Þjóðviljinn - 21.08.1955, Page 8
Enn haío IjöSbýlishús bæjorins
ekki verið sloðsett né teiknuð
Ihaldið afsakar sig með því að stjóm Ólafs Thórs hafi enn ekki fram-
kvæmt lögin um lán til íhúðabygginga
Enn er ekki farið að ákveða stað þeim 48 íbúðum 1 sam-
býlishúsum er bærinn ætlar að láta byggja. Teikningum
er einnig ólokið enn.
Með þessum slóðaskap og sviksemi hefur bæjarstjórn-
armeirihlutinn hindrað að húsin verði byggð á þessu ári.
Sigurður Guðgeirsson beindi
fyrirspurnum um þetta mál tii
borgarstjóra á síðasta bæjar-
stjórnarfundi, hvað liði að stað-
setja þessi fjölbýlishús og teikna
þau. Ennfremur hvenær mætti
vænta þess að raðhúsin í Bú-
staðahverfinu verði fokheld.
Bygging 48 íbúða i sambýlis-
húsum var samþykkt í bæjar-
ráði 5. apríl sl. og sú sam-
þykkt bæjarráðs var staðfest af
bæjarstjórn 5. maí sl. Bæjar-
stjórnarmeirihlutinn hefur látið
sumarið líða án þess að hefjast
nokkuð handa um framkvæmdir.
Enn er ekki farið að ákveða
hvar húsin skuli byggð og teikn-
ingar liggja ekki fyrir svo vitað
sé. Þar sem þetta hvorttveggja
vantar enn eru allar horfur á
því að Sjálfstæðisflokknum tak-
ist með þessari sviksemi sinni að
koma i veg fyrir að bygging
þessara íbúða verði nokkuð
meira á þessu ári en pappírs-
samþykkt. Húsnæðisleysingjam-
ir geta hinsvegar ekki flutt inn
í pappírssamþykktir Sjálfstæðis-
flokksins, þótt þær hafi orðið
fyrirferðarmiklar í Morgunblað-
inu.
Hve lengi enn?
Borgarstjóri svaraði fyrir-
spurnum Sigurðar Guðgeirssonar
á þann veg að undirbúningur
íbúðarbygginganna væri í full-
um gangi, — á sinum tíma full-
yrti hann líka mánuðum eða ár-
um saman að byggingarráðstefna
yrði haldin, og þá myndu
finnast leiðir til lausnar hús-
næðisvandræðunum. Sú bygging-
arráðstefna hefur ekki verið
haldin enn, og er hætt við að
„undirbúningur" fjölbýlishús-
anna geti tekið nokkra mánuð-
ina enn.
s
Á aldrei að frainkvæma
þau Iög?
Þá sagði borgarstjóri að bygg-
ing fjölbýlishúsanna hefði verið
samþykkt með tilliti til hinna
nýju laga Alþingis um lán til
íbúðabygginga, en lánveitingar
væru ekki komnar til fram-
kvæmda ennþá.
Það voru raunar ekki fréttir
fyrir neinn, því hundruð manna
er byggðu á sl. vori vonir sínar
um húsnæði við þessi lánveit-
ingalög hafa fengið að sann-
reyna í sumar að lög þessi eru
Verkakonur í Keflavik
Framhald af 1. síðu.
ætti ekki að byrja fyrr en á
miðnætti aðfaranótt 19. ágúst.
Byggði hann þetta á því orðalagi
í bréfi sáttasemjara rikisins að
það skyldi hefjast frá og með 18.
ágúst, kl. 12 á miðnætti. Mundu
þó flestir skilja þetta svo að átt
sé við upphaf sólarhringsins 18.
ágúst.
Þeir vildu ekki bjarga
verðmætum!
Til þess að bjarga verðmæt-
um þeirra atvinnfirekenda, sem
kynnu að hafa látið báta sína
róa vegna þessarai falskenning-
ar, bauð Vilborg Auðunsdóttir
form. Verkakvennafélags Kefla-
víkur, að sáttasemjari sendi
skeyti frá báðum aðilum um að
áður boðuðu verkfalli i Keflavík
væri frestað um einn sólar-
hring og kæmi því ekki til
framkvæmda fyrr en á miðnætti
aðfaranótt þess 19. ágúst. En
svo undarlega brá við að at-
vinnurekendur höfnuðu þessu
boði, og fóru þar að ráðum síns
nýja ráðgjafa og „ráðherra“,
Björgvins Sigurðssonar. Slíkum
kenjakrökkum er erfitt að gera
til hæfis.
Björgvin las út úr þvi
19. ágúst!
En hversu óskammfeilið það
var að véfengja verkíallsboðun-
ina, sést þó enn betur þegar
athugað er hið skýra orðalag á
bréfi því sem verkakvennaféiag-
ið sendi atvinnurekendum löngu
áður en verkfallið hófst, Það var
orðrétt á þessa ieið:
Fundur trúnaðarmannaráðs
V erkakvennaf éi ags Keflavíkur
og Njarðvíkur, haidinn 6. ágúst
1955, samþykkir að lýsa yfir
verkfaili fyrir hönd verkakvenna
í Keflavík og Njarðvíkum að-
faranótt 18. ágúst þessa árs kl.
12 á miðnætti, hafi samningar
ekki tekizt fyrir þann tíma við
Vinnuveitendasamband Suður-
nesja og Útvegsbændafélag
Keflavíkur um kaup og kjör
verkakvenna. Þetta tilkynnist
yður hér með. Virðingarfyllst.
Keflavík, 6. ágúst 1955.“ Undir
þetta bréf skrifaði Vilborg Auð-
unsdóttir formaður féiagsins og
10 aðrar konur sem ásamt henni
eru í trúnaðarmannaráði Verka-
kvennafélags Keflavikur.
Þetta bréf tekur af öli tvímæli
um það að verkfallið átti að
hefjast aðfaranótt 18. ágúst,
enda varð það svo. En víst er
að hvorki er slík framkoma
drengileg né heppileg í vinnu-
deilum, enda sáriðrast atvinnu-
rekendur eftir að hafa tekið
þátt í þessu frumhlaupi „sæta-
brauðsdrengsins“.
Eftir því verður tekið
Það er sannfæring verka-
kvenna i Keflavík og á Akra-
nesi, eins og raunar kvenna um
allt land að þeim beri sama kaup
og körlum fyrir sömu vinnu. Að
þessu sinni er þó krafa þeirra
aðeins um að fá kaup sem er
meira en 20% lægra en viður-
kennt karlmannskaup. Mun nú
sýna sig hvaða sanngirni Vinnu-
veitendasambandið og atvinnu-
rekendur á Suðurnesjum og
Akranesi sýna verkakonum. Ail-
ur verkalýður landsins mun
fylgjast vel með því, — og ekki
gleyma verkakonur því á næstu
árum.
aðeins fallega orðað pappírs-
plagg sem engum hefur hjálpað
enn.
Sigurður Guðgeirsson kvað
fulla þörf á þvi að fara að aug-
lýsa til umsóknar ibúðir þær í
raðhúsunum í Bústaðahverfi,
sem herskálabúum var heitinn
forgangsréttur að á sínum tíma.
Flutti hann tillögu um að íbúð-
irnar væru auglýstar.
Jóhann Hafstein svaraði þvi
til að ástæðulaust væri að fara
að augiýsa ibúðimar, það leysti
engan vanda, en rétt væri að
athuga að „gefa braggabúum
kost á að ganga að einhverju
Ieyti fyrir um þessi hús“! Fyrir-
heit íhaldsins um forgangsrétt
braggabúa að íbúðum þessum
er nú orðið þannig að „gefa
þeim kost á að ganga að ein-
hverju Ieyti fyrir“!! Herskálabú-
ar munu vafalaust skilja hvað
það þýðir í framkvæmd.
Þannig eru loforð og sam-
þykktir bæjarstjórnarmerrihlut-
ans í húsnæðismálum. — íhaldið
felldi að umræðum loknum till.
Sigurðar Guðgeirssonar.
þióÐvujniN
Sunnudagur 21. ágúst 1955 — 20. árgangnr — 187. tölublaö
Uppsögn loftferðasamningsins
gerð vegna þrýstings frá SAS
Svíar segjast hafa sagt honum upp fyrir
hönd Dana og Norðmanna!
Uppsögn Svia á loftferöasamningnum \áð íslendinga er
svo greinilega beint gegn Loftleiðum og samkeppni þeirra
við SAS í Atlanzhafsfluginu, að enginn hefur gert tilraun
til að neita þvi.
Svo segir í ritstjómargrein 11.
þ.m. í norska blaðinu Bergens
Tidende, sem er eitt þeirra blaða
á Norðurlöndum, sem hollust
hafa verið Islendingum í deil-
unni við Svía.
Blaðið svarar skrifum sænska
stjóraarblaðsins Morgon-Tidn-
ingen um málið og segir m.a.:
„Okkur dettur ekki í hug að ef-
ast um, að sænska stjórnin hafi
farið eftir „ákvæðum samnings-
ins um uppsagnarfrest'* og beð-
ið um nýja sajnninga, þegar
hún sagði upp loftferðasamn-
ingnum við tsland fyrir 8 mán-
uðum. Við höfum heldur ekki
Kjarnorkan breytir
eyðimörkum í akra
Ráðstefnunni í Genf um friðsamlega hag-
nýtingu kjamorkunnar lauk í gær
Vonir standa til, að hægt verði að nota kjarnorkuna
til að breyta fúafenum og eyðimörkum í frjósamt akur-
lendi.
Brezki kjarneðlisfræðingurinn
John Cockroft ræddi um þetta
í fyrirlestri sem hann flutti á
kjarnorkuráðstefnunni í Genf í
fyrradag. Sagði hann, að eitt af
framtíðarverkefnum kjarnork-
unnar myndi vera að þurrka
upp mýrlendi, eins og það sem
gerir stór héruð í Afríku óbyggi-
leg mönnnum. Jafnframt væri
von til að með kjarnorkunni
mætti á ódýran hátt eima sjáv-
arvatn til að veita á eyðimerkur
og breyta þeim í frjósama akra.
f gær, síðasta dag ráðstefn-
unnar, var aðalléga rætt um, á
hvern hátt mjmdi bezt og örugg-
ast að losna við hín geislavirku
úrgangsefni kjamorkuofnanna.
Var það samhljóða álit vísinda-
mannanna, að ekki mætti að
órannsökuðu máli fleygja þeim
niður í hafdjúpin, enn væri of
lítið vitað um eðli sjávarbotns-
ins og hafstraumanna í djúp-
unum.
gagnrýnt hina formlegm hlið
málsins. Við höfum lagt ríka á-
herzlu á, að Noregur. eigi ekki
yfirleitt að skipta sér af samn-
ingum milli tveggja annarra
ríkja. En háttsettur fulltrúi
sænska u t an rí kis ráðuneytisins
hefur sagt, að Sviþjóð hafi sagt
upp samningum eftir ósk og
vegna þrýstings frá SAS og að
heita má einnig fyrir hönd
hinna tveggja SAS-landanna,
Danmerkur og Noregs, af því
að þessi lönd af ýmsum til-
greindum ástæðum gátu ekki
gert það. Þess vegna þykjumst
við hafa fulla heimild til að
fylgjast með gangi þessa máls
og gagnrýna þessa ósæmilegu
framkomu gagnvart hinni
minnstu og veikustu hinna
norrænu grannþjóða".
Dómari dæmdur
Hæstiréttur Svíþjóðar dæmdi
i gær Folke Lundqvist, dómara
við undirréttinn í Stokkhólmi, í
3 ára fangelsi fyrir svik, skjala-
fals ofl. Mál þetta hefur verið
lengi fyrir dómstólum og vakið
mikla athygli í Svíþjóð, og er þvá
þó ekki lokið. Hæstiréttur á .enn
eftir að fjalla um þrjár ákærur
á Lundqvist.
Clement Attlee leiðtogi
brezka Verkamannaflokksins,
hefur undanfarinn hálfan mán-
uð legið sjúkur. Var sjúkdómi
hans haldið leyndum, .en i gær
var tilkynnt, að hann væri orð-
inn heiil heilsu.
Búast má við breytingum á landslfðinu
eftlr leik þess vfð „pressuliðir
Leikurinn var skemmtilegur og vel leikinn
af báSum liSum þrátt fyrir slæmt veður
t>rátt fyrir mjög slæmt veður rok og rigningu var sýnilegt að hér reyndu menn
„pressuleikurinn" s.l. föstudagskvöld hinn ágætasti. Fjöl-
menni var mikið, um 5000 manns.
Við aðstæður sem þessar, er Skipuleggjari og fyrirliði liðs-
mjög erfitt að sýna góða ins, Albert Guðmundsson, á
knattspyrnu en áhorfendur
urðu ekki fyrir vonbrigðum.
Allir leikmenn iögðu sig fram
miklar þakkir skiiið fyrir þátt
sinn í leik þessum og fullvíst
er, að það er honum f\Tst og
og var á köflum sýnd ágæt j fremst að þakka, hve góður
knattspyma, báðum Jiðum til
hins mesta sóma og svo var
spenningurinn mikill, að enginn
áhorfenda varð til þess að yfir-
gefa völlinn, fyrr en dómari
hafði flautað leikinn af.
Það var næsta furðulegt hve
,,pressuliðið“ féll saman, þegar
þess er gætt, að sumir leik-
menn höfðu ekki sézt áður.
og gagnlegur leikur þessi var
fyrir landsliðið. Landsliðið á.tti
góðan leik og tók hlutverk sitt
alvarlega, enda hefði því a.nn-
ars ekki tekizt að \inna. Haldi
landsliðið þannig áfram má
mikils af því vænta í næsta
stórleik. Leikurinn var a.ll harð-
ur á köflum, en fá ódrengileg
afbrot voru framin. Það var
að ná sínu bezta og það tókst
flestum.
Eftir þennan leik ætti að
vera nokkuð auðvelt að velja
endaniega í landslið, en það
verður gert nú um helgina.
Sennilega verða fáar breyting-
ar gerðar en ætla má þó að
vinstri sóknarvængurinn sé of
veikur og sterkara. væri að setja.
þá Gunnar Guðmannsson og
Sigurð Bergsson inn í stað
Þórðar Jónssonar og Jóns Leós-
sonar, en þeir fyrrnefndu eru
báðir gamalreyndir knatt-
spyrnumenn og stóðu sig mjög
vel í þessum leik. Hörður Felix-
son hefur ekki áður leikið með
Framhald á 2. síðu.