Þjóðviljinn - 17.08.1955, Side 7

Þjóðviljinn - 17.08.1955, Side 7
Miðvikudagur 17. ágtfst 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (7 Hans Kirk: 70. dagur um um þetta leyti árs þegar vorið var á leiðinni og. það var næstum hægt að finna af þvi ilminn. Leirgatan var kuldaleg og bláleit í fölri morgunsólinni og stöku sinnmn brast ís undir fótum hans. Nokkrir mjólkur- vagnar voru á leið með brúsana í mjólkurbúið; hann kinkaði kolli til ökumannanna, sjálfur hafði hann flutt mjólkina sem vinnumaður í æsku sinni. Á einum stað var verið að bera húsdýraáburð á völhnn og hann andaði með velþóknun að sér sterkri, rammri lyktinni. Æjá, haugurinn gat líka ilmað sætt, þegar maður kunni að meta hann. Hann nam allt í einu staðar, studdist við eikarstarf sinn og hlustaði. Jú, sem hann var lifandi var lævh'kinn kominn. En gæti hann spjarað sig, ef það kæmu vorhret, tötrið litla? Þennan fagra morgun fór hann í lengri göngu en hann var vanur, og það var nokkuð liðið á morguninn þegar hann kom heim. Ráðskonan kom þjótandi á móti honum áður en hann var búinn að opna hhðið. — Frúin er orðin veik. Ég er búin að hringja í lækninn og hann lofaði að koma rrndir eins. Honum varð hrollkalt um allan kroppinn og haxm studdist þungt við staf sinn. — Er hún dáin? spurði hann. — Nei, nei, hún er lifandi, það leið yfir hana, ég kom að henni þar sem hún lá í borðstofúnni rétt eftir að póst- urinn kom. Ég kom henni í rúmið og hlúði að henni eins vel og ég gat. En hún er lifandi .... Hann hljóp inn, gaf sér ekki tíma til að hengja yfir- höfnina á snagann og flýtti sér inn í. svefnherbergið. Þar lá Kjestín afklædd. til hálfs í gamla, gula rúminu. Andlit hennar var náfölt og hún dró andann þungt og með erfiðismunum. Hann fleygði sér á kné hjá rúminu og tók um máttvana hönd hennar. — Kjestín, Kjestín mín, hvíslaði hann. Hún svaraði ekki, og hann vissi ekki hve lengí hann hafði legið á hnjánum við rúm hennar, haldið xim hönd hennar og starað kvíðandi og harmþrunginn á andlit heirnar, þegar læknirinn kom. Hann flýtti sér að rúm- inu, gerði á henni skyndirannsókn og gaf henni sprautu. — Deyr hún, læknir? hvíslaði Grejs Klitgaard. — Hjartaköst virðast oft verri en þau eru í raun og veru, en auðvitað verðum við aö vera við öllu búnir. 1. Ég tók hjúkrunarkonu mð mér og kona yðar verður að hafa fullkomna ró. — En bömin? r — í yðar sporum myndi ég ekki kalla á þau að svo stöddu, Klitgaard forstjóri, sagði læknirinn. Þótt hún komist vonandi yfir þetta, verður hún svo máttfarin fyrstu dagana að hún þolir enga geðshræringu. —- Þetta er rétt hjá yður, sagði Grejs. Þá læt ég bömin ekki vita um þetta strax. Hann gekk inn í borðstofuna og settist að morgun- verðarborðinu, meðan læknirinn og hjúkrunarkonan af- klæddu Kjestínu og gerðu á henni nákvæmari rann- sókn. Hann hafði enga matarlyst, hellti aðeins hálfköldu kaffi í bollann sinn og honum fannst af því beizkju- bragð. Morgunblöðin lágu hjá bolla Kjestínar ásamt nokkrum bréfum sem hún hafði sjálfsagt verið að lesa þegar hún veiktist og hneig út af. Hann tók bréf sem tekið hafði verið út úr umslaginu, leit á það og fylltist skyndilegum áhuga. Hvað í ósköpun- um stóð þarna? Hann fægði gleraugun sín vandlega, hnyklaði brýrnar og las: „Til hemiangai'ans Klitgaards! Getið þér og synir yðar varið það fyrir samvizku yðar að svíkja yðar eigið föðurland með því að láta stjórnast af ágimd og vinna 1 fyrir óvinina sem hafa hertekið það með vopnavaldi. Þér vitið eins og allir aðrir að eina von Danmerkur um aö vinna aftur frelsi sitt er sú að nasistarnir tapi styrj- öldinni. En þrátt fyrir það hafið þér gengið í þjónustu óvinanna og látið vður ekki detta í hug að hægt sé að leyna því hve fyrirtæki yðar hagnast á því. Það er ekkert leyndarmál heldur, að synir yðar halda stórveizlur fyrir •••■■►••■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■•■■■■■•■•■■■■•■•■••■■■■■■■■■•••■•■.a«»MBM*»»aBMM«BMM»»i !■■■■■■>' i pappir trvggir : „Velox“ pappírinn er framleiddur í öllum gráð- : um til þess að gefa beztan árangur eftir öllum [ fihnum. I Gætið að nafninu „Velox“ aftan á sérhverju l myndaeintaki. S 4é i imi !! „Velox"pappír j er KODAK framleiðsla i: i Engin lán Framhald af 4. síðu. af því að fjármagn. vantar fyrir. kaupum á efni til áfram- haldandi framkvæmda. Þannig hafa efndimar reynzt til þessa á loforðunum fögru frá því í vor. En er ekki mál að þessu ástandi linni? Finnst ekki rík- isstjóminni og trúnaðarmönn- um hennar tími til þess kom- inn að binda endi á baktjaida- togið og samningamakkið og að þeir mörgu sem stöðvaðir eru með hús sin eða íbúðir fari að sjá húsnæðislöggjöfina framkvæmda þrátt fyrir alla galla hennar og ófullkomleika? : Einkaumboðsmenn fyrir KODAK Ltd. : VERZtUN HANS PETFRSEN IÍ.F. Bankastræti 4. — Reykjavík. ^^••••■■••^■■■••■■•■■■•••■■•■■•■■■■■■■•■■■■■■■•■■••••■•■■■•« »•••■■••• ••■•■* !■■■■■■■■■■■ ■••«■••■•••■■■■■•■■■*••••■■■»■••■■■■' ■■■*•■■•■■■■■■■• BEZT-útsalan-BEZT 2 útsöludagar eftir BEZT Vesturgötu 3. Gluggar h.f. Skipholti 5. Sími 82287 Er byrjaður aftur að máia bíla. — Fljót afgreiðsla. Málarastofan Gamp trípólí. sími 82047., á drengi, margar teg. Fischersundi dmllisþáítnr Af liaía gagn al Möðru Þegar litla prjóna- hettan er þvegin er oft erfitt að þurrka hana án þess að hún aflag- ist og þá er hægt að blása upp blöðru, svo að hún verði á stærð við bamshöfuð og þurrka hettuna á henni. Þetta er á- gæt hugmynd því að allt of margar barnahúfur eru eyðilagðar fjTÍr það að þær eru illa þurrkaðar. Það er ekki hsegt að nota þessa aðferð við flötu húfumar, heldur má þá nota disk innaní húfuna. Ef einhverjum líkar ekki að nota blöðm í þessum tilgangi er hægt að notast við sultutaus- krukku á hvorfi. Ertusáttviðbakið og fæturná? Reyndu einhvern tíma að rétta úr þér, gera . þig mátt- lausa í öxlunura og láta tung- una hvila máttlausa í neðri- gónrnum — við það hvílast andlitsvöðvarnir og notaleg ró færist yfir mann. Lífstykki og þröng mjaðmabelti bæta ekki vaxtarlagið, því að þrýsting- urinn hefur áhrif á aðra hluta líkamans, og limaburðurinn verður hjákátlegur. Þegar þú hefur tækifæri til skaltu vinna sitjandi og ef þú vilt láta þér líða reglulega vel skaltu fara úr skónum og leggja fætuma upp á eitthvert húsgagn. Ef þú ert mjög þreytt í fótunum geturðu líka nokkmm sinnum á dag lagzt á bakið á gólfið með fæturna upp að vegg; það lít- ur ef til vill dálítið undarlega út fyrir þann sem kemur í heimsókn en manni líður betur í fótunum og þreytusvipurinn hverfur af andlitinu. Ulgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. — Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb), Sigurður Guðmundsson — Fréttarit- JTmuaJLjlLaaa■ «»■«■<■ st-óri: Jón Bjarnason. — Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjami BeræcKktsson, Guðmundur Vigfússon, ívar H. Jónsson, Magnús Torfí Óiaísson. — Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. — Rit-stjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 19. — Sími: 7500 (3 liuur). — Áskriftarverð kr. 20 á mánuði í Reykjavík og nágrenni; kr. 17 annars staðar. — Lausasöluverð kr. 1. — Prentsm. Þjóðviljans h.f..

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.