Þjóðviljinn - 30.08.1955, Side 12
SMÓÐVII'ilNN
Þriðjudagxir 30. ágúst 1955 — 20. árgangur — 194. tölublað
Starfsár Sinfóníuliljómsveitar-
innar hefst á tónleikum á föstud.
Sinfóníuhljóinsveit Ríkisútvarpsins hefur nýtt starfs-
ár n.k. föstudagskvöld meó tónleikum í Þjóðleikhúsinu og
verða þá flutt m.a. verk eftir Beethoven og Pál ísólfsson.
Kínverska listafólkið á sviðinu í Austurbœjarbíói
Kínverska æskufólkið hrelf
alla með list sinni og framkomu
Sendinefndarmenn kynna sér íslenzkt þjóðlíf og merka staði í
Reykjavík og nágrenni
Kynnisfundurinn með kínverska æskufólkinu s.i. laug-
ardag varð eftirminnilegur viðburður þeim sem komu í
Austurbæjarbíó þá kvöldstund. Var atriðum þeim sem
gestimir höfðu að bjóða, frábærlega vel tekið, enda vora
þau bæði nýstárleg og hrífandi.
Einar Gunnar Einarsson, for-
maður Kínanefndarinnar, flutti
ávarp og kynnti gestina. Síðan
ávarpaði formaður sendinefnd-
arinnar, Lu Chao, gesti, og jvif
lagði áherzlu á að för sendi-
nefndarinnar væri farin í því
skyni að auka kynni og vináttu
kínversku þjóðarinnar og ís-
lendinga. Loks kom hvert atrið-
ið af öðru, einleikur á flautu,
píanó og ,,handbumbu“, sér-
kennilegir og fallegir dansar
frá Sinkiang, einsöngur og loks
„gaffallinn fljúgandi“, en það
er mjög sérstætt sirkusatriði.
Síðan hefur kínverska æsku-
fólkið skoðað söfn og atvinnu-
fyrirtæki í Reykjavík og Hafn-
arfirði. Á sunnudag fóru um
þrjátíu Islendingar með þeim í
ferð til Þingvalla, Hveragerðis
og orkuversins við Sog.
Á Þingvöllum var snæddur
miðdegisverður, lét Hótel Val-
höll framreiða kínverska rétti
og var matseðill birtur á kin-
versku og íslenzku! Að því
Jóknu var staðurinn skoðaður,
en dvölin varð styttri en ann-
ars vegna rigningarveðursins.
í Hveragerði tóku Jóhannes
úr Kötlurn, varaformaður Kin-
versk-íslenzka menningarfé-
lagsins, Gunnar Benediktsson
og Kristján frá Djúpalæk, móti
hópnum, og mátti heita að þar
væri slegið upp beztu skemmt-
un meðan setið var að kaffi-
borði á Hótel Hveragerði.
Jóhannes las upp eitt af
Kínakvæðum sínum og Li Hsi-
fan las það á eftir í kínverskri
þýðingu. Kom hvert atriðið
öðru, söngur með píanó-
undirleik, einleikur á flautu
og ,,handbumbu“. Gestur Þor-
grimsson og Sigfús Halldórs-
son, sem staddir voru á hótel-
inu, skemmtu einnig til mikill-
ar ánægju fyrir ,,samkomuna“.
Kínverjamir og fylgdarmenn
þeirra sáu þarna gufugos mik-
ið og skoðuðu gróðurhús Garð-
yrkjuskólans, undir leiðsögn
skólastjórans Unnsteins Stef-
ánssonar.
Var þá haldið til Sogsfossa
og nýja orkuverið skoðað. Að
því loknu buðu gestirnir að fara
með nokkur atriði fyrir heima-
Útvarpið eignast
ný upptökutæki
og hljóðfæri
Otvarjisstjóri skýrði blaða-
mönnum frá því í gær að Ríkis-
útvarpið hefði nýlega endur-
nýjað vélakost sinn verulega
og kostað til miklu fé. M. a.
hefðu verið ke}'pt ný upptöku-
tæki af fullkomnustu gerð.
Einnig hefði útvariiið eignazt
tvo nýja Steinway-flygla, úr-
valshljóðfæri.
fólk, og fór það fram L samr,
komusal þess, stórum og rúm-
góðum. Mælti Lu Chao nokkur
orð og þakkaði móttökumar,
kvað gestina hafa sannfærzt
um hve mikilvægt starf stöðv-
arfólkið jmni fyrir íslenzka at-
vinnuvegi og þjóðlíf. Ámundi
Sveinsson, vélstjóri, þakkaði
fyrir hönd stafsfólksins góða
gestakomu. Varð þessi stund
hin ánægjulegasta, bæði heima-
mönnum og gestum.
Treg veiði
í reknei
Siglutirði.
Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Fjórir bátar héðan hafa
stundað reknetjaveiðar og hafa
þeir undanfarið látið reka þeg-
ar gefið hefur á sjó. Veiði hef-
ur verið treg, mesti afli 40
tunnur.
Á fundi með blaðamönnum í
gær gat Vilhjálmur Þ. Gísla-
son útvarpsstjóri þess að til-
raun yrði nú gerð með að hefja
starfsemi hljómsveitarinnar
fjiT en undanfarin haust m.
a. vegna þess að margt út-
lendra gesta væri nú hér í bæn-
unt .og þætti rétt að gefa þeim
kost. á að hlýða á leik hljóm-
sveitarinnar.
Aukinn ákugi
aluieimings
Otvarpsstjóri sagði að Ríkis-
útvarpið hefði haft hljómsveit
á að skipa allt frá stofnun þess
og hún hefði síðar orðið megin-
uppistaðan í Sinfóníuhljóm-
sveitinni. Útvarpið • hefur sem i
kunnugt er staðið fjárhagsleg-
an straum af rekstri hljóm-
sveitarinnar. síðustu árin en
jafnframt notið nokkurs styrks
frá Reykjavíkurbæ og ríkis-
sjóði. Lagði útvarpsstjóri á-
herzlu á að Ríkisútvarpið vildi
fúslega halda þessari menning-
arstarfsemi áfram með líku
sniði og hingað til. Á s.l.
starfsári hefði útvarpið efnt til
20 sjálfstæðra hljómsveitartón-
leika auk 3 skólatónleika og
allra útvarpstónleikanna.
Áhugi fyrir sinfónískum tón-
leikum er ekki enn orðinn al-
rnennur hér á landi en hefur þó
aukizt verulega þau 2—3 ár
sem útvarpið hefur haldið uppi
hljómsveitarstarfsemi sinni og
fer aðsókn að tónleikum Sin-
fóníuhljómsveitarinnar stöðugt
vaxandi.
Fjölbrej’ttir
tónleikar
Tónleikar Sinfóníuhljómsveit-
arinnar á föstudag verða í
þrem þáttum.
Fyrst verður kammermúsík-
þáttur, þar sem flutt verður
eitt af frægustu og vinsælustu
verkum Beethovens, Septett op.
20.
Þá syngur Guðmundur Jóns-
son óperusöngvari nokkur lög
eftir islenzka höfunda og leik-
ur Fritz Weisshappel undir á
pianó.
Loks verður flutt Passacaglia
fyrir stóra hljómsveit eftir Pál
ísólfsson og stjórnar höfundur
flutningi verksins. Verk þetta
samdi Páll fyrir norrænu tón-
listarhátíðina í Kaupmanna-
höfn 1938 og var það þá.flutt
í fyrsta sinn undir stjóm höf.
Sinfóniuhljómsveitin hefur áður
flutt verkið undir stjóm Olavs
Kielland.
Elliði nteð
240 ionn
Sifílufirði.
Frá fréttaritara Þjóðviljana.
Togarinn Elliði kom af veið
um í gærmorgun með 240 tonn
af karfa. Aflinn fór allur tii
frystingar.
Bændur suðvestanlands sættu
itiikið hey á laugardaginn
Enn er jbó ekki séð fyrir endann á því
t'jóni sem öþurrkarnir hafa valdiS
Síðastliðinn Iaugardagur var bjartur og fagur framundir nón,
og strax um hádegi tóku Reykvikingar að streyma í bílum sín-
j um austur yflr Fjall og upp í Borgarf jörð að bjálpa vinum og
venzlamönmun \ið þurrkinn. Varð áreiðanlega mikið lið að borg-
jarbúum í sveitinni á laugardag; liey sem hafði legið fiatt í þrjár
ivikur var komið í sæti um kvöldið.
Kínverj
arnir koma fram á
ÆFR-fundi annað kvöld
Kínverska æskulýðssendinefndin kemur fram á félags-
fundi ÆFR í Tjarnarkaffi (uppi) annað kvöld.
Fundui' hefst kl. 8.30 með því verður sameiginleg kaffi-
að skýrt verður frá reikningum drykkja og skemmtir þá kín-
félagsins, en síðan verða rædd- verska listafólkið.
ar tillögur ura nýja gjaldskrá. | Það mun varla þurfa að
Þá talar Lu Chao, formaður hvetja Fylkingarfélaga til að
kínversku sendinefndarinnar,
fjölménna á fundinum annað
og Li Hsi-fan stúdent í bók- kvöld, en athygli skal vakin á
menntum. Guðmundur J. Guð-J því að hann hefst stundvíslega
mundsson segir lítillega frá klukkan 8.30.
Varsjárferðinni en að lokumj
| Fréttamaður Þjóðviljans
lagði leið sína upp í Borgar-
fjörð. I Kjós, á Hvalfjarðar-
j strönd, í Leirár- og Melasveit-,
j um var fólkið enn. að snúa
J heyinu, en þegar kom upp í
! Andakíl var orðið svo áliðið
I
; að bændur voru farnir að taka
: saman; neðst í Stafholtstung-
um þutu sáturnar upp, sömu-
leiðis í Norðurárdal. Mikið af
þessu heyi hafði legið flatt um
: þriggja vikna skeið, og var
I orðið stórskemmt; en um á-
gústmánuð gildir hið sama ogj
um júlí: að það hefur verið
úrkoma þvínær á hverjum degi
— enginn dagur til enda trygg-
ur. Varð mikil björg að laug-
ardagsþun’kinum; náðu allir
bændur upp einhverju af heyj-
um, og sumir öllu. En ekkert af
hejúnu mun háfa orðið nægi
lega þurrt til hirðingar, enda
gerði rigningu á sunnudags-
nótt, og á sunnudag rigndi
mikið í Borgarfirði og um Suð-
urland. Annars hefðu ýmsir
reynt að hirða.
Jón bóndi á Klettstíu i Norð-
urárdal sagði fréttamanninum
að þetta sumar væri hið óliag-
stæðasta sem haira myndi —
það væri þá helzt að sumarið
1913 kæmi til samjafnaðar. Um
þetta leyti í fyrra vom Klett-
stíubændur búnir að hirða um
1200 hesta, og voru um það
bil að hætta heyskap. Það er
til dæma um sumarið, að ná
hafa þeir aðeins náð inn 150
hestum þurrheys, en um 250
hafa þeir sett í súrhey —sam-
tals um 400 hestar. Nú áttu
þeir um 300 hesta flata fyrir
laugardaginn, og náðist það allt
í sæti í þessum skammvinna
þurrki; en um 500 hesta eiga
þeir óslegna til að ná hey-
fengnum í fyrrasumar. Er
þetta dæmi nefnt til þess að
fólk geti auðveldlegar áttað sig
á því hvað ótíðin í sumar þýð-
ir fyrir bændur.
Höfuðdagurinn í gær hafði
litla veðurbreytingu í för með
sér; enn getur svo farið að
heyið sem var sætt víða um
byggðir á laugardag komi
bændum að litlum notum. Það
hefur þegar orðið stórtjón af
völdum óþurrkanna í sveitum
Suður- og Vesturlands; og er
ekki enn séð fyrir endann á
því.