Þjóðviljinn - 07.08.1955, Blaðsíða 1
Hemaðarframkvæmdimar í Keflavík
hafa þegar kostað 2.600 millj. kr.
Eru ekki hálfnaSar enn og munu áSur en lýkur nema
hœrri upphœð en allar fasteignir Islendinga
Sjómenn hyggja
á beimferð j
Raufarhöfn í gær. Frá
fréttaritara Þjóðvhjans.
Nokkur heimferðarhugur et
kominn í sjómenn á þeim báturr|
sem verst liefur gengið á síld«
inni. Telja þeir nokkra áhættU
að hafast lengur við hér fyrit
norðan sérstaklega ef góð rek«
netaveiði yrði sunnanlands.
Einkum gætir þessa hjá sjó-
mönnum á bátum frá Suður«
nesjum og Vestmannaeyjum.
Hemaðarframkvæmdir Bandaríkjanna á Keflavíkur-
flugvelli, síöan hernámið hófst vorið 1951, hafa hingað
til kostáð um 160 milljónir dollara og enn er ætlunin að
verja til þeirra um 200 milljónum dollara. Heildarfjárhæð-
in nemur því um 5.900 milljónum íslenzkra króna, en það
er heldur hærri upphæð en samanlagt brunabótamat allra
fasteigna, sem íslendingar eiga.
Þessar upplýsingar eru fengn-
ar úr greinum, sem birtust
dagana 27.-31. júlí í franska
blaðinu Combat. Fréttamaður
frá því blaði, Serge Montigny,
kom hingað í sumar ásamt 12
öðrum blaðamönnum á vegum
Atlanzbandalagsins til að kynna
sér hernaðarframkvæmdir hér,
og mun hann því styðjast við
öruggar heimildir.
Montigny skýrir frá því, að
á Keflavíkurflugvelli séu nú
um 5-6.000 bandarískir her-
menn, úr landher, flota og flug-
her. Flestir eru úr flughernum
og eru þeir einkum í sveitum
þeim sem fljúga orustuflugvél-
um af þrýstiloftsgerðinni Sa-
bre F89. Auk þeirra eru um
2.000 fslendingar á Keflavíkur-
flugvelli.
„Bandarikjamenn í helvíti“
Ein millifyrirsögnin í greinum
Montigny hljóðar þannig:
„Bandarikjamenn í helviti" og
segir þar frá hinu ömurlega
lífi ,,varnarliðsmanna“ á fs-
landi. Liðsforinginn sem tekur
á móti blaðamönnunum á Kefla-
víkurflugvelli segist hafa verið
hér í sex mánuði, en hafa þeg-
ar fengið nóg af dvölinni hér.
„Hér getur enginn maður verið
lengur en eitt ár. Þeim sem
dveljast Iengur er hætt \ið að
brjálast!“
„Við getum ekki hindrað
riðskipti við Rússla.nd“
Óaðspurður segir einn hátt-
settur yfirmaður i liði Banda-
ríkjamanna, ofursti að tign, við
fréttamennina: „Við getum
ekki komið í veg fyrir, að ís-
lendingar skipti við Rússland,
hvorki að þeir kaupi þaðan
benzín sitt eða selji þangað
fisk sinn!“ Montigny skilst að
þessi viðskipti séu Bandarikja-
mönnum mikill þyrnir í aug-
um, en þeir fái ekkert að gert!
Meira virði en allar
fasteignir fslendinga
Þær 5,900 milljónir króna,
sem Bandaríkjamenn hafa á-
kveðið að verja til hernaðar-
framkvæmda á Keflavíkurflug-
velli, nema sem áður segir
hærri fjárhæð en samanlagt
brunabótamat allra fasteigna á
íslandi.
Brunabótamat allra fasteigna í
Reykjavík er nú 3,260 millj. kr.
og slagar verðmæti mannvirkj-
anna í Keflavik hátt upp í þá
fjárhæð og mun verða nærri
því helmingi meira áður en
lýkur. Hér er fengin enn ein
sönnun fyrir því, að það er
ekki tjaldað til fárra nótta í
Keflavík.
Stríðsglæpamenn !
sendir heim
73 Austurríkismenn, sem af«
plánað hafa refsingar í Sovét-
rikjunum fyrir stríðsglæpi„
komu í gær til Vínarborgar. —•
Hafa þá allir þeir 600 austur*
rísku stríðsglæpamenn sem
dæmdir voru í Sovétrikjunum
verið sendir heim.
Verður loks komið á eftirliti
með vinnslu á steypusandi?
Nauðsvnlegt að Steypustöðin geri einnig ráðstaf
anir til daglegra rannsókna á framleiðslu sinni
Aö undanfbrnu hafa fariö fram viðræður milli for-
ráðamanna Reykjavíkurbæjar, Atvinnudeildar Háskólans
og- stjórnenda sandnámanna á Álftanesi, í Álfsnesi og
Esjubergslandi um sameiginlegar ráðstafanir til að koma
í veg fyrir að gallaöur sandur sé seldur til húsbygginga
hér í bænum og nágfenni.
Hefur helzt komið til orða.
að Reykjavíkurbær og eigendur
sandnámanna settu á stofn
Algert samkomulag á þingi
vísindamannanna í London
SkoruSu á sfórveldin oS leyso öll
deilumál sín viS somningoborSiS
sameiginlegt eftirlit, sem hefði
það verkefni að fylgjast með
framleiðslunni í sandnámunum.
Myndi þá verða ráðinn sérstak-
ur maður til þessara starfa, er
ynni í sambandi við Atvinnu-
deild Háskólans. Yrði verkefni
hans að taka reglulega „pruf-
ur“ úr stáli sandnámanna og
rannsa.ka þær með aðstoð At-
vinnudeildarinnar.
Enda þótt þessar ráðstafanir
yrðu gerðar af hálfu bæjarins
og eigenda sandnámanna er
eigi að síður óverjandi að
Steypustöðin h.f. sem selur
45—50 þúsund teningsmetra a£
steypuefni árlega, komi ekki
upp sérstakri rannsóknarstofu
í sambandi við framleiðslu sína.
Það er fleira en gæði sands-
ins, þótt þau séu vissulega mik*
ilsverð, sem athuga þarf þegar
steypa er blönduð og seld
til byggingaframkvæmda. Við-
skiptamenn Steypustöðvarinnar
eiga kröfu á því, að fyrirtækið
tregðist ekki við að gera allt
sem í þess valdi stendur til að
tryggja þá fyrir vörusvikunru
Hér er of mikið í húfi fyrir
einstaklinga og fyrirtæki sem
standa fyrir byggingarfram-
kvæmdum til þess að í það sé
horft þótt Steypustöðin h.f.
hafi nokkurn kostnað af því að
koma upp slíkri rannsóknar-
stofu er fylgist daglega með
framleiðslu liennar.
Hinni alþjóðlegu ráðstefnu vísindamanna um kjamorku-
og friðarmál, sem haldin var í London, lauk með því, að
samþykkt var einróma áskorun á allar ríkisstjórnir heims
að lýsa yfir, að „styrjaldir geti ekki orðið hagsmunum
þeirra til framdráttar".
Öldruðum rrrkmnunni gert uð greiða nær
II þús kr. af 45 þús, kr tekfuml
Skattayfirvöldin bættu 20 þús. kr. við tekjuframtal hans vegna smá-
íbúðar sem reist var í frístundum fyrir 5 árum!
Ráðstefnan hófst á miðviku-
daginn og lauk á föstudaginn.
Til hennar var boðað að til-
hlutan vísindamanna þeirra,
sem undirrituðu ávarp þeirra
Bertrands Russells og Alberts
Einsteins, sem birt var í síð-
asta mánuði.
Tortíming bíður maunkynsins
í kjarnorkustyrjöld
f ályktun þeirri, sem ráð-
stefnan samþykkti einróma er
komizt þannig að orði m.a., að
„kjarnorkuvopn muni að öllum
líkindum verða. notuð ef til
styrjaldar kemur í framtíðinni.
Slík styrjöld mun leiða ólýsan-
legar þjáningar yfir mannkynið
og ef til vill tortíma. því“. Vís-
indamennirnir leggja því á-
herzlu á, að öll ríki heims segi
skilið við stríð til lausnar
deilumálum og leysi í þess stað
deilur sinar á friðsamlegan
hátt.
„Eins og vondur draumur“
Bertrand Russell sagði á síð-
asta fundi ráðstefnunnar, að
sá ei'nhugur sem ríkt hefði á
henni gæfi vonir um að æ nán-
ari samvinna gæti tekizt milli
þeirra sem hingað til hafa átt
í deilum og að því myndi koma,
að ágreiningur þeirra hyrfi úr
sögunni eins og vondur draum-
ur.
Ráðstefnan sendi bréf til
stjórnarleiðtoga fjórveldanna,
þar sem lýst er fögnuði yfir
hinum góða árangri Genfar-
fundarins og látin i ljós von
um að þau haldi áfram á braut
sátta og samkomulags.
Daglega berast fregnir af
furðulegu framferði yfirvald-
anua í sambandi við niðurjöfn-
un útsvara og álagningn
skatta að þessu sinni. Verða
þau dærni öll sennilega seint
rakin til fulls en þó vill Þjóð-
viljinn gera sitt til að koma
þeiin á framfæri og er þakk-
látur fyrir hverskonar upp-
lýsingar um skattaránið og
útsvarshækkanir ihaldsins á
alinenningi.
★
1 gær leit aldraður verka-
maður inn til blaðsins og lagði
fram tilkynningar skattstof-
unnar og bæjarstjóma.rílialds-
ins um álagða skatta og út-
svar fyrir árið 1955. Brúttó-
tekjur hans árið 1954 voru kr.
44.919.90. Útsvarsseðillínn
var upp á röskar 6 þús. kr. og
skattreikningurinn 4800 kr.
Var verkamanninum þannig
gert að greiða nær 11 þús. kr.
samtals í útsvar og skatta.
A s.l. ári var þessum sama
verkamanni gert að greiða
2700 kr. í útsvar og 1800 kr.
í skatta eða samtals 4500 kr.
Tekjur voru þá um 37 þiis. kr.
Þrátt fyrir liina. gífurlegu
hækkun útsvaranna þótti hin-
um aldraða. verkamanni 6500
kr. liækkunin tortryggileg.
Leitaði ha.nn þ\ í til skattstof-
unnar um skýringar á fyrir-
brigðinu.
Kom þá í ljós að skattayfir-
völdin höfðu gert sér lítið fyr-
ir og hækkað tekjuframtal
mannsins um 20 þús. kr. og
þannig komið tekjum han$
upp í nær 65 þús. kr.! Þessap
„tekjur“ hafa aldrei koinið i
vasa verkamannsins en fram«
ferði sitt röksí'ðja yfirvöldiH
með því, að fyrir 5 árum síðaií
liafi hann reist scr smáíbúð og
búið í henni síðan.
Ibúðina bvggði verkamað*
urinn eingöngu í frístunduiri
sínum og sparaði sér algjör-
lega aðkeypt vinnuafl. Nú er
honum rcfsað með 6500 kr,
hækkun á útsvari og sköttum,
þrátt fyrir hræsnisvfirlýsing*
ar íhaldsins uin að hal'a und-
anþegið útsvari og skatti |>á,
vinnu sem menn leggja fram
til að koma upp eigin íbúð.