Þjóðviljinn - 04.10.1955, Síða 3
Þriðjudagur 4. október 1955 — ÞJÖÐVILJINN — (3
Erlendsr toprar gera mlkím usla á
Enium Austf jarSaláta
Kr ehfoert eftirlit á Austfjörðum?
Fréttaritari Þjóöviljans í Neskaupstaö símar a'ö báta-^
sjómenn eystra hafi í haust oröiö fyrir tilfinnanlegu veið- |
arfæratjóni af völdum erlendra togara og þykir sjómönn
um illt undir slíku aö búa.
Allmikið hefur verið róið frá
Neskaupstað í haust og afla-
brögð verið sæmileg. Sjómenn
segja þó ágang erlendra togara
mikinn á fiskimiðum bátanna.
Hafa erlendir togarar oft tek-
ið af veiðafærum frá bátunum
og hrakið þá af fiskimiðuixum.
Er mikil og almenn óánægja.
meðal sjómanna út af þessu.
Barnaskélum lokað í Reykjavík
Framhald af 1. síðu.
gert ráðstafanir til að tryggja
sjúklingum sjúkrahúsvist og við-
eigandi læknishjálp og hjúkrun,
ef svo skyldi fara að faraldur-
inn breiddist út.
Þegar mænusótt er á ferðinni
taka sýkina roiklu fleiri en
verða þess varir eða lamast.
Smithætta stafar því ekki ein-
göngu af sjúklingum, heldur
einnig af fjölmörgum öðrum,
þótt þeir hafi engin einkenni
sjúkdómsins.
Þótt talið sé, að smit berist
oftast frá manni til manns við
beina snertingu, mun það einn-
ig geta borizt með dauðum hlut-
um, svo sem mat og borðbún-
aði, ef ekki er gætt fyllsta
hreinlætis við matreiðslu og
framreiðslu.
Reynslan sýnir, að mikil lík-
amsáreynsla, vökur og kæling
veldur því stundum, að lam-
anir verða meiri en ella.
Ástæða þykir til að beina til
almennings eftirfarandi ráðlegg-
ingum:
1. Þvoið yður oft um hend-
ur, einkurn á undan mál-
tíðum og er þér hafið not-
að salerni.
2. Gætið þess, að flugur ó-
hreinki ekki matvæli, og
þvoið mat, sem ekki verð-
ur soðinn, svo sem græn-
meti og ávvexti.
3. Forðist nána snertingu við
fjölskyldumeðlimi mænu-
sóttarsjúklings fyrstu þrjár
vikurnar eftir að hann
veikist (handaband, sam-
eiginlegan borðbúnað og
handþurrkur).
4. Gætið varúðar við hvern
þann sjúkdóm, sein sótthiti
TIL
LIGGUR LEIÐIN
fylgir, og gerið lækni þeg-
ar viðvart. Meðan á maenu-
sóttarfaraldri stendur er
ráðlcgt að láta alla slíka
sjúklinga vera í rúminu í
vikutíma og forðast á-
reynslu.
5. forðizt mikla líkamlega
áreynslu, kuida og vvosbúð,
einkum ef þér kennið ein-
hvers lasleika.
6. Rétt er að ferðast ekki að
nauðsynjalausu tii eða frá
stað, þar sem mænusóttar-
faraldur gengur.
7. Börnum og unglingum er
ráðlagt að sækja ekki
skemmtanir eða aðramann-
fundi, þar með taldir opin-
berir staðír.
Því er bíóum
ekki lokað?
Full þörf virðist á þvi að
banna bíósýningar og dans-
skemmtanir vegna mænuveiki-
liættunnar ekki síður en loka
skólum. Verði bíóin opin, eru
líkindi til að skólafóikið sæki
þau jafnvel meira en venju-
lega, þegar skólunum er af því
létt.
Kópavogur
Framhald af 1. síðu.
þess hafði fólkið í Kópavogi
ekkert nema samheldni sína
og staðfastan ásetning um
að láta ekki kúga sig. Og
samstarf og samheldni fólks-
ins er stóð að G-listanum
brást ekld. Þar stóðu falið sögu
rfð hlið sósíalistar, Þjóðvam-
armenn, vinstri Framsókn-
armenn og vinstri Alþýðu-
fiokksmenn.
Kosningu lauk ekki í Kópa-
vogi fyrr en nokkru eftir kl.
1 e.m.n. og talningu atkvæða
var ekki lokið fyrr en um kl.
hálffjögur.
Mikiil mannfjöldi beið kosn-
ingaúrslitanna á kjörstað og
þegar þau voru tilkynnt gullu
við fagnaðaróp, Finnbogi Bút-
ur, efsti maður G-listans var
ákaft hylltur. í fögnuði sínum
yfir sigrinum sungu menn ætt-
jarðarsöngva.
Samheldni fólksins í Kópa-
vogi og sigur þess mun verða
aiþýðunni hvarvetna á landinu
hvatning og lýsandi fordæmi.
Þing Æskulýðs-
fylkingarmnar
v kJ
Framhald af 12. síðu.
stjórnmálaviðhorfið í landinu
og samdi ávarp til íslenzkrar
æsku, og mun hvorttveggja
birtast hér í blaðinu einhvern
næstu daga.
Mikill og djarfur sóknarhug-
ur sósíalískrar æsku einkenndi
þingið.
Þingið sátu þrír ' fulltrúar
Sósíalistaflokksins, þeirra á
meðal Einar Olgeirsson for-
maður flokksins.
Merki nr. 69
fékk Morrisbifreið
í gær var dregið um aðal-
vinninginn í „merkjum berkla-
varnardagsins“, og kom upp
nr. 6ú. Eigandi þess merkis hef-
ur því hlotið 4ra manna Morris-
bifreið, er verður afhent nú þeg-
ar gegn framvísun merkisins.
Merk nýmæli írá 14. þingi Æ.F.:
Bezta ritverk ungs ritliöfundar
livert ár sé verðlaunað
Ungu listafólki verSi veitSir 5 ntynáar-
legir ferðastyrkir ár hvert
Meðal þeirra mála, sem 14. þing Æskulyösfylkingarinr.-
ar ræddi, voru kjör íslenzkra listamanna og skálda, eink-
um hinna yngri. Voru þingfulltrúar á einu máli um a<S
þeir byggju við óviðunandi kæruleysi af hálfu hins opin-
bera og .yrði úr því aö bæta.
Fyrir því samþykkti þingið og greiði þeim góð ritlaun fyr-
tvær áskoranir á þingmenn Só-
síalistaflokksins um að þeir
flyttu í frumvarpsformi tvö ný-
mæli sem æskilegt væri að
komið yrði á.
Fyrri samþykktin var þess
efnis að þingmennirnir bæru
fram á, Alþdngi frumvarp á þá
leið að bókaútgáfa Menningar-
sjóðs og Þjóðvinafélagsins efni
til árlegrar verðlaunaveitingar
til þess rithöfundar innan 35
ára aldurs sem birt hefur á
árinu bezt ritverk að dómi þar
til kjörinnar nefndar, hvort
heldur það er skáldverk eða
annars eðlis. í öðru lagi hefji
bókaútgáfan skipulega útgáfu
þeirra ritverka ungra innlenda
höfunda er til þess teljast hæf,
ír.
Hin samþykktin var á þá leið
að menntamálaráði verði falið
að úthluta árlega ferðastyrkj-
uiír til ungra rithöfunda, hlið-
stæðum venjulegum náms-
styrkjum, og sé miðað við að
styrkurinn geri þeim kleift að
ferðast til útlanda, skoða sig
þar um, kynnast fólki og við*
horfum.
Enn var samþykkt áskortm
á þingmennina að þeir flyttu
frumvarp á komandi þingi þess
efnis að 2 Færeyingum verði
árlega veittur styrkur til að
stunda nám við íslenzkatt
menntaskóla og öðrum tvein*
ur við Háskólann.
Sex ára afmmlis Kínversfoa áiþýðulýðveld-
isins miunzt á samfoomu KÍM í Tjarnarbíé
Kínversk-íslenzka menningarfélagið minntist sex ára
afmælis Alþýöulyöveldisins Kína með samkomu í Tjarnar-
bíói á sunnudag.
m
innincjarópj
ölcl
GLUGGAR h.f.
Skipholt 5. Sími 82287
Þar flutti Jakoh Benedikts
son, formaður KÍM, ávarp. Jó
hannes úr Kötlum flutti snjalla
og áhrifamikla frásögn úr Kína
för 1952, og sýndar voru kín
verskar kvikmyndir.
Ávarp Jakobs Benediktsson-
ar var á þessa leið:
Góðir áheyrendur, félags
menn og gestir.
Fyrir hönd KÍM leyfi ég mér
að bjóða ykkur velkomin til
þessarar samkomu. Félag okk
ar minnist þess í dag að í gær
voru liðin 6 ár síðan kínverska
alþýðulýðveldið var formlega
stofnað. Sex ár eru skammur
tími í sögu þjóðar, ekki sízt í
ævafornrar menningar-
þjóðar eins og þeirrar kín-
versku, og þó hefur á þessum
sex árum orðið meiri breyting
á högum kínversku þjóðarimi-
ar en ef til vill nokkru sinni
fyrr á jafnskömmum tíma.
Þegar stærsta þjóð heims
brýtur af sér hlekki lénsskipu-
lags og tekur stökkið beint
úr myrkri miðalda út í dags-
birtu nútímans, stofnar sósíal-
istískt þjóðfélag og tekur að
hagnýta auðæfi lands síns í
þágu almennings og með tækni
nútimans, — þá er það við-
burður sem kemur öllum heimi
við. Sú þjóð sem hér á hlut
að máli er ekki aðeins mann-
flesta þjóð í heimi heldur einn
ig ein elzta menningarþjóð ver-
aldar. Áhrif hennar á gang
mála hvarvetna í heimi munu
þvi verða æ afdrifaríkari eftir
þvi sem lengra líður og æ'ljós-
ara verður að Kínverjar ráða
fram úr vandamálum sínum
sjálfir án íhlutunar annarra.
Við höfum þegar séð þess
greinileg dæmi á umliðnu ári
og meira mun á eftir koma.
Það er þess vegna ekki út í
bláinn að KÍM hefur leitazt
við að gefa Islendingum kost
á því að fylgjast betur með í
þeim viðburðum sem gerast
austur þar. Þess gerist líka
þeim mun meiri þörf sem
stjórnarvöld okkar hafa enn
þrjóskazt við að viðurkenna
þær staðreyndir sem gerðust 6
Kína fyrir sex árum og taka
upp eðlilegt stjórnmálasambarvl
við Kínverska alþýðulýðveldið.
Um leið og við flyt.jum kía-
verska alþýðulýðveldinu beztiíE
árnaðaróskir á þessu afmæI8
megum við minnast þess að nú
er íslenzk fimm manna sentíí-
nefnd stödd í Peking og hefur,
flutt þaú heillaóskir íslenzkrtt
æskumanna, svo og kveðjor
Kínversk-íslenzka menningarfé*
lagsins.
Noiræn ljósmyndasýning í Stokkhólmi \
Þar verður sýnd 100 ára þroun 1
Þessa dagana stendur yfir norrænt ljósmyndaramót I
Stokkhólmi, og er þaö haldiö aö tilhlutan sænska ljós-
myndarasambandsins, og í tilefni af að 60 ár eru liöia
síöan atvinnuljósmyndarar stofnu'öu félagsskap þar i
landi.
Mótið stendur dagana 4. til
6. okt., og er hið mesta sem
sænskir ljósmyndarar hafa
efnt til. Á mót þetta hafa nor-
rænir ljósmyndarar fjölmennt
mjög, og eru þrír fulltrúar
Ljósmyndarafél. íslands mættir
þar, þeir Sigurður Guðmunds-
son form., sem er aðalfulltrúi
félagsins á mótinu, Sigurhans
Vignir, varaform. og Hannes
Pálsson form. menningarsjóðs
félagsins.
Allar helztu Ijósmyndastofur
Stokkhólmshorgar verða skoð-
aðar, og fyrirlestrar haldnir í
sambandi við það. Aðalviðburð-
nr hátíðahaldanna er Ijós-
myndasýning, sem hefur verið
komið fyrir í tæknisafninu. í
sambandi við sýninguna er
tæknisýning, sem sýnir 100 ára
þróun iðnarinnar í Svíþjóð.
Svíar hafa lengi verið álitnir
mjög góðir ljósmyndarar, og
er því ánægjulegt að íslenzkir
starfsbræður þeirra skuli fá'
þetta tækifæri til að kynns ifi
verkum þeirra og starfi.
Formaður sænska ljósmyr.í-
arasambandsins er einn kuna-
asti ljósmyndari Svía, K. W.
Gullers, og mun hann hafa,
haft mestan veg og vanda af
undirbúningi mótsins. — (Frá
Ljósmyndarafélagi Islands).
Filmur
Blöð
Tímarit
Frímrrki
SÖLUTURNINN
við Arnarhól