Þjóðviljinn - 17.08.1955, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 17.08.1955, Blaðsíða 1
ma m mmms aii,« Mið\ikuclagur 17. ágúst 1955 — 20. árgangur — 183. töiubiað í gær var reynd nálægt Sa- villa fyrsta þrýstiloftsorustuflug- vél sem smíðuð hefur verið á Spáni. Fyrir smíðinni hefur stað- ið Þ.ióðverjinn dr. Messer- schmitt, sem í heimsstyrjöldinni síðari teiknaði skæðustu orustu- flugvélar þýzka flughersins. Skattur á fiski stendur straum af áróðri togaraeigenda Rógsauglýsingu um Islendinga röggsam• lega svara'Ó i Trihune, málgagni Bevans Samtök togaraeigenda í brezku borgunum Fleetwood, Grimsby og Hull heimta skatt af öllum fiski af f jarlægum miðum sem landað er í Bretlandi og nota féö sem þannig safnast til að standa straum af auglýsingaherferö sinni gegn friðun fiskimiða við ísland fyrir togveiðum. Islenzku þátttakendurnir í heimsmóti æskunnar í Varsjá hafa fengið heimsókn í garðinu við skóiann þar sem þeir bjuggu, eo að hliðinu þj rpast forvit.nir áhorfendur. (Sjá á 5. síðu biaðs» ins viðta.1 \ið Öddu Báru Sigfúsdóttur um heimsmótið). Fækkun í sovéther þykir góðs viti Ákvörðun sovétstjórnarinnar að fækka mönnum undir vopnum í Sovétríkjunum um 640.000 er hvarvetna fagn* Frá þessu skýrir F. Huntly Woodcock, fiskimálafulltrúi is- lenzka sendiráðsins í London, í grein í vikublaðinu Tribune 12. ágúst. Forsíðuefni Grein Woodcocks fyllir alla Friðrik : Onð- Jón jafntefli Osló í gær. Skeyti til Þjóðviljans. f annarri umferð í Norður- landamótinu í skák fóru leikar þannig að Friðrik Ólafsson gerði jafntefli við Guðjón M. Sigurðsson. Ingi R. Jóhannsson tefldi við Hildebrand, og varð það biðskák sem Ingi vinnur væntanlega. Bent Larsen vann Sterner. f meistaraflokki unnu Jón og Lárus skákir sínar. Ingvar vann Arinbjörn. Guðmundur (Leiðrétting: Frásögnin af úr- slitum í meistaraflokki i fyrstu umferð áttu að vera á þessa leið: Ingvar vann sína skák, Arinbjöm og Lárus gerðu jafntefli; Jón Pálsson tapaði). Kandtökur í Argentínu Lögreglan í Buenos Aires, höf- uðborg Argentínu, hefur hand- tekið 55 menn og er þeim gefin að sök aðild að samsæri um að ráða af dögum Peron forseta og æðstu menn hersins. Þjóðviljinn hefur nú í heila viku beðið dr. Kristin Guð- mundsson utanríkisráðherra að skýra löndum sínum frá því hvort það sé rétt hermt í bandaríska stórblaðinu New York Times, að Bandarikja- menn hj'ggi á að gera stóra flotahöfn hérlendis og eigi hún að kosta 3—4 milljarða króna. Þjóðviljinn hefur einnig spurt dr. Kristin hver sé afstaða : hans og ríkisstjórnarinnar til slikrar málaleitunar. t Enn hefur ekkert svar borizt ÍTá utanríkisráðherra ,og ekki ■ staðið orð í málgagpi hans. - fyrstu síðu blaðsins undir stórri fyrirsögn: ,,„í fyrsta skipti í sögu okkar hefur verið sett á okkur viðskiptabann", ÍSLAND SAKFELLIR TOGARA- EIGEN DLRN’ A“ Þama hrekur fiskimálafulitrú- inn lið fyrir lið ósannindin, rangfærslurnar og róginn sem úir og grúir af i auglýsingu togaraeigenda, sem Þjóðviljinn hefur áður skýrt frá og birzt hefur í ýmsum víðlesnustu blöð- um Bretlands. 16 atriði Woodcock tekur 16 staðhæf- í milljónaborginni Bombay, sem liggur skammt frá Goa á vesturströnd Indlandsskaga, var allsher.jarverkfall í gær til að mótmæla framferði Portúgala, sem skutu á vopnlausa, ind- verska kröfugöngumenn. Mann- fjöldi fór um götumar og krafð- ist þess að Portúgöium yrði sýnt- í tvo heimana. Fáni Portúgals var slitinn niður af portúgölsku ræðismannsskrifstofunni og ind- verski fáninn dreginn í hálfa stöng í staðinn. í Nýju DehJi, höfuðborg Ind- Hinsvegar skýrir Tíminn svo frá í gær að dr. Kristinn hafi verið á skemmtun í Homafirði um helgina, og kunna þær ann- ir að valda þögn hans tiJ þessa. JÞví verður ekki trúað að ut- anríkisráðherra neiti að gefa þjóð sinni skýrslu um þetta alvarlega mál; hann brygðist þá sjálfsögðustu skyldum sín- um á jafnvel cnn freklegri hátt en fyrirrennari hans í embætt- inu. Þjóðviljinn ítrekar því fyr- irspumir sjnar enn einu sinni og væntir skýrra og skjótra svara.. ' . - V ,.';v ingar orðrétt upp úr auglýs- ingunni og sýnir fram á ósann- indin og rangfærslurnar sem i þeim felast. Að lokum skýrir hann frá því að brezku togara- eigendurnir hafa neytt einokun- araðstöðu sinnar til að skatt- Framhald á 6. síðu. Olga vex í Marokkó Flugritum liefur verið dreiff i borgum Franska Marokkó og er þar skorað á landsmenn að gera allsherjarverkfaJl 20. ágúst, en þann dag eru tvö ár liðin síðan Frakkar fluttu Marokkó- soldán í útlegð fyrir stuðning við sjálfstæðishreyfinguna í landinu. Franski herinn i Mar- okkó hefur fengið liðsauka. lands, var sendiráð Bretlands grýtt þegar kröfu mannfjölda um að brezki fáinn yrði dreginn Framhald á 3. síðu. í ræðu í Pyongyang, höfuð- borg Norður-Kóreu, sagði Kim Ir Sen forsætisráðherra að stjórn sín væri þess fýsandi að stjórn- ir beggja hluta landsins skuld- bindu sig til að beita ekki valdi til að sameipa það. Jafnframt lagði hann til að fækkað yrði í herjum beggja landshluta svo að hvorugum gæti stafað árás- arhætta af her hins. Bauð for- sætisráðherrann stjórn Suður- Kóreu viðræður um sameiningu landsins hið fyrsta. Syngman Rhee, forseti Suður- Kóreu, flutti ræðu í Seoul. Hét hann á Vesturveldin að „hverfa af þeirri óheillabraut að gera málamiðlanir við kommúnista". Kvað Ree lifsnauðsyn að „hrekja kommúnismann til baka“ og ekki mætti horfa í að beita til þess valdi. í gær var boði Kim Ir Sen um . samninga1 hafnað. í Seoul. Sagði talsmaður. stjómar Rhee, að. Jules Mocli, fulltrúi Frakk- Jands í afvopnunarnefnd SÞ, sagði i Paris að ákvörðun sovét- stjómarinnar væri góðs viti, nú væru meiri líkur en nokkru sinni fyrr á árangri af starfi afvopn- unamefndarinnar, sem hefst í lok þessa mánaðar i New York. Dulles, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði frétta- mönnum í Washington að hann að krafa hennar væri að her Norður-Kóreu yrði lagður niður og ekki kæmi til mála að minnka her Suður-Kóreu. fagnaði tilkynningu sovétstjóm- arinnar. Taldi hann þessa á- kvprðun merki þess, að forustu- menn Sovétrikjanna hefðu sann- færzt um friðarvilja stjóma Vesturveldanna. Isvestia. málgagn sovétstjórn- arinnar, segir að mjög myndi draga úr viðsjám í heiminum ef stjórnir Bandarikjanna, Bret- lands og FrakkJands fylgdu foi'- dærai sovétstjómarinnar og fækkuðu i her.ium sínum. Stolin vopn fundin Lögreglan i London fann f gær ölJ vopnin sem rænt var úr vopnabúri brezka hersins á laugardagsnóttina. Hafði vopn- unum verið komið fyrir í kjall- ; ara liálfhrunins húss í London. Nokkrir írar hafa verið hand- ‘ teknir vegna ránsins. I | Ríkisstjórnin heldur áfram verðbólguherferðinni: | Verðhækkun á ffski Veröbólguherferö rikisstjórnarinnar heldur á- frarn meö dagvaxandi punga. Nú hefur algengasta neyzluvara alinennings, fiskur og fiskafuröir, haekkaö í verði, og er birt auglýsing um það á öör- um staö í blaöinu. Nýr porskur, hausaöur, hœkkar um 20 auxa kílóiö upp í kr. 2,80. Ný ýsa, hausuð, hœkkar um 15 aura kílóiö upp í kr. 3,15. Fiskflök tuekka í smpuöu hhctfaili, og fiskfarsiö hœkkar úr kr. 7,80 íkr. 8,40 kílóiö. Hœkktin pessi rennur einvöröungu til fisksal- anna, sjómenn eiga ekki aö fá einn eyri af 'henni. : 2; Fyrirspurnir til utanríkis ráðherra ítrekaðar Storborgir Indlands i upp- nárni útaf vígunum í Goa Stórborgir Indlands voru í uppnámi í gær útaf drápi 20 Indverja í portúgölsku nýlendunni Goa. Syngman Rhee heimtar stríð, Kim Ir Sen býður afvopnun Þess hefur verið minnzt bæði í Norður- og Suöur-Kóreu að áratugur er liöinn síðan stjóm Japans á landinu lauk.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.