Þjóðviljinn - 21.08.1955, Síða 5

Þjóðviljinn - 21.08.1955, Síða 5
AÐ er langt á mílíi ís- lands og Grúsiu og býsna :f jarskyldar þjóðir sem byggja J>essi lönd. Þó hafa fróðir ferðalangar líkt þessum tveim- ur þjóðum saman, báðar •hafa verið nefndar söguþjóð- ir, báðar telja fornar bók- menntir dýrustu eign sína; frægasta skáld Griisa, Rústa- velí var samtímamaður Snorra Sturlusonar. Ekki þarf maður að dveljast lengi í Grúsíu til að finna að saga og bók- menntaarfur eru þessari þjóð engin rykfallin viðfangsefni fræðimanna heldur lifandi veruleiki, snar þáttur af nú- timanum. Rímur Rústavelis um riddarann á tigrisfeldin- um kann hvert mannsbam. Skáldin sækja enn yrkisefni sín í sögu þjóðarinnar, baráttu hennar fyrir frelsi, viðnám hennar gegn margra alda á- nauð. Og það er greinilegt að þessi viðfangsefni eru engin langsótt rómantík, fólkið elsk- ar bókmenntir sínar og sögu, orð skáldanna hafa verið lifs- hlóm þess öld fram af öld. Mér er minnisstæður ballett .sem við sáum eitt kvöid, en þ<ar segir á einum stað frá því er söguhetjan kemur heim til ættlands sins eftir þreng- ingar meðal óvinaþjóða, sem vildu leggja Grúsíu undir sig. Um leið og hann steig fæti á grúsískt land kastaði hann sér til jarðar og kyssti mold- ur í dalverpi og állháar hlið- ar beggja vegna, en eftir borg- inni endilangri rennur fljótið Kúra, straumþungt og mjólk- urhvítt á lit, og börain hafa af þvi mikið gaman að láta sig bera-st með straumnum, fljótandi á bilslöngum i sumarhitanum. Árbakkarair Magnús Kjartansson: Séð í Grúsin eru viða najög háir og þver- hníptir, en efst hreykjast gömul hús og hafa verið byggð svo tæpt að maður á von á að þau velti ofan i fljótið á næsta andartaki. En meginhluti borgarinnar er nýr, breiðar götur með fögrum trjám og reisuleg hús. í Tví- lýsi búa nú 6-700 þúsundir Bráðið járn rennur eins og lækjarspræna úr bræðslu- ofnununi í Kústaví og minnlr íslending á Heklugosið. Ina, og ég fann hvernig til- finningamar hrísluðust um á- horfenduma og sumum vökn- aði um augu. Grúsar eiga enn í ríkum mæli þá upprunalegu ættjarðarást, sem nú er talin úrelt dyggð á Vesturlöndum og jafnvel kommúnismi. Það er auðvelt fýrir Islend- ing að una sér vel í þessu j andrúmslofti, og raunar er landslagið kringum höfuð- horgina öldungis ekki frá- brugðið því sem hér tíðkast víða; ef ekki væri gróðurfar- ið, hefði oft verið hægt að hugsa sér að maður væri staddur austur í Hreppum eða uppi í Borgarfirði. Og fyrst farið er að tína til skyldjeika sakar ekki að geta þess að höfuðborgin, Tbilisi, sem Kilj- an nefnir Tvílýsi að hætti Fjölnismanna, er kennd við heitar laugar sem þar finnast. Auðvitað eiga Grúsar sögu um upphaf borgarinnar, og segir þar frá því að höfðingi einn var á veiðum. Hann skaut fugl og leitaði hann uppi, en er að var komið hafði fuglinn lent ofan í hver og var soðinn, þannig að ekki þurfti frekar að hafa fyrir matseldinni. Þóttu höfðingj- anum þetta mikil landgæði og ákvað að reisa skyldi borg á staðnum. Tvílýsi var öldum saman aðsetursstaður þar- lendra þjóðhöfðingja, og ýms hverfi borgarinnar bera aust- urlenzkan svip. Borgin stend- manna en íbúar Grúsíu eru hálf fjórða milljón. ■ ÓTT Grúsar hafi miklar mætur á fornri menningu sinni1 og sögu þurfa þeir ekki að leita langt aftur í aldir til að finna minnisverða atburði. Stalín var Grúsíumað- ur og hóf baráttu sína í heimalandinu. Hann bar allan svip ættbálks síns, oft rák- umst við á menn sem .voru mjög svipaðir honum í öllu útliti og fasi, og hver veit nema einhverjir þeirra hafi verið frændur hans. Herberg- iskytran í Gori, þar sem Stal- ín fæddist, er nú safn, og þangað streyma árlega tugir þúsunda ferðamanna víðsveg- ar að úr Sovétríkjunum og útlendingar sem koma á þess- ar slóðir. Og víða má sjá merki um baráttu hans og félaga hans. I Tvílýsi er t.d. enn varðveitt prentsmiðja sem starfrækt var með leynd skömmu eftir síðustu aldamót. Inngangurinn var neðst í djúpum brunni, þaðan lá hlykkjóttur gangur inn í all- stórt neðanjarðarherbergi þar sem prentsmiðjan var. Allt þetta mannvirki var grafið að næturþeli og moldin dregin upp úr brunninum í skjólum. Þarna gátu Stalín og félagar hans síðan dulizt lögreglu- njósnurum um tveggja ára skeið, og þeir prentuðu bæk- linga, blöð og ávörp í lítilli Sunnudagur: 21. ágúst 1956 — ÞJÓÐVlLJITÍfN — (5 Tvilýsi er í dal og allháir ásar beggja vegna. Á öðrum ásnum er vinsælastl skemmtistaður bæjarbúa, minnis- stætt úfsýni, fagrir garðar, leiktækl og vedtingahús þa3 sem sést á myndinni, súlnahús sem vel mætti heita Vindheinuir. Niður á milli súlnanna sést niður á þökin í höfuöborginni. handpressu við lampatýru í fúlu lofti og kulda og sáðu fræjum byltingarinnar meðal landa sinna. I húsi fyrir ofan leyniherbergið var jafnan kona á verði meðan prentað var og gaf merki ef einhver grunsamlegur nálgaðist. . Að lokum fann lögreglan þetta verkstæði byltingarinnar af einskærri tilviljun.'Hún hafði komizt yfir ólögleg blöð í húsi í nánd, það var kveikt í þeim og þeim kastað niður í brunn- iim djúpa. Einn lögreglumann- anna tók þá eftir því að sum blöðin soguðust til hliðar neðst í brunninum og virtust hverfa inn í vegginn. Var þá farið að athuga þetta nánar og allt komst upp. Margir byltingarmanna voru hand- teknir og dæmdir til Síberíu- vistar en Stalín komst undan í það skiptið. Ein ltonan úr hópnum lifir enn og býr í Tvílýsi, skammt frá þessu ein- kennilega mannvirki sem er minnisstætt dæmi um þá hörðu baráttu sem sósíalistar Rússaveldis urðu að heyja áð- ur en sigur vannst. I RÚSAR eru myndarlegt fólk, karlmennirnir oft hávaxnir, beinnefjaðir með svart strítt hár og yfirskegg, fyrirmannlegir í fasi. Konurn- ar eru fríðar, með reglulega andlitsdrætti, holdugar og frjósemislegar, með mikið svart hár sem þær skipta í miðju. Fólk er mjög vel klætt, í smekklegum fötum úr góð- um efnum, og ekki fékk ég betur séð en lífskjör væru hér betri en í Moskvu, og var þó þetta suðlæga land .fyrir nokkrum áratugum afrækt ný- lenda Rússaveldis, fólkið kúg- að og hrjáð. Grúsar þreytast líka seint á því að segja manni frá þeim ótrúlegu um- skiptum sem orðið hafi á skömmum tima. Enn sjást þó merki liðinna alda. Andspænis gistihúsinu okkar var kirkja, en Grúsar hafa játað kristna trú flest- um þjóðum lengur, og enn stendur kirkja frá fjórðu öld á þeim stað þar sem kristni var leidd í lög í upphafi þeirr- ar aldar. Ekki veit ég þó hversu sanntrúaðir þarlendir menn hafa verið, og nú virð- ist kirkjusókn litlu meiri en á Islandi. Voru kirkjugestir einkum aldurhnignar konur. Einn sunnudagsmorgun er messað var höfðu bætzt við nýir gestir: fimm beininga- menn sem sátu flötum bein- um fyrir framan kirkjudyrn- ar. Kirkjufólk hafði auðsjá- anlega átt von á þessari gest- komu, því flestir höfðu með sér að heiman fimm pinkia sem þeir réttu beiningamönn- unum, aura eða mat. Var okk- ur tjáð að kaþólskt fólk teldi það óhjákvæmilegan þátt í kirkjugöngu að gefa fátækum, og myndu beiningamenn þess- ir vera á launum hjá kirkj- unni til þess að unnt væri að messa að foraum sið. H AÐ er hægt að una sér lengi við að skoða fornar borgir í Grúsíu, gamlar kirkj- ur og kastala, en svo fór að ég bað að lokum um að fá að skoða þá borg sem nýjust væri í þessu landi. Einn morg- uninn lögðum við af stað í þann leiðangur og ókum í bíl niður með Kúru í vesturátt. Þegar út úr Tvílýsi kom var byggðin næsta strjál, sveita- fólkið býr í stórum samyrkju- þorpum og nýtur þar kosta bæjarlífsins, en ekur á morgn- ana út á akra sína. Auk þess er landið ekki frjósamt í Grúsíu austanverðri, loftslag- ið er of þurrt; vestlægari hluti landsins er hinsvegar sífellt sumarland og aldingarður, þar vex te og appelsínur, vín- ber og tóbak og baðmull. En í austurhluta landsins er nú verið að gera mikið áveitu- kerfi, þangað er veitt fjalla- lækjum, og er þegar búið að gera stórt stöðuvatn í miklum dal skammt frá Tvílýsi. Það- an á að vökva sextíu þúsundir hektara lands, en vatnið vérð- ur einnig sundstaður og skemmtistaður bæjarbúa. Og ekki má gleyma. því að þarna eru nú þegar stundaðar fiski- veiðar; voru valdar til klaks þær tegundir sem vísinda- menn töldu hentugastar og hafa dafnað svo vel að sund- fólk er farið að kvarta. Við ökum fram með þessu nýja vatni, og vegurinn bugð- ast áfram milli kjarrivaxinni hlíða; hér og þar eru tjóðrað- ir asnar á beit, en þeir eru vinsæl húsdýr á þessum slóð- um; önnur nýstárleg dýr eru bufflar, grófgerð dráttardýr sem velta sér í leirpollum. Senn ökum við gegnum mikið samyrkjuþorp; þar eru öll hús ný, lítil einbýlishús, snot- ur. Okkur er sagt að þarna sé nýrækt og hafi þorpið allt verið byggt fyrir atbeina rik- isins. Síðan voru húsin afhent til eignar þeim sem vildu setj- ast þarna að og hefja bú- skap, og stóð ekki á undir- tektum. En nú birtast fram- undan miklir reykháfar og húsaþyrpingar. Við erum kom- in á leiðarenda; þetta er Rústaví, yngsta borg Grúsíu. ■ Í" Rústaví búa nú fimmtíu þúsundir manna og borgin á að geta rúmað 120 þúsundir að nokkrum árum liðnum, en fyrir 10 árum stóð þar ekkert hús; þar var auðn- in ein, þurr og gróður- snauð slétta. Á styrjaldarár- unum ákvað ríkisstjórnin að þarna skyldi rísa borg. Ekki stafaði staðarvalið af neinum duttlungum, heldur var til- gangurinn að koma upp miklu stálveri og það þurfti að vera miðsvæðis milli hrá- efnalindanna sem eru víðsveg- ar í Grúsíu og Atsérbætsjan. Bygging versins hófst 1946 og framleiðsla er hafin fyrir löngu, nú vinna í stálverinu átta þúsundir manna. Það hef- Framhald á 7. síðu. ■ I'etta er elzta kirkja Grúsíu, relst fyrir tæpum 16 öldum á þeim stað þar sem kristni var tekin í lög.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.