Þjóðviljinn - 06.09.1955, Page 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 6. september 1955
IIIÖOVIUINN
Útgefandi:
Sameiningarflokkur alþýðu
— Sósíalistaflokkurnn —
V-
Tíminn fagnar
,erfendu framlagi* *
Það var hér á döguirum að
Tíminn minntist á landshöfn-
ina í Njarðvík, og fagnaði því
mjög að nú yrði sú höfn byggð
fyrir erlent framlag. Fyrst svo
sé finnst Tímanum engin á-
streða til að amast við því þó
þetta erlenda framlag kosti það
að lartdshöfnin í Njarðvík yrði
-uppskípunarhöfn fyrir Kefla-
víkurflugvöll".
Engan undrar þó þeir Tíma-
menn eigi dálítið bágt með að
skilja tilgang nýsköpunarfram-
kvæmda eins og landshafnar-
innar í Njarðvík. En hitt mætti
ætla ‘jað hvert blað sem vill láta
kalla sig íslenzkt, fyndi eitt-
ihvað við það að athuga að
þetta mikla hafnarmannvirki
líts'erðarinnar hér við Suð-
vc'turiand verði gert að upp-
skinunarhöfn fyrir stóra er-
lenda herstöð. Hér, eins og oft-
ar. kemur Tíminn fram eins og
væri hann málgagn hins er-
le ida hemámsliðs, sem liti á
það sem hlutverk sitt að verja
kröfur þess á hendur Islend-
ingum og afsaka þær.
Tíminn hefur tekið svipaða af-
stöðu til ásælni erlendra auð-
fé’aga í fossaafl landsins. Að-
almálgagn Framsóknarflokks-
ins hefur talið það ánægjuefni,
ef takast mætti að opna erlendu
auðmagni leið að stórvirkjun-
um hér á landi og iðnaði í sam-
bandi við þær, og virðist ekkert
hafa við það að athuga þó er-
lendum auðfélögum væri með
því gefið stórhættulegt tangar-
hald á atvinnulífi Islendinga.
Hvað eftir annað hafa fulltrú-
ar Sósíalistaflokksins, innan
þings og utan, sýnt fram á hví-
lík hætta stafar af því að gefai
erlendum auðhringum slíkt
tangarhald á auðlindum íslend-
inga, enda hefur tekizt að
hindra til þessa að fallvötn
landsins væru seld erlendum
auðfélögum á leigu.
Og það mun Tíminn reyna, að
hann kemst ekki langt með þá
röksemd að íslendingum sé ó-
kleift að reisa, án tilstyrks
bandarískra hemaðarfram-
framkvæmda, þau mannvirki
sem atvinnuvegirnir mest þarfn-
ast. Séu nýttir þeir miklu fram-
leiðslumöguleikar sem íslenzka
þjóðin hefur, einmitt vegna ný-
sköpunarframkvæmdanna, og
þeir markaðir sem íslendingum
bjóðast, geta Islendingar sjálf-
ir hæglega kostað þau mann-
virki sem þeim er brýnust þörf
á vegna framleiðsluatvinnuveg-
anna. Það þarf ekki að selja
íslenzkt land undir bandariskar
herstöðvar til þess að koma upp
stórvirkjunum og stóriðju á
Islandi. Það þarf heldur ekki
handariskt mútufé til að byggja
landshöfnina í Njarðvík. Til
þess þarf einungis einbeitingu
íslenzks vinnuafls og f jármagns
að framleíðslustörfunum, og
rikisstjórn sem hefur einungis
hagsmuni íslendinga að leiðar-
hnoða. Margir Framsóknar-
menn hafa þegar lært þau sann-
indi. Svo gæti farið að Tíminn
yrði að læra þau líka. J
Islenzk
bókagjöf
tll há-
skólans
í Varsjá
Varsjármótið var meira en
vináttufundur og dansleikur
— það var líka menningar-
tengsl. Þar voru til dæmis
haldnir tveggja daga umræðu-
fundir um bókmenntir, nánar
tiltekið um mannhygð í klass-
ískum bókmenntum og áhrif
hennar í nútímabókmenntum.
Þátttakendur í þessum fund-
um voru prófessorar frá ýms-
um löndum, en þó fyrst og
fremst stúdentar í bók-
menntasögu og aðrir æsku-
menn sem áhuga hafa á
þeirri grein. Af Islands liálfu
tóku þátt i fundunum þeir
Hallfreður Örn Eiriksson og
Amór Hanníbalsson. Hinn
fyrmefndi afhenti í funda-
lok háskólanum í Varsjá veg-
lega bókagjöf frá nokkmm
íslenzkum bókaútgefendum,
og hef ég innt hann nánari
frétta af því.
— Þetta voru samtals 25
bindi valinna bóka frá ýmsum
útgefendum sem okkur var
falið að afhenda háskólanum
í Varsjá, svarar Hallfreður.
Eg skal nefna þessar: Njáls-
sögu, Heimskringlu, Þjóðsög-
ur Jóns Ámasonar, íslenzk-
enska orðabók eftir Geir
Zoega, Ljóðasafn Jóhannesar
úr Kötlum, Vorkalda jörð eft-
ir Ólaf Jóhann, Bréf til Lám
og Sálminn um blómið eftir
Þórberg, 6 bindi eftir Kiljan
— þar á meðal Sjálfstætt
fólk og Gerpla; Landnáma-
bók, Sagnakver Skúla Gísla-
sonar, íslenzku teiknibókina
eftir Björn Th. Bjömsson. Eg
afhenti þessar bækur fulltrúa
háskólans að loknum bók-
menntafundunum, sem haldn-
ir voru í húsakynnum heil-
brigðismálaráðuneytisins, en
siðar barst okkur þakkarbréf
frá Margaret Schlauch, pró-
fessor í enskri málfræði við
Varsjárháskóla. Hún er mikill
unnandi íslenzkra fornbók-
mennta, eins og fram kemur
í bréfi hennar, þar sem segir
meðal annars:
„Þessi gjöf er mér persónu-
lega sérstakt gleðiefni, þar
sem könnun fornra íslenzkra
bókmennta hefur lengi verið
tengd rannsóknum mínum á
enskri málfræði og bókmennt-
um miðalda, og væri mér tor-
velt að svara því hvomm
þeirra ég ann meira. Eg vona
að mér gefist í framtíðinni
tækifæri til að tengja þessar
tvær greinar enn nánar i
starfi mínu. Sögu hinna
tveggja þjóða: Islands og Pól-
lands, svipar saman um ýmsa
hluti; og mætti það verða til
að efla gagnkvæman skilning
þeirra. Gagnkvæm þekking á
bókmenntum þeirra mætti
einnig auðvelda þann skilning.
Háskólabókasafnlð í Varsjá er nú 25 íslenzkum
bókum ríkara en áður
Fyrir þvi hafa verk nútíma-
höfunda islenzkra eins og
Laxness, svo og orðabók Zo-
ega, mikið gildi fyrir okkur
hér, ekki síður en Landnáma-
bók, Heimskringla og Njála
er ég fagnaði svo mjög að sjá
í gjöf yðar“.
— Geturðu sagt okkur eitt-
hvað fleira um Margaret
Schlauch ?
-— Hún er fædd í Ameríku,
af pólsk-írsku foreldri. Hún
er mikill málfræðingur og
var um skeið prófessor í
ensku við háskólann í New
York. En þegar ofsóknimar
gegn frjálslyndum mennta-
mönnum hófust í Bandaríkj-
unum nokkru eftir stríðslok
hvarf hún úr landi og varð
skömmu síðar prófessor við
Varsjárháskóla. Hún hefur
lært fomíslenzku svo vel að
hún les fornritin reiprennandi.
Þekkingu hennar á fomum
bókmenntum okkar má meðal
annars marka af þvi að hún
hefur skrifað heila bók um
íslenzkar riddarasögur: Ro-
mance in Iceland; telja marg-
ir þá bók hina beztu er rituð
hefur verið um það efni, t. d.
mælti Sigurður Nordal mjög
Hallfreður Öra Eíríksson
með henni við nemendur sína
í háskólanum. Við Varsjár-
háskóla er enginn sérstakur
kennslustóll í norrænu, en
síðustu árin hefur Margaret
Schlauch kennt nokkrum
stúdentum fomnorræna mál-
fræði í einkatímum; — af
þessum ástæðum öllum var
henni falið að þakka i nafni
■háskólans hina veglegu gjöf
íslenzkra útgefenda.
— Hafa Pólverjar þýtt eitt-
hvað af islenzkum bókum á
síðkastið ?
— Nei; en nú munu þeir
hafa áhuga á að gefa út
skáldsögur Halldórs Kiljans,
en ekki kann ég að greina
nánar frá því. Eina smásögu
eftir Halldór Stefánsson rakst
ég á í pólsku bókmenntablaði;
það var allt og sumt. Hins-
vegar eiga þeir gamlar þýð-
ingar á einhverjum Islend-
ingasagna og Sæmundareddu.
— Hvað viltu segja okkur
um bókmenntafundi Varsjár-
mótsins ?
— Þeir stóðu tvo daga, og
tóku þátt í þeim um 150
manns af 40—50 þjóðemum.
Fyrri daginn flutti prófessor
Zurowski langan og ýtarlegan
yfirlitsfyrirlestur um efnið,
en síðan töluðu einstakir þátt-
takendur um höfunda í sínu
landi. Seinni daginn var þátt-
takendum skipt í 4 hópa. 1
einum var rætt skáld-
sagnagerð, í öðmm um ljóða-
gerð, þriðji hópurinn var helg-
aður leiklist, hinn f jórði blaða-
mennsku. Við Amór vorum í
skáldsöguhópnum. Eg talaði
þar um áhrif íslendingasagna
í verkum Halldórs Kiljans
Laxness og í Gerplu sérstak-
lega, hvernig friðarhugsjón
Islendinga hefur náð mestri
túlkunarhæð í Gerplu. Eftir
hádegi síðari daginn komu allir
þátttakendur saman á ný,
til sameiginlegs fundar. Þá
Framhald á 11. síðu.
Bjara! neitaði Krístni um opinbera
rannsókn á starfsemi Flugv.-blaðsins
Tongslin milli SjálfstœBisflokksins og
njósnadeildar hersins þola ekki dagsljós
Tíminn skýrir svo frá í gær aö Bjami Benediktsson
dómsmálaráðherra hafi neitað aö fyi'irskipa opinbera
rannsókn á starfsemi Flugvallarblaðsins á Keflavíkur-
flugvelli, þrátt fyrir beiöni Kristins Guömundssonar ut-
anríkismálaráðherra. Talið er að Flugvallarblaðið sé gef-
iö út sameiginlega af Sjálfstæðisflokknum og njósnadeild
hersins, og um það hefði réttarrannsókn að sjálfsögðu
snúizt að verulegu leyti.
Það var upphaf þessa máls
að Flugvallarblaðið birti mjög
svæsnar árásir á Kristin Guð-
mundsson utanríkisráðherra og
lýsti yfir því að hann væri er-
indreki Rússa og hefði það verk-
efni sérstaklega að koma njósn-
urum Rússa í störf á Kefla-
víkurflugvelli. Af þessu tilefni
fyrirskipaði ráðherrann réttar-
rannsókn gegn Flugvallarblað-
inu, þar sem hann átti að fara
með dómsmál á Keflavíkurflug-
velli. En skömmu síðar gerðust
þau tíðindi að Hæstiréttur kvað
upp úrskurð þess efnis að það
væri lagabrot að Kristinn Guð-
mundsson færi með dómsmái á
Keflavíkurflugvelli, hefði rík-
isstjómin svikizt um að ganga
lÖglega frá skiptingu ráðu-
neyta —; og þóttust menn
menn þekkja þar fingraför
Bjarna Benediktsspnar; fyrr-
verandi prófessors í lögum! Af
þessum ástæðum varð málatil-
búnaður Kristins ólöglegur, og
á meðan ríkisstjómin var að
ganga frá bráðabirgðalögum til
að gera dómsvald Kristins lög-
legt á Keflavikurflugvelli,
gengu Flugvallarblaðsmenn
formlega frá stofnun hlutafé-
lags sem hafði aðsetur i Kefla-
vik — á dómsmálasvæði Bjaraa
Benediktssonar!
★ Bjarni neitaði.
Samkvæmt frásögn Tímans í
gær hefur Kristinn þá snúið
sér til Bjama samráðherra síns
og beðið hann að halda málinu
áfram, en Bjami þverneitaði.
Vildi hann að sjálfsögðu fyrir
alla muni forðast að tengslin
milli Sjálfstæðisflokksins og
njósnadeildar hersins yrðu
rannsökuð fyrir rétti og hikaði
ekki við að neita Kristni um
lögleg réttindi í því skyni. Jafn-
gildir þetta því að Bjarni Bene-
diktsson lýsi' yfir fullu sam-
þykki við þá skoðun Flugvall-
arblaðsins að dr. Kristinn sé
erindreki Rússa og hafi það
verkefni að koma njósnumm.
Rússa í störf á Keflavíkurflug-
velli!!
★ Fáni Helga S.
Frásögn sína af þessum lær-
dómsriku erjum helminga-
skiptanianna endar Tíminn á
þessum orðum:
„Flugvallarblaðið er óvé-
fengjanleg sönnun þess, hve
lítið er að marka drengskapar-
hjalið í Morgunblaðinu. Það er
Flugvallarblaðið sem speglar
hinn raunverulega drengskap
forkólfa Sjálfstæðisflokksins.
Það er hið óljúgfróða vitní um
drengskap þeirra í stjórnarsam-
vinnunni. Það er jafnframt ó-
tvíræð vísbending um það, að
þótit Sjálfstæðisflokkurinn sé
undir lýðræðisfána nú, þá
myndi það verða fáni Helga S.
og hans nóta, er yrði dreginn
að hún, ef Sjálfstæðisflokfcur-
inn ætti einhvém tíma að eiga
það eftir að ráða einsamall.“