Þjóðviljinn - 06.09.1955, Page 9

Þjóðviljinn - 06.09.1955, Page 9
r ÍK ÍÞRÓTTIR RlTSTJÓRl FRtMANN HELGASON __________________ Frjálsíþróttakeppniii í Varsjá 5. 09 síðasti dagui: Chromik sigraði í 5000 m hlaupinu, Iharos varð annar, Kovacs þriðji en Zatopek varð að láta sér nægja 6. sætið Laugardaginn 6. ágúst. í dag, á síðasta degi móts- ins var enn eitt heimsmet sett, var það í 400 m hlaupi kvenna. Var það þýzka stúlkan Ulla Donath að verki. Hið nýja met er 54,4 sek. hið gamla 55,0 sek. Einnig var keppt í maraþon- hlaupi, spjótkasti, 1500 m hlaupi, og siðast en ekki sízt í 5000 m hlaupi. Kúluvarp kvenna: Kúluvarp kvenna vann heimsmethafinn Zybina auðveld- sigraði í 800 m hlaupinu en beið ósigur fyrir þýzku stúlk- unni Donath í 400 m hlaupi. lega, var um y2 m á undan þeirri næstu. Úrslit: 1. Zybina, Sovét. 15,43 m 2. Dojnikova, Sovét 14.91 — 3. Luettge, Þýzkal. 14,12 — 1500 m lilaup: 1 þessu hlaupi voru saman- komnir mjög góðir hlauparar, þ. á. m. Tabori Ungv. (3,43,8), Rozsavölgyi, Ungv. (3.42.2), Hermann Þýzkal. (3.44.4), Ber- es Ungv. (3.45.8) og Jung- wirth Tékk. Tölurnar í svigun- Um eru þeir tímar sem ofan- greindir hlauparar hafa náð beztum í sumar.- Beres tók forústuna, og fór mjög geyst (400 m 55,8). Þar á eftir kom Tabori, Hermann og Pólv. Lewandowski. Röðin er öbreytt eftir 800 m (1.55.8), 1000 m voru hlaupnir á 2.26.8. Nú er Rozsavölgyi kominn í fyrsta sæti og þegar hringt er, einn hringur eftir, eru Ungv. tveir fremstir, Tabori og Rozsav. Þegar 200 m eru eftir þýtur Rozsav. framúr, auðsjá- anlega staðráðinn í að sigra, en Tabori sem hafði dregizt nokkra metra aftur úr, tekur mjög glæsilegan endasprett, hristir Hermann af sér, en hann hafði verið kominn upp að hlið hans, og skýzt fram fyrir Rozsav. nokkra metra frá marki. Timinn í þessu hlaupi var al- veg - sérstaklega glæsilegur, og líklega hefur aldrei náðst svo jafngóður tími í nokkru 1500 m hlaupi. W Úrslit: 1. Tabori, Ungv. 3.41,6 2. Rozsavölgyi, Ungv. 3.42.0 3. Hermann Þýzkal. þýzkt met 3.42,6 4. Lewandowski, Pólland pólskt met 3.45,0 5. Okorokoff, Sovét. rússneskt met 3.45,6 6. Rintzenhein Þýzkal. 3.46,4 Spjótkast karla: Meðal keppenda í þessari grein var Evrópumeistari Sidlo. Sidlo hefur ferðazt og keppt víðsvegar um heim í sumar, og aldrei tapað í keppni. Hafa all- ir hans vinningsárangrar verið frá 77 m — 80 m. Hann vann einnig þessa keppni auðveldlega og voru öll hans köst yfir 77 m; eitt var ógilt (það lengsta). Úrslit: 1. Sidlo, Póll. 77,93 m 2. Gorszkoff, Sovét. 75.02 — 3. Kuzniekoff, Sovét. 72,08 — 4. Walczak, Póll. 70,69 — 400 m hlaup kvenna:- I þessu hlaupi setti þýzka stúlkan Donath nýtt heimsmet. Otkalenko frá Sovét hafði for- ustuna 300 m af hlaupinu en varð þá að láta í minni pokann fyrir Donath sem geystist fi'am og sigraði að því er virtist, létt og auðveldlega. Úrslit: 1. Donath Þyzkal. heimsm. 54,4 2. Otkalenko, Sovét 55,5 3. Sicoe, Rúmeníu 56,0 4. Solopova Sovét. 57,1 Maraþonhlaup: Eftir að hlaupararnir höfðu yfirgefið völlinn fóru að berast fréttir af þeim. Filin frá Sovét hafði tekið forustuna og 5 km voru hlaupnir á 17 mín. Eftir 10 km var Japani kominn i fyrsta sæti og síðan Pólv. Aft- ur koma fréttir eftir 15 km, þá voru tveir Japanir í fremsta sæti og síðan tveir Pólverjar. Eftir 20 km ér Filin aftur kom- inn í fyrsta sæti, tími 1.20.15. Síðan berast engar fréttir meir, enginn veit neitt fyrr en tveir Rússar koma skokkandi inn á völlinn langt á undan öllum öðrum og fara sér í engu óðs- lega. Þeir hlaupa rólega, sam- hliða siðustu 400 metrana og koma alveg hnífjafnir í mark. Auðsjáanlega hafa þeir samið um þetta sín á milli. Úrslit: 1. Filin, Sovét 2:28:41.8 klst. 2. Griszaéff Sovét 2:28:42.0 — 3. Pechanek Tékk. 2:34:19.2 — 4. Meyer, Þýzkal. 2:35:41.0 — 5000 m hlaup: Þetta var greinin sem allir biðu eftir með mikilli eftirvænt- ingu. Enda ekki furða þar sem hér voru samankomnir flestir beztu hlauparar álfunnar, þ. á. m. Zatopek, Iharos, Kovacs, Ullsberger, Zsabo o.fl. Persónu- lega hélt sá, er þetta skrifar að Iharos mundi sigra og lík- lega setja heimsmet! I upphafi hlaupsins tók Chromik forust- una með Iharos í öðru sæti. Var Chromik í fararbroddi fyrstu 1000 metrana sem hlaupnir voru á 2.46.0. Þá er Pólverjinn Krzyszkowiak í öðru sæti. Eftir fjóra hringi fór Zato- pek að láta á sér bæra og hljóp rram úr, hélt forustunni næstu tvo hringi ,en dróst síð- an aftur úr. Enn tekur Chromik forust- una og er fyrstur tvo næstu hringi. 3 km hlaupnir á 8.30.0 (tími Kúts í Bern 8.23.0). Nú tekur Kovacs „litli" við og hleypur í fyrsta sæti næstu tvo hringi. Pólv. Krzyszkowiak hafði dregizt aftur úr, sömuleiðis Zatopek. Hlaupa þeir nú nokk- uð á undan í hóp Chromik, I- Zybina sigurvegari í kúluvarpi haros og Kovacs. Skömmu síð- ar bættist þriðji Ungverjinn í hópinn, var það Zsabó. Þegar einn hringur var eftir er röðin Chromik, Iharos, Ko- vacs og Zsabo. Hlaupið er mjög hratt, og þegar 200 m eru eftir ætlar Iharos að fara framúr en Chromik var ekki alveg á því að gefa sig, tekur glæsilegan endasprett og kemst í mark á nýju pólsku meti og glæsilegum tíma. Iharos varð að láta sér nægja annað sæti, en hann er Þriðjudagur 6. september 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (& Pólverjinn Chromik kemur að marki sem sigur- vegari í 5000 metra hlaupinu; SancLor Iharos, Ungverjalandi, er 4-5 metrum á eftir honum. skarpvaxinn náungi, hár og myndarlegur og hefur alveg af- burða fallegt hlaupalag. Á meðan á síðasta hringnum stóð voru lætin og hávaðinn óskapleg. Áhorfendur sem flest- ir voru Pólverjar, og ákaft hvöttu Chromik, öskruðu og kölluðu sem vitlausir væru. Eft- ir að hlaupinu var lokið og vit- að var um hina glæsilegu tíma hlauparanna stóðu flestir áhorf endur upp þ.e.a.s. Pólverjar og sungu í kór ,,lengi lifi Chromik“ Tíminn í hlaupinu var alveg sérlega góður, og líklega hefur aldrei verið hlaupið glæsilegra 5000 m hlaup í heiminum. Úrslit. 1. Chromik Pólland 13.55.2 pólskt met. 2. S. Iharos Ungverjalar.5. 13.56.6, ungverskt inet. 3. Kovacs Ungverjal. 13.57.6 4. Zsabo Ungverjal. 14.00.6 5. Krzyszkowiak Póll. 14.05.5 6. Zatopek Tékk. 14.11.4. 4X400 m boðhlaup. Pólverjar voru fyrstir þrií. fyrstu sprettina eftir tvo sprettí voru þeir komnir nokkuð langí: á undan en á þriðja spretti dnS Lituéff, sem hljóp fyrir Rúss*. nokkuð á, og þegar síðasti Framhald á 11. síðu. KSL vann Fram 3:0 Á sunnudaginn fór 13. leik- ur Islandsmótsins fram hér á íþróttavellinum. Skilyrði til knattspymuleiks voru slæm, rok, rigning og rennblautur völlur. Bar leikurinn nokkur einkenni af þessum aðstæðum, og þó brá við og við fyrir á- gætum tilraunum hjá báðum liðum. Fram lék móti rokinu í fyrri hálfleik, og náði þá mun betri leik en undan veðrinu. Tvö af þessum þremur mörk- um sem KR-ingar settu voru fyrir niistök eða réttara sagt, það fyrra éftir misheppnáð út- spark markmanns, en hitt vegna bleytu knattarins sem; markmaður missti inn. Þetta var reynsla fyrir þennan unga og efnilega markmann. Nú veit hann að öruggara er að koma knettinum út til hliðanna. Eins þegar knöttur kemur þungur og blautur, svo að teygja verð- ur úr sér til að hafa hendur á honum, þá er vissara að slá hann burt fremur en grípa. Síðari hálfleikur KR var oft sterkur og héldu þeir oft uppi mikilli sókn og það mun meiri en Fram gerði. Það var því engin tilvil jun að KR vann. Þeir höfðu yfirleitt yfirhöndina í leiknum. Þó tókst þeim ekki að skapa sér opin tækifæri og það þó þeir hefðu vindinn með sér en þá kom til hraði Fram- ara sem truflaði mjög lokaá- tökin upp við markið, sem sé skotin. Baráttuvilji Framliðsins er mjög vaxandi, og hinir ungú. menn þar virðast flytja hann með sér, en það er sannarlega að verða stór hópur, og ef a<$ líkum lætur ætti Frám að eiga ungt og frískt lið eftir 1—2 ár„ Þó var það svo að í þessurn ieik mæddi mest á HauJci Bjarnasyni og Hilmari Ólafr- syni. KR liðið var. svipaS og venjulega, allt reyndir og gamalvanir leikmenn sem í þessum nokkurskonar úrslita- leik Islandsmótsins léku öruggti og hættu engu. Aftasta vöra þeirra með Hreiðar sem bez:a mann var traust og framverðif virkir. Gunnar Guðmannsson og Þorbjörn voru beztu mer.a framlínunnar. Þorlákur Þórðarson var dórq- ari, og dæmdi vel. Áhorfendur voru fáir endas veður slæmt. Nú eru tveir leikir eftir og fer annar þeirra fram á sunn :- dag. Er hann milli KR og Þróttar. Eftir frammistöðui Þróttar í mótinu eru litlar lík- ur til að KR geri jafntefli eöa tapi í þeim leik, svo gera ma ráð fyrir að KR verði örugg- lega íslandsmeistari 1955. Síð- asti leikur mótsins er milli Vai3 og Víkings. |

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.