- að sig til að svara þeim spurn- ingum og ráðgátum, sem saga Islands hefur lagt fram til úrlausnar. Þeir láta sem ekk- ert hafi skeð. Árið 1955 troða þeir marvaðann með sama fótaburðinum og á þeim ár- um, sem nú eru liðin og aldrei koma aftur. Þeir skilja ekki, að nú verður að raddsetja lagboða íslenzks stjómmála— lífs að nýjum hætti. gerði Alþingi vort að Lög- bergi Islendinga, að vettvangi, þar sem brennandi vandamál líðandi stundar voru hafin upp úr fuglagargi dægurþrass- ins og túlkuð í því ljósi, sem eitt ætti að ljóma yfir við- fangsefnum þjóðarinnar, ljósi sögunnar, ljósi þess, sem var, er og verður. Af sama toga var ræða hans sú hin mikla, er hann flutti fyrir ellefu ár- um á Alþingi, nýsköpunar- ræðan, er hratt af stað hinni hröðu atvinnuþróun til sjávar og sveita og markað hefur efnahag þjóðarinnar fram til þessa dags. Boðskapurinn, sem hann flutti þjóðinni 9. maí síðastliðinn, var í raun- inni framhald þeirrar frægu nýsköpunarræðu. Ræða Einars Olgeirssonar í hinum almennu stjórnmála- umræðum 9. maí, mun án efa verða talin meðal merk- ustu pólitísku skilríkja lög- gjafarþings okkar á síðustu árum. Engum duldist heldur, að ræðan hitti í mark: Morg- unblaðið veinaði eins og stunginn grís. Það var góðs viti. Morgunblaðið er að vísu alla jafna dálítið treggáfað, en stéttvís eðlisgreind hefur oft dugað því vel þegar það hefur komizt í hann krapp- an, enda má það vera æði smátt, sem hundstungan ekki finnur. Morgunblaðið skildi vel þessi orð Einars Olgeirs- sonar: einnig strax þessi orð Einars Olgeirssonar: „Án þess sið- gæðismáttar, sem gerði alla íslenzka alþýðu eina þjóðar- sál í afstöðnum átökiun, án þess máttuga valds, scm 27 þús. meðlimir Alþýðusam- bands íslands eru, án þess stórhuga og þeirra framtíðar- hugsjóna, seni Sósíalistaflokk- urinn mótar sögu þjóðarinn- ar með á úrslitastundum hennar, án verkalýðshreyfing- arinnar — verður ríkisstjórn á íslandi þegar bezt lætur hrossainarkaður, þegar ver lættur ræningjabæli og þegar dýpst er sokkið leppstjórn er- lends hervalds á Fróni“. Og fyrr en varir mun ís- lenzka þjóðin verða á einu máli um, að þessi orð Einars Olgeirssonar vildu allir kveðið hafa: „Myndun ríldsstjórnar, sem styðst rið samtök verka- manna, bænda, fiskimanna, menntamanna og millistétta, alls hins vinnandi' lýðs, er mikilvægasta hlurierkið, sem nú þarf að vinna í íslenzkum stjórnmálum“. Orð Einars Olgeirssonar í síðustu útvarpsumræðum al- þingis bárust inn á hvert ein- asta heimili, sem útvarpstæki hefur. En fræðilegan rök- stuðning þessarar ræðu hafði hann áður birt á öðrum vett- vangi. I 38. árgang Réttar, 1.—4. hefti, 1954, skrifaði lEing.r Olgeirsson stjórnmála- „Ég segi ykkur það, ritgerð, er hann nefrnr; Nokkrar hugleiðingar um leið fslendinga til þjóðfrelsis og sósíalisma. Einar Olgeirsson hefur í ritgerð þessari rann- sakað ýms mikilvægustu vandamál Sósíalistaflokksins. Þessi vandamál eru í sama mund pólitísk viðfangsefni, sem varða alla þjóðina, og þess vegna er skylt að þau séu rædd af einurð og hrein- skilni frammi fyrir alþjóð. Einar Olgeirsson ræðir í stjórnmálaritgerð sinni ekki aðeins dagskrármál flokksins, heldur einnig, og ekki siður, þau viðfangsefni flokksins, sem meira framhorf hafa. Sósíalistaflokknum er brýn nauðsyn á að kryfja þessi mál öll til mergjar, gera sér ljósa grein fyrir því, hver staða hans er í dag og hvem- ig hann hugsar sér að ráða fram úr þeim úrlausnarefnum, sem berast honum í hendur dag hvern og í náinni framtíð. ★ Stéttarílokkur verkalýðsins — ílokkur hins ís- lenzka málstaðar Sósíalistaflokkurinn er verkalýðsflokkur, sem hefur það hlutverk að skapa þjóð- félag sósíalismans á Islandi. Samkvæmt stefnuskrá sinni og starfsemi frá upphafi til þessa dags hefur Sósíalista- flokkurinn hlítt pólitískura leikreglum þess lýðræðis, er sjálft kennir sig við vestur- áttina. Flokkurinn hefur hald- ið þessar leikreglur út í yztu æsar, en því miður skort afl til þess að afstýra stjórnarskrár- brotum og þingskapa, er hinir ábyrgu flokkar vestræns lýð- ræðis á íslandi hafa gerzt sekir um, svo sem þingsaga vor ber ólygnust vitni. Verkalýður nútímans getur ekki brotizt út úr ánauð auð- valdsskipulagsins án þess að leysa um leið fjötur af öll- um öðrum stéttum, er verða að bera ok þess. Sósíalista- flokki Islands var þetta auð- vitað ljóst frá upphafi. Fyrr eða síðar hljóta sannir verka- lýðsflokkar að verða mál- svarar meirihlutans hjá hverri þjóð, leiðtogar allra vinnandi manna, sem bera skarðan hlut frá borði auð- valdsins. Þeir verða að taka að sér meira hlutverk en for- ustu verkalýðsins í þrengri merkingu. En sérstakar, á- stæður ollu því, að Sósíalista- flokkurinn á Islandi varð fyrr en ætla mætti að gæta heild- arhagsmuna íslenzku þjóðar- innar. Lífið sjálft lagði hon- um þá skyldu á herðar. Því að borgarastéttin íslenzka kiknaði undir þeirri byrði, sem var þó ekki annað en ó- breytt þegnleg skylda henn- ar: að varðveita sjálfstæði Is- lands. Borgarastéttin ofur- seldi nýfengið sjálfstæði þjóð- arinnar erlendu stórveldi, seldi landið undir herstöð. Fyrir þetta tók hún stórfé, og þótti sómi að sölunni. Sósíalismi verður aldrei skapaður á seldu landi. Verkalýðurinn getur aldrei reist þjóðfélag sitt í landi, sem er ánauðugt öðru ríki. Þótt sleppt sé öllum tilfinn- ingum, sem tengja íslenzka sósíalista þjóðerni þeirra, Framháld á 7. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.