Þjóðviljinn - 14.08.1955, Blaðsíða 8
Höfnin er mál málanna á Akranesi
in höfn þar á
næstu þrem sumrum?
TilboS frá þýzkum fyrirtœkjum um
lánsfé og framkvœmdir i athugun
Mál málanna á Akranesi er bygging öruggrar hafnar.
Nú liggur fyrir tilboð frá þýzkum fyrirtækjum lun að fuil-
gera höfn á Aki'anesi á næstu þrem sumrrnn og lána fé
til framkvæmdanna.
Þjóðviljinn hafði í gær tal af
Daníel Ágústínussyni bæjar-
stjóra á Akranesi. Kvað hann
bæjarstjómina á Akranesi hafa
staðið í sambandi við þýzk fyr-
írtæki um byggingu hafnar á
Akranesi. Að loknum athugun-
um á staðnum hafa þau nú gert
tilboð í byggingu hafnarinnar
og komu tveir fulltrúar frá þeim
s.l. mánudag með tilboð. Annað
þessara fyrirtækja er í Dússel-
dorf en hitt í Essen.
Þr.jú aðalverkefni.
Daníel Ágústínusson kvað
þrjú aðalverkefni liggja fyrir í
höfninni. í fyrsta lagi að lengja
hafnargarðinn um 2 steinker,
sem þegar eru til. í öðru lagi
að fullgera sementsverksmiðju-
bryggjuna, en við það myndast
lokuð höfn. Og í þriðja lagi
þarf að skipta höfninni í innri
og ytri höfn og kemur þá ör-
uggt lægi fyrir fiskibátana.
Þjóðverjarnir hafa boðizt til
að ljúka þessu verki á næstu
þrem sumrum og lána til þess
Heyskapar-
ferð í Kjósina
Vegna hins alvarlega ástands,
sem skapast hefur út af hinni
staðbundnu óþurrkatíð, hefur
Átthagafélag Kjósverja ákveðið
að efna til eins dags heyskap-
arferðar i Kjósina með félögum
sínum og öðrum velunnurum
Kjósarinnar.
Bifreiðastöðin Bæjarleiðir hef-
ur boðið fram bílakost til flutn-
ings á fólkinu endurgjaldslaust.
Stjóm Átthagafélagsins biður
alla þá, sem hafa áhuga fyrir
þessu máii sem þátttakendur og
gagnvart annarri tilhögun að
hafa samband við eftirtalda að-
ila strax. — í stjóm Átthaga-
féiags Kjósverja: Bjarni Bjarna-
son (sími 3008), Hákon Þor-
kelsson (simi 3746), Guðmund-
ur Jónsson (sími 80792), Þor-
gils Guðmundsson (simi 81343),
Gunnar Finnbogason (sími
7429), Siguroddur Magnússon
(sími 80729).
Slokkviliðsmenn
fá launabætur
Bæjarráð Re.ykjavíkur sam-
þykkti á fundi sínum í fyrra-
dag að greiða slökkviliðsmönn-
um sömu þóknun fyrir staðnar
næturvaktir og lögregluþjónar
höfðu áður fengið viðurkennda.
— Áður höfðu slökkviliðsmenn
fengið flokkshækkun eftir 10
ára starfstíma á sama hátt og
lögregluþjónar.
Hefur mál þetta verið alllengi
á döfinni hjá launanefnd og
bæjarráði en nú loks verið leyst
i samræmi við óskir slökkviliðs-
manna.
fé. Er tilboð þeirra í athugun
hjá bæjarráðinu á Akranesi og
vitamálastjóra.
Mesta nauðsynjantál
Akurnesmga.
Akranes er einn blómlegasti
útgerðarstaðurinn við Faxaflóa
Nýir starfskraftar í
skipulagsdeild
Bæjarráð samþykkti í fyrra-
dag að verða við þeim tilmælum
hins nýja skipulagsstjóra bæj-
arins, Gunnars Ólafssonar, að
ráða megi til viðbótar í skrif-
stofu hans einn arkitekt og
einn aðstoðarmann eða teiknara.
og örugg' Köfn grundvöllur fyrir
útgerðarjtarfseminni. Höfnin er
nú opin fyrir sunnanáttinni og
í miklum veðrurn hefur þurft að
manna bátana á legunni, hafa
vélarnar í gangi og allt tilbúið
til að flýja höfnina. Örugg höfn
er því mál málanna fyrir Akur-
nesinga og vonast þeir fastlega
til að þetta mál leysist nú.
Iíirkjulaganefnd
ÞIÓÐVUJINN
Sunnudagur 14. ágúst 1955 — 20. árgangur — 181. tölublað
Ráðgert að leigja gamla Iðn-
skólann til gagnfræðakennslu
Þótt iðnnámið sé loks flutt í nýja Iönskólann á Skóla-
vöröuhæð eru ekki horfur á öðru en gamla IÖnskólahúsið
við Vonarstræti og Lækjargötu gegni áfram því hlut-
verki að hýsa skólaæsku Reykjavíkur. Er nú ráðgert að
Reykjavíkurbær taki húsið á leign fyrir gagnfræðastigið.
skipuð
f
Nefnd til að endur
skoða launasam-
þykkt bæjarins
Á fundi sínum í fyrradag á-
kvað bæjarráð að skipa fjögra
manna nefnd til að endurskoða
launasamþykkt Reykjavíkurbæj-
ar og fyrirtækja hans, en slík
endurskoðun er nú einnig yfir-
standandi hjá ríkinu.
í nefndina voru skipuð: Guðm.
Vignir Jósepsson, skrifstofustjóri
og bæjarfulltrúarnir Auður Auð-
uns, Petrína Jakobsson og
Magnús Ástmarsson.
Kirkjumálaráðherra hefur
hinn 1. f. m. skipað þá Ásmund
Guðynundsson biskup, Gústav A.
Jónasson skrifstofustjóra og séra
Svein Víking í nefnd til að end-
urskoða gildandi lög og' tilskip-
anir um málefni kirkjunnar.
Ásmundur Guðmundsson biskup
er formaður nefndarinnar.
Skortur er tilfinnanlegur sem
kunnugt er á fullnægjandi
skólahúsnæði bæði til barna-
kennslunnar og gagnfræðakennsl-
unnar. Hefur íhaldið vanrækt
að sjá svo um að íramkvæmdir
í skólabyggingamálum séu í sam-
ræmi við þá 'þörf sem skapast
af fjölgun nemenda á skóla-
skyldualdri. Þannig eru nú hin
tilfinnanlegustu vandræði fram-
undan í þessum efnum og vand-
séð hvemig leyst verða í nán-
ustu framtið nema gengið verði
af dugnaði og framsýni i bygg-
ingar nýrra skóiahúsa.
Athugun sem gerð hefur verið
á væntanlegri tölu nemenda á
gagnfræðaskólaaldri á komandi
vetri sýnir að þeim muni fjölga
um 9 bekkjardeildir. Þerman
vanda er ekki hægt að leysa
með því skólahúsnæði sem not-
að hefur verið til þessa. Sam-
þykkti bæjarráð því á fundi síti-
um í fyrradag, samkvæmt uppá-
stungu fræðslufulltrúa, að leita
eftir samningum við Iðnaðar-
mannafélagið í Reykjavík um
að fá gamla Iðnskólann til af-
nota fyrir gagnfræðanámið
næsta vetur.
Hér er vitanlega aðeins utn
bráðabirgðalausn að ræða. Fram-
tíðarlausnin er að reist séu full-
komin skólahús í samræmi við
þörfina á hverjum tíma.
Heimsmóti æskuxtxtcxr slitið í dag
Varsjá í gær. Einkaskeyti til Þjóðviljans.
í dag er næstsíðasti dagur fimmta heimsmóts æskunn-
ar, en mótinu verður slitið með viðhöfn á morgun.
Munu þá allir þátttakendur
ganga fylktu liði um borgina
en síðan koma saman á einu
torginu. Við fslendingar förum
héðan hálftólf annað kvöld. hálf-
tíma fyrir formleg mótsslit.
í morgun hafa nokkrir land-
anna farið að skoða verksmiðju,
aðrir til fæðingarstaðar Chopins.
Síðar í dag munu menn al-
mennt horja á úrslitaieik í
knattspyrnu milli liða Búdapest
og Búkarest. Einnig hlusta á
tónleika þar sem fram koma
þeir er sigruðu í tónlistarkeppni
mótsins, svo og sækja ýmsar
aðrar skemmtanir. í gær unnu
15 landar nokkra stund á einum
Æ F
Fundur verður haldinn í sam-
bandsstjórn Æskulýðsfylking-
arinnar í dag klukkan 2 síð-
degis í Tjamargötu 20,
Frumkvæmdanefnd.
Tíminn lýsir ástandinu í hernámsmunum undir stjórn Framsóknar:
„Þvílíkur undirlægjuháttur og sleíkju
skapur að leita verður á neðstu stig
dýraríkisins ef finna á svipuð dæmi'
Tíminn • gerir hernámsmálin
að umtalsefni i gær i forustu-
grein, og birtist efni greinar-
innar í eftirfarandi tilvitnun-
un:
„Þeirri staðreynd er ekki að
leyna, að kringum varnarlið-
ið og framkvæmdir þess hér
liefur risið upp allstór hópur
manna sem þjónar því með
þvílíkum undirlægjuhætti og
sleikjuskap, að leita verður á
neðstu stig rýraríkisins, ef
finna á svipuð dæmi . . . Þessi
hópur umræddra mannlegra
skriðdýra er að sjálfsögðu fjöl-
mennastur á Keflavíkurflug-
velli. Þar er miðlimi hans bæðl
að finna í þjónustu hjá varn-
arliðinu, verktökum þar og
einnig hjá því opinbera. Svo
öflugur er hópuriiui nú orðinn.
að hann hefur um nokkurt
skeið gefið út sjálfstætt blað,
Flugvallarblaðið, sem að sjálf-
sögðu er ritað í hreinasta sorp-
blaðastíl . . . Það er löngu
kunnugt að forvigisinenn Sjálf-
stæðisflokksins hafa ekki að-
eins mestu velþóknun á út-
gáfu Flugvallarblaðsins, lieldur
veita henni stuðning sinn. Þeg-
ar hart hefur verið deilt á
skriðdýrsiðju blaðsins, hefur
Morgunblaðinu hvað eftir ann-
að runnið blóðið til skyldunn-
ar og tekið upp vöm fyrir það,
sbr. þegar / Flugvallarblaðið
kallaði utanrikisráðherra er-
indreka Rússa. . .“
I
ÖUu skýrar gat Tíminn ekki
lýst samstarfsmönnum sínum,
forvígismönnum Sjálfstæðis-
flokksins. Þeir eru berir að
„þvílíkum undirlægjuhætti og
sleikjuskap, að leita verður á
neðstu stig dýraríkisins, ef
finna á svipuð dæmi“, eða hafa
að minnsta kosti fyllstu samúð
með slíkum amöbum og bakt-
eríum og veita þeim allan stuðn-
ing. Sízt er þetta ofmælt hjá
Tímanum, en lýsingin nær
sannarlega til fleiri aðila eins
og höfundur Tímagreinarinnar
veit manna bezt. Sú breyting
hefur heizt orðið á stjórn vam-
armálanna síðan Framsóknar-
flokkurinn tók þar við ráðum
að orðið nafa helmingaskipti á
undirlægjuhættinum og sleikju-
skapnum, og hafa þeir Fram-
sóknarmenn sem standa á
neðsta stigi dýraríkisins verið
í stöðugri sókn siðan, stofnað
eitt hlutafélagið af öðru og
rejTit að hafa sem mestan
gTÓða af þýlyndi sinu. Þetta
hefur mörgum góðum og heil-
brigðum Framsóknarmönnum
sámað og þau sárindi birtast
einnig undir rós í hinni sann-
orðu lýsingu Timans.
vinnustað í borginni. Um kvöld-
ið var haldinn dansleikur í
bækistöðvum okkar og sótti
hann m. a. pólska starfsfólkið
ásamt mótsgestum af fjölmörg-
um þjóðernum.
Þróttarar léku í fyrradag við
liðið Huragan í borginni Wolo-
min, 50 km. frá Varsjá, en íbú-
ar þar eru 30 þúsund. Pólverj-
arnir sigruðu með 6 mörkum
gegn 3 eftir 5 gegn 1 í hálfleik.
Leikurinn var mjög skemmtileg-
ur og settu Pólverjar 5 mörk á
fyrstu 15 mínútunum. Róma
Þróttarar mjög allar móttökur
þama. Auk þess er áður getur
hafa Þróttarar leikið einn leik
í viðbót hér í Varsjá og sigr-
uðu þá með 7 gegn engu.
íslenzku þátttakendurnir hér
biðja fyrir beztu kveðjur heim,
ívax.
Búizi við hinu versia
Framhald af 1. síðu.
vopnahlésnéfndmni til að hafa
sig á brott úr landinu. Nefndin
hefur ákveðið að hafa orð hans
að engu og hefur yfirstjóm
bandaríska hersins í Kóreu fal-
ið sérstökum sveitum að vernda
nefndarmenn, sem hafa aðset-
ur á fimm stöðum í landinu.
Flestir Akranes-
bátar komnir
Akranesi.
Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Flestir Akranesbátanna eru uú
komnir hetm að norðan, eða á
leiðiiuú.
Nokkrir bátar hafa stundað
reknetaveiðar í Faxaflóa undan-
farna daga, munu nú 7 bátar
héðan vera byrjaðir þær veiðar.
Afli hefur verið sæmilegur,
hæst um 150 tunnur, en í gær
morgun var mjög lítill afli.
Saltaðar hafa verið 80 tunnur
til reynslu, annars hefur síldin
verið fryst til útflutnings, ef
semst um sölu, annars verður
hún notuð til beitu.