Þjóðviljinn - 25.09.1955, Page 3
Suxmudagur 25. september 1055 — ÞJÓÐVTLJINN — (3
Funái samgöngumálanefndarinnaj lokið
Nefndin taldi sér „ekki heimilt.... nu’
ai ræða loftferðadeiluna við Svía
Annar fundur ákveðinn í Siokkhólmi í nóv.
Fundi norrænu nefndarinnar um bættar samgöngur milli ís-
lands og Skandínavíu lauk 'í fyrrakvöld eftir tveggja daga við-
ræður. Nefndarmenn samþykktu að safnað skyldi margvísleg-
um upplýsingum varðandi samgöngur milli Islands og Norður-
landa.
Ivoftferðadeíla Islendinga og Svía var hinsvegar ekld rædd þar
sem nefndin taldi „ekki heimilt að taka málið tíl umræðu nú,
þar eð bíða yrði árangurs af samningaumleitunum ríkisstjóraa
Happdrættisíbúð DAS
beggjia landa“.
Áður hefur verið sagt hverj-
ir voru fulltrúar á fundi þess-
um. Magnús Jónsson var kos-
inn forseti fundarins og ákveð-
ið var að norski ritarinn ann-
aðist samningu fundargerðar
nefndarinnar. Nefndin sam-
þykkti að skýra sjálfa sig: „Is-
lenzk-skandinaviska samgöngu-
málanefndin".
Þjóðviljamun barst í gær eft-
irfarandi skýrsla um störf
nefndarinnar:
Vlðfangsefni nefndarinnar
Raeitt var um viðfangsefni
nefndarinnar og var stuðzt við
fulltrúatillögu, mál nr. 22 á
3. fundi Norðurlandaráðs, álit
efnahagsnefndar ráðsins í mál-
inu og. meðmæli nr. 7/1955.
Samkomulag varð um að taka
eftirgreind atriði til meðferð-
ar: 1. ’Aukin fræðslustarfsemi
fyrir ferðamenn. 2. Fjárhags-
legar forsendur ferðalaga til Is-
lands. a) Fargjöld til og frá
Islandi. b) Dvalar- og ferða-
kostnaður á Islandi. c) Ástand-
ið í gistihúsamálum. d) Tolla-,
gjaldeyris- og vegabréfamál.
3. Samgöngur með skipum og
flugvélum. 4. Möguleikar á
auknum viðskiptum milli Is-
lands og hinna Norðurland-
anna.
Magnús Jónsson gerði fyrir
hönd íslenzku fulltrúanna grein
fyrir þvi hversu ríka áherzlu
Islendingar legðu á málið varð-
Ókeypis dvöl í
Bandáríkjunum
. Dagblaðið New York Herald
Tribune hefur ritað ráðuneyt-
inu og tjáð því, að á vegum
þess. verði efnt til alþjóðlegs
kynningarmóts skólafólks í
New York frá 26. des. nk. til
1. apríl 1956.
Er svo ráð fyrir gert, að
þátttakendur verði valdir með
ritgerðarsamkeppni. Ritgerðar-
efnið er: „Veröldin eins og við
viljum að hún sé“. Lengd rit-
gerðarinnar sé um 1500 orð.
Frá Islandi verður valinn
einn nemandi úr hópi þátttak-
enda i ritgerðarsamkeppninni.
Öllum framhaldsskólanem-
endum, sem fæddir eru hér á
landi, eru islenzkir ríkisborg-
arar, hafa sæmilega þekkingu
á enskri tungu og orðnir eru
fullra 16 ára fyrir 1. janúar
1956 og eigi eldri en 19 ára
þann 30. júní 1956, er frjálst
að taka þátt í ritgerðarsam-
keppninni.
Ritgerðirnar eiga að vera á
ensku og skulu hafa borizt
ráðuneytinu fyrir 20. okt. (Frá
menntamálaráðuneytinu).
andi loftflutningasamning Is-
lands og Svíþjóðar, og benti á,
að nefndin gæti ekki komizt
hjá að fjalla um það mál, ef
samningaumleitanir milli land-
anna bæru ekki fullnægjandi
árangur. Aðrir nefndaxmenn
létu i ljós ósk um að deilan
yrði leyst á þann veg að báðir
aðilar mættu vel við una. Sam-
kvæmt meðferð málsins í Norð-
urlandaráði taldi nefndin sér þó
ekki heimilt að taka málið til
umræðu nú, þar eð bíða yrði
árangurs af samningaumleitun-
um ríkisstjóma beggja landa.
Greinargerð um ferðamál
á Islandi
Samkvæmt beiðni nefndar-
manna gaf ungfrú Ragna
Samúelsson frá Ferðaskrifstofu
ríkisins ýmsar upplýsingar og
svaraði spumingum um land-
kynningu af íslands hálfu fyr-
ir ferðamenn, möguleika fyrir
ferðalögum, ferðakostnað og
um ástandið í gistihúsamálum
á Islandi. Nefndarmönnum
voru afhentir bæklingar Ferða-
skrifstofunnar.
Auldn fræðslustarfsemi
fyrir ferðamenn
Menn voru sammála um að
fyrsta Skilyrði þess að ræða
aukna fræðslustarfsemi varð-
andi ferðir til Islands og ferða-
lög þar, væri að afla yfirlits
um hveraig fræðslustarfseminni
væri nú hagað. Islenzku nefnd-
armennimir tóku að sér að út-
vega greinargerð um málið.
Menn vom einnig sammála um
að af hálfu hinna landanna
skyldi gert yfirlit um, hvemig
fræðslustarfsemi um ferðir til
íslands væri hagað hjá hverju
landi um sig svo og hvernig!
starfsemi ferðamálafélaga og
fræðslustarfsemi fyrir ferða-
menn væri hagað í Danmörku,
Noregi og Svíþjóð. Efni það
sem útvegað yrði frá hverju
landi, skyldi sent nefndarmönn-
um hinna landanna beint.
Fjárhagslegar forsendur
ferðalaga
Islenzku nefndarmennimir
tóku að sér að semja greinar-
gerð um ferðakostnað til og
frá Islandi, dvalar- og ferða-
kostnað á íslandi, ástandið i
gistihúsamálum og atriði varð-
andi tolla, ferðamannagjald-
eyri og vegabréf.
Saingöngur með skipum
og flugvélum
Látin var í ljós ósk um að
gerður yrði viðauki við grein-
argerð þá sem fyrir hendi er,
um samgöngumar milli íslands
og hinna Norðurlandanna
(fylgiskjal með fulltrúatölu,
mál. nr. 22 á 3. fundi Norður-
landaráðs), þannig að sundur-
liðað yrði hve mikið vörumagn
og farþegafjöldi varðaði sam-
göngurnar milli Islands og
hinna Norðurlandanna ein-
göngu, þegar fyrirliggjandi
hagskýrslur næðu einnig til
annarra flutninga, og sömu-
leiðis að veitt verði nánari
vitneskja um þjóðerni farþega.
Af hálfu Islands var lofað
að útvega umbeðnar upplýsing-
ar, eftir þvi sem unnt væri.
Nefndin ræddi nýtingu flutn-
ingatækja og samkeppnisað-
stöðu á skipaleiðum sem nú em
og betri hagnýtingu núverandi
áætlunarferða m.a. með því að
hafa fastar viðkomur í Vest-
ur-Noregi. Islenzku nefndar-
mennirnir tóku að sér að út-
vega nánari vitneskju um
gjöld fyrir vöm- og farþega-
flutninga á hinum ýmsu leið-
um, svo og um gjaldeyrisákvæði
og áhrif þeirra á farþega- og
vömflutninga.
Vakið var máls á því, hvort
skip er kæmu við í íslenzkum
höfnum til þess að taka elds-
neyti, þyrftu að greiða hafnar-
gjöld á sama hátt og þegar
um fermingu skipa og afferm-
ingu er að ræða, en þetta skipti
m.a. máli í sambandi við hring-
ferðir. Islenzku nefndarmenn-
imir lofuðu að rannsaka þetta
atriði nánar.
Þá vom nefndarmenn sam-
mála um að útvega vitneskju
um álit hlutaðeigandi félaga á
skipaleiðuni þeim sem nú em
og hugsanleg ný áform í því
sambandi. Dönsku,. íslenzku og
norsku nefndarmennirnir tóku
að sér að ræða málið við hlut-
aðeigandi félög.
Möguleikar á auknum
verzlunarviðskiptum
Nefndin samþykkti að af
hálfu hvers lands um sig skyldi
samin skýrsla um verzlunar-
viðskiptin milli Islands og hlut-
aðeigandi lands, og skyldi þar
sérstaklega gerð grein fyrir
þeim „tilbúnu" tálmunum (inn-
flutningshöftum og gjaldeyri)
sem fyrir hendi kjrnnu að vera.
Næsti fundur
Ákveðið var að nefndin kæmi
næst saman til fundar í Stokk-
hólmi dagana 17. og 18. nóv.
1955, og að reynt skyldi að
senda gögn þau er að framan
greinir svo tímanlega að allir
nefndarmenn gætu kynnt sér
þau áður en fundur hefst“.
Seinni íbúð Dvalarheimilis
aldraðra sjómanna í Hamrahlíð
21 verður til sýnis um þessa
helgi, í dag sunnudag frá kl.
2—6, en íbúð þessi er vinn-
ingur í yfirstandandi flokki og
verður útdregin 3. okt. n.k.
íbúðin er 83 ferm. að stærð,
3 herbergi og eldhús, smekklega
máluð og vel vönduð að öllu
leyti.
í eldhúsi er stálvaskur, Rafha-
eldavél og mikið af skápum
og innbyggðir skápar eru í
svefnherbergi og andyri. Stof-
an er mjög rúmgóð með stórum
glugga og svölum er snúa í
vestur. Auk þess er barnaher-
bergi og bað.
íbúðinni fylgir geymsla og
geymsluskápur í kjallara, eign-
arhlutdeild i ketilhúsi, barna-
vagnageymslu, þvottahúsi og
fíjótvirkri þvottavél, þurrkher-
bergi og þurrkara.
íbúðin er teitonuð af Sigvalda
Thordarsyni og byggð af Hom-
steini s/f.
Þá hefur Happdrætti DA.S.
fengið úthlutað 4 lóðum fyrir
einbýlishús (raðhús) í Ásgarðl
2, 4, 6 og 8 í Bústaðahverfi og
er þegar byrjað á framkvæmd-
um við tvö fyrstu húsin.
Bandariskir sérfræðingar i
heildsölu og vörugeymslu
Hinn 2. okt. n.k. eru væntanlegir til Reykjavíkur á
vegum Iðnáöannálastofnunar íslands fjórir sérfræðingar
í heildverzlun og vörugeymslu.
Sérfræðingar þessir starfa herzla á að fá frá Framleiðni-
hjá Framleiðniráði Evrópu.
Sérf ræðingarnir munu starf a
hér á landi í tvær vikur- með
eftirfarandi samtökum:
Félagi íslenzkra iðnrekenda,
Húsameistarafélagi íslands,
Sambandi íslenzkra samvinnu-
félaga, Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna, Verkfræðingafélagi ís-
lands, Verzlunarmannafélagi
Reykjavíkur, Verzlunarráði ís-
lands f.h. Félags byggingarefna-
kaupmanna og Félags íslenzkra
stórkaupmanna, og Vinnuveit-
endasambandi fslands f.h. skipa-
félaganna.
Heimsókn sérfræðinganna er
einn þáttur í aukinni hagnýt-
ingu okkar íslendinga á þeirri
þjónustu, sem Framleiðniráð
lætur aðildarríkjum Efnahags-
samvinnustofnunar Evrópu í té.
Á þessu ári hefur verið lögð á-
Gömlu dansarnir í
1 kvöld klukkan 9.
Hljómsveit Svavars Gests
Sigurður Ólafsson syngur með hljómsveitinni
Á skemmtuninni verður spilað B I N G Ö
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 8
Hljómsveit leikur frá kl. 3.30—5
ráði . sérfræðinga í verzlunar-
málum. Hafa sex slíkir sérfræð-
ingar dvalizt hér á landi.
Sérfræðingahópurinn i heild-
verzlun og vörugeymslu, sem er
væntanlegur í byrjun október
eins og áður er getið, er hinn
síðasti, sem koma mun til ís-
lands á þessu ári á vegum
IMSÍ.
Meðan sérfræðingamir dvelj-
ast hér munu þeir halda tvö
námskeið. En námskeið þessi
eru fyrst og fremst ætluð þeim,
sem fást við heildverzlun og
hafa með geymslu að gera,,
byggingu og skipulagningu vöru-
geymsluhúsa.
Þátttökugjald hefur verið á-
kveðið kr. 10.00 fyrir hvern
fyrirlestur. Þeir, sem hugsa sér
að taka þátt í nárriskeiðunum
og teljast til framangreindra
samtaka, geta snúið sér beint
til skrifstofu þeirra og tilkynnt
þátttöku. Aðbir er áhuga kynnu
að hafa fyrir þátttöku, geta snú-
ið sér til skrifstofu IMSÍ.
Áríðandi er að menn tilkynni
þátttöku sína fyrir þriðjudags-
kvöld 27. sept. n.k.
Um tilhögun að öðru leyti
má geta þess, að sérfræðingarn-
ir munu heimsækja heildverzl-
anir, vörugeymsluhús og fyrir-
tæki, sem óska eftir að ræða
við þá um einhver ákveðin
vandamal, og skal beiðnum
um slíkar heimsóknir vísað til
ofangreindra samtaka.