Þjóðviljinn - 28.08.1955, Blaðsíða 4
Á) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 28. ágúst 1955
plÓSVIUINN
tJtgefandi: '
Samelnlngarflokkur alþýðu —
Sósialistafiokknrinn
Góðir gestir
Lítil skipti hafa verið með
íslendingum og Kínverjum til
.þessa, enda er langt á milli.
Enn eru það ekki nema fáir
Is'endingar sem til Kína hafa
íerðazt og enn færri Kínverj-
ar sem komið hafa til íslands.
Nú síðustu árin hafa tekizt
nokkur samskipti milli þessara
fjarlægu þjóða, einkum þó fyr-
ir forgöngu Kínversk-íslenzka
menningarfélagsins, sem stofn-
að var fyrir tveimur árum og
Alþjóðasamvinnunefndar ís-
.lenzkrar æsku. Þess er skemmst
að minnast, hve mikla athygli
og aðdáun kínverska sýningin
í Góðtemplarahúsinu vakti í
sumar. Það sýnishom sem þar
.gaf að líta af kínverskum list-
munum, listiðnaði og vörum,
uakti bæði undrun og aðdáun.
Er ekki að efa að talsverð
verzlunarviðskipti gætu tekizt
milli landanna, en þar tefur
fyrir eðlilegri þróun sú ein-
kennilega afstaða íslenzku rík-
isstjórnarinnar að viðurkenna
ekki stjórn Alþýðulýðveldisins
Kína. ísland hefur hér sérstöðu,
er eina Norðurlandaríkjanna
sem þannig hefur brugðizt við
staðreyndinni um tilvist hins
onikla alþýðulýðveldis í J'lsíu.
Hin Norðurlöndin, svo og Bret-
land og fleiri Evrópuríki, hafa
fyrir löngu viðurkennt stjórn
Alþýðulýðveldisins og tekið upp
eðlilegt stjórnmála- og við-
skiptasamband við hið nýja
Kína. Meðal þeirra þjóða eru
miklir keppinautar Islendinga
um markaði fyrir fiskafurðir
og er í blöðum þeirra ekki
farið með það sem leyndarmál
að þeir vænti sér mikils af
þeim óhemju mörkuðum, sem
opnast við það að Kína tekur
upp áætlunarbúskap, iðnvæðist
og skapar þegnum sínum sí-
.batnandi kjör. Islendingum get-
ur hlotizt af því stórtjón, að
þrjóskast lengur við að viður-
kenna Alþýðulýðveldið Kína.
Nú er kominn til íslands
fyrsti hópur Kínverja, sem
komið hefur í því skyni að
heimsækja ísland og kynnast
íslenzku þjóðinni, og þá sér-
stáklega íslenzkri æsku. Koma
þessa æskufólks frá fjarlsegri
heimsálfu hefur þegar vakið
.mikla athygli, og framkoma
þess öll og fyrstu kynni vakið
hlýju og vinarhug til þjóðar
þeirra. Allt er þetta ungt fólk,
en komið frá hinum fjarskyld-
ustu störfum, og af fimm þjóð-
ernum hinnar stóru þjóðafjöl-
skyldu Kína. Þau munu gera
sér far um að kynnast Islandi
og Islendingum sem mest þann
stutta tíma sem hér er dvalið
og flytja þann fróðleik til
heimalands síns. Formaður
sendinefndarinnar, verkamaður-
inn Lu Chao frá Peking, hefur
lagt á það áherzlu að hér hitt-
ust tvær þjóðir, sem ættu sam-
an vonina um frið og vináttu
milli þjóða. Með sama hugar-
fari, með hlýjum vinarhug,
heilsa Islendingar hinum góðu
gestum, æsku hinnar sögufrægu
kínversku þjóðar, sem nú hef-
jur „risið á fætur“ og sækir
fram til sósíalisma og velmeg-
unar, til friðar og framfara.
SKAK
Ritstj.: Guðmundur Arnlaugsson
Þegar Larsen vann Nielsen
Hættulegasti keppinautur Frið-
riks Ólafssonar á Norðurlanda-
mótinu í Ósló verður án efa
Daninn Bent Larsen. — Bent
Larsen er ungur, aðeins lítið
eitt eldri en Friðrik, og er
mesta skákmannsefni, sem fram
hefur komið í Danmörku um
langan aldur. Hann varð skák-
meistari Danmerkur í fyrsta
sinn í fyrra. en í vor vann
hann með meiri yfirburðum en
nokkru sinni hefur áður verið
gert á skákþingi Dana, síðan
landsliðsflokkurinn var stofn-
settur. Hann hlaut þar 10 vinn-
inga af 11 mögulegurn, annar
varð Axel Nielsen með 8x/4, en
þriðji Jens Enevoldsen, sem
ekki hefur tekið þátt siðustu
árin, með 7x/2 vinning. Hér fer
á eftir sú skák, sem segja má
að réði úrslitum á mótinu, hún
er tefld í níundu umferð og
með henni jók Bent forskot
sitt úr i/2 upp í iy2 vinning.
Skýringarnar eru eftir Bent
Larsen.
(Það skal tekið fram, vegna
upphafsins, að Guðmundur
Arnlaugsson afhenti Þjóðvilj-
anum handrinð að þessum
skákþætti áður en hann fór ut-
an á skákmótið í Ósló).
★
Axel Nielsen — Bent Larsen
þrýsvingi á ai.
—— e7-eö'
Með þessum leik sprengir svart-
ur hvítu rniðpeðin, þau sundr-
ast og áður en varir er svo
komið, að ekki er unnt að halda
þeim og iafnframt völdum á
d-iínunni.
24. d4xe5 Bg7xe5 25. Rf4-d3
Be5xb2 26. De2xb2 Dc7-e7 27.
e4-e5 Hd8-d7 28. Rd3-b4 Ra6-
c5 29. Hdlxd7 De7xd7 30. Hel-
e3 Ha8-d8 31. Kgl-g2 Dd7-d2
32. Db2-c3 Rc5-e4 33. Dc3xd2
Re4xd2 34. He3-c3 a7-a5 35.
Rb4-c2 Kg8-f8
Svartur skákar i því skjólinu að
hvítur getur lítið aðhafzt, c5
mundi kosta peð (Hd5) og við
f3 væri svarið a4 með óþægi-
legri hótun: Rbl.
36. Rc2-e3 Rd2-e4 37. Hc3-c2
Hd8-d3 38. c4-c5
Hvít lizt ekki á að halda áfram
óvirkri vörn með Ha2, en von-
ast eftir gagnsókn með Rc4,
ef svartur leikur Hxa3. En
hann, finnur langt.um sterkari
leik.
38. —Hd3-d2! 39. Hc2xd2 Re4x
d2. 40. f2-f3.
Ekki er betra að ieika a4: 40.
a4 Rb3 41. Rc4 Rxc5 42. Rxa5
Ke7, síðan Kd7 og b6 og vinn-
ur a-peðið. 40. f4 svarar svart-
ur með Ke7, en ekki Rb3, því
að sá leikur nægir ekki, ef e-
peðið er valdað, sjá 45. leik.
Staðan minnir á dæmi þar sem
útkoman er peðsvinningur, ef
svarti verð u engin reiknings-
skekkja á
40. — Kd2-h3 41. Re3-c4 a5-a4
42. Kg2-f2 Rb3xc5 43. Kf2-e3
Kf8-e7 44. Rc4-b6
Ella leikur svartur b 7-b5 og
vinnur. Nú snýst þetta við,
þannig að svartur vinnur peð-
in kóngsmegin!
44. — Re5-d7 45. Rb6xa5 Rd7
| xe5 46. Rat-b2 Ke7-e6
Undirbýr Kd5 með auðsóttum
vinningi. en einfaldara var Kd6.
Leiki hvítur þá. Ke4 kemur f5 [•
48. Bf4 Kd5 og svartur vinnur.
Ég reikn;iði kapphlaupið, sem
nú fer fram, mjög nákvæmlega
út, og er reyndar stoltur af
því, en það var óþörf áreynsla,
úr því að hin vinningsleiðin
dugar.
47. f3-f4 Re5-g4f
Einnig mátti leika Rd7, en
vinningsleiðin er þá löng og
torsótt.
48. KeS-d4 Rg4xh2 49. Kd4-c5
Rh2-f 1
,49. -Kd7 50. Kb6 Kc8 51. Rc4
; væri einungis sóun á tíma.
50. Kc5-b6 Rflxg3 51. Kb6xb7
^ h7-h5
Nú getur hvítur komið sér upp
i drottningu í næsta leik eftir
! svarti, en svartur vinnur þá
. með 56. -c5f. Hér brej-tir það
engu, þótt svartur reyni að ná
peðinu: 52. a4 h4 53. a5 h3
54. Rd3 Re4! 55. a6 h2 56.
a7 Rd6t 57. Kb8 (Kc7, Rb5t,
eða Kb6, Rc8f, eða loks Ka6,
58. -Dalf) hlD 58. a8D Dh8t
og vinnur. Að sama brunni ber,
þótt hvítur leiki Rd3 í 53. eða
52. leik. Hann velur þann kost-
inn sem bezti r er.
52. Kb7xc6 h5-h4 53. Rb2-dl
Rg3-e4 54. Rdl-e3 Re4-c3 55.
Kc6-c5 h4-h3 56. Re3-fl Ke6-f5
57. Kc5-d4
KH ;.j p . ;
57. Kb4 getur svartur svarað
með 57. -Rd5+ 58. Kc5 Kxf4 59.
Kxd5 og peðin vinna. Við 57.
Kc4 er Rdl bezta svarið (54.
a4 Rb2+), en ekki 57. Kc4 Rbl?
58. a4 Rd2+ 59. Rxd2 h2 60.
Rfl!
57. — Ro3-a4 58. Kd4-e3 Kf5-
g4 59. f4-f5 g6-g5 60. f5-f6 Ra4
-c3 61. Ke3-f2 Kg4-f4 62. Kf2-
gl g5-g4 63. Kgl-h2 Kf4-f3 64.
Rfl-g3
ABCDBFGH
gp M
TJfc
m. ÉH
Nú er óhætt að sleppa a-peðinu.
64. — Rc3-e4 65. Rg3-f5 Kf3-f2
65. -g3+ nægir einnig til vinn-
ings.
66. a3-a4 Re4-g5 67. a4-aö Rg5
-f3+ 68. Kh2-hl g4-g3 69. Rf5
xg3 Kf2xg3 70. a5-a6 Rf3-g5
74. a6-a7 Rg5-e4 og hvítur
gafst upp.
1. Rgl-f3 Rg8-f6 2. b2-b3 d7-d6
3. d2-d4 g7-g6 4. Bcl-b2 Bf8-g7
5. Rbl-d2 Bc8-f5
Frá skákfræðilegu sjónarmiði
verður að telja 5. -Rbd7 eðlileg-
asta framhald og er ætlun
svarts þá 6. e4 e5 7. dxe5 Rg4.
En sá sem teflir til vinnings
hlýtur að hafna þessari leið,
því að framhaldið gæti orðið
8. Rxc4 Rgxe5 9. Rfxé5 Rxe5
10. Rxe5 Bxe5 11. Bxe5 dxe5
12. Dxd8+ Kxd8 og jafnteflið
vofir yfir. Með 5. -Bf5 sýnir
svartur því, að hann óskar eft-
ir þungu og flóknu tafli.
6. Rf3-h4 Bf5-d7 7. g2-g3
Valdar riddarann og rýmir fyr-
ir biskupnum. 7. e4 var einnig
ágætur leikur, því að þá leiðir
7. -e5 8. dxe5 Rxe4 (réttara
er Rg4) 9. Rxe4 Dxh4 10.
Rf6+ til betra tafls fyrir hvít.
7. — Bd7-c6 8. Bfl-g2 Bc6xg2
9. Rh4xg2 d6-d5
Rökrétt afleiðing biskupakaup-
anna.
10. 0-0 0-0 11. c2-c4 Rb8-a6
12. Rg2-f4 c7-e6 13. Hfl-el
d5xc4 14. Rd2xc4
Eg var satt að segja dálitiS
smeykur við bxc4, en þá getur
svartur sótt á miðpeðin með
Re8! og c5, svo að leikur
hvíts verður ekki gagnrýndur.
Nú verður svartur líka að beina
sínum skotum að d4 — og bíða
svo færis!
14. — Rf6-d5 15. Rf4-d3 Rd5-
b6 16. e2-e3 Dd8-d5 17. Ddl-c2
Hf8-d8 18. Hal-dl Ha8-c8 19.
e3-e4 Dd5-e6
En í öllum bænum ekki 19.
-Dd7 20. Rc5!
20. Rd3-f4 De6-d7 21. Dc2-e2
Dd7-c7 22. a2-a3?
Þarna kemur færið, sem svart-
ur beið eftir. Nú kemur í
ljós, að hin ,,þrönga“ staða
svarts býr yfir alls kyns sókn-
arfærum.
22. — Rb6xc4 23.b3xc4
Eftir þennan leik er ekki ó-
sennilegt að skákin sé töpuð.
En hefði hvítur leikið 23. Dxc4
hefði hann ekki þurft að óttast
svo mjög, því að c5 getur hann
svarað með e5. Þess vegna
hefði svaitur sennilega leikið
23. e6 og síðan tvöfaldað hrók-
aha á d-líuunni með öflugum
Þessar myndir eru frá landsleik íslendinga og Bandaríkjamanna í knattspyrnu s.I. fimmtudagskvöld.
Sýnir stærri myndin bandariska markvörðinn ganga inn í markið til að hirða knöttinn úr netinu
eftir að Gunnar Guðmannsson (nr. 10) hafði skorað sigurmarkið í seinni hálfleik. Á hinni myndinni
má sjá fagnandi áhorfendur bera tvo íslenzku leikmannanna (Hreiðar Ársælsson og Einar Hall-
dórsson) á gullstóli út af vellinum að landsleiknu m loknum. — Bandarísku knattspyrnumennirnir
keppa í annað sinn í dag kl. 4.30, að þessu sinni vlð Akurnesinga. Lið Akurnesinga verður þannig
skipað: Hiimar Hálfdánarson, Ólafur Vilhjálmsson, Sveinn Benediktsson, Sveinn Teitsson, Kristinn
Gunnlaugsson, Guðjón Finnbogason, Halldór S1 gurbjörsson, Rikarður Jónsson, Þórður Þórðarson,
Jón Leósson og Þórður Jónsson. Bandariska liðið verður eitthvað breytt frá landsleiknum,
Ljósm.: BjarnL Bjamieifssonþ,
Frá landsleiknum við Bandaríkin