Þjóðviljinn - 01.09.1955, Page 4
iwnwnnw
4) — ÞJÓÐ\T[LJINN — Fimmtudagur 1. september 1955
Framúrskarandi danssýning
Eitt glæsilegasta atriði dag-
;.:irár kínverska æskufólksins
£]. laugardag var danssýning
tveggja stúlkna frá Sinki-
rng, sem þrátt fyrir ungan
ídur sýndu fádæma leikni
cg mýkt.
Túlkun þeirra á' dönsunum
var slík að ekki var hægt
nnað en fylgjast með af á-
íaga og hrifast af hinum
iogru' hreyfingum.
Þótt austurlenzk dansmennt
hafi verið okkur, hinum vest-
jænu þjóðum, harla torskilin,
voru , þessir dansar útfærðir
þannig að allir gátu fylgzt
raeð, jafnvel þótt maður skildi
ekki til fulls hinar hárná-
iivæmu hreyfingar handa, arma
' og höfuðs,- sem hver og ein
táknar eitthvað sérstakt í
canslýsingunni.
Fyrsti ‘ dansinn sem sýnd-
Tr vár er -þjóðlegur friðar-
c'ans, dansaður af 16 ára
gamalli stúlku Ye Na. Dans
ian, sem var mjög iéttur og
í.kemmtilegur, sýndi stúlku
■ sauma friðardúfu í hálsklút
og gleði hennar yfir friðinumo
Næst kom svo mjög vanda-
namur dans er nefnist „Ðiska-
r!ans“ eða „dans máltíðarinn-
ar“, dansaður af Tsai Na Fu.
. Sýnir hann gleði fólksins yfir
máltíðinni. Var hann all ný-
stárlegur, þar sem stúlkan gerði
margvíslegustu hreyfingar og
dansspor með 4 postulíns-
skálar á höfðinu og að lokum
kom í Ijós að té hafði verið
í neðstu skálinni, en ekki hafði
svo mikið sem einn dropi far-
ið til spillis.
Tsai Na Fu var marg köll-
uð fram og dansaði þá sem
aukadans ástardans frá Sink-
iang „Dans eftirvæntingarinn-
ar“. Var hann frábærlega vel
dansaður.
Að lokum dönsuðu þær
svo . báðar saman „ástaróð til
vorsins“, sérstaklega fallegan
dans, þar sem tækni þeirra
kom mjög vel í ljós.
Þá má ekki gleyma að geta
undirleiksins, sem gerði sitt
til að gera dansana hrífandi.
Leikið var undir ýmist á
„handbumbu" eða flautu og
var sérstaklega athyglisvert
hlutverk undirleikarans í síð-
asta dansinum.
Þegar maður hugsar til
þess hve ungt þett listafólk
er, er ekki hægt annað en
undrast stórlega hæfni þess og
getu og trúi ég ekki öðru en
þessi kvöldstund skilji eftir
ánægjulegar minningar í hug-
um viðstaddra.
K.J.
■ l.k ■■•■■■■•■■■■■BSBaBaBBBBaaaaBaaHBaaMvaaBaalBaaaaBBaBaaaaHBaBaBBBBaaBBBBaaBaaBaHWBVI
—Svona er pað atitaf; þegar manni er gefið bein er pað tekið frá manni aftur! —
Það er ekki að undra pótt litli hvutti sé angurvœr á svipinn svona álíka og Fram-
sókn þegar íhaldið neitar að fylgfa helmingaskiptareglunni.
BIFREIÐ
Ford’39 til sölu.
Er jafnframt kaupandi að yngri gerð.
Upplýsingar í síma 6484.
Barnagallar
Verð kr. 190,00.
★
T0LED0 j
Fishersundi
:
:
^ > ÚTBREIÐIÐ I* *
> > ÞJÓDVILJANN *
Kínversk skemmtun
í Austurbæjarbíó í kvöld klukkan 9 e.h.
DAGSKBA:
1. KÍNVERSKUR DANS, dansaður af
Ye Na af Uighur-þjóðflokknum.
2. EINLEIKUR Á PÍANÓ: Kínversk
lög leikin af Wu Yi-li.
3. SÓLÓ-DANS, dansaður af Tsai Na
Fu.
4. EINSÖNGUR: Kínversk lög sungin
af mezzosópransöngkonunni Su-
Feng-chuan.
5. HANDBUMBUSÓLÓ: leikin af A
Pu Liech A Ho Ehi.
6. EINLEIKUR Á FLAUTU: leikin af
Ho Wei.
7. DANSSÝNING: Kínverskur dans
dansaður af Tsai Na Fu og Ye Na.
8. FLJÚGANDI GAFFALL: Fjöltista-
maðurinn Wang Ching-yuan.
TILKYNNING
Afgreiðsla fyrir tryggingafélagið Skáne/Malmö
verður framvegis á
Vátryggmgaskrifstofu
Sigiúsar Sighvatssonar h.f.
Lœkjargötu 2, Reykjavík. — Sími 3171.
Skrifstofan er opin daglega frá kl. 9-12 og 1-5.
Á laugardögum kl. 9-12.
Góð þjónusta — fljót aigreiðsla
EFNALAUGIN HJALP
Bergstaðastrœti 28. — Sími 5523.
VESTURBÆR: FatamóttaJca Grenimel 12.
Þessi glæsiiega skemmfuu verður ekki endurtekin
AÐGÖNGUMIÐAR í AUSTURBÆJARBÍÓ FRÁ KLUKKAN 4 E.H.
Svíkurstjómin...
Framhald af 1. síðu.
áhuga á því að tryggja konum
sömu laun fyrir sömu vinnu
og körlum. Fengu þeir sam-
þykkta tUlögu um að rannsaka
skyldi hvað gera þyrfti til þess
að ná þessu marki og fengu
að launum samþykktar þakkir
til sín í Kvenréttindafélagi ís-
lands. Ekki hefur enn heyrzt
um það að nokkur rannsókn
hafi verið framkvæmd, enda
kemur hin raunverulega afstaða
mjög greinUega fram í verki.
Segir Morgunblaðið í gær að
„verkakonur heimti ipiklu
hærra kaup en aðrir launþeg-
ar hafa“, þótt staðreyndin sé
sú að krafa verkakvenna hljóð-
ar aðeins um tæp 80% af karla-
kaupi.
Alvarlegt óorð.
Með athæfi sínu hefur ríkis-
stjórnin þegar bakað þjóðinni
stórtjón — í fjórða skipti á
þessu ári. Og afleiðingarnar
geta orðið alvarlegar um langa
framtíð — ef rikisstjórnin svík-
ur fasta samninga við Sovét-
ríkin og Pólland fyrir eina sam-
an óstjórn í efnahagsmálum
þjóðarinnar. Það er ástæða til
að óttast það að þessar þjóð-
ir og aðrar verði tregar til að
gera við okkur fyrirfram samn-
inga eftirleiðis, þegar þær sjá
að svikizt er um að efna samn-
ingana og ríkisstjórnin virðist
ekki hafa á því nein tök að
halda framleiðslukerfinu gang-
andi. Með þessu rnótl getum við
fengið á okkur mjög alvarlegt
óorð meðal viðskiptaþjóða okk-
ar, og getur það haft mjög
alvarlegar aíleiðingar fyrir
alla afkomu þjóðarinnar.