Þjóðviljinn - 14.09.1955, Síða 5
Miðvikudagur 14. september 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (5
Likur á ferðamannastraumi
milli USA og Sovétríkjanna
Sovézka ferSaskrifstofan Intúrist hyggst
opna útibú i Bandaríkjunum
Sovézka ferðastofan Intúrist hefur í hyggju aö koma
upp útibúum í Bandaríkjunum til að leiðbeina sovézkum
ferðamönnum þar og auövelda Bandaríkjamönnum ferða-
iög til Sovétríkjanna.
Einn af aðstoðarutanríkisráð-
herrum Sovétríkjanna, Valerin
Zorin, skýrði bandarískum
þingmanni frá þessu í Moskva
um daginn og forstjóri Intúrist,
Vladimir Ankúdinoff, staðfesti
þétta nokkrum dögum síðar i
viðtali við fréttaritára New
York Times í Moskva.
Tugþúsundir sovézkra ferða-
manna til Bandarikjanna.
Ankúdinoff sagði að Intúrist
hefði mikinn áhuga á samvinnu
við bandarískar ferðskrifstofur
um skipti á ferðamönnum. In-
túrist myndi setja upp útibú í
New York og myndi það hafa
náið samband við ferðaskrif-
stofur í öðrum borgum Banda-
ríkjanna.
„Við getum sent tugþúsundir
ferðamanna til Bandardkjanna
og æslcjum eftir stórfelldum
skiptum á ferðamönnum við
Bandaríkin, svo fremi sem hægt
verður að samræma ferðakostn-
aðinn hér og í Bandaríkjunum".
Ferðalög Bandaríkjanna í Sov-
étríkjunum undirbúin.
Intúrist er nú að ganga frá
ferðaáætlun fyrir bandaríska
ferðamenn í Sovétríkjunum.
Verðið er mismunandi, en gert
er ráð fyrir að það verði 10—
30 dollarar á dag og er þá allt
innifalið, fæði, gisting, ferðalög,
þ. á. m. allt að 1000 km í jám-
brautum.
Bandaríkjamenn langar austur.
I frétt frá New York segir,
að skoðanakönnun sem Gallup
stofnunin hefur gert hafi leitt
ljós, að þriðji hver Banda-
ríkjamaður vilji ferðast til Sov-
étríkjanna. Ahuginn á slíkum
ferðum var mestur meðal fólks
sem hlotið hefur æðri menntun.
Franskir ferðamenn í
Sovétríkjunum.
Fyrsti hópur franskra ferða-
manna sem nokkru sinni hefur
komið .til Sovétríkjanna kom til
Framhald á 10. síðr
Á þessarí mynd sést „heílabörkur“ pafeindaheilans sem
settur var upp í Cambridge nýlega, þ. e. stjórnklefinn. Á
veggnum til vinstrí eru stöSvar þœr sem gefa öðrum stöðv-
um heilans fyrirmæli um livað þœr eigi að gera og bak
við vegginn til hægrí eru sjálfar starfsstöðvarnar.
Sólin ljósmynduð þriðju
a mínútu í rúmt ár
Rannsóknir jarðeðlisfræðiársins munu auð-
velda veðurspár langt f ram í tímann
Vísindamenn frá mörgum löndum heims eru nú stadd-
ir í Brussel á fundi nefndar þeirrar sem annast undirbún-
ing undir hið svonefnda 3. jarðeðlisfræðilega ár. Þeir
munu ganga endanlega frá undirbúningi þeirra athug-
ana sem gerðar verða um allan heim frá miöju ári 1957
til ársloka 1958.
Jarðeðlisfræðin er margþaett
vísindagrein, hún nær yfir veð-
urfræði, loftsteina, segulmagn
jarðar, geimgeisla, jarðskjálfta,
norðurljós o. s. frv. Athuganir
verða ekki einungis gerðar á
landi, heldur einnig á skipum
Ný stórfelld vændis-
Við þau eru riðnar margar eiginkonur
háttsettra og virðulegra borgara
ítalska siðferðislögreglan hefur komiö upp um ný vænd-
ishneyksli, sem eiginkonur virðulegra borgara eru við-
riönar.
Fréttaritari bandarisku frétta-
stofunnar UP í Róm ségir að
ítalska lögreglan hafi engar á-
hyggjur út af þeim 700 vændis-
húsum í landinu eða þeim 30.000
vændiskonum, sem eru skrásett-
ar hjá henni og hún á auðvelt
með að fylgjast með.
Það er önnur tegund af vændi
sem lögreglan reynir að koma í
veg fyrir. Þær konur sem það
stunda eru hvergi á skrám lög-
reglunnar, enda eru þær oft eig-
inkonur virðulegra borga, sem
aðeins brégða út á ólifnaðar-
bráutina við og við til að afla sér
skotsilíurs.
Venjan er sú að þær leggja
til mynd af sér og láta uppi síma-
númer sitt við miðlara sem koma
þeim áleiðis til hugsanlegra við-
skiptavina. Oft er það svo að
viðskiptavinurinn verður að bíða
mánuðum saman eftir að sú sem
hann velur sér er við látin.
Lögreglan í Torino gerði ný-
Iéga húsleit hjá einum slíkum
mlðlara og fann þar myndir af
30 kónum ásamt »{manúmerum
þeirra. í ljós kom að 27 þeirra
voru giftar, flestar virðulegum
borgurum, m. a. læknum, lög-
mönnum og háskólaprófessorum.
sem sigla munu á ákveðnum
leiðum. Komið verður upp rann-
sóknarstöðum víða í óbyggðum,
t. d. Suðurheimskautslandinu.
Öruggar veðurspár viku fram
í Umann
Einkum verður lÖgð áherzla á
athuganir á sólinni. Ráðgert er
að hafa hana í stöðugri athugun
allan tíma jarðeðlisfræðiársins,
eða í hálftannað ár. Mynd verður
tekin af sólinni þriðju hverju
mínútu allan tímann. Þessar at-
huganir munu á hverjum sólar-
hring hefjast í Japan.
Tilgangurinn með þessum at-
hugunum, segir egypzki vísinda-
maðurinn A. H. M. Samaha, er
sá, að reyna að komast sem
bezt að raun um hvaða áhrif
sólin hefur á veðráttu á jörð-
inni. Takist það, ættu veður-
fræðingar að geta spáð með
vissu um veðrið eitthvað fram
í tímann, a. m. k. eina viku.
Á þessari mynd sést örlítill hluti af heilastöðvum raf-
eindaheilans í Cambridge, sem sagður er 25 sinnum „vitr-
arí“ en bandaríski rafeindaheilinn Eniac, sem nýlega
var sagt frá hér í blaðinu.
Beriemdcshellmn
Ein merk&sta uppgötvun
síðari ára er rafeindaheiiinn,
sem leyst getur hiu flóknustu
reikningsdæmi á margfalt
fangsefnum, sem mannleguns
heila er ofríða að leysa. Stoð»
ugar endurbætur hafa ve.iífi
gerðar á rafeindaheilunum, þé>
útlaga kominn heim
Hvetur alía aSra pólska útlaga til oð
hverfa aftur heim til atthaganna
skemmri tíma en færustu stærð-! að sennilega komi aldrei aði
fræðingar og reyndar ráðið því að hann jafnist á við hc\l&
fram Ar margvísle^um við- | mannsins að öllu leytí. Þó telja
1 sumir vísindameiin það ullaft
ekki óhugsa'nlégt. Reiknað hef»
itr verið út að rafeindahoiK
sem nálgaðist það að jafnasfc
á við mannsheilann myndi varla,
komast fyrir í eimu stærf.tm
járnbrautarstöð heims, Central*
stöðinni í New York, en suinla0
hinna nýjustu rafe'mdaheila t m
heldur engin smásmíði.
Forsætisráðherrann í pólsku útlagastjóminni í Lond-
on, Hugon Hanke, er nú kominn heim til Póllands og
hefur skorað á alla landflótta Pólverja aö fara aö sínu
dæixii.
Frá þessu var sagt í Varsjár-
útvarpinu á laugardaginn.
Hanke ságði við heimkomuna, að
hann heíði reynt að telja féíága
sína í útlagastjóminni á að
kóma með sér heim til Póllands,
én hann hefði ekki getáð ferfgið
meirihluta stjómarinnar til að
fallast á það, bó að sumir ráð-
herranna hefðu ekki verið ófús-
ir til þess.
Hanke skýrði einnig frá því,
að ástæðan til þess að hann tók
þessa ákvörðun, hefði verið sú,
að pólska stjómin hefði látið
það boð út ganga, að öllum Pól-
verjum sem flyttust heim úr út-
legð myndu verða gefnar upp
allar sakir, sem þeir kynnu að
hafa á samvizkunni.
Stjórnir alþýðuríkjanna í
Austur-Evrópu hafa á undan-
förnum mánuðum hvað eftir
annað hvatt útlaga þaðan til að
hverfa aftur heim til átthaganna
og taka þátt í uppbyggingarstarf
inu. Þeim hafa verið gefnar upp
sakir og lofað, að þeír myndu
fá næg störf við sitt hæfi. Marg-
ir hafa tékið þessum boðum, en
Hanke er hæstsetti útlaginn
sem hingað til hefur gert það.
í New York hefur verið ko.n-
ið á fót sérstakri deild innan.
lögreglunnar sem á að hafa þaS
verkefni að berjast gegn vænd£
sem fer stöðugt vaxandi í borg-
inni og reyna að komast fyr-
ir um hvort nokkur hæfa er i_
orðrómi um að lögregluþjójvw
Framhald á 10. eiöiB