Þjóðviljinn - 30.08.1955, Síða 10

Þjóðviljinn - 30.08.1955, Síða 10
10) _ ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 30. ágúst 1965 Norðurlandaskákmótið Framhald af 6. síðu.” ið að þeim afdrifaríka 40. leik, þá eru tímamörk og við þau tapast margar skákir. Friðrik kemst að vísu yfir sina 40 leiki, en tafþð er þá tapað, þótt lengur megi verjast. í tímaþrönginni hefur Bent slitið af honum tvö peð og vinnur mann til viðbótar vegna þess, hve kóngnum er hætt. Friðrik gefst því upp. Loftið hafði verið þrungið eftirvæntingú, enginn áhorf- endá hafði hugsað um annað en þessa einu skák af þeim fimmtíu ^sem í gangi voru, og nú spurði hver annan: Hvað nú? Er Bent Larsen orðinn Norðurlandameistari, eða verð- ur gert út um sakirnar í ein- vígi. Samkvæmt reglum Norður- landaskáksambandsins á að þreyta um fyrsta sæti, ef því verður komið við, en ella er .beitt svokölluðu gæðamati, sem kennt er við tvo þjóðverja: Sonnenbörn — Berger: Séu tyeir keppendur jafnir að vinning- um, skal sá teljast hærri, sem hlotið hefur vinninga sína gegn betri andstæðingum (betri miðast hér við vinn- ingafjölda). Og samkvæmt því er Bent hærri, þar sem hann vann Friðrik. Ég talaði við forseta norska skáksambands- ins rétt eftir að skákin hófst, og hann sagði mér þá, að Bent Larsen hafi komið til sín fyr- ir skákina og sagt að ef hann ynni, vildi hann ekki láta reikna sér vinning eftir kerfi Sonnenborn-Bergers, heldur þreyta einvígi ef unnt væri. Við töluðum svo nokkru nán- ar um þetta við Bent. Hann getur ekki teflt einvígi strax því að verkfræðingaskólinn, sem hann stundar nám við, hefst 1. september, en hins- vegar á Bent frí í janúar og væri tilvalið að halda keppn- ina þá. Bent stakk upp á að teflt yrði í HÖfn, því að það lægi beinast við, ef Friðrik væri erlendis hvort eð væri — á skákmóti í Hastings — en ég sagði honum að ég byggist við að mikill áhugi væri fyrir því á íslandi að fá hann til að tefla í Reykjavík, en vitaskuld var ekki unnt að á- kveða neitt að svo stöddu. Það er örlítill aðstöðumunur býst ég við, betra fyrir Friðrik að tefla í Reykjavík, hagkvæm- ara fyrir Bent að tefla í Höfn. Á móti því vegur að einhverju leyti, að Bent er ungur og langar að sjá heiminn, hann vill gjarnan koma til Reykja- víkur. Úrslitin í landsliði eru þvi þau að Danmörk og fsland skipta bróðurlega með sér öll- um aðalverðlaununum, Frið- rik og Bent jafnir efstir með 8% vinning, Axel Nielsen og Ingi 3.—i. með 7 vinninga. Norðmenn áttu svo fimmta mann, Vestöl með 6 vinninga. Ég tel þetta afrek af Inga að ná gvona hátt, að undantek- inni fyrstu skákinni tefldi hann vel og örugglega og loka- spretturinn, þrír vinningar í 3 síðusfeu umferðunum, er mjög snarpur. í meiataraflokki gekk allt að óskum. Ingvar vann og var annar, eins og hann hefði reyndar líka orðið þótt hann hefði tapað, en Börge Ander- sen vann líka og tryggði sér með því efsta sæti í öllum rrieistaraflokknum. Arinbjörn vann fjórðu skákina í röð og tryggði sér með því þriðja sætið. þ>ví hefði enginn búist við, er sá hann tefla í fyrstu umferðunum sóttfölan og sveitt- an og ýmiát tapandi eða hang- andi á jafnteflisþröm. þ>etta var prýðileg frammistaða. í hinum riðlinum áttust þeir við félagarnir Lárus og Jón og hinsvegar Sviamir Körling og Lund. Þetta voru afdrifarikar skákir, því imd- ir þeim var komið hver röð- in yrði. Lárus og Körling jafnir efstir fyrir umferðina, en Jón með hálfum vinn- ing meira en Lund. Báðar skákimar urðu langar. Hall aðist litið á með þeim ís- lendingunum, en smám saman varð ljóst að Körling mundi ekki sækja gull i greipar Lundi. í biðstöðunni átti Lár- us aðeins betra gegn Jóni en Körling peði undir gegn Lund. Körling tapaði sinni skák, en Lárus vann mjög snoturlega í þeim stíl sem honum er lag- inn, fómaði drottningunni tvisvar og mátti Jón í hvor- ugt skiptið þekkjast boðið. Lárus varð því einn efstur en Körling annar, Heilimo, Krar- up Dinsen, og Lund skiptu 3.-5. verðl., en Jón missti af verðlaunum vegna tapsins. Þetta kom flatt upp á mig, mér fannst Lund alveg úr leik og var svo viss í minni sök að ég sagði þ>orsteini Jóseps- syni blaðamanni er hringdi gagngert til að fá úrslitin, að 6 af 7 íslendingum fengju verðlaun. Þetta reyndist því miður ekki rétt, við fengum ekki nema fimm verðlaun, en engu að síður held ég að við megum vel við það una. Eng- in hinna þjóðanna náðu svip- uðum árangri miðað við kepp- endafjölda. Norðmennirnir sjálfir, sem flesta keppendur sendu til mótsins, máttu láta sér nægja 5. verðl. í landsliði og helminginn af 4.—5. verðl. i meistaraflokki, en þeir unnu svo 1. flokk. Mótinu var svo slitið með veizlu í gær. Norska skák- sambandið bauð þátttakendum öllum og ýmsum gestum til miðdegisverðar. þ>ar skemmtu menn sér við ræðuhöld og söng, auk þess ágæta matar sem boðið var upp á. Af hálfu gestanna talaði einn maður frá hverju landi, en auk þess voru haldnar margar ræður af hálfu Norðmanna og ann- arra sjálfboðaliða. Borðhaldið mátti ekki taka nema tvo tíma samkvæmt áætluninni og var mesta furða hve vel það gekk, en allir komust að sem eitt hvað höfðu á hjarta án þess að til tímahraks kæmi, enda eiga skákmenn að vera þjálf- aðir í því að nota tíman á hag- kvæman hátt, þótt stundum vilji útaf bregða. Ekki þarf að geta þess, en allt fór þama fram með hinum mestu kær- leikum og voru allir glaðir er staðið var upp frá borðum. þf' Þá var haldið upp. í skáksal og þar vo.ru vgrðlaun afhent. Fyrstu og öðrum verðlaunum var skipt milli Bents og Frið- riks, en heiðursverðlaunin, sem þeim fylgja, bikarinn konungs- naut og heiðursverðlaun Oslo- borgar, fengu þeir aðeins að sjá, þeim verður ekki hlutað út fyrr að loknu einvígi. Eft- ir verðlaunaafhendinguna sátu menn svo við söng og dans fram eftir kvöldi, en síðan var kvaðst af miklum innileik. Gestirnir voru allir á einu máli um það, að mótið hefði tekizt með ágætum. Skipu- lagning öll var í góðu lagi, stjórnin örugg en þó tekið til- lit til aðstæðna eftir því sem unnt var. Oslo hefur sýnt sig frá sinni beztu hlið, sífellt sólskin frá morgni til kvölds nema einn dag. þ>rátt fyrir þann mikla tíma sem skák- imar hafa tekið, hafa ýmsir komið því við að sjá margt af því fagra og stórfenglega sem þessi borg hefur upp á að bjóða: ráðhúsið, Vigelandsgarð- inn, málverka og höggmynda- söfn, söfnin á Bygdöy, Fram, Kontikiflekann og víkinga- skipin. Oslo er ótrúlega mikil ferðamannaborg. hótelið sem við búum á, er eins og alþjóða- stofnun, hér má heyra öll heimsins tungumál og sjá menn af ólíkustu þjóðemum. Oslo er dreifbyggð eins og Reykjavík, hún er eiginlega byggðasafn frekar en borg, enda talin þriðja stærsta borg heimsins — að flatarmáli. Við kjmntumst líka norsku skáklífi, Norðmenn eiga ekki sérstaklega snjalla skákmenn sem stendur, en þeir eru á leiðinni, —• hver veit nema Sverre Johannessen verði orð- inn skæður keppinautur Frið- riks og Bents næst þegar teflt verður um skákmeistaratitil Norðurianda, hann er ekki nema 17 ára, en stóð sig þó ágætlega á unglingamótinu í Antverpen. Mér varð hugsað til Tafl- félags Reykjavíkur, þegar ég kom í rúmgóð og vistleg húsa- kynni skákfélags Oslo (Oslo sjakkselskap). Félagið á þessi húsakynni sjálft og leigir bridgefélagi hluta af þeim. En þarna geta menn komið hve- nær sem er, fengið sér skák, litið í skákblöð, er liggja frami, snyrtilega heft inn í hlifðarmöppur, eða fengið sér hressingu. Þetta húsnæði er á 7. hæð og fylgja því rúmgóðar svalir, svo að stór hópur getur setið úti og teflt þegar veðr- ið er eins og það hefur verið hér undanfarið. Ég skrifa þessar síðustu lín- ur á föstudagsmorgunn. í dag erum við boðnir til Bjarna Ásgeirssonar, en hann hefur komið í skáksalinn á hverju kvöldi og tekið þátt í gleði okkar og áhyggjum eins og einn af okkur. Síðan dreifist hópurinn, sumir fara héðan með fyrstu flugferð beint til Reykjpvíkur, aðrir ætla til Hafnar og ná í Gullfoss þar, en þeir nota þá tækifærið til að koma við í Gautaborg óg horfa á eina eða tvær um- ferðir á skákmótinu þar. Við biðjum allir að heilsa. Geymsluhúsnæði Þjóðviljann vantar strax geymsluhús- næði fyrir blaðapapjur. — Þarf að vera .' götuhæð. Má vena í úthverlum bæjarins. ÞJOÐVILJINN, sími 7500 ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■i Þjóðviljann vantar unglinga til að bena blaðið til kaupenda við Drápuhlíð Talið við afgreiðsluna, sími 7500. »■*■■•»■»■•■•■■■■•■■■■■■■■■••■■■■■■■■■■■■*■■■■■■■••■»••■•■■■•■•■■•■•■■•• Innilega paJcfca ég ykkur, er sýnduð mér rkn- arhug á sjötugsafmœlinu. ÞORSTEINN JÓNSSON. Þakka vinum og vandamönnum og öðrum kunningjum mínum, er glöddu mig á sextugsaf- mœlinu, 28. ágúst, meö gjöfum, heimsóknum og kveðjum. EIÐUR EIRÍKSSON, Hverfisgötu 80. ##################<#####################<###################) Nýtt þvottahús tekur til starfa þriðjudaginn 30. ágúst að Bánargötu 50. Vönduð vinna — fljót afgreiðsla. Vinsamlegast reynið viðskiptin. Nýja þvottahúsið, sími 5238. • mmmm*■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■»•■■■■■«■■■■■■■■■■■«■■■•■■i<i . t*■■■■■■■■■■■■■■■••n■■■«■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■i ■■■•■■■«■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■«■■■■■■•■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ I. S. í. K. S t. Reykjavíkurúrval: Bandaríkjamenn keppa á íþróttavellinum í kvöld klukkan 7. — Aðgöngumiðar seldir frá klukkan 1 í aðgöngumiðasölu íþróttavallarins. Dómari: HALLDÓR SIGURÐSSON Athugið: Þetta er síðasti leikur hinna snjöliu bandarísku knattspyrnumannanjia og um leið iýkur heim- sókntun erlendra knattspyrnuliða á áriua 1955. HÖTTðKUNEFNDIN

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.